Undirbýr spurningakeppni grunnskóla 10. október 2011 13:00 Hannes Daði Haraldsson, framkvæmdastjóri Spurningakeppni grunnskólanna, segir ánægjulegt hve áhuginn fyrir keppninni sé mikill.fréttablaðið/Anton
Hannes Daði Haraldsson, framkvæmdastjóri Spurningakeppni grunnskólanna, segir mikla sprengingu hafa orðið í þátttöku keppninnar og taka nú alls sextíu og þrír grunnskólar þátt. Fyrir tveimur árum tók ÍTR þá ákvörðun að ekki væri lengur fjárhagslegur grundvöllur fyrir því að halda Nema hvað?, spurningakeppni grunnskólanna í Reykjavík. Enn var þó áhugi til staðar meðal skólanna að taka þátt í keppninni og ákvað Hannes Daði að sér skipulagningu hennar. Hann semur sjálfur spurningarnar og sér um alla framkvæmd hennar. Fyrsta árið tóku aðeins fjórtán skólar þátt en í ár hefur orðið sprenging í þátttöku og alls keppa sextíu og þrír skólar til sigurs, þar af fjörutíu og tveir skólar af landsbyggðinni. Inntur eftir því af hverju hann ákvað að taka að sér skipulagningu keppninnar segir Hannes Daði að áhuginn hafi verið til staðar auk þess sem honum þyki gaman að keppninni. „Ég tók sjálfur þátt árið 2005 fyrir hönd Breiðholtsskóla þegar ég var í tíunda bekk og þótti þetta bæði fræðandi og skemmtilegt. Ég tók svo að mér að þjálfa lið skólans og þótti þess vegna leiðinlegt að sjá á bak keppninni. Áhugi nemenda og skólastjórnenda var þó enn til staðar og þess vegna tók ég þetta að mér,“ útskýrir hann. Hannes Davíð hætti að þjálfa lið Breiðholtsskóla og sneri sér þess í stað að því að semja spurningar fyrir keppnina. „Ég sæki mér víða fanga og finn efni í spurningar úr bókum, minni eigin þekkingu og á Netinu.“ Keppnin hefur göngu sína í byrjun næsta árs og verður gaman að fylgjast með gengi grunnskólanna. -sm
Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira