Fleiri fréttir

Michelle Obama æfir klukkan 4:30 á næturna

Það verður seint sagt að forsetafrú Bandaríkjanna Michelle Obama sé löt því hún fer á fætur fyrir allar aldir og tekur nokkrar líkamsæfingar klukkan 4:30 á hverjum degi áður en hún skellir sér í sturtu og fer út í daginn. Micelle vaknar á þessum tíma svo hún geti æft áður en stúlkurnar hennar vakna. Barack og ég vinnum mikið hvern einasta dag. Ég vakna yfirleitt á undan honum og geri 30 mínútna rútínuna mína. Þá tek ég armbeygjur, magaæfingar og hnébeygjur með 30 sekúndna millibili, sagði Micelle.

Stefán Karl snýr aftur

Þjóðleikhúsið hefur gefið út leikskrá fyrir komandi leikár og kennir þar ýmissa grasa.

Súpermódel syngur á japönsku

Victoria's Secret súpermódelið Miranda Kerr, 29 ára, fer létt með að auglýsa Lipton te eins og sjá má í myndskeiðinu. Hún syngur eins og engill og það á japönsku. Ekki nóg með að Miranda heilli Japani með söngnum heldur hefur hún líka ráðið sig sem andlit Qantas flugfélagsins.

Gamall kall - Forsmekkurinn að Steindanum okkar 3 frumsýndur á Vísi

Gamlir karlar eiga það til að gera einhverja vitleysu sem ekki er hægt að erfa við þá. En hvað ætli leynist í raun og veru undir góðlátlegu yfirborðinu? Í nýjasta lagi Steinda, Gamall kall, er sjónin ekki fögur og söguhetjan syngur "Ég er gamall kall. Ég kemst upp með allt.“ "Þetta er það fyrsta sem sést úr nýju þáttaröðinni,“ segir Steindi og lofar þrusuþáttum næstu átta fimmtudagskvöld. "Ekki spurning. Það ætti eiginlega að gera frumsýningardaginn, 23. ágúst, að opinberum gríndegi og gefa frí.“ Lagið Gamall kall sömdu Steindi og félagar með rapparanum Gísla Pálma og kemur hann einnig fram í myndbandinu. Það verður sýnt í Steindanum okkar 3 á næstu vikum en í hverjum þætti er meðal annars tónlistarmyndband sem verður birt á Vísi á föstudögum.

Madonna meikar ekki sólargeislana

Madonna, 54 ára, fer sínar eigin leiðir svo mikið er víst. Eins og sjá má á myndunum kærir hún sig ekki um að spranga um léttklædd í sólinni - hvað þá í söltum sjónum. Hún veit hvað geislar sólarinnar gera húðinni. Söngkonan klæðist hvítum léttum fatnaði og tekur þátt í gleðinni með fjölskyldunni sem nýtur þess að busla í sjónum á frönsku Rívíerunni. Unnusti hennar Brahim Zaibat, 24 ára, var hinsvegar ekkert að verja sig fyrir sterkum geislum sólarinnar eins og sjá má á myndunum. Hérna má skoða Madonnu. http://visir.is/ALBUM/20120821/LIFID01/821009998

Hætt saman - ballið búið

Leikkonan Hilary Swank, 38 ára, er hætt með kærastanum sínum síðustu fimm ár, John Campisi. Þau hættu saman í sumar en Hilary...

Þessar myndir segja allt um sambandið

Parið sem slúðurmiðlar beggja vegna Atlantshafsins fá ekki nóg af, kántrísöngkonan Taylor Swift, 22 ára, og Connor kennedy, 18 ára, er ástfangið svo mikið er víst. Eins og sjá má á myndunum sem teknar voru nálægt heimili drengsins létu þau vel að hvort öðru á höfninni þrátt fyrir mannfjöldann. Connor lét vel að söngkonunni sem leit fyrst í kringum sig og kannaði hvort ljósmyndarar væru nærri en einbeitti sér síðan að kærastanum.

Harry Bretaprins og léttklæddar stúlkur

Harry Bretaprins var með hatt og sólgleraugu þegar hann skemmti sér í Las Vegas á MGM Gran hótelinu þar í borg. Það er ekki tekið út með sældinni að vera konungborginn og skemmta sér án þess að tekið er eftir því eins og í hans tilfelli. 27 ára prinsinn drakk vodka á milli þess sem hann sleikti sólina. Það var ekki að spyrja að því - prinsinn gisti á svítunni eins og prinsar gera - er það ekki annars?

Stjörnurnar syrgja Scott

Sjálfsvíg Tonys Scott hefur komið bæði kvikmyndaáhugamönnum og fólki úr kvikmyndabransanum í opna skjöldu.

Netið vinsæll skiptibókamarkaður hjá nemum

"Þetta er klárlega vinsælasta síðan sinnar tegundar en við erum með tæplega 20.000 notendur og fer fjölgandi,“ segir Vignir Már Lýðsson sem stendur á bakvið síðuna Skiptibokamarkadur.is ásamt Val Þráinssyni.

Hrafnhildur vinsæl

Fyrsta heimildarmynd sjónvarpskonunnar Ragnhildar Steinunnar Jónsdóttur, Hrafnhildur, hefur mælst vel fyrir hjá bíógestum og gagnrýnendum.

Þolir ekki Kardashian-fjölskylduna

Leikarinn Jeremy Renner lýsir yfir andúð sinni á Kardashian-fjölskyldunni í nýlegu viðtali við breska blaðið Guardian. Kardashian-fjölskyldan hefur gert garðinn frægan með raunveruleikaseríu sinni Keeping up with the Kardashians á sjónvarpsstöðinni E! en Renner er ekki í aðdáendahópi fjölskyldunnar.

Kærð fyrir að styðja samkynhneigða

Madonna hefur verið kærð af níu aðgerðasinnum í Rússlandi. Þeir krefjast þess að hún greiði 10,5 milljónir dollara fyrir að hafa lýst yfir stuðningi sínum við réttindi samkynhneigðra á tónleikum í Sankti Pétursborg í Rússlandi á dögunum.

Bað um íslenska listamenn

Söngkonan Beth Orton fékk tvíeykið Árna & Kinski og Hrafnhildi Hólmgeirsdóttur til að vinna tónlistarmyndband fyrir sig á dögunum.

Megan Fox blómstrar

Leikkonan Megan Fox, 26 ára, blómstrar sem aldrei fyrr eins og sjá má á myndunum. Hún gengur nú með sitt fyrsta barn. Rósóttur kjóllinn fer henni afburða vel. Ég á enga vini og fer sjaldan út úr húsi, lét leikkonan hafa eftir sér sem segir að frægðarheimurinn er ekki endilega eftirsóttur þegar kemur að vinum og félögum.

Hvetur stráka til að sækja um

„Við leitum fyrst og fremst að hæfileikafólki. Menntun er ekki skilyrði en vitaskuld mikill kostur, segir Ágústa Johnson framkvæmdastjóri hjá Hreyfingu en hún býður öllum sem dreymir um að kenna hjá sér að koma í inntökupróf...

Niðurlútur Tom Cruise

Meðfylgjandi mynd var tekin af Tom Cruise í gær þegar hann yfirgaf Madeo veitingahúsið í Los Angeles. Eins og sjá má var hann niðurlútur sem er skiljanlegt...

Smith-fjölskyldan opnar fjölskyldualbúmið

Hjónin Jada Pinkett Smith og Will Smith birtu gamlar fjölskyldumyndir sem skoða má hér á myndasíðunni þeirra á Instagram þar sem börnin þeirra Jaden og Willow eru nýfædd. Þá má einnig sjá soninn hans Will, Trey, með hjónunum...

Elskar Chris enn þrátt fyrir ofbeldið

Söngkona Rihanna felldi tár þegar hún ræddi við fjölmiðladívuna Opruh á sjónvarpsstöðinni Own. Söngkonan viðurkenndi í viðtalinu að hún elskar ennþá söngvarann Chris Brown sem beitti hana ofbeldi á meðan á sambandi þeirra stóð. Hún segist vera í sambandi við Chris sem er á föstu og að á milli þeirra hafi myndast traust. Við elskum hvort annað og munum væntanlega ávallt gera það, sagði Rihanna meðal annars. Meðfylgjandi má sjá brot úr viðtalinu í auglýsingastiklu á þættinum sem sýndur var í gær.

Taylor Swift og Kennedy ástfangin

Kántrístjarnan Taylor Swift, 22 ára, og 18 ára afastrákur Robert F. Kennedy, Connor Kennedy, hafa verið á milli tannanna á fólki undanfarnar vikur...

E! fjallar um tónleika Russell Crowe og Patti Smith

Sjónvarpsstöðin E! fjallar um tónleika Russell Crowe í Reykjavík um helgina á vefsíðu sinni í morgun. Þar segir að leikarinn hafi komið fram á tónleikunum ásamt Patti Smith og með fréttinni fylgir myndskeið þar sem þau taka lagið Because the Night. "Áhorfendum var brugðið þegar að Patti Smith mætti á sviðið,“ segir í fréttinni.

Lyfti fjórum sinnum fyrir miða

Um þrjú hundruð manns lyftu eitt hundrað kílóum í bekkpressu fyrir forsýningu hasarmyndarinnar The Expendables 2 á dögunum. Einn miði var í boði fyrir tvær lyftur.

Hansa er Mary Poppins

„Ég er rosalega spennt fyrir hlutverkinu og hlakka mikið til. Það má segja að þetta sé draumahlutverkið,“ segir leik-og söngkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir sem bregður sér í hlutverk barnapíunnar göldróttu Mary Poppins í Borgarleikhúsinu í vetur.

Frestar brúðkaupinu

Leikkonan Anne Hathaway og unnusti hennar, Adam Schulman hafa frestað brúðkaupi sínu fram á næsta ár. Upphaflega átti brúðkaupið að fara fram núna síðsumars en Hathaway vill klára vinnutörn áður en hún giftir sig. Frá þessu greinir Us Weekly.

Sjóðheit og dansandi

Kate Hudson leikur sjóðheitan danskennara, Rachel Berry, í nýjustu þáttaröðinni af Glee, en fyrsti þátturinn verður frumsýndur vestanhafs í september.

Patti mætti líka á Kex - myndband

Ekki nóg með að Patti Smith hafi slegið í gegn á Menningarnæturtónleikum X-977 með Russell á bak við Ellefuna í gær heldur poppaði hún einnig upp á veitingahúsinu Kex þar sem hún var alls ekki síðri. Sjáðu Russell Crowe og flutning söngkonunnar í meðfylgjandi myndskeiði.

Vinsælust hjá Írum

Little Talks, slagari Of Monsters and Men, trónir á toppi írska vinsældarlistans þessa vikuna. Í síðustu viku sat lagið í fjórða sæti en hefur unnið á. Einnig er íslenska sveitin efst í skoðanakönnun vefsíðu Grammy-tónlistarverðlaunanna. Þar eru netverjar beðnir um að velja sitt uppáhaldsmyndband og er greinilegt að Little Talks er búið að slá í gegn á heimsvísu því 84 prósent atkvæða eru myndbandi þeirra í hag. Ætli tilnefning til Grammy-verðlaunanna sé á næsta leiti?

Russell hæstánægður með góða tónleika

Russel Crowe er hæstánægður með tónleikana á Menningarnótt. Hann þakkar gestunum fyrir á Twitter síðu sinni. Russel tróð upp á þremur stöðum í gær, meðal annars í Hörpunni.

Hljóp fyrir hjartveikan tvíburabróður

Örlygur Smári lagahöfundur með meiru hljóp 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu með syni sínum Gunnari Berg Smára, 9 ára, sem á tvíburabróður, Jakob, sem fæddist með alvarlegan hjartagalla og hefur þurft að fara í margar hjartaaðgerðir bæði í Svíþjóð og Ameríku hét á Neistann styrktarfélag hjartveikra barna og náði að safna hvorki meira né minna en 306. 000.- krónum. Meðfylgjandi mynd var tekin af glöðum feðgunum eftir hlaupið...

Russel Crowe spilar hjá X-977

stórleikarinn Russell Crowe kemur fram ásamt tónlistarmanninum Alan Thomas Doyle á stórglæsilegum Menningarnæturtónleikum X-977.

Þjóðþekktir hlaupa maraþon

Góð þátttaka verður í Reykjavíkurmaraþoninu í dag og mun stór hluti þjóðarinnar reima á sig hlaupaskóna og taka þátt til styrktar ýmsum málefnum. Í gær höfðu safnast hátt í 34 milljónir og láta þekktar persónur sitt ekki eftir liggja.

Samgleðst Aniston

Brad Pitt á að hafa slegið á þráðinn til hinnar nýtrúlofuðu Jennifer Aniston og óskað henni til hamingju með trúlofunina.

Tinna Alavis opnar tískublogg

"Ég og góð vinkona mín vorum að byrja með tískublogg fyrir nokkrum dögum," svarar Tinna Alavis fyrirsæta...

Stjórn Menningarnætur vill hita upp fyrir Russell Crowe

Stjórn Menningarnætur hefur rætt það, meira í gríni en alvöru, að hita upp fyrir Russell Crowe komi til þess að hann haldi tónleika á Menningarnótt sem haldin er á morgun. Þetta segir Jakob Frímann Magnússon í samtali við Vísi. Russell Crowe greindi frá því á Twitter að hann og stórvinur hans, kanadíski leikarinn og tónlistarmaðurinn Alan Doyle, vildu gjarnan halda tónleika um helgina.

Sjá næstu 50 fréttir