Fleiri fréttir

Gengi bréfa Century Aluminum féll um tæp 30 prósent

Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, féll um tæp þrjátíu prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er langmesta fallið á markaðnum í dag. Þá féll gengi bréfa í Alfesca um 8,57 prósent og Bakkavör um 0,54 prósent.

Sex góðar ástæður fyrir því að flytja til Íslands

Vefsíðan businessinsider,com hefur birt huggulega grein fyrir reiða og sára Bandaríkjamenn sem vilja flýja landið í fjármálakreppunni. Vefsíðan segir að sex góðar ástæður séu fyrir því að menn ættu að íhuga að flytja til Íslands.

Mál Hansa skýrast í næstu viku

Mál Hansa, eignarhaldsfélags West Ham í ensku úrvalsdeildinni, var tekið fyrir í héraðsdómi í dag. Ákveðið var að málflutningur í málinu verði á þriðjudaginn og er gert ráð fyrir því að niðurstaða í málinu liggi fyrir eigi síðar en næsta föstudag. Á meðan er greiðslustöðvun í gildi.

Sjóðsstjóri og miðlari ákærðir fyrir markaðsmisnotkun

Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, Daníel Þórðarson hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Þá hefur Stefnir Agnarsson, sem þá starfaði sem miðlari í skuldabréfamiðlun Kaupþings, einnig verið ákærður fyrir sama brot.

Glitnir nær samkomulagi um dótturfélagið í Lúxemborg

Skilanefnd Glitnis og Seðlabanki Lúxemborgar hafa undirritað samning um hvernig staðið skuli að uppgjöri skulda vegna dótturfélags Glitnis í Lúxemborg. Seðlabankinn í Lúxemborg er hluti af neti Seðlabanka Evrópu.

Makaskipti halda uppi fölsku verði á fasteignamarkaði

Makaskipti hafa færst verulega í aukanna en það er þegar fasteignir eru notaðar í skiptum fyrir hið keypta. Í slíkum viðskiptum er hinu eldra skipt upp í á yfirverði en þannig fæst hærra lán á hina keyptu eign.

Landsframleiðslan jókst um 0,3% í fyrra

Landsframleiðslan á árinu 2008 varð 1.465 milljarðar króna og jókst að raungildi um 0,3% frá fyrra ári. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 5,5% vaxtar á árinu 2007.

Novator gerir kröfu um breytingar á stjórn Amer Sports

Novator, í eigu Björgólfs Thor Björgólfssonar, hefur gert kröfu um að breytingar verði gerðar á stjórn íþróttaverslunnarkeðjunnar Amer Sports í Finnlandi. Hefur Novator farið fram á aukahluthafafund af þessum sökum.

Mosaic Fashions hf. óskar eftir gjaldþrotaskiptum

Mosaic Fashions hf. hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum hér á Íslandi og verður beiðni um það send til Héraðsdóms Reykjavíkur á næstu dögum að því er segir í tilkynningu.

Húsgögn Baugs boðin starfsmönnum til sölu

Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs, býður nú húsgögn af skrifstofum félagsins í London til sölu en þau eru metin á um 15.000 pund og eru mörg hver verk frægra húsgagnahönnuða.

Bréf lækka í Asíu

Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í verði í morgun í kjölfar lækkunar á Wall Street í gær en þar féllu bréf Citigroup-bankans svo langt niður að verðið á hlut fór niður fyrir einn dollara í fyrsta sinn í sögu bankans. Í Japan varð lækkunin einna mest hjá bílaframleiðandanum Honda, 5,3 prósent, enda dregst sala nýrra bíla nú saman um allan heim. Eins lækkuðu bréf Billington-námafyrirtækisins um tæp þrjú prósent.

Hlutabréf lækkuðu verulega á Wall Street

Töluverðar lækkanir urðu á Wall Street vegna ótta um stöðu stærstu banka Bandaríkjanna og vanda General Motors sem talinn er fara vaxandi. Dow Jones lækkaði um 4,09%, S&P 500 lækkaði um 4,25 og Nasdaq lækkaði um 4%. Lækkunin í dag étur upp þá hækkun sem varð á mörkuðum í gær.

Allir þurfa að færa fórnir fyrir bílaiðnaðinn

Allir sem hlut eiga að máli varðandi bílaiðnaðinn í Bandaríkjunum verða að færa fórnir til þess að þessi iðngrein geti náð fyrir styrk. Þetta sagði talsmaður Hvíta hússins í dag. „Allir hlutaðeigandi verða að gefa af sér til þess að nauðsynlegar endurbætur geti átt sér stað," sagði Robert Gibbs,

Með bónuskerfum fela stjórnendur fjármálafyrirtækja vátíðindi

Afkomutengd bónuskerfi geta orðið til þess að stjórnendur fjármálafyrirtækja reyni að fela slæmar fréttir, segir prófessor. Æðstu stjórnendur Kaupþings fengu tugi milljóna króna bónusgreiðslur í hittiðfyrra, fyrir hagnað, enda þótt þá hefði verið viðbúið að milljarða undirmálslán yrðu færð sem tap.

