Fleiri fréttir

Íslandsmyndband Saturdays frumsýnt

Búið er að frumsýna Íslandsmyndband bresku stúlknasveitarinnar The Saturdays. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á dögunum er sveitinni spáð miklum frama í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Rændur rétt fyrir Airwaves

„Það eru nokkrir með aðstöðu þarna, en það var farið inn í herbergið mitt,“ segir tónlistarmaðurinn Ragnar Árni Ágústsson.

Grét á brúðkaupsdaginn

Ég vildi óska þess að pabbi væri hérna, sagði Kim Kardashian á brúðkaupsdaginn...

Sandra Bullock í sjóræningjaleik

Leikkonan Sandra Bullock, 47 ára, og tveggja ára sonur hennar, Louis, voru klædd eins og sjóræningjar í barnaafmæli um helgina...

Spegilmynd Jóns Páls í Heimsendi

„Ég hamaðist í ræktinni og passaði mataræðið alveg ofsalega vel til að reyna að líta ekki út eins og aumingi,“ segir Guðjón Þorsteinn Pálmarsson leikari.

Kelinn Beckham

David Beckham, 35 ára, og sonur hans Cruz nutu samverunnar á fótboltaleik í Los Angeles á sunnudaginn eins og sjá má á myndunum...

Raf Simons slær aftur í gegn

Aðalhönnuður Jil Sander-tískuhússins, Raf Simons, hefur slegið í gegn enn og aftur með fallegri og tímalausri hönnun með vorlínunni 2012. Simons gæti þó verið á förum frá Jil Sander því sá orðrómur hefur heyrst að hann taki við af Stefano Pilati hjá Yves Saint Laurent.

Vinsæl meðal lögbrjóta

Fréttablaðið sagði frá því á laugardag að glænýrri plötu íslensku sveitarinnar Of Monsters and Men, My Head Is an Animal, hefði verið lekið á erlendar niðurhalssíður.

Sögur sem þarf að segja

Tryggvi Gunnarsson er höfundur og leikstjóri Glámu, leikrits sem frumsýnt var í Norðurpólnum fyrir helgi. Hann segir hið óvænta leika stórt hlutverk í sýningunni. Þrír vinir koma saman á síðsumarkvöldi til að skemmta sér.

Vorförðunin fyrir næsta ár er hrein og bein

Tískuvikurnar hafa síðustu vikur átt hug allra tískuunnenda sem fylgjast spenntir með straumum og stefnum næsta vors. Þó flíkurnar séu sannarlega í aðalhlutverki á slíkum viðburðum spila hár og förðun einnig veigamikið hlutverk og fullkomna í raun heildarútlitið.

Efnilegir Ísfirðingar

Stjörnuryk er rapphljómsveit frá Ísafirði sem sendi nýlega frá sér sína fyrstu plötu, Þetta reddast. Platan inniheldur hvorki meira né minna en 17 lög og á meðal gestarappara eru hinn ungi Ísfirðingur MC Ísaksen og bræðurnir Sesar A og Blazroca.

Skemmtilegur draumur

Einfalt verk, skapað utan um færni dansaranna sjálfra, vel unnið og skemmtilegt. Ef mann langar að hlæja á danssýningu þá er Fullkominn dagur til drauma svarið.

Gæti borðað hest

Oft hanna ég einhvern hlut þegar mig vantar eitthvað sérstakt og finn það hvergi í búðum,“ segir Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuður sem hefur hannað spagettímæli með hentugum mæligötum.

Heimilið eins og sumarbústaður

Aron Bergmann Magnússon, myndlistarmaður og leikmyndahönnuður, vinnur um þessar mundir við gerð gamanþátta Mið-Íslands-hópsins sem sýndir verða á Stöð 2 eftir áramót.

Gerir maska úr geri

Arndís Sigurðardóttir, nemandi á frumgreinadeild í Háskólanum á Bifröst, gefur út sína fyrstu bók í nóvember. Bókin hefur hlotið titilinn Náttúruleg fegurð og inniheldur uppskriftir að ýmsum náttúrulegum húðkremum, möskum og hárvörum.

All You Need Is Love

Meðfylgjandi má sjá gesti í brúðkaupi Bítilsins Paul McCartney, 69 ára, og Nancy Shevell, 51 árs, sem fór fram í Lundúnum í gær, sunnudag...

Nýtt tattú Garðars Gunnlaugs

Hann heitir Liudmil Vasilev og er einn færasti tattúartistinn hérna í Búlgaríu. Ég var með gamalt tattú sem ég lét gera á mig þegar ég var sextán, Soulfly merki...

