Fleiri fréttir

Sumir voru í meira stuði en aðrir

Árlegur J-dagur var haldinn hátíðlegur í gærkvöldi. Karlakór Kaffibarsins skemmti með söng og gleði eins og sjá má á myndunum...

Góð tilfinning að horfa á eftir Frusciante

Liðsmenn Red Hot Chili Peppers eru farnir að gera upp brotthvarf gítarleikarans Johns Frusciante. Niðurstaðan er sú að á endanum hafi það verið góð tilfinning að fá nýjan mann í bandið.

Gisele er næstum því fullkomin

Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen lifir nánast fullkomnu lífi. Í viðtali við breska Vogue ljóstrar hún því upp að hún drekki nánast aldrei, stundi líkamsrækt daglega og ali börn sín vel upp.

Vill laga hjónabandið

Ashton Kutcher er víst miður sín og reynir að gera allt sem hann getur til að lappa upp á hjónabandið við Demi Moore. Hjónakornin eru á barmi skilnaðar eftir að hin 23 ára Sara Lea greindi frá því að hún hefði átt í ástarsambandi við Kutcher í sumar.

Faldi drykkjuna fyrir mömmu

Mamma Amy Winehouse hefur rætt um fráfall dóttur sinnar. Hún segir að Amy hafi ekki drukkið fyrir framan sig af virðingu við fjölskylduna.

Velgengni Twilight-leikara meitluð í stein

Velgengni leikaranna ungu úr Twilight-þríleiknum var á fimmtudag meitluð í stein þegar þau fengu handaför sín steypt á Hollywood Boulevard. Þetta þykir einn mesti heiður sem leikurum hlotnast í kvikmyndaborginni og voru þau Kristen Stewart, Robert Pattinson og Taylor Lautner að vonum ánægð með athöfnina.

Verður aftur kynnir

Ricky Gervais verður að öllum líkindum kynnir á Golden Globe-verðlaunahátíðinni, þriðja árið í röð. Það eru samtök erlendra blaðamanna í Hollywood sem standa að þessum verðlaunum en þar eru bestu kvikmyndirnar og sjónvarpsþættirnir heiðraðir.

Dóttir Grants nefnd Jessica

Leikarinn Hugh Grant og barnsmóðir hans Tinglan Hong hafa ákveðið að nefna nýfædda dóttur sína Jessicu. Barnið kom í heiminn fyrir stuttu eftir að Grant og Hong, sem er leikkona, áttu stutt kynni fyrr á árinu. Þau eru hins vegar ekki saman í dag. Grant sást heimsækja þær mæðgur fyrr í vikunni, en hann hefur lofað að vera stúlkunni góður faðir.

Sólstafir fá góða dóma

Mikill meðbyr er með þungarokkssveitinni Sólstöfum um þessar mundir. Þýska ritið Der Spiegel útnefndi hana mikilvægustu metalplötu mánaðarins.

Djúpið enn á dagskrá hjá Nyqvist

„Við erum ennþá í góðu sambandi og hann hefur fullan hug á því að gera þetta. Ég heyrði síðast í honum fyrir mánuði síðan. Þetta snýst núna allt um tímasetningar," segir Jón Atli Jónasson, leikskáld og rithöfundur. Sænski leikarinn Mikael Nyqvist hefur enn í hyggju að setja einleik Jóns Atla, Djúpið, á svið í Svíþjóð.

Skipuleggur endurkomu Oasis

Liam Gallagher er sannfærður um að rokksveitin Oasis komi saman 2015 þegar platan Morning Glory verður tvítug. Gallagher var lengi vel söngvari sveitarinnar en hann og bróðir hans, Noel, áttu ekki skap saman og rifust vanalega eins og hundur og köttur. Þessar illdeilur urðu að endingu til þess að upp úr samstarfinu slitnaði fyrir tveimur árum og hafa þeir nú báðir farið sínar eigin leiðir.

Aldrei fundið fyrir fordómum hér

Alþjóðatorg er alþjóðleg ungmennamiðstöð og samtök sem hafa verið starfrækt í Reykjavík í rúmt ár. Samtökunum er ætlað að aðstoða unga innflytjendur á Íslandi við félagslega aðlögun og styðja þá og fræða. Ungt fólk af erlendu bergi brotnu heldur að öllu leyti um stjórntaumana.

Reka upp kollinn í miðbænum

Ragnhildur Jónsdóttir og Heiður Reynisdóttir voru kynntar fyrir hvor annarri fyrir stuttu og ákváðu í kjölfarið að setja upp Pop Up-markað. Þar verður meðal annars hægt að kaupa fallega og umhverfisvæna gjafavöru og barnasamfellur.

Frostrósirnar frumsýna nýja myndbandið

Frostrósirnar eru byrjaðar að stilla upp í tónleikaröðina í desember og frumsýndu í gær myndband við Frostrósalag ársins, Af álfum. Þetta er afmælislag Frostrósa í tilefni af tíu ára afmæli tónleikaraðarinnar.

