Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Iceland Express hættir flugi frá Egilsstöðum Iceland Express hefur ákveðið að hætta áætlunarflugi frá Egilsstöðum til Kaupmannahafnar vegna dræmrar sölu á flugerðum á þessari áætlunarleið. 2.6.2008 17:15
Úrvalsvísitalan lækkaði lítillega í dag Við lokun markaðarins í Kauphöllinni í dag hafði úrvalsvísitalan lækkað lítillega frá því í morgun og stóð í 4.690 stigum. 2.6.2008 15:52
Bandarísk framleiðsluvísitala mjakast upp á við Framleiðsla í Bandaríkjunum dróst heldur minna saman í maí en spár höfðu gert ráð fyrir og draga þau tíðindi heldur úr áhyggjum af versnandi kreppuástandi. 2.6.2008 15:40
Auðkennalaus viðskipti í Kauphöllinni Kauphöll Íslands hætti að birta auðkenni með hlutabréfaviðskipti frá og með deginum í dag. Þetta eru umtalsverðar breytingar en hafa verið viðhafðar í nokkur ár hjá stærstu kauphöllunum erlendis. 2.6.2008 13:00
Ráðgjafareikingur Baugs eftir Moss Bros er 74 milljónir kr. Baugur Group stendur uppi með ráðgjafareikning upp á hálfa milljón punda eða tæplega 74 milljónir kr. eftir tilraunina til að kaupa Moss Bros. 2.6.2008 11:14
Hlutabréf lækkuðu um tæp 9% í maí og veltan var lítil Hlutabréf lækkuðu í verði um 8,9% í maí mánuði en úrvalsvísitalan fór á tímabilinu úr 5.211 stigum í 4.747 stig. 2.6.2008 10:52
Verslunum lokað vegna samdráttar HP Farsímalagerinn ehf. sem rekur verslanir Hans Petersen og Farsímalagersins hefur lokað eða sameinað fjórum af verslunum sínum undanfarnar vikur. 2.6.2008 10:44
Fimmti hver erlendur starfsmaður í Danmörku er ólöglegur Fimmti hver erlendur starfsmaður í Danmörku hefur ekki tilskilin leyfi og pappíra til að stunda vinnu sína í landinu. Þetta leiðir ný rannsókn af hálfu skattyfirvalda í landinu. 2.6.2008 10:17
Fjármálafyrirtækin lækka í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Glitni, Straumi, Landsbankanum Existu og Bakkavör lækkaði um rúmt prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á evrópskum mörkuðum. 2.6.2008 10:07
Lágflug á helstu mörkuðum Gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað á evrópskum mörkuðum í dag. Fjármálafyrirtæki og flugfélög leiða lækkun dagsins. Gengi bréfa í breska fasteignalánafyrirtækinu Bradford & Bingley féll um rúm 24 prósent eftir að stjórnendur fyrirtæksins greindu frá því að þeir hefðu selt bandaríska fjárfestingarsjóðnum TPG 23 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir tæpar 179 milljónir punda, jafnvirði 26 milljarða íslenskra króna. 2.6.2008 09:21
Exista eykur hlutaféð Stjórn Existu hefur hækkað hlutafé félagsins um rúma 2,8 milljarða hluta. Þetta er gert í tengslum við kaup fyrirtæksins á Skiptum. Stefnt er að því að hlutirnir verði teknir til viðskipta á morgun en af því gæti þó orðið síðar, að því er segir í tilkynningu frá Existu. 2.6.2008 09:11
Kodak boðar 20% hækkun á vélum og pappír Eastman Kodak hefur boðað 20% hækkun á ljósmyndavélum, prenturum, pappír og öðrum neytendavörum fyrirtækisins á næstu mánuðum. Ástæðan eru miklar hækkanir á hrávöru. 2.6.2008 09:02
Birgir Moss Bros vill hluti Baugs Berwin & Berwin, einn af stærstu birgjum bresku herrafataverslunarinnar Moss Bros hefur sýnt áhuga á að kaupa 20 prósent af hlut Baugs í versluninni. Baugur á 29 prósent í Moss Bros. 1.6.2008 08:00
Norðmenn eiga eitt prósent af allri Evrópu Olíusjóður Norðmanna gildnar stöðugt. Stjórn sjóðsins er dugleg við að fjárfesta erlendis og er nú svo komið að hann á eitt prósent af öllum hlutabréfum í Evrópu. 31.5.2008 13:49
Hollendingar fagna Icesave Landsbankinn hóf á fimmtudag að bjóða Hollendingum upp á Icesave-innlánsreikninga. 31.5.2008 00:01
Bankarnir borga ekki í láni ríkisins Bankarnir vilja ekki taka þátt í kostnaði við erlendar lántökur ríkissjóðs. Ríkið hefur ekki beðið þá um það. Bankarnir verði að bjóðast til þess. Viðskiptaráðherra segir ráðast af kostnaði við lántöku hvort bankarnir taki þátt í honum. 31.5.2008 00:01
