Lífið

Hansa er Mary Poppins

Jóhanna Vigdís Arnardóttir ætlar að svífa um svið Borgarleikhússins sem Mary Poppins. Söngleikurinn verður frumsýndur í lok febrúar en um viðamikla uppsetningu er að ræða.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir ætlar að svífa um svið Borgarleikhússins sem Mary Poppins. Söngleikurinn verður frumsýndur í lok febrúar en um viðamikla uppsetningu er að ræða.
„Ég er rosalega spennt fyrir hlutverkinu og hlakka mikið til. Það má segja að þetta sé draumahlutverkið,“ segir leik-og söngkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir sem bregður sér í hlutverk barnapíunnar göldróttu Mary Poppins í Borgarleikhúsinu í vetur. Söngleikurinn Mary Poppins fer á fjalir Borgarleikhússins í lok febrúar en um er að ræða viðamikla leikhúsuppsetningu.

Jóhanna Vigdís, eða Hansa eins og hún gjarna er kölluð, fékk að vita fyrir nokkru síðan að hún fengi hlutverkið. Það þurfti hins vegar að bíða eftir samþykki frá Disney og Cameron Mackintosh, sem í samvinnu við Borgarleikhúsið setja söngleikinn upp, og lögðu þeir blessun sína yfir leikaravalið í vikunni.

„Ég hef sjálf ekki séð söngleikinn en legið yfir honum á Youtube og er byrjuð að æfa mig á lögunum. Mér finnst söngleikurinn skemmtilegri en kvikmyndin en þar er að finna helling af nýjum lögum og mikið lagt upp úr heildarmyndinni þar sem dans-og söngatriðin gefa manni svo sannarlega gæsahúð,“ segir Hansa sem, eins og flestir, er mikill aðdáandi Mary Poppins og á sér sitt uppáhaldsatriði úr söngvamyndinni. „Sótaraatriðið, þegar þeir eru að dansa upp á þaki, er mitt uppáhalds úr myndinni. Þetta verður hörkuvinna en það skemmtilegasta sem ég geri er að syngja og dansa á sviði svo það er bara skemmtilegt.“

Meðal annarra leikara í stórum hlutverkum í söngleiknum eru þau Guðjón Davíð Karlsson, Jóhann Sigurðsson, Margrét Eir, Ester Thalía, Sigrún Edda Björnsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Halldór Gylfason og Hanna María Karlsdóttir. Íslenski dansflokkurinn tekur einnig þátt í sýningunni enda leikur dansinn þar stórt hlutverk. Svo verður fjölmennur kór og ellefu manna hljómsveit flytur lifandi tónlist í hverri sýningu. Bergur Ingólfsson leikstýrir, María Ólafsdóttir hannar búninga og Tékkinn Petr Hlousék hannar leikmyndina en einnig koma erlendir aðilar að uppsetningunni.

Spurð hvort hún sé nokkuð stressuð yfir því að standa ekki undir væntingum sem ein uppáhaldsbarnapía landans svarar Hansa „Nei, alls ekki. Ég er umvafin svo góðu og hæfileikaríku fólki í sýningunni og við ætlum að gera okkar allra besta.“

alfrun@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.