Hörkukroppar í Hörpu um helgina

Ég er ekki byrjuð á litnum, segir Eva Lind sem er frekar hvít á hörund samanborið við aðra fitnesskeppendur sem eru vægast sagt brúnir á litin en keppendur maka sérstöku brúnkukremi á líkamann áður en keppni hefst...

Sungið í karókí með Sinfó

Páll Óskar Hjálmtýsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Útgáfan á tónleikum hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands ber þess glöggt merki. Umslagið á viðhafnarútgáfunni verður úr upphleyptu stáli.

Klippti sig stutt fyrir Heath Ledger

Michelle Williams sagði í nýlegu viðtali að hún klippti hárið á sér stutt meðal annars til að heiðra minningu Heaths Ledger. Williams og Ledger voru par frá árinu 2004 til ársins 2007 og eiga saman dótturina Matildu Rose.

Sigur Rós sýnir Lundúnabúum nýju myndina

Strákarnir í Sigur Rós eru nú staddir í London til að fylgja eftir tónleikamynd sinni, Inni. Þeir félaga spókuðu sig í höfuðborg Englands og ætluðu síðan að sitja fyrir svörum á svokallaðri Q&A-sýningu í gærkvöldi.

Ýkt flott hár

Það er áberandi í ár hvað lögð er mikil áhersla á náttúrulega lyftingu í hárið svo það verði þykkra og meðfærilegra, sagði Fríða Rut Heimisdóttir hárgreiðslumeistari og eigandi TIGI á Íslandi spurð út í hártískuna í ár...

Haugadrukkin aftur

Ofurfyrirsætan Kate Moss, 37 ára, var mynduð haugadrukkin í gær á leiðinni í A-lista partý í svörtum kjól. Kate mætti með eigið vínglas í partýið...

Lágstemmd fegurð fiskanna

Yndislega fallegt verk. Tregafullt og kímið í senn. Eins og í fleiri bókum sem Gyrðir Elíasson velur sér til fylgilags, þá er hröð og æsileg atburðarás, mögnuð flækja og óvænt lausn í lokin, ekki til staðar í Hvernig ég kynntist fiskunum. Þessi saga er af öðrum toga og alveg stórskemmtileg á sinn lágstemmda máta.

Fimm uppáhaldskjólar Rakelar Mjallar

Rakel Mjöll Leifsdóttir, söngkona hljómsveitarinnar Útidúr, á marga fallega kjóla og þá sérstaklega sviðskjóla. Hún kveðst hrifnust af kvenlegum sniðum og segir uppáhaldsverslunina sína vera "vintage" búð sem hún rakst á í Pittsburgh.

Þarna var daðrað í drasl

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Daðurkvöldi Heiðars snyrti á veitingahúsinu Esju. Þá fengu gestir að kynnast ilminum Issey Myiake og kjólum frá tískuversluninni Cosmo...

Fúlar út í fárveika Rihönnu

„Við vorum sestar í sætin okkar og byrjaðar á fyrsta bjórnum þegar það kom maður fram á sviðið og tilkynnti okkur að hætt hefði verið við tónleikana,“ segir Kolbrún Sif Hjartardóttir, sem var ein af 20 þúsund sviknum aðdáendum tónlistarkonunnar Rihönnu í Stokkhólmi á miðvikudagskvöldið.

Ekki bara poppari - Justin Bieber fer á kostum þegar hann rappar

Það er alltaf gaman þegar frægir tónlistarmenn bregða út af vananum og prófa aðrar tónlistarstefnur. Unglingurinn Justin Bieber hefur hingað til verið þekktur fyrir eitthvað allt annað en að kunna rappa. Í útvarpsþætti á dögunum tók popparinn sig til og fór með limrur eins og hann hafi aldrei gert neitt annað. Myndbandið hefur farið um internetið eins og eldur um sinu enda velta menn fyrir sér hvort að þessi einn frægasti söngvari um þessar mundir eigi að snúa sér alfarið í hiphop-ið.

Playboy hafnaði myndum af Lohan

Leikkonan Lindsay Lohan sat nýverið fyrir hjá karlatímaritinu Playboy. Nú hefur komið í ljós að myndirnar þykja ekki nógu góðar til að birta.

Ný fylgihlutalína Meyja by Gyðja Collection

Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru fyrir auglýsingaherferð nýju íslensku fylgihlutalínunnar Meyja by Gyðja Collection sem er framleidd sérstaklega fyrir verslanir Hagkaups.

Bond-myndin fær nafn

Búið er að afhjúpa hvaða leikkonur fá það eftirsóknarverða hlutverk að vera svokallaðar Bond-stúlkur í nýjustu myndinni um leyniþjónustumanninn James Bond. Þá er einnig komið í ljós hvað myndin sjálf heitir.

Lokað fyrir Bleikt.is hjá Reykjavíkurborg

„Ó, guð, núna skil ég af hverju lestur á síðunni hrundi um tíu til tuttugu prósent í síðustu viku,“ segir Hlín Einarsdóttir, ritstjóri afþreyingarvefsins Bleikt.is.

Raftónlistarmenn sigruðu hipphoppara

Boðsundslið raftónlistarmanna bar sigurorð af liði hiphop-listamanna í sundkeppni sem háð var í Sundhöll Reykjavíkur á þriðjudagskvöld.

Verður 120 ára

Roberto Cavalli opnaði fyrstu verslun sína í Tókýó í síðustu viku og telur sjálfur að hann eigi mörg góð ár eftir. Ítalski hönnuðurinn telur að hann muni lifa í ein fimmtíu ár til viðbótar, en Cavalli er sjötugur í dag.

Leikarar ársins verðlaunaðir í Hollywood

Fyrir stuttu fór fram árleg kvikmyndahátíð í Hollywood, The Annual Hollywood Film Awards Gala. Þetta er fimmtánda árið í röð sem hátíðin er haldin. Þar voru þeir leikarar sem skarað hafa fram úr á hvíta tjaldinu á árinu verðlaunaðir. Meðal þeirra sem tóku við verðlaunum var George Clooney, sem var valinn besti leikarinn, og Michelle Williams, besta leikkonan. Hún leikur Marilyn Monroe í myndinni My Week with Marilyn og tók við verðlaununum með eftirfarandi orðum: „Það eina sem Marilyn Monroe virkilega þráði var að vera tekin alvarlega sem leikkona. Hún fékk aldrei þá viðurkenningu.“ Leikararnir Joseph Gordon-Lewitt og Carey Mulligan hlutu verðlaun sem besti leikari og leikkona í aukahlutverki. Myndin The Help, sem er í kvikmyndahúsum hér á landi núna, fékk viðurkenningu fyrir besta leikarahópinn.

Þrjóskast við að þróast

Hinn léttgeggjaði Dave Mustaine er kominn á kreik á ný með þrettándu breiðskífu Megadeth. Ýmislegt kom upp á við gerð plötunnar, sem var þó tekin upp á mettíma.

Blur-menn á leynifundum

Breska poppsveitin Blur er ekki dauð úr öllum æðum. Söngvarinn Damon Albarn greinir frá því í viðtali við NME að meðlimir sveitarinnar hafi hist undanfarið og tekið upp efni.

Heist-æði grípur Hollywood

Steve Carell mun að öllum líkindum leika aðalhlutverkið í kvikmyndinni Conviction og jafnvel sitja í framleiðandastólnum líka. Myndin segir frá snjöllum bankaræningja sem situr í fangelsi eftir að bankarán hans fer úrskeiðis. Hann er síðan neyddur af FBI-fulltrúa til að hafa uppi á lærisvein sínum og koma honum á bak við lás og slá en notar um leið tímann til að skipuleggja hið fullkomna rán. Samkvæmt vef Empire átti myndin upphaflega að vera í ætt við stórmyndina Heat en nú hefur verið horfið frá því og ákveðið að láta myndina vera í svokölluðum heist-stíl með hasarbrag. Það verður forvitnilegt að sjá Carell í slíkri mynd, en hann hefur aðallega haldið sig við gamanmyndaflokkinn.

Ég man, því er ég

Heillandi lýsing á uppvexti skálds, þar sem skynjun barnsins rennur í gegnum rökhugsun hins fullorðna manns og skapar dýpt og víddir sem vandfundnar eru í æviminningum.

Faðir í fyrsta sinn

Leikarinn Hugh Grant varð stoltur faðir lítillar stúlku á dögunum.

Weasly slapp naumlega undan dauða

JK Rowling hefur upplýst að Ron Weasly, sem Rupert Grint lék í Harry Potter-myndunum, hafi sloppið naumlega undan, hún hafi nefnilega spáð alvarlega í það hvort hann ætti ekki að deyja í síðustu Potter-bókinni. Þetta kemur fram í spjalli við rithöfundinn á sérstökum viðhafnarmynddiski síðustu myndarinnar, Harry Potter og Dauðadjásnin 2.

Kutcher fellur

Áhorfið hrynur af sjónvarpsþáttaröðinni Two and a Half Men eftir að Ashton Kutcher gekk til liðs við þáttinn. Kutcher hefur engan veginn náð að fylla upp í það skarð sem Charlie Sheen skildi eftir sig þegar hann var rekinn. Kutcher hefur sjálfur átt í vandræðum í einkalífinu og rígheldur nú í hjónaband sitt og Demi Moore.

Unglist fagnar tuttugu ára afmæli

Listahátíð ungs fólks, Unglist, hefst á morgun og fagnar tuttugu ára afmæli sínu í ár. Ása Hauksdóttir, deildarstjóri menningarmála hjá Hinu húsinu, hefur fylgt hátíðinni frá upphafi og segir sérlega ánægjulegt hversu vel hafi tekist til með verkefnið, sem hófst fyrir tveimur áratugum.

DiCaprio sést með fjölda fyrirsæta

Leonardo DiCaprio kúrir sennilega seint kvenmannslaus í kulda og trekki því samkvæmt áströlsku útgáfunni af Daily Telegraph er leikarinn kominn með nýja dömu upp á arminn. Sú heitir Madalina og það kemur sennilega fáum á óvart að stúlkan er fyrirsæta. Hún er af rúmensku bergi brotin og hefur getið sér gott orð fyrir undirfatamyndir sínar.

Sjá næstu 50 fréttir