Lífið

Þolir ekki Jennifer Lopez

Cameron Diaz mun vera mjög illa við dívustælana í Jennifer Lopez á tökustað myndarinnar What To Expect When You‘re Expecting.
nordicphotos/getty
Cameron Diaz mun vera mjög illa við dívustælana í Jennifer Lopez á tökustað myndarinnar What To Expect When You‘re Expecting. nordicphotos/getty
Cameron Diaz og Jennifer Lopez leika saman í kvikmyndinni What to Expect When You’re Expecting. Samkvæmt sögusögnum líkar leikkonunum þó ekki við hvor aðra og andar köldu þar á milli.

„Þeim líkar svo illa hvorri við aðra að framleiðendur myndarinnar hafa lagt sig í líma við að halda þeim eins fjarri hvor annarri og hægt er. Þær dvelja ekki á sama hóteli og eru sjaldan á tökustað á sama tíma. Cameron hreinlega þolir ekki dívustælana í Jennifer,“ var haft eftir innanbúðarmanni.

„Í kvöldverðarboði sem haldið var fyrir tökuliðið skvetti Cameron í sig fjórum vínglösum til þess eins að þola samvistirnar við Lopez.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.