Fleiri fréttir

Mishkin seðlabankastjóri segir upp

Frederic Mishkin, einn af seðlabankastjórum bandaríska seðlabankans, hefur sagt upp hjá bankanum og ætlar að snúa aftur til kennslu í hagfræði í vetur. Mishkin skrifaði skýrslu um íslensk efnahagsmál fyrir tveimur árum.

Hlutabréf hækkað vestanhafs

Gengi hlutabréfa hækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag þrátt fyrir tölur sem sýna að nokkuð dró úr eftirspurn eftir varanlegum varningi vestanhafs á milli mánaða í apríl. Fjárfestar hafa eftir sem áður áhyggjur af þróun hráolíuverðs.

Jón Bjarki í lok dags

Jón Bjarki Bendtsson sérfræðingur í Greiningu Glitnis var gestur Sindra Sindrasonar í þættinum Í lok dags í dag. Smelltu á hlekkinn hér að ofan til þess að sjá viðtalið.

Gríðarleg velta á skuldabréfum slær ýmis met í maí

Gríðarleg velta hefur verið á skuldabréfamarkaði það sem af er ári og hafa ýmis met fallið í maí. Í fyrsta lagi er veltan í maímánuði orðin sú mesta í sögunni en hún er komin yfir 684 milljarða kr..

Færeyjabanki hækkaði mest í dag

Gengi bréfa í Færeyjabanka hækkaði mest í Kauphöll Íslands í dag, eða um 1,62 prósent. Sprettur var í Kauphöllinni í byrjun dags og leiddi SPRON hækkanalestina fyrst um sinn þegar gengið spratt upp um þrjú prósent. Þróunin jafnaði sig þegar á leið og nam hækkun bréfa í SPRON 1,1 prósenti.

Enginn vöxtur í farsímasölu á árinu

Sala á farsímum dróst saman um sextán prósent í Evrópu á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta kemur fram í nýrri úttekt markaðsrannsóknarfyrirtækisins Gartners. Þetta er fyrsti samdrátturinn sem fyrirtækið hefur greint í álfunni síðastliðin sjö ár.

Þýskaland æ mikilvægara fyrir innfluttar sjávarafurðir

Þýskaland verður æ mikilvægari markaður fyrir innfluttar sjávarafurðir, en erlendir framleiðendur gera sér yfirleitt rangar hugmyndir um neytendur í Þýskalandi, sagði Peter Dill framkvæmdastjóri Deutsche See, á sjávarútvegsráðstenu Glitnis í Osló í vikunni.

Spá nánast engum hagvexti á þessu og næsta ári

Greinginardeild Glitnis segir í nýrri þjóðhagsspá sinni að tveggja ára stöðnunarskeið í íslensku efnahagslífi sé hafið og á því tímabili muni hagkerfið ná jafnvægi eftir hraðan hagvöxt og þenslu síðustu ára.

Landsbanki Kepler fékk greinendaverðlaun FT/StarMine

Greinendur í Landsbanka Kepler hlutu alls sjö verðlaun í FT/StarMine greinendaverðlaununum sem skipar fyrirtækinu meðal tíu efstu í flokki bestu verðbréfafyrirtækja í iðnríkjum Evrópu. Verðlaunin eru veitt greinendum sem bera af meðal greiningaraðila á árinu 2007.

Vanskil útlána að aukast í fyrsta sinn síðan 2002

Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok mars 2008 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan. Sýna tölurnar að vanskilin eru að aukast í fyrsta sinn frá árinu 2002.

Viðræður Kaupþings og SPRON enn í fullum gangi

Jónas Sigurgeirsson upplýsingafulltrúi Kaupþings segir að viðræður mili Kaupþings og SPRON um sameiningu séu í fullum gangi. „Við munum á næstunni gera grein fyrir stöðunni í þessum viðræðum,“ segir Jónas í samtali við Vísi.

Gengi SPRON tekur stökkið

Gengi hlutabréfa í SPRON stökk upp um rétt rúm þrjú prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkun á markaðnum það sem af er dags. Úrvalsvísitalan hefur sömuleiðis hækkað lítillega. Þróunin er í samræmi við hækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag.

Koma á fót milljarðasjóði til að fjárfesta í nýsköpun

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, stóru bankarnir þrír og stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa komist að samkomulagi um að koma á fót sérstökum sjóði til að fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem þykja vænleg til vaxtar og útrásar.

Með ólæknandi flugdellu

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, hefur frá unga aldri haft mikinn flugáhuga. Upp á síðkastið hefur hann meðal annars flogið utan með starfsfólk sitt, aðallega til að sinna viðskiptaerindum Saga Capital.

Úr reykfylltu bakherbergi

Gagnsæisbylting hefur átt sér stað undanfarin ár meðal seðlabanka heimsins. Margir sérfræðingar telja næsta skref að auka gagnsæi vaxtaákvarðana Seðlabanka Íslands. Björn Þór Arnarson ræðir við sérfræðinga og fer yfir málið.

Nálgast sársaukamörk Kauphallar?

Útlit er fyrir allnokkra fækkun félaga í Kauphöll Íslands. FL Group, Flaga, Vinnslustöðin, Icelandic Group, Skipti og Tryggingamiðstöðin bíða öll afskráningar. Gangi svo eftir samruni Kaupþings og SPRON fækkar um eitt til.

