Vinnur með virtum danshöfundi 10. október 2011 14:00 Valgerður Rúnarsdóttir er á leið til London að dansa í stórmyndinni Önnu Karenínu. Hera Hilmarsdóttir leikur einnig lítið hlutverk í myndinni.
Valgerður Rúnarsdóttir, dansari og danshöfundur, hefur undanfarin fjögur ár unnið með belgíska danshöfundinum Sidi Larbi Cherkaoui en hann þykir einn sá virtasti í sínu fagi og er ákaflega eftirsóttur í leikhúsum og hjá listamönnum úti um allan heim. Valgerður hefur ferðast um allar trissur með Cherkaoui og nú hefur samstarf þeirra leitt þau til London fyrir kvikmyndina Önnu Karenínu sem skartar Jude Law og Keiru Knightley í aðalhlutverkum en eins og Fréttablaðið greindi frá í vikunni leikur Hera Hilmarsdóttir einnig í myndinni. „Ég fer út eftir tíu daga. Myndin er tekin upp í stúdíói í London og þetta er mikið búningadrama,“ segir Valgerður en hún lék einnig í kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar unnusta síns, Á annan veg, sem nú er sýnd í Bíó Paradís. Valgerður aðstoðar Hilmar Guðjónsson í þeirri mynd í litlu dansatriði sem vakti töluverða athygli. Hún viðurkennir hins vegar að það verði eflaust aðeins öðruvísi að leika annars vegar í íslenskri kvikmynd þar sem settið er íslensk náttúra í öllu sínu veldi og svo risavaxinni og rándýrri stórmynd þar sem leikararnir skipta tugum ef ekki hundruðum. „Og búið er að eyða milljónum á milljónum ofan í leikmynd og búninga,“ segir Valgerður. Cherkaoui er með fleiri járn í eldinum og Valgerður býst við því að vera með honum í nýju verkefni á næsta ári sem mun væntanlega útheimta mikil ferðalög. „Hann er mjög krefjandi á góðan hátt, sýningarnar hans mælast mjög vel fyrir og það er mjög skemmtilegt að fá svona tækifæri,“ segir Valgerður sem jafnframt er á fullu við að semja eigin verk. „Þá er maður bara að harka og sækja um styrki og reyna að koma þeim á framfæri erlendis.“- fgg
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira