Lífið

Íslandsmyndband Saturdays frumsýnt

Búið er að frumsýna Íslandsmyndband bresku stúlknasveitarinnar The Saturdays. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á dögunum er sveitinni spáð miklum frama í Bretlandi og Bandaríkjunum.

Lagið heitir My Heart Takes Over og er myndbandið í ætt við önnur tónlistarmyndbönd sem hafa verið tekin hér á landi þar sem náttúran spilar aðahlutverk á móti tónlistarmönnunum. Myndbandið var mestmegnis tekið við Kleifarvatn og næsta umhverfi en það var Pegasus sem var bresku sveitinni innan handar.

„Þetta voru mjög erfiðar aðstæður, þær voru stílíseraðar fram á fingurgómana, klæddar í pils og háhælaða skó en stóðu sig eins og hetjur. Þær voru algjör hörkutól," sagði Sara Nassim, framleiðandi hjá Pegasus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.