Fylgihlutalína úr roði og kristöllum 10. október 2011 18:00 Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hefur sent frá sér nýja fylgihlutalínu sem er meðal annars unnin úr fiskroði og kristöllum.
Falleg leðurstígvél frá Gyðju Collection. Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, sem hannar skó og fylgihluti undir heitinu Gyðja Collection, hefur sent frá sér nýja línu sem er meðal annars unnin úr íslensku laxaroði og Swarovski-kristöllum. Sigrún Lilja segir skemmtilegt að vinna með fiskroð enda sé efnið bæði sterkt og meðfærilegt. „Það er gaman að vinna með þetta hráefni því áferðin og litirnir eru svo skemmtileg. Tískumerki á borð við Prada, Dior, Ferragamo og Nike hafa einnig verið að nota þetta hráefni í sína hönnun."Aníta Crystal-skórnir voru framleiddir í takmörkuðu upplagi. Þeir eru nefndir í höfuðið á leikkonunni Anítu Briem.Sigrún Lilja var í fyrra fengin til að hanna brúðarskó leikkonunnar Anítu Briem og eru þeir úr laxaroði og skreyttir með Swarovski-kristöllum. Skórnir þóttu svo vel heppnaðir að í kjölfarið var ákveðið að setja þá í almenna sölu og bera þeir heitið Aníta, í höfuðið á leikkonunni. „Ég ákvað svo að framleiða líka aðra skó til heiðurs Anítu og eru þeir silfraðir að lit og þaktir kristöllum allan hringinn. Þeir skór eru aðeins til í takmörkuðu upplagi og heita Aníta Crystal." Sigrún Lilja er ekki fyrsti hönnuðurinn sem nefnir vöru í höfuðið á leikkonu því tískuhúsið Hermès nefndi hina heimsþekktu Birkin-tösku í höfuðið á Jane Birkin. Innt eftir því hvort hún spái Anítu skónum sama langlífi og Birkin-töskunni verður Sigrún Lilja hugsi. „Skórnir eru þannig í sniðinu að þeir gætu auðveldlega orðið klassík og maður vonast vissulega til þess. Hugmyndin var að þeir verði mjög langlífir og að við getum svo haldið áfram að bæta við litum inn á milli. Þeir hafa í það minnsta fallið vel í kramið hjá viðskiptavinunum," segir hún að lokum. Vörurnar fást í Debenhams í Smáralind og Duty Free Fashion í Leifsstöð. -sm
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira