Fleiri fréttir

Ættingjar fyrrum eiginkonu O.J. Simpson fagna dómi

Ættingjar fyrrum eiginkonu ruðningskappans O.J. Simpson sem trúa því að hann hafi myrt hana, fagna dómnum yfir honum í gær. Hann var dæmdur í allt að þrjátíu og þriggja ára fangelsi fyrir vopnað rán, líkamsárás og tilraun til mannráns í Las Vegas fyrir rúmu ári.

Rúnar marseraði þá inn kirkjugólfið í lok tónleikanna og söng lagið „Gott er að gefa"

„Ég er búin að þekkja Rúnar í mörg ár og nokkrum sinnum komið fram með honum á tónleikum. Rúnar var skemmtilegur félagi, með „kúlið" í lagi fram á dánarstundina," svarar Helga Möller söngkona sem minnist Rúnars Júlíussonar sérstaklega fyrir skemmtilegan húmor og hversu samkvæmur hann var alltaf sjálfum sér. „Mér er sérstaklega minnisstætt þegar við komum fram á jólatónleikum í Keflavíkurkirkju fyrir nokkrum árum síðan. Hann sló ærlega í gegn sérstaklega þegar hann masseraði inn kirkjugólfið í lok tónleikanna og söng lagið „Gott er að gefa"."

OJ dæmdur 15 ára fangelsi

Ruðningskappinn O.J. Simpson var nú skömmu fyrir fréttir dæmdur í fimmtán ára fangelsi fyrir vopnað rán, líkamsárás og tilraun til mannráns í Las Vegas í fyrra. Hann á möguleika á náðun eftir sex ár.

Þörf á jákvæðum fjölmiðlum

„Monitor mun laga sig að breyttum aðstæðum á næsta ári og starfsemin heldur áfram. Vefurinn verður efldur en útgáfudögum blaðsins verður fækkað," segir Atli Fannar Bjarkason ritstjóri aðspurður um framtíð Monitors. „Ég ætla að halda áfram sem ritstjóri Monitors. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi miðill dafni á næsta ári því fólk þarf á jákvæðum fjölmiðlum að halda," segir Atli.

HugurAx styrkir Mæðrastyrksnefnd

Mæðrastyrksnefnd hlaut í morgun 300 þúsund krónur í styrk frá upplýsingatæknifyrirtækinu HugiAx. Margrét K. Sigurðardóttir, fjármálastjóri mæðrastyrksnefndar veitti styrknum viðtöku á aðventumorgni HugarAx var haldinn hátíðlegur í húsakynnum fyrirtækisins að Guðríðarstíg.

Mikill missir

„Það eru bara fáir útvaldir sem fá að kveðja svona, þegar þeir eru að gera sig klára að fara á svið," segir Bubbi Morthens, samstarfsmaður Rúnars Júlíussonar til margra ára. „Auðvitað hefði ég viljað vera með Rúnari í 10-15 ár í viðbót ef heilsa hans hefði leyft, en úr því þetta þetta er orðin staðreynd, þá er miklu meiri gleði í hjarta mínu að hafa fengið að kynnast Rúnari en sorg."

Björgólfur á KR-leik í körfunni

Björgólfur Guðmundsson skellti sér á leik hjá KR-ingum í körfuboltanum í vesturbænum í kvöld. KR-ingar völtuðu þar yfir ungt lið Skallagríms frá Borgarnesi og fylgist Björgólfur með sínum mönnum.

Gerður Kristný ávarpar Austurvöll

Áfram halda friðsamleg mótmæli á Austurvell. Á hverjum laugardegi streyma þúsundir manna á Austurvöll og krefjast afsagnar núverandi stjórnar Seðlabankans, afsagnar núverandi stjórnar Gjaldeyrsieftirlitsins og nýrra kosninga.

Bakkabræður á lúxussnekkju

Ágúst og Lýður Guðmundssynir sem oft er kallaðir Bakkabræðrum hafa undanfarið árið notið lífsins á 50 metra langri lúxussnekkju sem var áður í eigu ítalska tískukóngsins Giorgio Armani.

Páll Óskar áritaði Silfursafnið

Tónlistamaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson á dygga aðdáendur sem gerðu sér ferð í Smáralindina í dag til að fá eiginhandarráritun hjá goðinu sínu.

