Fleiri fréttir

Höll minninganna í Hollywood
Ólafur Jóhann Ólafsson hefur gert samning við einn virtasta kvikmyndaleikstjóra Hollywood um kvikmyndaréttinn að skáldsögu hans, Höll minninganna. Leikstjórinn er Liz Manne, sem hefur unnið með þekktustu kvikmyndagerðarmönnum heims á borð við Woody Allen, Stanley Cubrick, Jim Jarmusch og Jane Champion. </font /></b />

Misstu 56 kíló samanlagt
"Ég léttist um 35 kíló til að byrja með en fór svo að stunda líkamsræktina grimmt og þyngdist um nokkur kíló þannig að nú er ég 31 kílói léttari," segir Anna Heiða Pálsdóttir doktor í barnabókmenntum. Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir DV á fimmtudögum.

Ég var gerandi en ekki þolandi
"Ég veit ekki hvernig þetta byrjaði allt saman. Líklega hefur þetta verið að þróast allt frá byrjun sambandsins en það var ekki fyrr en löngu síðar, þegar allt var orðið of seint, að ég áttaði mig á því að ég hafi beitt manninn minn andlegu ofbeldi." Tímarítið <strong>Magasín</strong> fylgir DV á fimmtudögum.

Vaskar upp í víðóma
Mér finnst langskemmtilegast að vaska upp," viðurkennir Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður með meiru, og hlær skemmtilega við þegar hann er spurður af hverju svo er. "Ég verð einfaldlega svo afskaplega stoltur af sjálfum mér þegar ég er búinn með verkið."

Íslenskt te úr arabískum katli
Auður Ólafsdóttir, rithöfundur og listfræðingur, kann vel við sig í eldhúsinu sínu, einkum á þessum árstíma þar sem Landakotskirkju ber við rökkurhimininn í öllu sínu veldi í gegnum gluggann. Það er einkum tvennt í eldhúsinu sem hún telur sérstök þarfaþing: "

Demetra var gyðja uppskeru
Demetra nefnist ný verslun með kristal og handunnar glervörur á Skólavörðustíg 21a. Þar er Björg Blöndal hæstráðandi og það er líka hún sem á heiðurinn af mörgum munum sem til sölu eru. Björg er nefnilega glerkúnstner, nam handbragðið hjá Gler í gegn í Hafnarfirði.
Dýrt lostæti rotnar
Endalok jarðsvepps sem keyptur var fyrir rúmar þrjár milljónir króna urðu þau að rotna í breskum ískáp. Nokkrir velstæðir viðskiptavinir veitingastaðarins Zafferano í London höfðu keypt lostætið frá Tuscany en vegna mikils áhuga á jarðsveppnum, var hann hafður til sýnis, nokkrum dögum of lengi.
Bush úr öpum
List eða áróður er spurningin og forsvarsmenn listasafns í New York borg voru ekki lengi að komast að niðurstöðu. Í Chelsea market var opnuð sýning listamannsins Christopher Savido þar sem meðal annars gat að líta andlitsmynd af Bush Bandaríkjaforseta.

Fitna eftir giftingu
Karlmönnum sem kvænast í annað sinn hættir til að breytast í kyrrsetumenn um leið og hjónabandið hefst og fara að bæta á sig kílóum.

Birna Anna býður í heimsókn
Uppáhaldsstaðurinn í húsinu er lítið skot við hornglugga í eldhúsinu. Ég skrifaði bókina mína þarna og því má segja að þetta horn sé vinnustaðurinn minn en svo finnst mér líka bara gott að vera þarna, lesa og dunda mér í tölvunni. Þar af leiðandi eyði ég talsvert miklum tíma þarna á hverjum degi." Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir DV á fimmtudögum.

Stóð upp úr hjólastólnum
Elísabet Reynisdóttir var nýbúin að eignast sitt annað barn þegar hún fór að finna fyrir undalegum veikindum sem komu í kjölfar kvefpestar. Smám saman ágerðust einkennin og hún missti allan mátt í líkamanum. Tímaritið <strong>Magasín</strong> fylgir DV á fimmtudögum.
Hafa safnað 340 þúsund
Um 400 tombólukrakkar Rauða krossins hafa á safnað samtals 340.000 krónum á árinu, til að "hjálpa börnum í útlöndum," eins og þau segja gjarna þegar þau koma til Rauða krossins að skila fénu. Nú, fjórða árið í röð, ætla Leikskólar Reykjavíkur að láta 300.000 krónur sem annars hefðu farið í jólakort renna til sama málefnis.
Ákærður fyrir að bíta hund
Maður í Florida hefur verið ákærður fyrir að bíta terrier-hund sinn í refsingarskyni. Maðurinn hafði þann hátinn á að bíta hundinn þegar hann var óþekkur, þar sem hann taldi það vera tjáningarmáta sem hundurinn myndi skilja, þar eð hundar notuðu slíka aðferð sjálfir.
Hættulegt að líkjast Bin Laden
Osama Bin Laden á ekki von á góðu ef hann leggur leið sína til Kosta Ríka. Í gær skaut þarlendur leigubílstjóri mann sem gekk með grímu sem líktist andliti Bin Ladens. Hinn grímklæddi hafði gert sér það að leik að stökkva fyrir bíla með leikfangabyssu í hönd og Bin Laden grímu á höfðinu.

Baráttan um bóksöluna
Sú var tíðin að bækur voru seldar í bókabúðum og ekki annars staðar. Hin seinni ár hafa stórmarkaðir selt bækur og höggvið skarð í sérhæfðu bóksalanna sem um leið hefur fækkað. Nokkrir þrauka en mislíkar ástandið. Stórmarkaðirnir eru vændir um græðgi og sameining Pennans og Máls og menningar er gagnrýnd. </font /></b />

Óskiljanleg græðgi
"Þetta er erfið samkeppni og mér finnst afar ósanngjarnt þegar stórmarkaðirnir koma inn á markaðinn og selja bækur í þrjár vikur. Þetta er þvílík græðgi að maður varla skilur það," segir Guðjón Smári Agnarsson bóksali í Bókabúð Lárusar Blöndal. </font /></b />

Get ekki boðið sama verð
Stefán Jónasson hefur staðið vaktina í um fjörutíu ár í Bókabúð Jónasar í göngugötunni á Akureyri. Margt hefur breyst í bóksölunni á þeim árum, bókabúðum í miðbænum hefur snarfækkað og bóksala stórmarkaðanna fyrir jólin fest sig í sessi. </font /></b />

Kjöt fylgdi bókunum
"Það varð allt vitlaust. Morguninn eftir að Stöð 2 sagði frá þessu í fréttum fylltist búðin og hún var troðfull af fólki frá morgni til kvölds alveg fram að jólum," segir Guðbjörg Jakobsdóttir, sem rak Bókabúð Árbæjar. Henni blöskraði bóksala stórmarkaðanna og hóf að selja kjöt með bókunum fyrir jólin 1994.

Fullkomnasta vélmenni sögunnar?
Hann getur hlaupið, spjallað og heilsað, og hann er afburðagreindur. Eitt fullkomnasta vélmenni sem hefur verið framleitt er komið fram á sjónarsviðið. Markmið Honda er að búa til vélmenni sem getur leyst verkafólk af hólmi.
Tónlistarjól
Sala á hljómplötum hefur aukist um tæp 30 prósent frá því á síðasta ári, eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá Félagi hljómplötuútgefenda.
12. menningarhátíð Svissins
Menningarhátíð bílaverkstæðisins Svissins í Kópavogi var haldin í 12. sinn í dag. Að venju var boðið upp á fjölbreytta dagskrá, en hátíðin er orðin fastur liður fyrir hver jól á verkstæðinu. KK sá um tónlistina en skáldin Einar Már, Einar Kára, Stefán Máni og Sigmundur Ernir lásu upp úr verkum sínum. Var gerður góður rómur að hátíðinni.