Seðlabankastjórastaðan auglýst

Þeir sem ganga með seðlabankastjórastöðuna eða stöðu aðstoðarseðlabankastjóra í maganum þurfa að fara að huga að umsókn því forsætisráðherra hefur, í samræmi við ný lög um

Stjórnarformaður Byrs lætur af störfum

Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnarformaður Byrs, hefur tilkynnt að hann sjái sig knúinn til að láta tímabundið af stjórnarstörfum fyrir sparisjóðinn fram að næsta aðalfundi hans. Við stjórnarformennsku Jóns Þorsteins tekur Jón Kristjánsson sem verið hefur varaformaður stjórnar Byrs.

Segir aðalfundi bankanna hugsanlega ólöglega

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í morgun að allir aðalfundir nýju ríkisbankanna, stjórnir þeirra og ráðstafanir kynnu að vera ógildar þar sem ekki hefði verið fylgt lögum um opinber hlutafélög.

Hagnaður bjórrisa dragast verulega saman

Bjórrisinn Anheuser-Bush Inbev hagnaðust um 62 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði sjö milljarða króna, á síðasta ársfjórðungi. Þetta er 95 prósenta samdráttur á milli ára.

Helgi endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins

Iðnþing Samtaka iðnaðarins stendur nú yfir á Grand hótel. Helgi Magnússon var í dag endurkjörinn formaður samtakanna með 92,42% greiddra atkvæða. Engir aðrir fengu atkvæði. Helgi verður því formaður Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2010.

Gengi Marel Food Systems hækkar um 1,3 prósent

Gengi hlutabréfa í Marel Food Systems hefur hækkað um 1,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgja bréf Færeyjabanka, sem hefur hækkað um 1,01, prósent, og bréf Bakkavarar, en gengi þeirra hefur hækkað um 0,53 prósent.

Asíubréf á uppleið

Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun og voru það bréf framleiðslu- og byggingarfyrirtækja sem hækkuðu mest. Bréf námufyrirtækisins Billington hækkuðu um tæplega fjögur og hálft prósent og bréf japanska bílaframleiðandans Mazda hækkuðu um 11 prósent eftir veikingu jensins en stór hluti Mazda-bíla er fluttur úr landi og seldur á erlendum mörkuðum.

Afskrifuðu ekki tugmilljarða tap

Stjórn gamla Kaupþings fegraði stöðu bankans með því að afskrifa ekki tug milljarða tap vegna skuldabréfa. Lögmenn segja almenning sem fjárfesti í bankanum hafa verið blekktan en því hafnar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.

Ari Edwald: Sala á Senu ekki í uppnámi

Ari Edwald, stjórnarformaður Íslenskrar afþreyingar, segir það af og frá að salan á Senu sé í uppnámi vegna 750 milljóna króna kröfu 365 miðla á hendur Senu. Hann segir kröfuna ekki koma Senu við.

Salan á Senu í uppnámi vegna 750 milljóna skuldar

Sala Íslenskrar afþreyingar á Senu til Garðarshólma sem tilkynnt var um í dag fyrir 500 milljónir er í uppnámi samkvæmt heimildum Vísis. Ástæðan ku vera 750 milljóna króna krafa sem 365 miðlar eiga á hendur Senu.

FSA staðfestir viðræður um Icesave

Fréttastofan hefur fengið það staðfest hjá breska fjármálaeftirlitinu (FSA) að viðræður áttu sér stað milli FSA og Landsbankans um að koma Icesave-reikningunum í breska lögsögu s.l. haust.

Tvö eða fleiri bankaútibú í 11 landsbyggðarkjörnum

Í ellefu landsbyggðarkjörnum fyrir utan höfuðborgarsvæðið er að finna tvö eða fleiri útibú á vegum stóru bankanna þriggja. Og í fjórum stærstu bæjum landsins eru allir bankarnir þrír með útibú.

Kröfuhafar vilja Baug í gjaldþrot

Gjaldþrotabeiðni Baugs hf, sem var tekinn fyrir klukkan eitt í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, var frestað fram á mánudag.

Sena seld til Garðarshólma

Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur, að undangengu formlegu söluferli, gengið að tilboði Garðarshólma Rekstrarfélags í öll hlutabréfin í Senu.

Sjá næstu 50 fréttir