Fleiri fréttir Enginn formannsfiðringur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi er fimmtug í dag. "Ég hélt nú upp á fertugsafmælið í Norræna húsinu og mér finnst stórafmæli ágæt til þess að hitta þá sem ég hef verið samferða og unnið með og fagna með þeim. Núna langar mig til þess að hitta vini, ættingja og samferðafólk í dag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu," segir afmælisbarn dagsins. 31.12.2004 00:01 Bára bleika nútímans Í Ingólfsstræti 8 opnaði verslunin og testofan Frú fiðrildi á dögunum. Nafnið kom að sjálfu sér því eigandanum finnst fátt skemmtilegra en að flögra um og gera umhverfið enn fallegra. Marta María Jónasdóttir lét Frú fiðrildi dekra við sig með ilmandi tei, marengstoppum og góðum hugmyndum fyrir heimilið. 31.12.2004 00:01 Jólaseríur allt árið Það leiðist víst flestum að taka niður jólin og margir vilja halda í þau eins lengi og kostur er. Aðrir ganga rösklega til verks og pakka jólunum saman á einum eftirmiðdegi og henda ýmsum óþarfa og forgengilegu drasli eins og jólaseríunum. 30.12.2004 00:01 Íslandsspil leggja til 5 milljónir Íslandsspil afhentu í dag Rauða krossi Íslands fimm milljónir króna til hjálparstarfsins vegna hamfaranna sem urðu við Indlandshaf á annan í jólum. Hjálparstarf Rauða krossins á svæðinu er það umfangsmesta sem hreyfingin hefur ráðist í um áratugaskeið. Samkvæmt hjálparbeiðni sem Alþjóða Rauði krossinn sendi út í gær er þörf á um þremur milljörðum króna til hjálparstarfs hreyfingarinnar. 30.12.2004 00:01 Leitað að ástvinum á netinu Á vefsíðunni www.p-h-u-k-e-t.com. fer nú fram áköf leit að ástvinum á Netinu. Þar hefur meðal annars verið settur inn dálkur fyrir Íslendinga sem kunna að vera á hamfarasvæðinu og þeir beðnir um að láta vita af sér. Á síðunni hafa þegar margir ferðamenn á hamfarasvæðunum látið vita af sér en einnig eru þar margar orðsendingar þar sem fólk leitar horfinna ástvina. 30.12.2004 00:01 67 ára ólétt 67 ára gömul kona í Rúmeníu er ólétt að tvíburum eftir að hafa gengist undir frjósemisaðgerð. Fari fæðingin að óskum verður rithöfundurinn og fræðikonan Adriana Iliescu elsta nýbakaða móðir sem um getur, en metið á nú indversk kona sem í fyrra eignaðist dreng á 66. aldursári. 30.12.2004 00:01 Styðja hjálparstarf Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar hafa ákveðið að verja milljón hvort fyrirtæki til hjálparstarfs Rauða krossins vegna hamfaranna í Asíu, sem kostað hafa tugþúsundir mannslífa. Jafnframt skora Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar á önnur stærri fyrirtæki landsins að láta ekki sitt eftir liggja vegna hörmulegra afleiðinga flóðanna í kjölfar jarðskjálftans á annan dag jóla. 30.12.2004 00:01 Verðlaunuð af Alþjóðahúsinu Félagsþjónustan í Reykjavík, Kári Tran veitingamaður og Hólmfríður Gísladóttir fyrrverandi starfsmaður Rauða krossins fá í dag viðurkenningar Alþjóðahúss fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda og fjölmenningarlegs samfélags á Íslandi. 30.12.2004 00:01 11 brennur á höfuðborgarsvæðinu Kveikt verður í ellefu brennum í höfuðborginni annað kvöld. Söfnun í bálkestina hófst í fyrradag og lýkur um miðjan dag á morgun. Gamlársbrennur höfuðborgarinnar verða á gamalkunnum stöðum. Sjö þeirra eru í umsjá Gatnamálastofu og fjórar í umsjá félags- og íbúasamtaka og verður kveikt í þeim öllum um klukkan hálfníu annað kvöld. 30.12.2004 00:01 Skýtur upp fram á morgun Flugeldafíklar skjóta margir upp flugeldum fyrir milljónir króna, að sögn eins þeirra, sem viðurkennir fúslega að þetta sé náttúrulega bilun. Hann byrjar að skjóta fyrir miðnætti á gamlárskvöld og er að fram á nýársmorgun. 