Loftbrú sem oft riðaði til falls
Núverandi og nokkrir fyrrverandi samgönguráðherrar veittu í gær viðtöku nýrri bók eftir Helgu Guðrúnu Johnson og Sigurveigu Jónsdóttur. Bókin heitir "Á flugi: Áfangar í sögu Flugleiða" og spannar að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, 30 ára sögu Flugleiða og lýsir aðdragandanum að stofnun félagsins.
Samkomuhúsið fær nýjan ljósabúnað
Verið er að ljúka við að setja upp nýjan ljósabúnað í Samkomuhúsinu á Akureyri þar sem Leikfélag Akureyrar er með aðstöðu. Að sögn Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra er um að ræða viðbót við eldri ljósabúnað en með tilkomu nýju ljósanna verði lýsingin í húsinu eins og best verði á kosið.

Miltisbrandur á Reykjanesi
Í síðustu viku voru brennd á Reykjanesi hræ fjögurra hrossa sem höfðu greinst með miltisbrand. Upptökin eru ókunn og litlar líkur taldar á að þau finnist. Dagbjartur Einarsson, útgerðarmaður í Grindavík, segist ekki óttast þennan vágest.

Mikilvægt að ráðast að rótunum
Fjölmargir bankastarfsmenn hafa orðið fyrir áreiti og nærri tíundi hver hefur orðið fyrir einelti í starfi. Ný reglugerð skyldar vinnuveitendur til að uppræta einelti á vinnustað.

Útskrifaðist frá lögregluskóla FBI
Fyrsta íslenska lögreglukonan, Berglind Kristinsdóttir, útskrifaðist frá lögregluháskóla bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, síðastliðinn föstudag. Berglind, sem er lögreglufulltrúi hjá ríkislögreglustjóra, var í hópi 249 nemenda sem útskrifuðust, þar af voru 18 konur.

Með ísbjörn í fiskbúðinni
"Þetta er fyrst og fremst gert til að draga að athygli. Fiskikóngurinn verður alltaf að vera með kónginn," segir Kristján Berg, fisksali sem hefur komið uppstoppuðum ísbirni fyrir í búðarglugga í Fiskbúðinni Vör.

Þegar Davíð keypti ölið
"Mér fannst það fáranlegt að það væri hægt að mismuna fólki á þennan hátt og það fauk bara í mig," segir Davíð Scheving Thorsteinsson um það þegar hann reyndi að taka með sér bjór til landsins á þessum degi fyrir 25 árum síðan.

Skrifum orðin eins og þau eru sögð
"Ætli þetta sé ekki gert til að spara tíma," segir Eygló Ásta Þorgeirsdóttir, nemandi í Langholtsskóla, en hún hefur talsverð samskipti við vini og kunningja í gegnum sms. Þar grípur hún til alls kyns styttinga og skammstafana til að koma sem mestu fyrir á sem skemmstum tíma.

Óttast ekki þróunina
"Auðvitað sést þetta annað slagið en ég verð þó ekki mikið vör þetta," svarar Inga Rósa Þórðardóttir, kennari í Foldaskóla, spurð hvort sms- og msn-málið rati inn í skólaverkefnin.

Asinn styttir orðin
Brynja Baldursdóttir, kennari í Hagaskóla, kannast vel við hina nýju íslensku stafsetningu og segir hana birtast í skólastarfinu. "Þetta kemur fram í verkefnum hjá krökkunum, ýmis orð hafa fengið nýjan rithátt."

Óperusýning í grunnskólum
Yngstu bekkir grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu hafa síðustu daga skemmt sér vel yfir nemendaóperu Söngskólans í Reykjavík.

Einn sendibílsfarmur seldur
Stóru tónlistarútgáfunum datt ekki til hugar að gefa út hljómdisk með íslenskri reggítónlist fyrir jólin og höfnuðu tilboði um slíkt, enda galin hugmynd. Að minnsta kosti einn lítill sendibílsfarmur af slíkum diski hefur engu að síður selst.

