Kleif hæstu byggingu í heimi 25. desember 2004 00:01
Franska ofurhuganum, Alain Robert, sem kallaður er franski kóngulóarmaðurinn, tókst að klífa hæstu byggingu í heimi, í Tapei á Tævan í morgun. Aðstæður til afreksins voru gríðarlega erfiðar, mikill vindur og rigning, en Robert lét það ekki á sig fá. Klæddur í regnjakka og í góðum klifurskóm tókst hann á við bygginguna, en hún er hundrað og einnar hæðar skrifstofubygging og fimm hundruð og átta metra há. Það tók ofurhugann um fjórar klukkustundir að klífa bygginguna. Þegar Alain Robert, sem er 42 ára, komst á toppinn brutust út mikil fagnaðarlæti og sagðist hann mjög þreyttur, en ánægður, þegar ljóst varð að honum hafði tekist ætlunarverk sitt. Fjölmargir fylgdust með og hvöttu Robert áfram. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem franski kóngulóarmaðurinn tekur upp á því að klífa stórbyggingar, því honum hefur áður tekist að klífa Empire State bygginguna í New York og Eiffel-turninn í París. Hann hefur oft verið gagnrýndur fyrir glæfraskapinn þar sem hann hefur ekki alltaf óskað eftir leyfi yfirvalda til að klífa háhýsin, auk þess sem öryggisráðstafanir hans hafa þótt af skornum skammti. Í þetta skiptið ákvað Robert hins vegar að festa reipi við klifurbúnað sinn, allan þann tíma sem það tók fyrir hann að klífa upp hundrað og eins hæða bygginguna, en reipið notaði hann til að toga sig upp, nánast alla leiðina. Hann segist ætla að takast á við bygginguna aftur innan skamms, og þá án þess að nota reipi.
Mest lesið Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Lífið Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Muniz skilinn Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Lífið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Fleiri fréttir Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sjá meira