Sungið í karókí með Sinfó 4. nóvember 2011 16:00 Viðhafnarútgáfan á tónleikum Páls Óskars og Sinfóníunnar verður ákaflega vegleg, í svipuðu formi og konfektkassarnir. Páll segist fullur þakklætis í garð þeirra sem gerðu þetta umsvifamikla verkefni að veruleika.
Páll Óskar Hjálmtýsson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Útgáfan á tónleikum hans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands ber þess glöggt merki. Umslagið á viðhafnarútgáfunni verður úr upphleyptu stáli. „Þetta er dýrt, metnaðarfullt og glæsilegt. En þetta er líka Páll Óskar. Verkefnið í heild sinni, tónleikarnir, upptakan og útgáfan er sennilega með því dýrasta sem við höfum tekið þátt í,“ segir Eiður Arnarson, útgáfustjóri Senu. Óðum styttist í að tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Páls Óskars, sem fram fóru í Hörpu fyrr á þessu ári, komi út. Fyrri útgáfan verður í hefðbundnu formi; geisladiskur og DVD-mynddiskur í „standard digital“-útgáfu. En það er hins vegar viðhafnarútgáfan sem vekur óneitanlega athygli og söngvarinn sjálfur er stoltur af. Hægt væri að kalla það Stálsafnið. „Þetta er ekkert smáræði, hún verður úr upphleyptu stáli, svona svipuðu og konfektkassarnir eru,“ segir Páll. Í þessum kassa verður DVD-diskur, geisladiskur og svokallaður uppklappsdiskur, en þar verður hægt að finna allar smáskífur söngvarans og upptökur frá því að Silfursafnið kom út árið 2008. Páll er fullur þakklætis í garð þeirra sem komu að þessari útgáfu. „Ég og mitt litla plötufyrirtæki gætum aldrei staðið í verkefni af þessari stærðargráðu og ég varð mjög feginn þegar Sena og síðar meir Saga Film komu inn í þetta. Ég er bara fyrst og fremst ánægður að það skuli hafa lukkast að taka þessa tónleika upp og varðveita þessa heimild.“ Fyrri útgáfan kemur til landsins um miðjan nóvember en framleiðsla á stálsafninu er hafin í Kína og kemur það til Íslands á sjálfan fullveldisdaginn, 1. desember. Páll segir að öllu sé tjaldað til í útgáfunni og undir það tekur Eiður, mynddiskurinn sé klipptur eins og MTV-myndband. „Þetta eru yfir tvö þúsund myndskeið,“ segir Eiður, en hægt verður að spila hann með bæði íslensku og ensku tali. Og svo er það rúsínan í pylsuendanum. „Þú ýtir á einn takka og þá hverf ég og fólk getur sungið lögin mín með Sinfóníunni í karókí,“ segir Páll og bætir því við að hann sé ofsalega glaður að Sena skuli veðja á þennan hest. „Þetta er það umfangsmesta sem ég hef komið að í mínu lífi, tónleikarnir voru æðislegir þar sem enginn klúðraði neinu og allir voru í sínu mesta stuði.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira