Fleiri fréttir

Góðverk unglinga í Grafarvogi

Unglingar í Grafarvogi eru í góðgerðarham þessa dagana. Þann 30. nóv hófst árleg Góðgerðarvika unglinga og félagsmiðstöðva í Grafarvogi, og stendur hún til 7. desember. Hugmyndin að vikunni kviknaði í fyrra hjá unglingum sem vildu láta gott af sér leiða í byrjun jólamánaðar.

Bono hjá Landsbankanum

Vísir sagði frá því fyrr í dag að Al Gore fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna hefði verið gestur á Orku- og umhverfisráðstefnu Merrion Capital, dótturfyrirtæki Landsbankans.

Sköllótt, tannlaus hóra og skotheldur Maybach

Stjörnurnar eru margar hverjar þekktar fyrir furðulegar kröfur um aðbúnað í búningsherbergjum sínum. Algengar kröfur eru til dæmis um óhóflegt magn af dýru áfengi, blómvendi, fjölda og stærð spegla, nú eða að M&M nammið sé litaflokkað. Svo eru þeir sem vilja skera sig úr, eins og til dæmis Barbra Streisand, sem vill að rósablöð fljóti í klósettinu, eða David Hasselhof, sem lætur sér nægja skilti með mynd af sér í fullri stærð. Aðrir eru settlegri, eins og Led Zeppelin, sem biðja einungis um straujárn og straubretti.

Peter Andre vildi giftast Boy George

Peter Andre var skotinn í Boy George þegar hann var lítill, en hann hélt reyndar að popparinn væri kvenkyns. Andre sagði í viðtali við The Sun að í fyrsta sinn sem hann sá popparann sminkaða í sjónvarpinu árið 1983 hefði hann hrópað upp ,,Vá, hún er flott." Söngvarinn var miður sín þegar hann komst að hinu sanna um George, ,,Ég hélt ég myndi giftast þessari konu." sagði Andre. Honum hefur þó vegnað ágætlega í kvennamálum síðan, en hann er giftur hinni brjóstgóðu Jordan.

Afgangurinn fer ofan í smáfuglana

„Áður fyrr var ég nokkuð dugleg að baka – ekki síst á sumrin og veitti ekki af á stóru sveitaheimili. Ég vildi líka gjarnan vera viðbúin og eiga með kaffinu þegar gesti bar að garði sem var æði oft á árum áður enda bærinn okkar í þjóðbraut,“ segir Elín G. Sigurðardóttir á Torfalæk, safnstjóri Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi.

Britney átti afmæli um helgina

Britney Spears fagnaði 26 ára afmælinu sínu ásamt Paris Hilton og fleiri vinkonum sínum á Scandinavian Style Mansion veitingastaðnum í Hollywood um helgina.

Nei úps, er þetta Range-inn þinn Steini?

Blaðamaður Vísis varð vitni að neyðarlegu atviki um daginn að loknum stjórnarfundi hjá 365. Þegar stjórnarmenn stigu út af fundi og ætluðu að keyra á brott, vildi ekki betur til en svo að Magnús Ármann, einn stjórnarmanna, fór bílavillt. Það þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart, enda voru þeir allir á eins svörtum Range Rover Vogue Supercharger.

Hitti valdamesta Vítisengil Danmerkur

„Ég vissi nú ekki að hann væri nýsloppinn úr 16 ára fangelsi fyrir manndráp, en þetta virkaði sem fínn náungi,“ segir Margrét Helgadóttir bifhjólakona sem endaði í partýi með Jörn „Jönke" Nielsen þegar hann var hér á landi árið 1999.

Aron Pálmi hitti Wesley Snipes á Vegamótum

„Já ég hitti hann um helgina, hann var með vinum sínum og fjölskyldu,“ segir Aron Pálmi Ágústsson um stórleikarann Wesley Snipes sem hann hitti á skemmtistaðnum Vegamót, um helgina.

Hraun í fimm sveita úrslit The Next Big Thing á BBC

Hljómsveitin Hraun er komin í fimm sveita úrslit í tónlistarkeppni BBC world service, The Next Big Thing. 2000 hljómsveitir hvaðanæva að úr heiminum sendu inn lög í keppnina. Markmið hennar er að leita að spennandi nýrri tónlist, hljómsveitum og tónlistamönnum sem munu móta framtíðina.

Lágt gengi dollars kemur illa við hasshausa

Frjálst fall dollars undanfarinn misseri hefur víðtækari áhrif en í fyrstu mætti ætla. Grashausar í Manhattan eru í stökustu vandræðum vegnna hækkkandi verðs á maríjúana.

Berstrípaður í þriggja vikna einangrunarvist

Aron Pálmi Ágústsson var settur í einangrunarklefa árið 2003. Þá um tvítugt. Hann var sakaður um að hafa ráðist á samfanga, eða samnemanda eins og þeir voru kallaðir, en ekkert var sannað og hann neitar því sjálfur.

Jennifer Love Hewitt er ekki feit

Jennifer Love Hewitt svaraði um helgina fyrir sig, eftir að slúðurpressan vestanhafs gagnrýndi leikkonuna smávöxnu fyrir skvap og appelsínuhúð.

Nylon gefur Blátt áfram allan ágóða af nýrri plötu sinni

Á morgun þriðjudaginn 4. desember kemur í verslanir ný plata með Nylon flokknum. Platan er 17 laga safnplata og inniheldur öll þau lög sem flokkurinn hefur komið í spilun í útvarpi á síðustu þremur árum og náð hafa almennri hilli. Í haust tóku stelpurnar upp tvo lög sem verða einu tvo nýju lögin á safnplötuni sem væntanleg en lögin Holiday og Britney. Nylon hefur látið lítið fyrir sér fara á þessu ári en hafa þó sent frá sér tvo lög. Lagið Holiday í upphafi árs sem fór í fyrsta sæti yfir mest spiluðu lög í íslensku útvarpi. Síðan var það stórs smellurinn Britney sem fór einnig í fyrsta sæti Lagalistans núna í haust en það lag var hugarfóstur Sniglabandsins en engu að síður sungið af Nylon. Bæði lögin eru á fyrirhugaðri safnplötu.

Fyrstu tónleikar Spice Girls að baki

Spice Girls hóf tónleikaferðalag sitt um heiminn í Vancouver í Kanada í gærkvöldi. Mikil eftirspurn var eftir miðum á þessa tónleika en þeir seldust upp á 38 sekúndum.

Leno og O´Brien borga starfsliði sínu laun úr eigin vasa

Verkfall handritahöfunda stendur enn í Hollywood og sér ekki fyrir endan á því. Af þeim sökum hafa stærstu sjónvarpsstöðvarnar sagt upp fjölda af fólki. Tveir spjallþáttastjórnendur hafa brugðist við þessu með því að borga starfsliði sínu laun úr eigin vasa.

Doktor Luka borgar meðlag

Króatíski leikarinn Goran Visnjic hefur fallist á að greiða meðlag með átta mánaða gömlu stúlkubarni.

Bleik tískubylgja í Tælandi

Fataframleiðendur í Tælandi hafa ekki undan að framleiða bleikar skyrtur og bleika jakka. Fatakeðjan Phufa hefur selt 40 þúsund bleikar skyrtur síðan í byrjun nóvember.

Evel Knievel er allur

Bandaríski ofurhuginn Evel Knievel er látinn, 69 ára að aldri. Hann varð heimsfrægur fyrir dirfskubrögð sín sem jafn oft og ekki mistókust. Með þeim afleiðingum að hann dvaldi langdvölum á sjúkrahúsum.

Lessing fer ekki til Svíþjóðar

Rithöfundurinn Doris Lessing, sem hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár, getur ekki ferðast til Stokkhólms til að taka við verðlaununum vegna eymsla í baki.

Witherspoon launhæsta leikkonan í Hollywood

Samkvæmt úttekt tímaritsins Hollywood Reporter er Reese Witherspoon launahæsta leikkonan í Hollywood. Samkvæmt tímaritinu þénar hún á bilinu 15 - 20 milljón dollara fyrir hverja mynd sem hún leikur í.