Vinaböndin traust frá Rússlandsárunum

Raddir eru uppi um að kalt sé á milli þeirra Björgólfsfeðga og Magnúsar Þorsteinssonar, fyrrverandi Samsonarmanns, og ekki útilokað að vinátta þeirra sé öll. Brotthvarf Magnúsar úr stjórn Icelandic Group fyrir um hálfum mánuði var sagt síðasta skrefið. Me

Bankahólfið: Stærsta lán allra tíma

Fregnum af útspilum stjórnvalda og Seðlabankans til stuðnings íslensku fjármálakerfi hefur verið vel tekið á markaði; fyrst gjaldeyrisskiptasamningum við þrjá norræna seðlabanka og nú síðast lagafrumvarpi fjármálaráðherra um heimild ríkissjóðs til að taka allt að 500 milljarða króna að láni í útlöndum í því skyni að efla gjaldeyrisforðann.

Erlendur fjárfestir kaupir fyrir 5,6 milljarða í Alfesca

Stjórn Alfesca hefur tilkynnt að náðst hafi samkomulag við sterkan erlendan fjárfesti um að hann kaupi nýtt hlutafé í félaginu að verðmæti 5,6 milljarða íslenskra króna og eignist þar með 12,6% hlut í félaginu.

Lægra olíuverð hækkaði hlutabréfin vestanhafs

Gengi hlutabréfa hækkaði almennt á fjármálamarkaði í Bandaríkjunum í dag eftir að heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um þrjá dali á tunnu. Þá jókst sala á nýju húsnæði óvænt á milli mánaða.

Stefnir Glitni vegna starfslokasamnings Bjarna

Á fimmtudag verður þingfest mál Vilhjálms Bjarnasonar, hluthafa í Glitni, gegn fyrrverandi stjórn bankans. Málið höfðar Vilhjálmur vegna starfslokasamnings sem stjórnin gerði við Bjarna Ármannsson fyrrverandi forstjóra.

Kjartan í lok dags

Kjartan Freyr Jónsson hjá SPRON verðbréfum var gestur Sindra Sindrasonar þættinum í Lok dags í dag. Smelltu á hlekkinn hér að ofan til þess að sjá viðtalið.

Olíuverðhækkanir gætu drepið norska útgerð

Talsmaður samtaka norskra útgerðarmanna óttast að þróun olíuverðs muni leiða til þess að fiskveiðar verði svo óhagkvæmar að ekki verði réttlætanlegt að stunda þær. Intraseafood.com greinir frá þessu.

Debenhams í útrás á markaði í Indlandi og Rússlandi

Breska verslunarkeðjan Debenhams ætlar sér í útrás á markaði í Indlandi og Rússlandi. Ætlunin er að tvöfalda söluna á alþjóðlegum mörkuðum á næstu fjórum árum. Baugur Group á um 13% í Debenhams.

Gengið gefur aðeins eftir

Gengisvísitalan hefur hækkað eftir því sem liðið hefur á daginn eða um 0,41% og hefur gengið veikst sem því nemur. Vísitalan var 147 stig í hádeginu.

Mikil svartsýni ríkjandi meðal neytenda

Væntingavísitalan mælist 82,7 stig í maí og lækkar um 14,5% frá fyrri mánuði. Um er að ræða þriðja mánuðinn í röð þar vísitalan mælist undir 100 stigum sem þýðir að fleiri neytendur séu svartsýnir en bjartsýnir.

Segir gjaldeyrisvarasjóðinn að komast í þokkalegt horf

Ásgeir Jónsson forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings segir að með frumvarpi ríkisstjórnarinnar um heimild til allt að 500 milljarða króna lántöku sé gjaldeyrisvarasjóður Seðlabankans að komast í þokkalegt horf.

Bankarnir hækka í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í stóru viðskiptabönkunum þremur eru einu bréfin sem hafa hækkað í Kauphöll Íslands í dag. Rekstrarfélögin, auk Existu og Færeyjabanka hafa hins vegar öll lækkað í verði á sama tíma.

Exista hefur tryggt sér rúmlega 99% hlut í Skiptum

Yfirtökutilboðið Exista til hluthafa Skipta var samþykkt af hluthöfum sem áttu alls 4.225.224.096 hluti í Skiptum eða sem nemur 56,32% hlutafjár í félaginu. Exista hefur því tryggt sér 99,22% hlutafjár í Skiptum og mun fara með samsvarandi atkvæðisrétt í félaginu þegar uppgjör á yfirtökutilboðinu hefur farið fram.

Árleg afkoma versnar um hálfan milljarð fyrir hverja tíu punkta í vaxtamun

Ef lántökuheimild ríkissjóðs sem lögð er til í nýju frumvarpi fjármálaráðherra er nýtt að fullu mundi árleg afkoma ríkissjóðs versna um 500 milljónir króna fyrir hverja tíu punkta sem munar á vöxtum sem ríkið greiðir og þeim sem hann fær hjá Seðlabankanum. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um frumvarpið.

Vilja heimild fyrir 500 milljarða láni

Ríkisstjórnin ætlar að óska eftir heimild alþingis til að taka allt að fimm hundruð milljarða króna erlent lán, eftir því sem Markaðurinn kemst næst.

Hafliði í lok dags

Hafliði Helgason var gestur Ingimars Karls Helgasonar í þættinum Í lok dags í dag. Smelltu á hlekkinn hér að ofan til sjá hvað þeim fór á milli.

Sjá næstu 50 fréttir