Fyrrum sjónvarpsstjarna gerir góðverk

„Ég var að taka til í skápnum hjá 13 ára syni mínum þar sem ég rakst á tvennar svartar jólabuxur sem hann var augljóslega vaxinn uppúr ásamt hvítri skyrtu og jólaskóm," svarar Sesselja Thorberg sem margir þekkja úr sjónvarpsþáttunum Innlit/útlit aðspurð hvernig hún fékk hugmyndina að Jóla-fata-skipti-markaðnum sem starfræktur verður í Neskirkju fram að jólum. „Þar sem það sást ekki á þessu gat ég ekki hugsað mér að fleygja þessu og því miður á ég ekki litla frændur sem hefðu getað notið góðs af." „Mér varð hugsað til allra þeirra sem hafa misst vinnuna undafarið og horfa fram á þrengri kost en þau eru vön þessi jól," segir Sesselja.

Sinfónían tilnefnd til Grammy-verðlauna

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið tilnefnd til Grammy-verðlauna fyrir besta hljómsveitarflutning. Tilnefninguna hlýtur sveitin fyrir geisladisk sinn með hljómsveitarverkum eftir franska tónskáldið Vincent d´Indy, sem kom út hjá bresku Chandos-útgáfunni fyrr á þessu ári. Stjórnandi á disknum er Rumon Gamba, aðalstjórnandi hljómsveitarinnar.

Mikil stemmning fyrir tónleikum Ratatat

Bandaríska tvíeykið Ratatat spila á eins árs afmæli viðburðafyrirtækisins Jón Jónsson ehf. 20. desember næstkomandi. Miðasala fór mjög vel af stað og er spennan greinilega mjög mikil fyrir sveitinni því þegar hafa selst tæplega tvöþúsund miðar.

Suri Cruise: Ég vil pabba minn

Eins og myndirnar sýna vildi Suri Cruise ekki sleppa pabba sínum, leikaranum Tom Cruise, þegar þau yfirgáf íbúð þeirra í New York í gærdag ásamt móður hennar, leikkonunni Katie Holmes. Tom Cruise, sem er 46 ára gamall, hélt á Suri, 2 ára. Vel fer á með Tom og dóttur hans, á milli þess sem þau takast á um hver á að ráða ferðinni.

Hugmyndin kom frá dularfullum stað

Vísir hafði samband við rithöfundinn Guðrúnu Evu Mínervudóttur sem er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir skáldsöguna Skaparinn. Þar lýsir Guðrún Eva átökum venjulegs fólks við sérkennilegar aðstæður þar sem hjálpin berst stundum úr óvæntri átt. „Ástarþakkir. Jú ég er bara himinlifandi. Alveg. Svo gaman," svarar Guðrún Eva þegar Vísir óskar henni til hamingju með tilnefninguna.

Smokkasala dregst saman í kreppunni

„Í fyrsta skipti síðan við tókum við Durex-smokkunum fyrir fjórum árum hefur salan dregist saman. Þetta er í kringum 25 prósenta samdráttur,“ segir Ásgeir Sveinsson, deildarstjóri hjá Halldóri Jónssyni ehf. sem flytur inn Durex-smokka. Í erlendum vefmiðlum hefur mikið verið gert úr því að smokkar séu einhver vinsælasti varningurinn í verslunum um þessar mundir enda sé kynlíf fremur ódýr afþreying í því fjármálahruni sem nú ríkir á Vesturlöndum.

Depardieu vegur að Jamie Oliver

Franski leikarinn Gérard Depardieu sakar breska sjónvarpskokkinn Jamie Oliver, sem þekktastur er fyrir sjónvarpsþætti sína Kokkur án klæða, um að vera ekkert nema fégræðgin og auðvaldshyggjan holdi klædd.

Polanski vill hreinsa nafn sitt

Leikstjórinn Roman Polanski, maðurinn á bak við Rosemary"s Baby, Chinatown og The Pianist, hefur óskað eftir því að 31 árs gömul ákæra á hendur honum um kynferðislega misnotkun verði felld niður.

HIV-Ísland fagnar 20 ára afmæli

Föstudaginn 5. desember verða liðin 20 ár frá stofnun HIV-Ísland alnæmissamtakanna. Tímamótanna verður minnst með stuttri dagskrá fyrir félagsfólk, heilbrigðisstarfsmenn og velunnara þennan sama dag í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu.