Páll sæmdur heiðursmerki
Páll Pétursson, fyrrum félagsmálaráðherra, var sæmdur æðstu viðurkenningu Rauða kross Íslands, heiðursmerki úr gulli, á 80 ára afmæli félagsins. Það var forseti Íslands sem sæmdi Pál viðurkenningunni.

IMG og SÍMEY í samstarf
IMG á Akureyri og SÍMEY hafa gert með sér þjónustusamning en í honum felst að tveir starfsmenn IMG munu sinna viðskiptavinum SÍMEY vegna þjónustu sem ber heitið Markviss.

Ólæti og umgengni ógna tjaldsvæði
Háttsemi bæjargesta á Akureyri um verslunarmannahelgina í sumar gæti orðið til þess að tjaldsvæðinu við Sundlaug Akureyrar verði lokað. </font /></b />

Skúlptúrar og málverk
Blómaverslunin Holtablóm skipti um eigendur fyrir ári og nýi eigandinn, Inga María Sverrisdóttir listakona, hefur í rólegheitum unnið að breytingum í rekstrinum. Verslunin verður þó áfram með blóm og gjafavörur á boðstólum en Inga María,

Dreki, Jaki og Bessi
Erla Sólveig Óskarsdóttir er ein af okkar fremstu húsgagnahönnuðum. Hún hefur selt hönnun sína víða um heim. Erla Sólveig hefur fengist við ýmsa ólíka hönnun en eflaust eru stólarnir hennar hvað þekktastir enda hafa þeir hvarvetna vakið verðskuldaða athygli og selst mjög vel.

The Aviator með 6 tilnefningar
Bandaríska kvikmyndin<em> The Aviator</em>, sem fjallar um flughetjuna Howard Hughes og skartar stórstjörnum á borð við Lenardo di Caprio og Jude Law, er meðal þeirra mynda sem hljóta flestar tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna en tilkynnt var um tilnefningarnar í dag.

Ísland í brennidepli í vestanhafs
Þrír bandarískir fjölmiðlar beina kastljósinu að Íslandi þessa dagana en skemmst er að minnast „The Amazing Race“ þáttaraðarinnar þar sem Ísland kemur við sögu. Á vef ferðamálaráðs Íslands er greint frá því að næstkomandi laugardag verði þáttur ABC-stöðvarinnar, „Good Morning America“, helgaður jólum um víða veröld og þar fái íslensku jólasveinarnir sitt pláss.

Fingraför á klámblaði
Fingraför poppkongsíns Michael Jackson og drengsins sem hann er ákærður fyrir að hafa misnotað, hafa fundist á klámblöðum sem fundust í hýbílum Jackson í Neverland. Búast má við því að blöðin verði notuð sem sönnunargögn í réttarhöldum yfir Jackson, sem hefjast 31. janúar næstkomandi.

Þakklát fyrir bróður minn
Jóhann Ingvarsson, vinnumaður á Geiteyjarströnd, er að jafna sig eftir fallið með rollunum niður í haughúsið á Víðihlíð. "Ég er þakklát fyrir að bróðir minn er á lífi í dag," segir Lára, systir hans og húsfreyja á Geiteyjarströnd </font /></b />

400 sveinar á götum Edinborgar
Tæplega fjögur hundruð jólasveinar hlupu um götur Edinborgar í dag í fjáröflunarskyni fyrir langveik börn. Fyrir söfnunarféð verður farið með börnin í ferðalag að heimsækja jólasveina. Það má þó fastlega reikna með að flestir þessara skeggjuðu hlaupandi manna séu gervijólasveinar, því eins og allir vita eru jólasveinarnir aðeins þrettán talsins.

80 ára almanak
Árna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra var á dögunum afhent fyrsta eintakið af Sjómannaalmanakinu og Skipaskrá 2005. Verkið er tvö bindi og er nú gefið út í 80. skipti.

Endurspeglar stöðu kvenna
Teikningar Sigmunds Jóhannssonar endurspegla stöðu kvenna í samfélaginu og viðhorfi til þeirra í gegnum árin að mati Katrínar Önnu Guðmundsdóttur, talskonu Femínistafélags Íslands.