Sjóðsstjóri og miðlari ákærðir fyrir markaðsmisnotkun Valur Grettisson skrifar 6. mars 2009 12:48 Daníel Þórðarson var sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs Kaupþings þegar hann á að hafa stundað markaðsmisnotkun. Hann neitar sök.
Fyrrverandi sjóðstjóri peningamarkaðssjóðs hjá Kaupþingi, Daníel Þórðarson hefur verið ákærður fyrir markaðsmisnotkun með því að búa til falska eftirspurn og hækka verð á skuldabréfum Exista í janúar og febrúar á síðasta ári. Þá hefur Stefnir Agnarsson, sem þá starfaði sem miðlari í skuldabréfamiðlun Kaupþings, einnig verið ákærður fyrir sama brot. Mönnunum tveimur er gefið sök að hafa sett inn kauptilboð í skuldabréfaflokk Exista alls sex sinnum frá janúar til febrúar á síðasta ári. Um var að ræða fimm milljón króna kauptilboð í hvert skipti sem voru lögð fram í Kauphöll Íslands á mánaðartímabili. Tilboðið hafði áhrif á dagslokaverðið og þar með bjuggu þeir til falska eftirspurn auk þess sem verð bréfanna var misvísandi, eins og það er orðað í ákæruskjali. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Daníel mætti fyrir dóm og neitaði sök en Stefnir er staddur erlendis. Af þeim sökum verður fyrirtaka ekki í málinu fyrr en í maí. Málið er eitt fyrsta sakamálið vegna brota í aðdraganda bankahrunsins. Töluverð umræða hefur verið um að í undanfara bankahrunsins, hafi verðbréfamiðlarar reynt að halda gengi bréfa í stóru bönkunum þremur og öðrum félögum uppi, með svipuðum aðferðum og hér um ræðir. Verði Daníel og Stefnir sakfelldir þá geta þeir búist við fangelsi, allt að sex árum samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira