Fleiri fréttir

Lyfjaárásir – allir til varna

Eyþór Víðisson skrifar

Nýlegar fréttir þar sem grunur leikur á að konum sé byrluð ólyfjan á skemmtistöðum í Reykjavík er ógeðfelld lesning. Þessi brot eru alltof algeng hér á landi. Öllum má vera ljóst að slíkur verknaður, að setja deyfandi lyf í drykk hjá einstaklingi, er partur af tilraun til nauðgunar.

Ég vil ekki leiða þig?…

Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar

Fátt er foreldrum mikilvægara en að börnum þeirra líði vel í skólanum, eigi góða félaga og vini, hafi sjálfstraust og góða sjálfsmynd. „Þú mátt ekki vera með í leiknum“ eða „ég vil ekki leiða þig“ eru orð lítilla leikskólabarna í íslenskum leikskólum, barna sem eru að fóta sig í flóknum heimi og læra samskipti við jafnaldra sína.

Þak yfir höfuðið – saga um samstarf

Gísli B. Björnsson skrifar

Árið 1962, þá 24 ára, kom undirritaður heim frá námi ásamt konu og barni, næstum peningalaus. Hópur nokkurra góðra félaga hófst þá handa um undirbúning þess að fá lóð og hefja undirbúning að byggingu íbúðablokkar.

Samskipti ríkis og kirkju í öðrum löndum III

Þórir Stephensen skrifar

Vantrúarmaður gerði athugasemdir í viðræðu á Vantrúarvefnum árið 2013 við mann, annarrar skoðunar og segir: "…í flestum löndum gengur alveg ágætlega án þjóðkirkju, þetta fyrirkomulag er alger undantekning.“ En hvað segja aðrar heimildir?

„Standing ovation“ á sinfó 22. okt. 2015

Þór Rögnvaldsson skrifar

Ég veit ekki hvað kom yfir mig þegar ég hlustaði á fyrsta verk tónleikanna – sem var Nótt á nornagnípu eftir Músorgskij – því að áður en varði var ég farinn að hugsa um allt annað tónskáld; þ.e. Jón Leifs. Furðulegt! Og því meira sem djöfuldómurinn kyrjaði hjá Músorgskij, því meira varð mér hugsað til Jóns Leifs

Styttri vinnudagur – hagur okkar allra

Sóley Tómasdóttir og Magnús Már Guðmundsson skrifar

Undanfarna átta mánuði hefur staðið yfir afar spennandi tilraunaverkefni hjá Reykjavíkurborg um styttingu vinnuvikunnar. Verkefnið nær til tveggja starfsstaða borgarinnar, Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts og Barnaverndar Reykjavíkur.

Northern Future Forum

Arnar Þór Magnússon skrifar

Fyrir stuttu komu saman í Reykjavík forsætisráðherrar Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Bretlands á ráðstefnuna Northern Future Forum (NFF) í boði Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Fyrsta ráðstefnan undir þessu heiti var haldin í London 2011 að frumkvæði David Cameron, forsætisráðherra Breta,

Hátækni á mygluðum fornminjum

Birgir Guðjónsson skrifar

Það er nokkuð vinsælt í kvikmyndum að mynda hið gamla og ekki síður að spá í framtíðina eins og nýlegar kvikmyndir hafa sýnt og verið vinsælar. Nóg er þessa dagana af áhugaverðu efni sem skrásetjarar framtíðar geta skoðað og kvikmyndað, t.d. hvort hjólreiðamönnum hafi tekist að loka Reykjavíkurflugvelli og knýja borgarbúa sem landsmenn almennt til hjólreiða.

Ísland og norðurslóðir

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Breytingarnar á norðurskautinu eru mun örari en nokkurn óraði fyrir að gæti orðið fyrir einungis fáum árum. Bráðnun heimskautaíssins og sú stóraukna skipaumferð sem af hefur hlotist um norðurpól, auðlindir sem stórþjóðir hafa augastað á undir hafsbotni og í jörðu

Höldum okkur við staðreyndir

Guðmundur Gunnarsson skrifar

Í leiðara Fréttablaðsins 10. nóvember sl. fer Óli Kristján Ármannsson fram á að talsmenn Gætum garðsins haldi sig við staðreyndir. Óli Kristján segir að það séu rangfærslur og útúrsnúningar hjá Björk og Andra Snæ að halda því fram að Íslendingar horfi til þess að sjá Bretum fyrir rafmagni

Áskoranir í öryggismálum

Auðunn Atlason skrifar

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, hefur verið áberandi síðustu misserin og það kemur því miður ekki til af góðu. Í fyrsta skipti frá lokum síðari heimsstyrjaldar var landamærum í Evrópu breytt með hervaldi þegar Rússland innlimaði Krímskaga og vopnuð átök brutust út í austurhluta Úkraínu.

RÚV – í núinu og til framtíðar

Kristinn Dagur Gissurarson skrifar

Í kjölfar skýrslu starfshóps, sem menntamálaráðherra skipaði um rekstur og starfsemi RÚV frá því það var ohf.-vætt árið 2007, hafa spunnist miklar og oft á tíðum óvægnar umræður í þjóðfélaginu. Sitt sýnist hverjum, eðlilega, en því miður hafa menn farið í skotgrafirnar

Gengur þú með dulda sykursýki?

Jón Bjarni Þorsteinsson skrifar

Félagar í Lionsklúbbum um allt land munu bjóða landsmönnum fría blóðsykurmælingu dagana 12.-14. nóvember í tilefni af alþjóðadegi sykursjúkra sem er á laugardaginn.

Er þetta breyting til hins betra?

Elfa Dís Hlynsdóttir skrifar

Næstkomandi vor mun ég útskrifast úr grunnskóla og stefni á að fara í framhaldsskóla. Þar sem grunnskólinn hefur tekið upp nýtt námsmatskerfi hef ég áhyggjur af stöðu minni í vor og því hvernig framhaldsskólinn muni meta mig.

Slæmur rekstur eykur byrðar unga fólksins

Halldór Halldórsson skrifar

Ef borgin væri fyrirtæki í þeirri stöðu sem útkomuspá fyrir árið 2015 og fjárhagsáætlun ársins 2016 lýsa við fyrri umræðu væri hluthafafundur boðaður í skyndi og skipt um stjórnendur

Ákveður stjórn að ný stjórn skuli kosin?

Helga Hlín Hákonardóttir skrifar

Í gær var kjörin ný stjórn VÍS, sem er athyglisvert í ljósi þess að í félaginu sat rétt kjörin og ályktunarhæf stjórn með umboð fram að næsta aðalfundi. Slík breyting á umboði ályktunarhæfrar stjórnar getur farið fram með tvennum hætti.

Guðspjall í formi hagfræðilíkans

Gestur Guðmundsson skrifar

Hagfræðistofnun Háskóla Íslands birti nýlega skýrsluna Efnahagsleg áhrif af styttingu framhaldsnáms.

Áhyggjur af heilbrigðisstarfsmönnum

Lýður Árnason skrifar

Minn fyrrum, ágæti lærifaðir, Jóhannes M. Gunnarsson, átelur í nýlegri grein skoðanir mínar í heilbrigðismálum og spyrðir við fortíðarhyggju. Lítur Jóhannes til þess sem er að gerast annars staðar og minnir á þróunina í nágrannalöndunum.

Brandarakerling gærdagsins

Jón Ásgeir Kalmansson skrifar

Fanney Birna Jónsdóttir blaðamaður skrifar pistil í Fréttablaðið þann 3. nóvember síðastliðinn undir fyrirsögninni „Brandarakallar morgundagsins“. Þar má á henni skilja að málflutningur þeirra sem setja sig upp á móti áfengisfrumvarpinu svokallaða verði þeim til ævarandi háðungar í framtíðinni.

Endurskoða verður lífeyri

Björgvin Guðmundsson skrifar

Miklar launahækkanir hafa átt sér stað á þessu ári, meiri en um langt skeið. Ríkið reið á vaðið með því að gera háa samninga við framhaldsskólakennara og lækna. Samið var við framhaldsskólakennara um 44% kauphækkun

Takk Trudeau!

Soffía Sigurgeirsdóttir skrifar

Af því að árið er 2015! Svaraði nýskipaður forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, spurningu blaðamanns þegar hann var spurður út í jafnt kynjahlutfall nýrrar ríkisstjórnar. Já, málið er svona einfalt, þetta er spurning um ákvörðun til að stuðla að auknu jafnrétti. Breytingar í samfélaginu byggjast á viðhorfsbreytingum

Heimili eða hákarlskjaftur?

Andri Snær Magnason, Auður Jónsdóttir, Bryndís Björgvinsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson og Margrét Örnólfsdóttir skrifa

Kæra Ólöf Nordal – og aðrir embættismenn sem hafa örlög tveggja barna í hendi sér. Í kvöld mun lítil fjölskylda elda sér kvöldmat. Foreldrarnir vaska upp og hátta síðan tvær litlar stelpur, þriggja og fjögurra ára, kyssa þær góða nótt og óska þeim góðra drauma svo þær sofni öruggar með bangsann sinn

„Mér finnst hann sekur“

Birgir Örn Guðjónsson skrifar

Persónulega finnst mér frábært að samfélagið sé á tánum og vaki yfir mikilvægum stofnunum eins og t.d. lögreglunni og dómstólum.

Samskipti ríkis og kirkju - II

Þórir Stephensen skrifar

Í fyrstu grein minni um þetta efni reyndi ég að útskýra hvernig sambandi ríkis og kirkju er háttað hér á landi. En lítum nú á fjármálin eins og þeim er upp stillt fyrir árið 2015:

Vond skilaboð lögreglu

Eva H. Baldursdóttir skrifar

Tveir menn hafa stöðu sakbornings í tveimur aðskildum nauðgunarmálum. Samkvæmt fréttaflutningi er þolendum í báðum tilvikum nauðgað eftir bekkjarskemmtanir, í annað skipti a.m.k. í íbúð í Hlíðunum þar sem gerendur beittu hrottalegu líkamlegu – og kynferðislegu ofbeldi.

Myndum við stofna RÚV?

Ari Trausti Guðmunsson skrifar

Myndum við stofna ríkisútvarp nú á dögum? - er spurt. Sennilega reikna spyrjendur með því að nútíminn væri andstæður þess konar ríkisstarfsemi.

Nokkur gleði­orð um Tón­listar­safn Ís­lands

Hreinn Valdimarsson skrifar

Það ríkti mikil gleði í hópi áhugamanna um sögu íslenskrar tónlistar í ársbyrjun 2009. Þá fréttist að framsýnir menn í Kópavogi hefðu í samvinnu við menntamálaráðuneytið sett á laggirnar, langþráðan draum, Tónlistarsafn Íslands.

Rekstrarumhverfi íslenskra fjölmiðla í erlendum samanburði

Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar

Er það sjálfsagt að á litlu málsvæði og í fámennu samfélagi séu starfræktir öflugir fjölmiðlar sem hafa grund­vallar­gildi faglegrar blaðamennsku að leiðarljósi? Í nágrannaríkj­um okkar er ærnum tíma og miklum fjármunum varið til að tryggja starfsemi slíkra fjölmiðla.

Margar hliðar á nýju námsmati í grunnskólum

Bryndís Jónsdóttir og skrifa

Í vor verða nemendur í 10. bekk í fyrsta skipti útskrifaðir með lokaeinkunn í bókstöfum eins og stefnt hefur verið að frá því að ný Aðalnámskrá grunnskóla leit dagsins ljós árið 2011.

Einelti er allra ábyrgð

Sólveig Karlsdóttir skrifar

Fyrir stuttu funduðu ungir stjórnmálamenn frá Norðurlöndunum á Íslandi þar sem þeir veltu m.a. fyrir sér netinu og hvernig tekið er á málum sem þar upp koma.

Sjúkt samband

Silja Dögg Gunnarsdóttir og Elsa Lára Arnardóttir skrifar

"Það er verðbólgan sem er vandamálið, ekki verðtryggingin. Sér í lagi þegar verðbólgunni er haldið í skefjum.“ Þessi orð heyrast ávallt þegar rætt er um afnám verðtryggingar. Menn óttast að ef verðtryggð lán verði bönnuð þá sitji neytendur eftir með óverðtryggð lán á okurvöxtum. Standast þessi rök skoðun? Er ástæða til að óttast afnám verðtryggingar?

Landspítalanum áskapað að verða undir

Bolli Héðinsson skrifar

Fullkomin sjúkrastofnun opnar í Ármúla (Hótel Ísland) með öllum nýjustu tækjum og öllu starfsfólki svo vel höldnu að það hvarflar ekki að því að fara í verkfall. Á sama tíma dynur á Landspítalanum enn eitt verkfallið og tækjabúnaður er annaðhvort skammtaður af tímabundnu örlæti þingmanna eða ölmusugjöfum velunnara spítalans. Samt sækja bæði klínikin í Ármúlanum og Landspítalinn alla sína fjármuni í sama vasa, vasa skattgreiðenda. ­Hvernig má þetta vera?

150 milljónir til höfuðs fríkirkjum?

Hjörtur Magni skrifar

Frjálsar kristnar kirkjur og grasrótarsöfnuðir hafa vaxið verulega og telja nú tugi þúsunda Íslendinga. Allir kristnir ættu að fagna því. Þjóðkirkjustofnanir eru víðast hvar á undanhaldi í þeim löndum þar sem þær enn fyrirfinnast.

ÞÚ ferð í taugarnar á mér!

Kolbrún Baldursdóttir skrifar

Hvað ég eða einhver annar hugsar kemur engum við. Sumar hugsanir eru gæluhugsanir, aðrar íþyngjandi, þrálátar og enn aðrar sjálfvirkar í þeirri merkingu að við ákveðnar aðstæður eða áreiti þá skjótast þær fram og taka stjórnina. Hugsanir, jákvæðar sem neikvæðar eru á ábyrgð þess einstaklings sem á þær og hann velur hvort hann ætlar að leyfa þeim að hafa einhver sérstök áhrif á líðan eða atferli sitt.

Dagur gegn einelti 8. nóvember

Eygló Harðardóttir skrifar

Sunnudagurinn 8. nóvember verður tileinkaður baráttu gegn einelti og er það í fimmta sinn sem það er gert hér á landi. Markmiðið er að vekja athygli á málefninu og hve alvarlegt einelti er.

Nei við miðlægu eldhúsi fyrir grunn- og leikskóla

Gunnar Svanberg Bollason skrifar

Nýlega birtist forsíðufrétt þess efnis að Reykjavíkurborg hygðist skoða uppsetningu á miðlægu eldhúsi fyrir grunn- og leikskóla borgarinnar. Samkvæmt fréttinni er markmiðið fyrst og fremst að ná fram hagræðingu í rekstri. Í umfjölluninni er vitnað í Skúla Helgason, formann skóla- og frístundasviðs, en hann segir að erfitt sé að ráða starfsfólk í núverandi mötuneyti og að mörg mötuneyti þarfnist endurnýjunar eða betra rýmis.

Flautum og hringjum á eineltisdaginn

Ögmundur Jónasson og Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir skrifar

Undanfarin ár höfum við undirrituð sameiginlega sent frá okkur yfirlýsingu í tilefni af alþjóðlegum degi gegn einelti, 8. nóvember.

Valdníðsla Matvælastofnunar

Hilmar Egill Jónsson skrifar

Við fjölskyldan vorum búin að bíða lengi eftir mánudeginum örlagaríka, 2. nóvember síðastliðinn.

Almenningur fjarri stjórnmálum

Ísak Gabríel Regal skrifar

Mörg okkar lesa fréttir og horfa á Rúv þar sem að frammi stendur fyrir fjarlægur heimur af alls kyns fólki af ólíkum toga.

Loksins loksins

Jökull A. Guðmundsson skrifar

Í Fréttablaðinu fimmtudaginn 8. október mánaðar (innbl. Fólk), birtist athyglisverð grein þar sem sagt er frá starfi frumkvöðulsins Garðars Garðarssonar.

Aðgengi að áfengi og vínmenning

Róbert H. Haraldsson skrifar

Þeir sem vilja sjá áfengi af öllum styrkleikaflokkum í matvöruverslunum, og sem víðast, tala stundum eins og það sé brýnt samfélagslegt verkefni að tryggja að allir hafi sem allra greiðastan aðgang að áfengi á flestum tímum sólarhrings.

Sjá næstu 50 greinar