30.12.2004 00:01 Búrfiskar í baðlóni Fiskar af erlendum uppruna, og algengir eru í fiskabúrum á Íslandi, virðast lifa góðu lífi og fjölga sér ört í baðlóninu við Kaldbak sunnan Húsavíkur. Á huldu er hvernig þeir komust í lónið en getgátur eru um að einhver á Húsavík hafi sleppt þeim þar í tilraunaskyni. 30.12.2004 00:01 Beiðni Fischers tekin til skoðunar Chieko Nohno, dómsmálaráðherra Japans, féllst í gær á að taka til skoðunar beiðni skákmeistarans Bobbys Fischer um að fá að fara til Íslands í stað þess að vera vísað úr landi til Bandaríkjanna. 29.12.2004 00:01 Rísandi atvinnuvegur Nýjar byggingar stóru fyrirtækjanna á höfuðborgarsvæðinu hafa vakið athygli fyrir miklar glerklæðningar. Því kemur það ekki á óvart að samhliða fjölgun "speglabygginga" glæðast viðskipti gluggahreinsunarmanna. 29.12.2004 00:01 Fann partí innra með sér Valdimar Flygenring leikari hefur orðið flugeldaglaðari með aldrinum en hann segist á árum áður aðallega hafa haldið sína áramótabrennu og flugeldasýningu í hausnum á sér. "Það hefur sem betur fer breyst og í staðinn tek ég þátt í flugeldagríninu af lífi og sál. 29.12.2004 00:01 Bara fjórir dvergar Jólaleikrit leikfélagsins í þýska bænum Stendal heitir því frumlega nafni Mjallhvít og dvergarnir fjórir. Ástæðan er ekki vankunnátta leikhúsmanna á hinu sígilda ævintýri um prinsessuna fögru og stjúpuna vondu, heldur er fjárhagsstaða leikfélagsins svo slæm að einungis voru fjárráð til að ráða fjóra dverga í stykkið. 29.12.2004 00:01 Vill sófann mjúkan "Mér finnst gott að kasta mér í sófann minn að loknum vinnudegi og glápa á sjónvarp og góðar bíómyndir," segir Eggert Kaaber leikari sem segist vegna vinnu sinnar einnig nota sófann til að lesa yfir handrit. "Svo er líka voðalega gott að sofna í honum yfir sjónvarpinu," segir Eggert og hlær. 29.12.2004 00:01 Byrjar nýtt og bleikt líf Helga Thorberg er að losa sig við allt á heimilinu sínu, alla gamla hluti, styttur, bækur, föt - allt. "Ég er að hreinsa allt út af harða disknum og byrja upp á nýtt og það er svo gaman að það er dýrðlegt. Nú er ég að byrja nýtt skvísulíf. 29.12.2004 00:01 Sjötíu þúsund til Rauða krossins "Þessar hamfarir snerta okkur öll á einn eða annan hátt," segir Eilífur Friður Edgarsson, sem í gær afhenti Rauða krossinum sjötíu þúsund krónur til styrktar fórnarlömbum hamfaranna við Indlandshaf. 29.12.2004 00:01 Anselmo harmi lostinn Philip Anselmo, fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Pantera hefur sent fjölmiðlum tilfinningaþrungna yfirlýsingu í formi myndbandsupptöku. Hljómsveitarbróðir hans fyrrverandi, Dimebag Darrell var myrtur á tónleikum á dögunum. 29.12.2004 00:01 Flugeldar fyrir 400 milljónir? Búist er við að landsmenn skjóti upp flugeldum fyrir allt að fjögur hundruð milljónir króna um áramótin. Reiknað er með góðri flugeldasölu þrátt fyrir slæma veðurspá. Fluttir voru inn 30 gámar af flugeldum fyrir áramótin, eða um 500 tonn, en langmest, um 400 tonn, er flutt inn af slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, sem með sölu á varningnum aflar fjár fyrir starfsemi sína. 29.12.2004 00:01 Stefnt að opnun Hlíðarfjalls í dag Ef veður leyfir verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri opnað klukkan 11 í dag. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns skíðastaða, er kominn þokkalegur snjór í fjallið en þó minni en niður í byggð á Akureyri. 