Heiðar snyrtir: Kjósum Ungfrú Ísland til sigurs

„Stelpan lítur óaðfinnanlega út alla daga og finnst gaman að taka þátt í keppninni," segir Heiðar Jónsson kynnir Miss World keppninar sem verður sýnd í beinni útsendingu á Skjá einum 13. desember næstkomandi þegar Vísir biður hann að spá fyrir um gengi Alexöndru Helgu Ívarsdóttur Ungfrú Ísland 2008 í keppninni.

Tættur tími framundan, segir Hallgrímur Helgason

Fyrsta skáldsaga Hallgríms Helgasonar í þrjú ár hefur mælst mjög vel fyrir á þeim stutta tíma sem er liðinn frá útgáfu hennar. Sagan nefnist 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp og fjallar um króatíska leigumorðingjann Toxic sem endar fyrir röð tilviljana á Íslandi.

Útgefendur nýju plötunnar æfir út í Axl Rose

Útgefendur nýju Guns 'N' Roses-plötunnar Chinese Democracy eru æfir yfir þeirri háttsemi hins rauðhærða söngvara, Axl Rose, að láta ekki nokkurn mann ná sambandi við sig eftir að platan kom út.

Kannabisræktun í bílskúr Ómars

„Þetta var fyndið. Ég á sem sagt íbúð og bílskúr sem ég keypti og hafði hugsað sem eftirlaunasjóð. Leigði þetta út hvort í sínu lagi,“ segir Ómar R. Valdimarsson ræðismaður.

RÚV-arar neita að bera HIV-merki

„Ég varð hissa á viðbrögðum hans. Mjög hissa. Það er jú árið 2008. Og erfitt að berjast við tabú þegar ríkisbáknið neitar að taka þátt,“ segir Gunnlaugur Grétarsson, formaður HIV Ísland – alnæmissamtakanna.

Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2008

Tilnefnt hefur verið til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2008. Íslensku bókmenntaverðlaunin voru stofnuð af Félagi íslenskra bókaútgefanda árið 1989 og eru veitt af Forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í janúar hvert ár.

Íslenskir ísbirnir í heimspressunni

Skjóta á ísbirni sem koma hingað til lands en ekki veita þeim öruggt skjól, þetta er niðurstaða nefndar sem sagt er frá á fréttavefnum The Earth Times í dag. Þar er sagt að nefndin hafi verið skipuð í kjölfar þess að tveimur ísbjörnum skolaði á land hér á landi eftir dvöl á ísjökum sem ráku frá Grænlandi.

„Ég var ekkert að rembast," segir Snorri Idolstjarna

„Aðalmálið er að vita sín takmörk og hvað þú getur. Þú verður virkilega að einbeita þér að keppninni með heilum hug ef þú ætlar þér eitthvað áfram," svarar Snorri Snorrason sem sigraði Idol stjörnuleit Stöðvar 2 árið 2006 aðspurður um ráð fyrir verðandi Idolstjörnur. Annars er aðalmálið held ég að hafa bara gaman af þessu.

700 leikskólabörn skreyta Jólaþorpið

Nú í vikunni koma 700 leikskólabörn í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði og skreyta trén sem umlykja þorpið með fallegu hlutunum sem þau hafa búið til fyrir þorpið undanfarna daga.

Condolezza Rice spilar á píanó - myndband

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Elísabetu II Englandsdrottningu á kveðjuferðalagi hennar um Evrópu. Þær hittust í Buckingham höll í gær og það sem merkilegra þykir er að Rice spilaði fyrir drottninguna á píanó. Sjá Rice spila á píanóið hér.

Britney barmar sér í föðurhúsum

Söngkonunni Britney Spears hundleiðist að vera undir vökulu auga föður síns en dómstóll í Kaliforníu úrskurðaði fyrr á árinu að hann skyldi vera lögráðamaður hennar og hafa þar með öll hennar ráð í hendi sér.

Georg Bjarnfreðarson mun kunna vel við sig í fangelsi

Til umræðu er að gera kvikmynd í fullri lengd um þá Georg, Ólaf Ragnar og Daníel en þeir slógu öll áhorfsmet á Stöð 2 í vetur. Þegar er búið að komast að samkomulagi um að gera þriðju þáttaröðina og verður hún sýnd á næsta ári. Höfundar hennar settust niður í dag byrjaðu að skrifa handritið að fyrstu þáttunum.