Nýsir selur Konditori „Við erum að endurskipuleggja fyrirtækið og ætlum að einblína á kjarnastarfsemi sem snýr að rekstri og umsjón fasteigna. Veitingahúsarekstur var ekki hluti af kjarnastarfsemi,“ segir Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri fasteigna- og fjárfestingarfélagsins Nýsis. 31.5.2008 00:01
Þórður í lok dags Þórður Jónasson hjá Askar Capital var gestur Sindra Sindrasonar þættinum Í lok dags í dag. Smelltu á hlekkinn hér að ofan til að sjá viðtalið. 30.5.2008 18:03
Gengi Færeyjabanka hækkaði mest í dag Gengi hlutabréfa í Færeyjabanka hækkaði mest á síðasta viðskiptadegi vikunnar í Kauphöll Íslands í dag, eða um 2,86 prósent. Gengi bréfa í 365, Eimskipafélaginu, Atlantic Airways og FL Group hækkaði um rúmt prósent. Bréf í SPRON, Össuri, Atlantic Petroleum, Icelandair og Marel hækkaði um minna en prósent. 30.5.2008 15:31
Dregur úr einkaneyslu vestanhafs Einkaneysla jókst um 0,2 prósent í Bandaríkjunum í apríl. Þetta eru fyrstu vísbendingar um kólnun í bandarísku hagkerfi, að sögn fréttaveitu Bloomberg. 30.5.2008 14:19
Sund fær 1,2% hlut í Glitni fyrir FL -bréf Sund ehf. og tengd félög eiga nú 6,13% í Glitni eftir að hafa skipt á bréfum sínum í FL Group fyrir bréf í Glitni eins og samið var um þegar FL Group var skráð af markaði. 30.5.2008 13:57
Milljarðamæringur með Kaupþingi í Beverly Hills-verkefni Breski milljarðamæringurinn Richard Caring hefur keypt um 10% hlut í risavöxnu fasteignaþróunarverkefni í Beverly Hills sem Kaupþing á stærstan hlut í eftir því sem fram kemur á vefnum propertyweek.com. 30.5.2008 13:07
Marel skipar nýja framkvæmdastjórn Í kjölfar kaupa Marel Food Systems á Stork Food Systems í Hollandi hefur fyrirtækið skipað nýja framkvæmdastjórn. 30.5.2008 10:59
Verkfræðistofur sameinast Verkfræðifyrirtækin Raftæknistofan, Línuhönnun og Verkfræðistofan Afl eru að sameinast. Sameiningin var tilkynnt á starfsmannafundi fyrr í morgun og má búast við tilkynningu frá fyrirtækjunum seinna í dag, samkvæmt heimildum Markaðarins. 30.5.2008 10:32
Bakkabræður á ferð í Kauphöllinni Félög tengd Bakkabræðrum bæði hækkuðu og lækkuðu mest í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands í dag. 30.5.2008 10:07
Kaupþing og SPRON framlengja viðræðum um sameiningu Kaupþing banki og SPRON hafa ákveðið að framlengja samningaviðræður um sameiningu félaganna. 30.5.2008 10:04
Kaupþing selur réttinn að hlutum sínum í Exista Kaupþing hefur selt Bakkabraedur Holding B.V. rétt sinn að nær öllum nýjum hlutum í Exista sem bankinn átti að fá greidda fyrir hluti sína í Skiptum hf. 30.5.2008 09:55
Vöruskiptin í apríl óhagstæð um 7,3 milljarða kr. Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,4 milljarða króna og inn fyrir 40,7 milljarða króna fob. Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 7,3 milljarða króna. 30.5.2008 09:41
Smá „föstudagsfílingur“ í markaðnum Gengi hlutabréfa hefur hækkað almennt á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum í dag. Nikkei-vísitalan hækkaði um 1,5 prósent og hefur nú hækkað um 2,3 prósent í vikunni. Vísitölur á öðrum hlutabréfamörkuðum í Asíu hækkuðu minna. 30.5.2008 09:20
Forstjóri Atorku færði 342 milljónir kr. milli félaga Magnús Jónsson, forstjóri Atorku Group, færði í gær bréf í félaginu fyrir 342 milljónir kr. milli félaga í sinni eigu. Um var ræða rúmlega 48 milljónir hluta á genginu 6,98 sem voru í eigu Móatúns, einkahlutafélags Magnúsar. 30.5.2008 08:41
Gífurlegar lækkanir á fasteignaverði í Bretlandi Húsnæðisverð í Bretlandi lækkaði í maí um 2,5% frá fyrri mánuði. Þetta var því sjöundi mánuðurinn í röð þar sem húsnæðisverð lækkar í Bretlandi og er því á pari við fyrrum lengsta samfellda tímabil húsnæðisverðslækkana í upphaf tíunda áratugarins. 30.5.2008 08:38
