Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pétur segir Stím-málið kalla á reglubreytingar Viðskiptahættir gamla Glitnis voru vægast sagt undarlegir að mati Péturs Blöndal formanns efnhags- og skattanefndar Alþingis. Hann segir Glitni hafa reynt að fegra stöðu sína með því að láta einkahlutafélag sem bankinn átti stóran hlut í kaupa bréf í bankanum. 30.11.2008 18:30
Árvakur og Nýi Glitnir sammælast um að leita lausna Samkomulag hefur náðst milli Árakurs og Nýja Glitnis um að vinna að lausn sem tryggi Árvakri rekstrargrundvöll. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið fyrir vikulok. Gert er ráð fyrir að lausnin felist í því að núférandi hlutafé félagsins verði fært niður í núll, og félagið endurfjármagnað með nýju hlutafé. Árvakur hefur átt við alvarlegan lausafjárvanda að stríða og skuldir félagsins hækkað verulega með gengisfalli krónunnar. 30.11.2008 16:52
FME vissi af kaupum Glitnis í Stím Fjármálaeftirlitinu var tilkynnt um eignarhlut Glitnis í Stím ehf. í nóvember á síðasta ári, en gerði engar athugasemdir við meðferð málsins vegna tilkynningaskyldu til Kauphallar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skilanefnd Gamla Glitnis. 30.11.2008 12:31
Þýskir bankar funda með yfirvöldum um endurgreiðslu skulda bankanna Þýskir bankar ætla að mynda bandalag um að reyna að ná aftur því fé sem þeir eiga inni hjá íslensku bönkunum. 29.11.2008 18:22
Glitnir lánaði Glitni til að kaupa bréf Glitnis í Glitni og FL Group Gamli Glitnir átti þriðjung í félaginu Stím sem var búið til kringum fjárfestingar í bankanum sjálfum og FL-Group. Bréfin sem Stím keypti í Glitni og FL-Group keypti það að mestu leyti af Glitni sjálfum og fyrir lán sem það fékk frá Glitni. 29.11.2008 19:58
Segir Stím ekkert leynifélag Jakob Valgeir Flosason, stjórnarformaður eignarhaldsfélagsins Stíms sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna umfjöllunar um félagið og hann. Hann segir félagið ekki leynifélag, og að afar frjálslega hafi verið farið með staðreyndir í umfjöllun um félagið og persónu sína. 29.11.2008 15:25
LÍU vill að einhliða upptaka annars gjaldmiðils verði skoðuð Stjórn landssambands íslenskra útvegsmanna skorar á stjórnvöld að kanna nú þegar kosti þess að taka einhliða upp annan gjaldmiðil. 29.11.2008 14:14
Lítil hreyfing á fasteignamarkaði Þrjátíu og einum kaupsamningi var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið samkvæmt tölum fasteignamats ríkisins. Á sama tíma í fyrra voru þeir 173 talsins. Heildarvelta var 984 milljónir króna en í fyrra nam veltan rétt rúmum sex milljörðum. Á Akureyri var 6 kaupsamningum þinglýst í vikunni en í fyrra þeir voru þeir 15. Heildarvelta var 142 milljónir króna og dregst saman um rúmar 250 milljónir milli ára. 29.11.2008 10:19
OPEC vill hækka verð á olíu Olíumálaráðherra Saudi-Arabíu sagði í dag að réttlátt verð á olíu sé 75 dollarar fyrir fatið. Verðið í dag er um 54 dollarar. 29.11.2008 10:05
Höftin lama Kauphöllina „Gjaldeyrishöftin eru högg fyrir Kauphöllina og stefna hlutabréfamarkaði í tvísýnu,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. 29.11.2008 07:00
Beðið verður með sölu "Komi upp aðstæður þar sem sala ákveðinna eigna reynist nauðsynleg verður efnt til formlegs söluferlis,“ segir í svari skilanefndar gamla Glitnis, við fyrirspurn Fréttablaðsins um hvernig staðið verði að sölu eigna bankans. 29.11.2008 06:00