Vinnur með virtum danshöfundi

Valgerður Rúnarsdóttir, dansari og danshöfundur, hefur undanfarin fjögur ár unnið með belgíska danshöfundinum Sidi Larbi Cherkaoui en hann þykir einn sá virtasti í sínu fagi og er ákaflega eftirsóttur í leikhúsum og hjá listamönnum úti um allan heim. Valgerður hefur ferðast um allar trissur með Cherkaoui og nú hefur samstarf þeirra leitt þau til London fyrir kvikmyndina Önnu Karenínu sem skartar Jude Law og Keiru Knightley í aðalhlutverkum en eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni leikur Hera Hilmarsdóttir einnig í myndinni.

Undirbýr spurningakeppni grunnskóla

Hannes Daði Haraldsson, framkvæmdastjóri Spurningakeppni grunnskólanna, segir mikla sprengingu hafa orðið í þátttöku keppninnar og taka nú alls sextíu og þrír grunnskólar þátt.

Losaði sig við silíkonið

Sharon Osbourne hefur verið fjarverandi frá sjónvarpsþætti sínum The Talk undanfarið en ástæðan er sú að hún var að láta fjarlægja silíkon úr brjóstunum sínum. Osbourne sagði þegar hún kom til baka í þáttinn að hún hefði vaknað einn daginn með annað brjóstið miklu stærra en hitt. „Ég hugsaði, þetta er ekki eðlilegt,“ sagði Osbourne en þá hafði silíkonið runnið úr öðru brjóstinu niður í maga og þurfti hún að gangast undir aðgerð.

Enn ein nektarmyndin

Eiginkona leikarans Orlando Bloom, Victoria's Secret fyrirsætan Miranda Kerr, 28 ára, sem eignaðist soninn Flynn, 6. janúar síðastliðinn, situr fyrir nakin í nóvember hefti ástralska Harper´s Bazaar...

Þvílíkur stemmari hjá Helga Björns

Helgi Björns og hljómsveitin Reiðmenn vindanna fylltu Háskólabíó og það tvisvar á laugardaginn en það var uppselt á báða tónleikana...

Bolurinn hefur fílað þetta

„Ég hef ekkert fylgst með viðbrögðunum enda les ég ekki blöðin og hlusta ekki á útvarp og hætti á Facebook fyrir hálfum mánuði síðan,“ segir Gísli Rúnar Jónsson, leikstjóri Kexvexmiðjunnar og annar höfundur þáttanna.

Gefur út bók um sushi-rétti

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og rithöfundur, gefur á næstunni út þýdda bók um gerð sushi-rétta sem heitir Einfaldara sushi.

Búðin hefur aðdráttarafl

Bókabúðin Mál og menning var opnuð á Laugavegi 18 5. október árið 1961 af Máli og menningu bókmenntafélagi sem hafði þá starfað sem útgáfufélag og bókaforlag frá árinu 1937.

McCartney og Shevell orðin hjón

Bítillinn Paul McCartney og Nancy Shevell eru orðin hjón. Þau giftust í dag á borgarskrifstofunni í Marylebone-hverfinu í Lundúnum, daginn sem John Lennon hefði orðið 71 árs. Brúðurinn klæddist brúðkjól sem hannaður var af dóttur Paul, fatahönnuðinum Stellu McCartney.

Þolir ekki Jennifer Lopez

Cameron Diaz og Jennifer Lopez leika saman í kvikmyndinni What to Expect When You’re Expecting. Samkvæmt sögusögnum líkar leikkonunum þó ekki við hvor aðra og andar köldu þar á milli.

Samstarf við Lady Gaga-hönnuð

Á opnunarkvöldi alþjóðlegu ráðstefnunnar You Are in Control í Hörpu á mánudagskvöld verður stefnt saman ólíkum listgreinum og sýnt hvernig myndlist, tónlist, leiklist, kvikmyndir, hönnun og tölvuleikir vinna saman með nýstárlegum hætti.

Gisele reitir samlanda sína til reiði

Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen hefur valdið ákveðnum usla í heimalandi sínu, Brasilíu, með nýjustu auglýsingaherferð nærfatamerki síns, Hope. Auglýsingarnar þykja ýta undir kynjamisrétti og sýna konur í röngu ljósi.

Ásdís Rán opnar Icequeen búð

Þetta er rosa spennandi verkefni, gaman að þetta sé orðið að veruleika loksins, segir Ásdís Rán sem opnaði Icequeen verslun á föstudaginn í Búlgaríu...

Íslensk skartgripalína frumsýnd

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar skartgripahönnuðurnir frá Made by 3 frumsýndu nýja línu í verslun Leonard í Lækjargötu síðastliðið fimmtudagskvöld...

Stöð 2 fáránlega töff

Ég man eftir því þegar Stöð 2 fór í loftið. Mér fannst hún alveg fáránlega töff og man eftir að hugsa um að mig langaði til að vinna þarna. En það tók tæp 18 ár.

Hei, sjáðu!