28.12.2004 00:01 Fasteignamat hækkar um 13% Fasteignamat íbúða hækkar um 13% víðast hvar suðvestanlands um áramótin. Fasteignamat sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkar þó um 20%. Mest hækkar matið um 30% í Fjarðabyggð og á sérbýli á Seltjarnarnesi. 28.12.2004 00:01 Laus við allt stress Linda Pétursdóttir er 35 ára í dag. Hún tekur því rólega í faðmi fjölskyldunnar. Linda vill njóta þess að vera á Íslandi með fjölskyldunni yfir jólin. Eftir fríið hefur hún nýtt nám í Bandaríkjunum í auglýsingagerð.</font /></b /> </font /></b /> 27.12.2004 00:01 Tvöföld nýársgleði á Sögu Á Hótel Sögu verður árlegur nýársfagnaður í ár samkvæmt venju en þetta er í 15. skipti sem hann er haldinn. "Það má eiginlega segja að við séum með tvo nýársfagnaði þetta kvöld," segir Hafsteinn Egilsson, veislu- og ráðstefnustjóri á Hótel Sögu. 27.12.2004 00:01 Hjálpum Hinriki Söfnun er hafin fyrir læknismeðferð tveggja ára drengs. 27.12.2004 00:01 Ákvörðunar að vænta eftir áramót Ekki er talið að hreyfing komist á mál skákmeistarans Bobbys Fischer í Japan fyrr en eftir áramót, að sögn Sæmundar Pálssonar, fyrrverandi lögreglumanns og vinar Fischers. 27.12.2004 00:01 R-listinn fallinn? Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í næstu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík, fjölskyldur leysast upp á næsta ári vegna skuldsetningar og tvær kvikmyndir verða gerðar eftir bókum Arnaldar Indriðasonar. Þetta er á meðal þess sem völva Vikunnar sér fyrir sér að gerist í íslensku samfélagi á næsta ári og því þarnæsta. 26.12.2004 00:01 Einn fékk 16 milljónir Einn getspakur Lottóleikmaður var með allar tölur réttar í lottóúrdrætti að kvöldi jóladags og fær 16 milljónir króna í óvænta jólagjöf. 26.12.2004 00:01 Jólafrumsýning í Þjóðleikhúsinu Jólaleikrit Þjóðleikhússins Öxin og jörðin var frumsýnt að kvöldi annars dags jóla eins og vandi er til. Leikritið er byggt á samnefndri skáldsögu Ólafs Gunnarssonar um síðustu daga Jóns Arasonar biskups en fyrir hana hlaut Ólafur Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2003. 26.12.2004 00:01 Kleif hæstu byggingu í heimi Franska ofurhuganum, Alain Robert, sem kallaður er franski kóngulóarmaðurinn, tókst að klífa hæstu byggingu í heimi, í Tapei á Tævan í morgun. 25.12.2004 00:01 Enn deilt um uppgjör Opinberunar Kvikmyndagerðarmenn eru ósáttir við að Kvikmyndamiðstöð kalli ekki eftir uppgjöri vegna myndar Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun Hannesar. Stjórn félags tekur málið upp. </font /></b /> 24.12.2004 00:01 Hrafn segist skila uppgjöri til skattsins "Ég skila uppgjöri til skattsins og auðvitað fylgir greinargerð með eins og með hverri einustu mynd sem ég geri," sagði Hrafn Gunnlaugsson, spurður um hvort hann myndi gera Kvikmyndamiðstöð Íslands grein fyrir þeim fjármunum sem hann fékk til gerðar myndar sinnar, Opinberunar Hannesar. 24.12.2004 00:01 KEA veitir hátt í 30 styrki Styrkir úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA voru afhentir á Fiðlaranum á Akureyri sl. miðvikudag. Alls bárust 85 umsóknir og fengu 27 styrki, samtals að fjárhæð rúmar fimm milljónir króna. 24.12.2004 00:01 Bjargar mörgum frá innlögn Fjárframlag til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar fyrir næsta ár er loks í höfn. Á ýmsu hefur gengið með verkefnið síðustu misserin. Síðla sumars leit út fyrir að á annað hundrað manns myndu ekki geta hafið nám í húsnæði Geðhjálpar í haust eins og þeir höfðu sótt um, þar sem engin vissa fékkst um fjármuni til kennslunnar. 