Síðustu gjaldeyrishöft stóðu í sextíu ár Gjaldeyrishöft og skilaskylda á erlendum gjaldeyri voru tekin upp í síðustu heimskreppu sem tímabundin ráðstöfun til varnar krónunni og gjaldeyrisstöðu Landsbankans, sem þá var seðlabanki landsins. Höftin voru þó ekki að fullu afnumin fyrr en 60 árum síðar. 29.11.2008 06:00
SPRON tapar á þriðja ársfjórðungi Tap SPRON á þriðja ársfjórðungi nam 3,1 milljarði króna eftir skatta, samkvæmt uppgjöri sem birt var í gær. 29.11.2008 06:00
Ísland víkur sér undan EES og OECD Við setningu reglna Seðlabankans um gjaldeyrishöft þurftu stjórnvöld að víkja sér undan tvennum alþjóðlegum skuldbindingum. Annars vegar samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og hins vegar skuldbindandi samþykktum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD). 29.11.2008 06:00
Yfirmenn peningamarkaðssjóða hætta Landsbankinn hefur fallist á beiðni Stefáns H. Stefánssonar, framkvæmdastjóra eignastýringarsviðs og stjórnarformanns Landsvaka, og Sigurðar Óla Hákonarsonar, framkvæmdastjóra Landsvaka, um að þeir láti af störfum hjá bankanum. 29.11.2008 06:00
SÍS samþykkir að rannsaka Gift Aðalfundur SÍS vill að óháðir aðilar kanni hvers vegna Gift tapaði milljörðum króna. SÍS vill líka láta rannsaka lögmæti slita Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. 29.11.2008 06:00
Opna verslun í kreppunni „Því er ekki að neita að við stöldruðum aðeins við með þessi áform okkar þegar fjármálakreppan skall á,“ segir Jón Erlendsson, framkvæmdastjóri ZO-ON, í tilkynningu um opnun nýrrar verslunar fyrirtækisins í Kringlunni í dag. 29.11.2008 04:00
Green græðir milljón pund á Moss Milljarðamæringurinn Sir Phillip Green græddi rétt um milljón pund eða um 200 milljónir íslenskra króna á því að selja 28 prósenta hlut sinn í Moss Bros aðeins tæpum þremur vikum eftir að hann keypti hlutinn af Baugi. 28.11.2008 22:16
Hvað eru þessir menn að tala um? - Seðlabankinn varpar ljósi á málið Seðlabankinn hefur tekið sig til og birt færslu á heimasíðu sinni þar sem farið er yfir þau hugtök sem mest eru í umræðunni þessa dagana og þau útskýrð. Þarna geta allir sem áhuga hafa á því að vita hvað nýjar reglur um gjaldeyrismál þýða í raun og veru og hvaða áhrif þær hafa á fólk. 28.11.2008 20:20
Atorka: Tap móðurfélags 6,3 milljarðar Atorka Group hefur birt uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung. Ef litið er til móðurfélagsreiknings töpuðust 2,3 milljarðar á fjórðungnum efitr skatta en á fyrstu níu mánuðum ársins nam tapið 6,3 milljörðum. Tap samstæðunnar er mun meira, en á þriðja ársfjórðungi var tapið 2,7 milljarðar eftir skatta og 11,4 milljarðar fyrstu níu mánuðina. Heildareignir móðurfélagsins voru 58,2 milljarðar í lok september og eigið fé 14,6 milljarðar. Eiginfjárhlutfall á sama tíma var 25,1 prósent. 28.11.2008 22:34
Fyrstu viðbrögð erlendra aðila jákvæð Beat Siegenthaler sérfræðingur hjá TD Securities í London, en fyrirtækið hefur verið umfangsmikið í viðskiptum við Ísland, er nokkuð jákvæður á aðgerðir Íslendinga er varða lokun á útflæði gjaldeyris. Hann segist búast við því að algjör lokun standi stutt yfir og að á næstu vikum og mánuðum verði krónubréfaeigendum gert kleift að losna úr stöðum sínum. Þetta kemur fram í daglegu fréttabréfi Siegenthalers sem birt er á heimasíðu TD Securities. 28.11.2008 17:41