Edda Andrésdóttir hefur verið helsti fréttaþulur Stöðvar 2 um árabil. Hún kom til starfa frá Ríkissjónvarpinu 1990 og er að öðrum ólöstuðum andlit fréttastofunnar á Stöð 2 síðustu áratugi. Svo er hún líka dagskrárgerðarmaður, blaðamaður og rithöfundur, svo allt sé talið upp!

Fyrsti starfsmaður á plani

Ragnar Bragason leikstjóri markaði ákveðin kaflaskil í íslenskri sjónvarpssögu með samstarfsmönnum sínum þegar Næturvaktin varð til á Stöð 2. Mörgum þótti djarft að Stöð 2 skyldi veðja á nýtt íslenskt sjónvarpsefni en þvílík sprengja! Vaktaþáttaraðirnar urðu þrjár, Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin, og eru þær eins og bautasteinar þegar horft er yfir sögu íslenskra framhaldsþátta í sjónvarpi síðustu 25 ár.

Pastellitir í París

Tískuvikan í París er að renna sitt skeið, en þar hafa helstu hönnuðir heims farið hamförum á tískupöllunum...

Stílhrein lína Lanvin

Meðfylgjandi má sjá vor- og sumarlínu franska tískurisans Lanvin fyrir næsta ár. Lanvin er dýrkaður af stjörnunum í Hollywood. Þær fá ekki nóg af honum, þær bókstaflega elska kjólana eftir hann. Hér má sjá myndir af Cameron Diaz, Jessicu Alba, Rihönnu, Jennifer Aniston, Maggie Gyllenhaal, Juliu Roberts, Blake Lively og Söruh Jessicu Parker í Lanvin dressum.

McCartney og Shevell pússa sig saman

Bítillinn Paul McCartney mun í dag ganga að eiga unnustu sína til fjögurra ára, hina bandarísku Nancy Shevell. Einungis nánustu vinir og ættingjar verða viðstaddir athöfnina sjálfa en samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar er um 130 gestum boðið í brúðkaupsveisluna sem haldin verður á heimili Pauls. Þetta er í þriðja hjónaband bítilsins en athöfnin fer fram í miðborg London á sama stað og hann gekk að eiga fyrstu eiginkonu sína Lindu, en hún lést úr krabbameini árið 1998. Þá var Paul einnig kvæntur fyrirsætunni Heather Mills en það hjónaband endaði með skilnaði árið 2008.

Kanye floppaði en fann ástina

Frumraun tónlistarmannsins Kanye West sem fatahönnuður gekk ekki vel, en fatalína hans KW by Kanye West lagðist ekki vel í tískuheiminn. Þegar ritstjóri bandaríska Vogue, Anna Wintour, var spurð um álit eftir sýningu West svaraði hún „Spurðu einhvern annan en mig“ en það þykir jafngilda dauðadómi í tískubransanum. Fleiri spekingar hafa kallað fatalínuna bæði illa saumaða og ófrumlega.

Óhamingjusöm Jessica

Þrálátar sögusagnir um óléttu söngkonunnar Jessicu Simpson hafa nú náð nýjum hæðum því tímaritið Enquirer heldur því fram að söngkonan ætli sér að ala barnið upp sjálf.

Næturvaktin til Noregs

Þeir Ólafur Ragnar, Georg og Daníel úr Vaktaseríunum svokölluðu eru flestum kunnugir enda slógu þættirnir all rækilega í gegn hér á landi. Nú munu frændur okkar norðmenn fá að kynnast strákunum því norska sjónvarpsstöðin TV2 er að ráðst í framleiðslu á Næturvaktinni. Í Fréttablaðinu í dag segir að sjónvarpsstöðin ætli að tefla fram öllum sínum stærstu og sterkustu vopnum þegar endurgerðin hefst í byrjun næsta árs. Leikstjóri verður Magnus Martens sem þessa dagana er að klára kvikmyndina Arme Riddere eftir bók norska sakamálahöfundarins Jo Nesbø og þrír af vinsælustu gamanleikurum Noregs verða í aðalhlutverkunum að sögn Christophers Haug, eins af aðalframleiðendum leikins efnis hjá TV 2.

Kepptu í fótbolta-Angry Birds

Tölvuleikurinn Angry Birds er einn sá vinsælasti í heimi í dag en tveir háskólanemar í Bandaríkjunum ákváðu að slá til og keppa í heimatilbúnni fótboltaútgáfu af leiknum.

Önnur plata Árstíða komin út

Þjóðlagahljómsveitin Árstíðir hefur gefið út sína aðra plötu, Svefns og vöku skil. Platan kemur út á vegum Nivalis ehf., sem er í eigu meðlima sveitarinnar, og það var Ólafur Arnalds sem annaðist upptökustjórn. Stutt er síðan fyrsta smáskífulag plötunnar, Ljóð í sand, fór í útvarpsspilun.

Sjá næstu 50 fréttir