24.12.2004 00:01 Klífur hæsta turn í heimi Franskur ofurhugi ætlar að klifra upp hæstu byggingu í heimi á jóladag. Það er 508 metra hár skýjakljúfur, staðsettur í Tapei, höfuðborg Taiwans. Maðurinn, sem nefnist Alain Robert, hefur klifið flestar þekktustu byggingar heims, eins og Eiffel turninn, Empire State bygginguna og óperuhúsið í Sidney, oft án leyfis og viðeigandi öryggisbúnaðar. 24.12.2004 00:01 Margir í burtu um jólin Það verða hreint ekki allir heima um jólin, sumir vegna atvinnu sinnar, en aðrir til að skipta um umhverfi og hvíla sig. Nokkur flutningaskip á vegum íslensku skipafélaganna eru í hafi eða í erlendum höfnum, þrír togarar eru á sjó. Fjórir sendifulltrúar Rauða krossins eru í Afríku og Asíu og flugfólk á vegum Atlanda verður erlendis um jólin. 24.12.2004 00:01 Finnur postulínsmuni fyrir fólk "Ég er með litla antíkverslun í kjallara í Skipasundi 82 í Reykjavík þar sem ég sel antíkborðbúnað. Síðan tek ég líka að mér að leita uppi gömul stell. Það er ekki mikil traffík í versluninni en leitarþjónustan er heldur betur að hlaða utan á sig. Áhugasamir geta því haft samband við mig og ég get fundið það sem vantar inn í stellin fyrir þá. 23.12.2004 00:01 Íslensk kona útskrifast frá FBI Berglind Kristinsdóttir, lögreglufulltrúi í skatta- og efnahagsbrotadeild hjá ríkislögreglustjóra, er útskrifuð úr lögregluháskóla bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. 23.12.2004 00:01 Íbúum fjölgar um fjóra Íbúum í Ísafjarðarbæ fjölgaði á þessu ári í fyrsta skipti í tíu ár, eða um fjóra íbúa. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru íbúarnir 4.131 talsins hinn 1. desember miðað við 4.127 á sama tíma í fyrra. 22.12.2004 00:01 Spuni á fimmtudagskvöldum á REX Gítarleikarinn Börkur Birgisson úr Jagúar og plötuspilarinn Margeir spinna saman sjóðheitt sett fyrir gesti Rex annað kvöld, þorláksmessukvöld. DJ Margeir er í forsvari spunakvöldanna, sem felast í spilamennsku hans og annarra fyrsta flokks plötusnúða í takt við lifandi tóna framúrskarandi hljóðfæraleikara sem spinna með þeim af lífi og sál. 22.12.2004 00:01 Harry Potter væntanlegur 16. júlí Aðdáendur Harry Potters þurfa að búa sig undir langa nótt þann 16. júlí næstkomandi því þá kemur næsta bók um töfradrenginn út, sú sjötta í röðinni. J.K. Rowling hefur nýlokið við handritið að bókinni, sem á að heita <em>Harry Potter and the Half-Blood Prince</em>, en sá titill vísar víst hvorki til Harry né Voldemorts, óvinar hans. 22.12.2004 00:01 Leikminjasafnið fær gjöf Aldarafmælis Þorsteins Ö. Stephensen, leikara og leiklistarstjóra Útvarpsins, var minnst í fyrradag. 22.12.2004 00:01 Konur fjölmennari en karlarnir Konur í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi við Háskóla Íslands eru 63 prósent nemenda miðað við 20. október 2004. Kynjaskiptingin er misjöfn eftir deildum og skorum en þó eru konur fjölmennari en karlar í öllum deildum nema verkfræðideild. </font /></b /> 22.12.2004 00:01 Meistarnám eftir grunnnám í KHÍ Stefnt er að því að sem flestir úrskrifaðir nemendur Kennaraháskóla Íslands ljúki meistaranámi. Námið verður í boði frá árinu 2007 í beinu framhaldi af þriggja ára námi í Kennaraháskóla Íslands. Útskrifaðir stúdentar hafa hingað til einungis getað stundað meistaranám í fjarnámi eða hlutanámi eftir minnst tveggja ára starfsreynslu 22.12.2004 00:01 Illskýranleg siðvenja "Það er erfitt að finna skýringar á þessu, þetta virðist vera einhvers konar siður eftir héruðum," segir Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur um niðurstöður rannsóknar Íslenskrar erfðagreiningar um tengsl búsetu og erfðabreytileika, en þar kemur fram að ættliðir þorra Íslendinga hafa verið bundnir við sömu átthagana. 