Krónubréfaeigendur verða skildir eftir á köldum klaka Seðlabanki Íslands ætlar að loka á útstreymi gjaldeyris varðandi krónubréf sem koma á gjalddaga á næsta ári. Eigendur bréfanna munu því verða skildir eftir á köldum klaka og óvíst hvenær þeir muni losna úr stöðum sínum. 28.11.2008 15:19
Tapið á RUV nemur 740 milljónum kr. á síðasta rekstrarári Mikill halli var á rekstri RUV rekstrarárið 1. september 2007 til 31. ágúst 2008. Tap tímabilsins var 739,5 milljónir kr., þar af má rekja um 600 milljónir kr. til þess að verðbólga er langt umfram áætlanir. 28.11.2008 14:39
Rekstur Spalar úr hagnaði í tap Tap Spalar eftir skatta fyrir síðasta rekstarár sem lauk 30. september 2008 nam kr. 366 milljónum kr. Til samanburðar nam hagnaðurinn á sama tímabili í fyrra 282 milljónum kr.. 28.11.2008 14:52
Rólegur dagur í kauphöllinni Þetta var rólegur dagur í kauphöllinni. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,3% og stendur í 640 stigum. 28.11.2008 16:51
Raungengi krónunnar fær ekki staðist til lengdar Eftirfarandi yfirlýsing hefur borist frá Seðlabankanum: „Gengi krónunnar lækkaði skarpt í aðdraganda og kjölfar fjármálakreppunnar í október. Raungengi hennar er nú mun lægra en það hefur áður mælst og fær staðist til lengdar. 28.11.2008 16:39
Mooyd´s staðfestir lánshæfi Foroya Banki Moody's hefur staðfest lánshæfiseinkunina A3 fyrir langtímaskuldbindingar hjá Foroya Banki með stöðugum horfum. 28.11.2008 16:10
Tap SPRON nam 3 milljörðum kr. á þriðja ársfjórðung Tap SPRON eftir skatta nam 3,1 milljarði kr. á þriðja ársfjórðungi en allar skráðar eignir eru færðar á markaðsvirði. Áframhaldandi neikvæð þróun á hlutabréfamarkaði á þriðja ársfjórðungi olli gengistapi sem nam 3.465 milljónum króna. 28.11.2008 14:30
Icelandair opnar áætlunarleið til Stavanger í Noregi Frá og með 2. júní n.k. mun Icelandair opna nýja áætlunarleið til Stavanger í Noregi. Mun verða flogið beint þangað tvisvar í viku samkvæmt vefsíðunni Boarding,no. 28.11.2008 14:13
Óttaðist að Kaupþing ynni skemmdarverk á Storebrandsölunni Skilanefnd Kaupþings á Íslandi og skiptastjóri Kaupþings í Noregi eru komin í hár saman vegna sölunnar á 5,5% hlut Kaupþings í Storebrand. Samkvæmt frétt á vefsíðunni E24.no óttast skiptastjórinn að skilanefndin vinni skemmdarverk á sölunni. 28.11.2008 13:42
Ekki reknir frá Landsbankanum Atli Atlason framkvæmdarstjóri starfsmannasviðs Landsbankans segir að yfirmenn peningamarkaðssjóða bankans hafi ekki verið reknir. Vísir greindi frá því fyrr í dag að þeim hefði verið sagt upp störfum. 28.11.2008 13:16
Óheimilt að fjárfesta í öllum erlendum fjármálagerningum "Fjárfesting í verðbréfum, hlutdeildarskírteinum verðbréfa- og fjárfestingarsjóða, peningamarkaðskjölum eða öðrum framseljanlegum fjármálagerningum með erlendum gjaldeyri er óheimil." Þannig hefst 1, grein nýrra reglna Seðlabankans um gjaldeyrismál. 28.11.2008 13:08
Verðbólguvæntingar fyrirtækja lækka verulega Verðbólguvæntingar fyrirtækja hafa lækkað verulega undanfarið samkvæmt könnun Capacent Gallup en niðurstöður hennar voru birtar í Hagvísum Seðlabankans fyrir nóvembermánuð. Könnunin var framkvæmd í september og október. 28.11.2008 12:26
