Lífið

Hildur Yeoman lofuð í hástert á Style Bubble

Af sýningu Hildar á Reykjavík Fashion Festival.
Af sýningu Hildar á Reykjavík Fashion Festival.
Vefsíðan Style Bubble býður upp á það helsta og heitasta í tískuheiminum um þessar mundir. Íslenski hönnuðurinn Hildur Yeoman fékk gífurlega lofsamleg skrif þar nú í vikunni en blaðamaður lýsir yfir afbrýðisemi sinni yfir því hvernig ein manneskja geti verið svona hæfileikarík á svo mörgum sviðum.

Fylgihlutalínu Hildar er lofuð í hástert og þá sérstaklega hekluðum töskum í dýralíki sem Hildur sýndi meðal annars á Reykjavík Fashion Festival. Dýratöskur verða, að mati blaðamanns Style Bubble, það sem koma skal. Að lokum lofar blaðamaður verk Hildar og Sögu Sigurðar þar sem ljósmyndun og tískuteikningum var blandað saman á sýningunni Garden of Enchantment nú í vor. Enn er hægt að kaupa nokkur stykki úr þeirri sýningu í versluninni KronKron á Laugavegi. - amb

Hér er greinin á Style Bubble.







RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×