22.12.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Enginn formannsfiðringur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarfulltrúi er fimmtug í dag. "Ég hélt nú upp á fertugsafmælið í Norræna húsinu og mér finnst stórafmæli ágæt til þess að hitta þá sem ég hef verið samferða og unnið með og fagna með þeim. Núna langar mig til þess að hitta vini, ættingja og samferðafólk í dag í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu," segir afmælisbarn dagsins. 31.12.2004 00:01
Bára bleika nútímans Í Ingólfsstræti 8 opnaði verslunin og testofan Frú fiðrildi á dögunum. Nafnið kom að sjálfu sér því eigandanum finnst fátt skemmtilegra en að flögra um og gera umhverfið enn fallegra. Marta María Jónasdóttir lét Frú fiðrildi dekra við sig með ilmandi tei, marengstoppum og góðum hugmyndum fyrir heimilið. 31.12.2004 00:01
Jólaseríur allt árið Það leiðist víst flestum að taka niður jólin og margir vilja halda í þau eins lengi og kostur er. Aðrir ganga rösklega til verks og pakka jólunum saman á einum eftirmiðdegi og henda ýmsum óþarfa og forgengilegu drasli eins og jólaseríunum. 30.12.2004 00:01
Íslandsspil leggja til 5 milljónir Íslandsspil afhentu í dag Rauða krossi Íslands fimm milljónir króna til hjálparstarfsins vegna hamfaranna sem urðu við Indlandshaf á annan í jólum. Hjálparstarf Rauða krossins á svæðinu er það umfangsmesta sem hreyfingin hefur ráðist í um áratugaskeið. Samkvæmt hjálparbeiðni sem Alþjóða Rauði krossinn sendi út í gær er þörf á um þremur milljörðum króna til hjálparstarfs hreyfingarinnar. 30.12.2004 00:01
Leitað að ástvinum á netinu Á vefsíðunni www.p-h-u-k-e-t.com. fer nú fram áköf leit að ástvinum á Netinu. Þar hefur meðal annars verið settur inn dálkur fyrir Íslendinga sem kunna að vera á hamfarasvæðinu og þeir beðnir um að láta vita af sér. Á síðunni hafa þegar margir ferðamenn á hamfarasvæðunum látið vita af sér en einnig eru þar margar orðsendingar þar sem fólk leitar horfinna ástvina. 30.12.2004 00:01
67 ára ólétt 67 ára gömul kona í Rúmeníu er ólétt að tvíburum eftir að hafa gengist undir frjósemisaðgerð. Fari fæðingin að óskum verður rithöfundurinn og fræðikonan Adriana Iliescu elsta nýbakaða móðir sem um getur, en metið á nú indversk kona sem í fyrra eignaðist dreng á 66. aldursári. 30.12.2004 00:01
Styðja hjálparstarf Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar hafa ákveðið að verja milljón hvort fyrirtæki til hjálparstarfs Rauða krossins vegna hamfaranna í Asíu, sem kostað hafa tugþúsundir mannslífa. Jafnframt skora Íslandsbanki og Sjóvá-Almennar á önnur stærri fyrirtæki landsins að láta ekki sitt eftir liggja vegna hörmulegra afleiðinga flóðanna í kjölfar jarðskjálftans á annan dag jóla. 30.12.2004 00:01
Verðlaunuð af Alþjóðahúsinu Félagsþjónustan í Reykjavík, Kári Tran veitingamaður og Hólmfríður Gísladóttir fyrrverandi starfsmaður Rauða krossins fá í dag viðurkenningar Alþjóðahúss fyrir lofsverða frammistöðu í málefnum innflytjenda og fjölmenningarlegs samfélags á Íslandi. 30.12.2004 00:01
11 brennur á höfuðborgarsvæðinu Kveikt verður í ellefu brennum í höfuðborginni annað kvöld. Söfnun í bálkestina hófst í fyrradag og lýkur um miðjan dag á morgun. Gamlársbrennur höfuðborgarinnar verða á gamalkunnum stöðum. Sjö þeirra eru í umsjá Gatnamálastofu og fjórar í umsjá félags- og íbúasamtaka og verður kveikt í þeim öllum um klukkan hálfníu annað kvöld. 30.12.2004 00:01