„Byrgismálið eftirminnilegast," segir ritstjóri Kompáss

Í kvöld klukkan 19:20 verði sýndur hundraðasti þátturinn af Kompási í opinni dagskrá á Stöð 2. Vísir hafði samband við ristjóra Kompáss, Jóhannes Kr. Kristjánsson, og spurði hann út í eftirminnileg atvik við gerð þáttanna.

„Nú þurfum við heiðarlegt þjóðfélag," segir Raggi Bjarna

„Þetta er svona þetta gamla. Þetta er eina platan sem er svona með þessari músík. Þetta eru lög sem voru öll mjög vinsæl á sínum tíma og þessi tónlist er bara eitthvað sem fólk nýtur þess að hlusta á," segir Ragnar Bjarnason sem sendir frá sér nýja plötu fyrir þessi jól sem nefnist „Lögin sem ekki mega gleymast". „Platan er ekki endilega stíluð á eldra fólk heldur frekar fyrir alla sem vilja gleðjast, dansa og syngja með og gleyma þessu augnabliki og hafa það huggulegt," segir Ragnar Bjarnason.

Afleggjarinn og Blysfarir tilefndar

Tilkynnt var í dag hvaða bækur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2009. Af Íslands hálfu hljóta tilnefningu skáldsagan Afleggjarinn eftir Auði A. Ólafsdóttur sem út kom hjá bókaútgáfunni Sölku og ljóðabókin Blysfarir eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur hjá Forlaginu-JPV útgáfu.

Stresslaus og berskjaldaður Friðrik Ómar

„Ég hef það gott. Það fer samt ekki framhjá manni hvernig landið liggur en maður verður að bíta á jaxlinn. Ég þreif íbúðina í gær og gerði klárt fyrir jólaskrautið," segir Friðrik Ómar aðspurður hvernig hann hefur það. „Það er allt á fullu. Ég er meðal annars að dreifa nýjustu plötunni minni í búðir. Ég var með tónleika í Salnum í mars síðastliðinum „Í minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar" en þeir voru hljóðritaðir og núna eru þeir semsagt komnir út á plötu sem ég er hæstánægður með. Þetta er bara gaman þó þetta sé mikil vinna."

Dagvaktarliðið fer í fangelsi

Þriðja þáttaröðin um Georg, Daníel og Ólaf Ragnar verður að veruleika á næsta ári. Hefur þáttaröðin hlotið vinnuheitið Fangavaktin. Þetta staðfesti Ragnar Bragason leikstjóri við Fréttablaðið. Ekki liggur hins vegar fyrir hvort þremenningarnir verði fangar, fangaverðir eða sitt lítið af hvoru. Síðasti þáttur Dagvaktarinnar fór í loftið í gærkvöldi en þáttaröðin er orðin ein sú vinsælasta í sögu Stöðvar 2.

Lúxusbílar til sölu á spottprís

Tómstundahúsið er eini staðurinn á landinu þar sem lúxusbílar seljast í dag, enda eru þeir á spottprís. „Range Rover er alveg uppseldur hjá okkur. Hann kostaði 7.000 krónur og var í stærðinni 1/18. Ég kaupi ekki inn nýjar birgðir á meðan gengið er svona. Maður vonar bara að þetta breytist,“ segir Birgir Kristinsson í Tómstundahúsinu. Hann býður þó enn þá upp á ýmsar tegundir góðærisbíla. „Ég er með Hummer H3 á 2.600 kr. og BMW M3 og M6 á 4.000 og 6.200 krónur.“

Til hjálpar vinum

Leikarinn Matthew McConaughey hefur komið tveimur brimbrettavinum sínum í Kaliforníu til hjálpar. Þeir hafa verið sakaðir um að ráðast á hóp papparassa sem reyndu að smella myndum af McConaughey.

Önnur þáttaröð vestanhafs

Önnur þáttaröð af Little Britain USA verður gerð fyrir Bandaríkjamarkað þrátt fyrir orðróm um að áhorfendur þar í landi hafi átt erfitt með að átta sig á húmornum og hafi fundist hann of dónalegur.

Sjá næstu 50 fréttir