Yfirmenn peningamarkaðssjóða reknir frá Landsbankanum Samkvæmt heimildum Vísis voru þeir Stefán Héðinn Stefánsson og Sigurður Óli Hákonarson látnir fara frá Landsbankanum í gær. Stefán hefur verið stjórnarformaður og Sigurður Óli framkvæmdarstjóri Landsvaka sem rekur peningamarkaðssjóðina. 28.11.2008 12:21
Landic semur við borgaryfirvöld í Árósum um Lighthouse Landic Property átti fund með borgaryfirvöldum í Árósum í morgun um Lighthouse verkefnið á hafnarsvæði borgarinnar. Páll Benediktsson fjölmiðlafulltrúi Landic segir að fundurinn hafi verið mjög jákvæður og von sé á fréttatilkynningu frá borgarstjórn um málið síðar í dag. 28.11.2008 12:03
Áliðnaðurinn orðin stærsta einstaka útflutningsgreinin Áliðnaðurinn hefur nú fest sig í sessi sem stærsta einstaka útflutningsgrein Íslendinga, mælt í útflutningstekjum, en tekjur af álútflutningi hafa verið meiri en tekjur af sjávarútvegi samfleytt síðan í maí. 28.11.2008 12:00
LÍÚ sættir sig við gjaldeyrislög þótt þau séu óæskileg Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍÚ segir að þótt engin óski eftir gjaldeyrislögum á borð við þau sem samþykkt voru á alþingi muni samtökin sætta sig við þau. 28.11.2008 11:09
Dauður morgun í kauphöllinni Aðeins ein viðskipti hafa orðið við opnun markaðarins í kauphöllinni í morgun. Century Aluminium hefur hækkað um 0,9% í rúmlega 3 milljóna kr. viðskiptum. 28.11.2008 10:45
Misvísandi upplýsingar um áhættu KfW bankans á Íslandi KfW bankinn þýski hefur borið til baka fregnir um að áhætta hans vegna bankahrunsins á Íslandi nemi 800 milljónum evra eða um 140 milljörðum kr.. 28.11.2008 10:20
Seðlabankinn afnemur hömlur á útflæði gjaldeyris Tilmæli Seðlabanka Íslands frá því snemma í október um tímbundna temprun á útflæði gjaldeyris eru afturkölluð. Þau voru kynnt til sögunnar eftir að þrír bankar komust í þrot og mikla markaðsröskun sem því fylgdi. 28.11.2008 10:09
Vöruskipti hagstæð um 11 milljarða í október Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,2 milljarða króna og inn fyrir 36,3 milljarða króna. Vöruskiptin í október voru því hagstæð um 10,9 milljarða króna. Í október 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,0 milljarða króna. 28.11.2008 09:39
Iceland hefur áhuga á hluta af verslunum Woolworths Kapphlaup er nú í gangi um að selja rúmlega 800 verslanir Woolworths keðjunnar í Bretlandi þar sem stór húsaleigureikningur er framundan fyrir jólin. Þetta kemur fram í Financial Times. Meðal áhugasamra kaupenda er lágvöruverslanakeðjan Iceland sem er að hluta til í eigu Baugs. 28.11.2008 09:21
Ekkert verður af sölunni á Storebrand Viðskipti með hlutabréf í Storebrand eru komin í gang aftur á markaðinum í Osló. Hinsvegar verður ekkert af sölunni á 5,5% hlut Kaupþings í Storebrand eins og til stóð. 28.11.2008 09:03
Tilboð í JJB Sports sagt vera í burðarliðnum JD Sports Fashion hefur gefið í skyn að tilboð í JJB Sports sé í burðarliðnum. Exista á stóran hlut í JJB Sports en verð á hlutabréfum í félaginu hafa hrapað frá því á síðasta ári er hluturinn var keyptur. 28.11.2008 08:57
Indverska kauphöllin opin á ný - bréf lækka Indverska kauphöllin opnaði á ný í morgun eftir hörmungarnar í Mumbai í fyrradag og höfðu hlutabréf þar lækkað lítillega, eða um innan við eitt prósentustig. 28.11.2008 08:45