Skýtur upp fram á morgun Flugeldafíklar skjóta margir upp flugeldum fyrir milljónir króna, að sögn eins þeirra, sem viðurkennir fúslega að þetta sé náttúrulega bilun. Hann byrjar að skjóta fyrir miðnætti á gamlárskvöld og er að fram á nýársmorgun. 30.12.2004 00:01
Búrfiskar í baðlóni Fiskar af erlendum uppruna, og algengir eru í fiskabúrum á Íslandi, virðast lifa góðu lífi og fjölga sér ört í baðlóninu við Kaldbak sunnan Húsavíkur. Á huldu er hvernig þeir komust í lónið en getgátur eru um að einhver á Húsavík hafi sleppt þeim þar í tilraunaskyni. 30.12.2004 00:01
Beiðni Fischers tekin til skoðunar Chieko Nohno, dómsmálaráðherra Japans, féllst í gær á að taka til skoðunar beiðni skákmeistarans Bobbys Fischer um að fá að fara til Íslands í stað þess að vera vísað úr landi til Bandaríkjanna. 29.12.2004 00:01
Rísandi atvinnuvegur Nýjar byggingar stóru fyrirtækjanna á höfuðborgarsvæðinu hafa vakið athygli fyrir miklar glerklæðningar. Því kemur það ekki á óvart að samhliða fjölgun "speglabygginga" glæðast viðskipti gluggahreinsunarmanna. 29.12.2004 00:01
Fann partí innra með sér Valdimar Flygenring leikari hefur orðið flugeldaglaðari með aldrinum en hann segist á árum áður aðallega hafa haldið sína áramótabrennu og flugeldasýningu í hausnum á sér. "Það hefur sem betur fer breyst og í staðinn tek ég þátt í flugeldagríninu af lífi og sál. 29.12.2004 00:01
Bara fjórir dvergar Jólaleikrit leikfélagsins í þýska bænum Stendal heitir því frumlega nafni Mjallhvít og dvergarnir fjórir. Ástæðan er ekki vankunnátta leikhúsmanna á hinu sígilda ævintýri um prinsessuna fögru og stjúpuna vondu, heldur er fjárhagsstaða leikfélagsins svo slæm að einungis voru fjárráð til að ráða fjóra dverga í stykkið. 29.12.2004 00:01
Vill sófann mjúkan "Mér finnst gott að kasta mér í sófann minn að loknum vinnudegi og glápa á sjónvarp og góðar bíómyndir," segir Eggert Kaaber leikari sem segist vegna vinnu sinnar einnig nota sófann til að lesa yfir handrit. "Svo er líka voðalega gott að sofna í honum yfir sjónvarpinu," segir Eggert og hlær. 29.12.2004 00:01
Byrjar nýtt og bleikt líf Helga Thorberg er að losa sig við allt á heimilinu sínu, alla gamla hluti, styttur, bækur, föt - allt. "Ég er að hreinsa allt út af harða disknum og byrja upp á nýtt og það er svo gaman að það er dýrðlegt. Nú er ég að byrja nýtt skvísulíf. 29.12.2004 00:01
Sjötíu þúsund til Rauða krossins "Þessar hamfarir snerta okkur öll á einn eða annan hátt," segir Eilífur Friður Edgarsson, sem í gær afhenti Rauða krossinum sjötíu þúsund krónur til styrktar fórnarlömbum hamfaranna við Indlandshaf. 29.12.2004 00:01
Anselmo harmi lostinn Philip Anselmo, fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Pantera hefur sent fjölmiðlum tilfinningaþrungna yfirlýsingu í formi myndbandsupptöku. Hljómsveitarbróðir hans fyrrverandi, Dimebag Darrell var myrtur á tónleikum á dögunum. 29.12.2004 00:01
Flugeldar fyrir 400 milljónir? Búist er við að landsmenn skjóti upp flugeldum fyrir allt að fjögur hundruð milljónir króna um áramótin. Reiknað er með góðri flugeldasölu þrátt fyrir slæma veðurspá. Fluttir voru inn 30 gámar af flugeldum fyrir áramótin, eða um 500 tonn, en langmest, um 400 tonn, er flutt inn af slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, sem með sölu á varningnum aflar fjár fyrir starfsemi sína. 29.12.2004 00:01
Stefnt að opnun Hlíðarfjalls í dag Ef veður leyfir verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri opnað klukkan 11 í dag. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar, forstöðumanns skíðastaða, er kominn þokkalegur snjór í fjallið en þó minni en niður í byggð á Akureyri. 28.12.2004 00:01
