Hafna margfaldri kreditkortaþóknun 30. maí 2008 03:00 Úr verslun Oasis. Verslanir Haga og N1 standa í samningum við Borgun um lækkun á þóknun seljenda vegna American Express-greiðslukortsins. Fréttablaðið/Valli „
Það er andstætt góðum viðskiptaháttum að lauma kortum inn á markaðinn með þeim hætti sem hér virðist hafa verið á hafður,“ segir í bréfi Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), sem félagsmenn fengu í hendur um miðjan mánuðinn. Bréfið fjallar um nýlega útgáfu American Express-greiðslukorta. Samtökin gagnrýna að þessi kort séu aðeins gerð upp mánaðarlega auk þess sem söluþóknun sé tvö- til fjórföld á við það sem algengast sé hér á markaði. Þá er miðað við það sem almennt gildir um Mastercard og Visa-kort. „Út af fyrir sig er ekkert við því að segja að kort sem ber svo mikið af fríðindum sé gefið út, en afstaða SVÞ er sú að korthafar eigi að greiða fyrir þau fríðindi en ekki söluaðilar [...],“ segir í bréfinu. Kvartað hafi verið undan þessu við samtökin. Finnur Árnason, forstjóri Haga, segir að tekið sé við kortinu í verslunum Haga. Þar á meðal eru Karen Millen, Útilíf, Oasis og fleiri. „Við stöndum í samningum við Borgun vegna þessara korta. Þóknunin er hærri en á öðrum kortum og ekki mikið svigrúm fyrir því.“ Hann segir líklegt að samningum ljúki á allra næstu dögum. „Það er aðkallandi að klára þetta.“ Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, sem rekur Bílanaust, bensínstöðvar og fleira, segir að ekki sé hægt að sætta sig við þau kjör sem boðin voru á kortinu. „Við erum að fara yfir þessi mál og bíðum þess að Borgun geri okkur tilboð sem við sættum okkur við.“ Málið er einnig til skoðunar hjá Norvik, sem rekur fjölmargar verslanir hérlendis. Haukur Oddson, forstjóri Borgunar, sem gefur kortið út, segir að um tuttugu seljendur hafi haft samband við fyrirtækið en enginn hafi sagt upp samningum. Rætt sé við aðila um kjör en samningar við hvern og einn séu trúnaðarmál. „En okkur þykir afar óviðeigandi að samtök eins og SVÞ veitist gegn einni vöru á markaði.“ ingimar@markadurinn.is
Mest lesið Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fá að kaupa Pei og Motus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Sjá meira