Hafna margfaldri kreditkortaþóknun „Það er andstætt góðum viðskiptaháttum að lauma kortum inn á markaðinn með þeim hætti sem hér virðist hafa verið á hafður,“ segir í bréfi Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), sem félagsmenn fengu í hendur um miðjan mánuðinn. 30.5.2008 03:00
Bréf Bakkavarar féllu um þrjú prósent Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, hækkaði um 2,64 prósent á fremur rólegum degi í Kauphöllinni í dag. Á sama tíma féllu bréf Bakkavarar um rétt tæp 3,2 prósent. 29.5.2008 15:36
Spölur úr hagnaði í tap Spölur, sem rekur Hvalfjarðargöngin, tapaði 146 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 67 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Fyrstu þrír mánuðir ársins var annar fjórðungurinn í bókum Spalar en árinu lýkur þar í enda september ár hvert. Á fyrri hluta ársins tapaði félagið 169 milljónum króna samanborið við 89 milljóna króna hagnað árið á undan. 29.5.2008 15:27
Hluthafar Bear Stearns samþykkja söluna til JP Morgan Hluthafar fjárfestingabankans Bear Stearns hafa samþykkt söluna á bankanum til JP Morgan. Reuters greindi frá þessu fyrir skömmu síðan. 29.5.2008 14:42
Samningar í gangi við seðlabanka Englands og Evrópu Samningaviðræður eru nú í gangi við seðlabanka bæði Englands og Evrópu um lántöku til að styrkja gjaldeyrisvarasjóð Seðlabanka Íslands. Sem kunnugt er af fréttum hefur ríkisstjórnin farið fram á 500 milljarða kr. lántökuheimild á alþingi til þessa og reiknað er með að heimildin verði samþykkt í dag. 29.5.2008 14:14
Verslunarkeðjan Iceland vex hraðast í Bretlandi Veltan hjá verslunarkeðjunni Iceland jókst um rúm 12% á milli ára í Bretlandi og var það mesta aukningin hjá tíu stærstu verslunarkeðjum landsins með dagvöru. Til samanburðar jókst velta Tesco um 6%. 29.5.2008 13:56
Bandarískur hagvöxtur yfir spám Hagvöxtur jókst um 0,9 prósent í Bandaríkjunum á fyrstu þremur mánuðum ársins. Niðurstaðan kom nokkuð á óvart í jákvæðum skilningi. 29.5.2008 13:21
Viðskiptavinir Icesave í Hollandi orðnir 1.500 talsins Nú um hádegisbilið voru viðskiptamenn Icesave í Hollandi orðnir 1.500 talsins. Er þetta mun betri árangur en forráðamenn Landsbankans gerðu ráð fyrir. 29.5.2008 13:09
Ólafur segir það versta yfirstaðið í efnahagslífinu Íslenskt efnahagslíf hefur gengið í gegnum erfitt tímabil að undanförnu, en það versta er yfirstaðið. Þetta er skoðun Ólafs Ísleifssonar prófessors við Háskólann í Reykjavík, en hann hélt framsögu á hádegisfundi Norden i Fokus í Stokkhólmi í gær. 29.5.2008 13:04
Fiskvinnslan GPG Norge stefnir í gjaldþrot Allar horfur eru á að fiskvinnslufyrirtækið GPG Norge verði lýst gjaldþrota á næstunni eða þá að fyrirtækið verði þvingað í þrot að því er fram kemur í blaðinu Fiskeren. Í raun er fyrirtækið sagt gjaldþrota vegna óuppgerðra launa og orlofs starfsmanna. 29.5.2008 12:30
Fjarskiptafyrirtækið Kall í Færeyjum verður að Vodafone Færeyska fjarskiptafyrirtækið Kall, sem er í eigu Íslendinga, hefur tekið upp nýtt nafn og starfar frá og með deginum í dag undir nafni Vodafone. 29.5.2008 11:58
Minnsta atvinnuleysi í Danmörku síðan um 1970 Atvinnuleysi í Danmörku mælist nú 1,8% og hefur ekki verið minna síðan á árunum uppúr 1970. Það er einkum atvinnuleysi meðal eldri starfsmanna og kvenna sem hefur minnkað mikið frá áramótum. 29.5.2008 11:14
Össurarbréf ein á uppleið Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össur hefur hækkað um 0,41 prósent það sem af er dags í Kauphöll Íslands. Viðskiptadagurinn byrjaði á afar rólegum nótum. Bréf fyrirtækisins eru þau einu sem hafa hækkað. Þrjú hafa lækkað á sama tíma en önnur standa í stað. 29.5.2008 10:18
Olíuverð fer lækkandi á heimsmarkaði Verð á hráolíu til afhendingar í júlí lækkaði í rafrænum viðskiptum í New York í morgun niður í rúma 130 Bandaríkjadali tunnan og verð á samsvarandi samningi í London fór niður í tæpa 130 dali. 29.5.2008 10:16