Fasteignamat hækkar um 13% Fasteignamat íbúða hækkar um 13% víðast hvar suðvestanlands um áramótin. Fasteignamat sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu hækkar þó um 20%. Mest hækkar matið um 30% í Fjarðabyggð og á sérbýli á Seltjarnarnesi. 28.12.2004 00:01
Laus við allt stress Linda Pétursdóttir er 35 ára í dag. Hún tekur því rólega í faðmi fjölskyldunnar. Linda vill njóta þess að vera á Íslandi með fjölskyldunni yfir jólin. Eftir fríið hefur hún nýtt nám í Bandaríkjunum í auglýsingagerð.</font /></b /> </font /></b /> 27.12.2004 00:01
Tvöföld nýársgleði á Sögu Á Hótel Sögu verður árlegur nýársfagnaður í ár samkvæmt venju en þetta er í 15. skipti sem hann er haldinn. "Það má eiginlega segja að við séum með tvo nýársfagnaði þetta kvöld," segir Hafsteinn Egilsson, veislu- og ráðstefnustjóri á Hótel Sögu. 27.12.2004 00:01
Ákvörðunar að vænta eftir áramót Ekki er talið að hreyfing komist á mál skákmeistarans Bobbys Fischer í Japan fyrr en eftir áramót, að sögn Sæmundar Pálssonar, fyrrverandi lögreglumanns og vinar Fischers. 27.12.2004 00:01
R-listinn fallinn? Sjálfstæðisflokkurinn kemst til valda í næstu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík, fjölskyldur leysast upp á næsta ári vegna skuldsetningar og tvær kvikmyndir verða gerðar eftir bókum Arnaldar Indriðasonar. Þetta er á meðal þess sem völva Vikunnar sér fyrir sér að gerist í íslensku samfélagi á næsta ári og því þarnæsta. 26.12.2004 00:01
Einn fékk 16 milljónir Einn getspakur Lottóleikmaður var með allar tölur réttar í lottóúrdrætti að kvöldi jóladags og fær 16 milljónir króna í óvænta jólagjöf. 26.12.2004 00:01
Jólafrumsýning í Þjóðleikhúsinu Jólaleikrit Þjóðleikhússins Öxin og jörðin var frumsýnt að kvöldi annars dags jóla eins og vandi er til. Leikritið er byggt á samnefndri skáldsögu Ólafs Gunnarssonar um síðustu daga Jóns Arasonar biskups en fyrir hana hlaut Ólafur Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2003. 26.12.2004 00:01
Kleif hæstu byggingu í heimi Franska ofurhuganum, Alain Robert, sem kallaður er franski kóngulóarmaðurinn, tókst að klífa hæstu byggingu í heimi, í Tapei á Tævan í morgun. 25.12.2004 00:01
Enn deilt um uppgjör Opinberunar Kvikmyndagerðarmenn eru ósáttir við að Kvikmyndamiðstöð kalli ekki eftir uppgjöri vegna myndar Hrafns Gunnlaugssonar, Opinberun Hannesar. Stjórn félags tekur málið upp. </font /></b /> 24.12.2004 00:01
Hrafn segist skila uppgjöri til skattsins "Ég skila uppgjöri til skattsins og auðvitað fylgir greinargerð með eins og með hverri einustu mynd sem ég geri," sagði Hrafn Gunnlaugsson, spurður um hvort hann myndi gera Kvikmyndamiðstöð Íslands grein fyrir þeim fjármunum sem hann fékk til gerðar myndar sinnar, Opinberunar Hannesar. 24.12.2004 00:01
KEA veitir hátt í 30 styrki Styrkir úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA voru afhentir á Fiðlaranum á Akureyri sl. miðvikudag. Alls bárust 85 umsóknir og fengu 27 styrki, samtals að fjárhæð rúmar fimm milljónir króna. 24.12.2004 00:01
Bjargar mörgum frá innlögn Fjárframlag til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar fyrir næsta ár er loks í höfn. Á ýmsu hefur gengið með verkefnið síðustu misserin. Síðla sumars leit út fyrir að á annað hundrað manns myndu ekki geta hafið nám í húsnæði Geðhjálpar í haust eins og þeir höfðu sótt um, þar sem engin vissa fékkst um fjármuni til kennslunnar. 24.12.2004 00:01
Klífur hæsta turn í heimi Franskur ofurhugi ætlar að klifra upp hæstu byggingu í heimi á jóladag. Það er 508 metra hár skýjakljúfur, staðsettur í Tapei, höfuðborg Taiwans. Maðurinn, sem nefnist Alain Robert, hefur klifið flestar þekktustu byggingar heims, eins og Eiffel turninn, Empire State bygginguna og óperuhúsið í Sidney, oft án leyfis og viðeigandi öryggisbúnaðar. 24.12.2004 00:01
Margir í burtu um jólin Það verða hreint ekki allir heima um jólin, sumir vegna atvinnu sinnar, en aðrir til að skipta um umhverfi og hvíla sig. Nokkur flutningaskip á vegum íslensku skipafélaganna eru í hafi eða í erlendum höfnum, þrír togarar eru á sjó. Fjórir sendifulltrúar Rauða krossins eru í Afríku og Asíu og flugfólk á vegum Atlanda verður erlendis um jólin. 24.12.2004 00:01
Finnur postulínsmuni fyrir fólk "Ég er með litla antíkverslun í kjallara í Skipasundi 82 í Reykjavík þar sem ég sel antíkborðbúnað. Síðan tek ég líka að mér að leita uppi gömul stell. Það er ekki mikil traffík í versluninni en leitarþjónustan er heldur betur að hlaða utan á sig. Áhugasamir geta því haft samband við mig og ég get fundið það sem vantar inn í stellin fyrir þá. 23.12.2004 00:01
Íslensk kona útskrifast frá FBI Berglind Kristinsdóttir, lögreglufulltrúi í skatta- og efnahagsbrotadeild hjá ríkislögreglustjóra, er útskrifuð úr lögregluháskóla bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. 23.12.2004 00:01
Íbúum fjölgar um fjóra Íbúum í Ísafjarðarbæ fjölgaði á þessu ári í fyrsta skipti í tíu ár, eða um fjóra íbúa. Samkvæmt tölum frá Hagstofunni voru íbúarnir 4.131 talsins hinn 1. desember miðað við 4.127 á sama tíma í fyrra. 22.12.2004 00:01
Spuni á fimmtudagskvöldum á REX Gítarleikarinn Börkur Birgisson úr Jagúar og plötuspilarinn Margeir spinna saman sjóðheitt sett fyrir gesti Rex annað kvöld, þorláksmessukvöld. DJ Margeir er í forsvari spunakvöldanna, sem felast í spilamennsku hans og annarra fyrsta flokks plötusnúða í takt við lifandi tóna framúrskarandi hljóðfæraleikara sem spinna með þeim af lífi og sál. 22.12.2004 00:01
Harry Potter væntanlegur 16. júlí Aðdáendur Harry Potters þurfa að búa sig undir langa nótt þann 16. júlí næstkomandi því þá kemur næsta bók um töfradrenginn út, sú sjötta í röðinni. J.K. Rowling hefur nýlokið við handritið að bókinni, sem á að heita <em>Harry Potter and the Half-Blood Prince</em>, en sá titill vísar víst hvorki til Harry né Voldemorts, óvinar hans. 22.12.2004 00:01
Leikminjasafnið fær gjöf Aldarafmælis Þorsteins Ö. Stephensen, leikara og leiklistarstjóra Útvarpsins, var minnst í fyrradag. 22.12.2004 00:01
Konur fjölmennari en karlarnir Konur í grunnnámi, meistaranámi og doktorsnámi við Háskóla Íslands eru 63 prósent nemenda miðað við 20. október 2004. Kynjaskiptingin er misjöfn eftir deildum og skorum en þó eru konur fjölmennari en karlar í öllum deildum nema verkfræðideild. </font /></b /> 22.12.2004 00:01
Meistarnám eftir grunnnám í KHÍ Stefnt er að því að sem flestir úrskrifaðir nemendur Kennaraháskóla Íslands ljúki meistaranámi. Námið verður í boði frá árinu 2007 í beinu framhaldi af þriggja ára námi í Kennaraháskóla Íslands. Útskrifaðir stúdentar hafa hingað til einungis getað stundað meistaranám í fjarnámi eða hlutanámi eftir minnst tveggja ára starfsreynslu 22.12.2004 00:01
Illskýranleg siðvenja "Það er erfitt að finna skýringar á þessu, þetta virðist vera einhvers konar siður eftir héruðum," segir Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur um niðurstöður rannsóknar Íslenskrar erfðagreiningar um tengsl búsetu og erfðabreytileika, en þar kemur fram að ættliðir þorra Íslendinga hafa verið bundnir við sömu átthagana. 22.12.2004 00:01