Óopnanlegum konunglegum vínflöskum skilað

Danska verslanakeðjan Irma hefur skilað af sendingu af rauðvíni frá víngarði Hinriks danaprins, vegna þess að ómögulegt var að fá tappann úr flöskunni. Þetta er gert kjölfar kvartana frá fjölda viðskiptavina keðjunnar, sem gáfust upp á því að ná í hina konunglegu dropa.

Stærsti segldúkur landsins fór upp í fárviðri

„Okkur leist nú ekkert á þetta þar sem veðurspáin var skelfileg,“ segir Jón Viðar starfsmaður Frank og Jóa sem hafði yfirumsjón með uppsetningu á stærsta segldúki landsins í nótt.

Þotuliðið borgar 100 þúsund fyrir góðgerðakvöldverð

Glæsilegur fjáröflunarkvöldverður verður haldinn fyrir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðannam, í kvöld a veitingastaðnum Domo. Miðaverðið er 100.000 krónur fyrir hvern gest. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil og heyrst hefur að stuðsveitin Super Moma Djombo muni taka lagið fyrir gesti. Óvíst er hvort kvöldverðurinn í kvöld slær út hinn síðasta, en þá heiðraði sjálfur Roger Moore samkomuna með nærveru sinni.

Aldurinn leggst ekki illa í kynhvöt Pamelu Anderson, en hún varð fertug fyrr á árinu. Ef eitthvað virðist allt vera á uppleið í þeim efnum hjá Baywatch stjörnunni.

Reese og Jake ganga í míluklúbbinn

Jake Gyllenhaal og Reese Witherspoon nýttu tíma sinn til hins ítrasta í löngu og erfiðu flugi frá Frankfurt til Los Angeles á dögunum, að sögn Star tímaritsins.

Brúðkaup Grétars Rafns og Manúelu vinsælt á Youtube

Við íslendingar eigum fleiri stórstjörnur en Björk. Brúðkaup Grétars Rafns Steinssonar og Manúelu Óskar Harðardóttur hefur í það minnsta vakið það mikla athygli í Hollandi að aðdáandi fótboltakappans sá ástæðu til að setja myndir úr því á Youtube.

Nýtt lag frá Queen

Hljómsveitin Queen gefur út nýtt lag ásamt söngvaranum Paul Rodgers á morgun. Lagið, sem heitir Say It´s Not True, er það fyrsta sem hljómsveitin sendir frá sér eftir 10 ára hlé og er gefið út í tilefni af Alnæmisdeginum. Því verður dreift ókeypis um Internetið.

Olsen tvíburarnir vilja 750 milljónir fyrir penthouse íbúðina sína

Tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen hafa sett penthouse íbúð sína í New York borg á sölu. Íbúðin er á besta stað í West Village hverfinu sem er eitt það eftirsóttasta í New York. Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem er með dyravörð allan sólahring, sem og bílastæðavörð sem sér um að leggja bílnum og sækja hann fyrir íbúa.

Britney stelur hárkollu í hjálpartækjaverslun

Britney spears toppaði sjálfa sig á dögunum þegar starfsfólk hjálpartækjaverslunar bannaði henni að máta nærföt sem hún hafði augastað á. Starfsfólkið sagði Britney að það leyfði ekki mátun á nærfötum af hreinlætisástæðum. Söngkonan var síður en svo hress með það, og skellti sér úr nærbuxunum fyrir framan hóp af steinhissa viðskipavinum búðarinnar.

Samkeppni um nýjan sumarskála við Norræna húsið

Norræna húsið og Arkitektafélag íslands fara eftir helgi á stað með samkeppni um hönnun á sumarskála sem á að rísa við Norræna húsið sumarið 2008. Glerskálinn sem stóð fyrir framan Norræna húsið síðastliðið sumar vakti mikla athygli og eftir velheppnað sumar var ákveðið að setja samkeppnina af stað.

Rithöfundar lesa úr verkum sínum á Gljúfrasteini

Rithöfundar munu lesa úr nýútkomnum bókum sínum á Gljúfrasteini þrjá fyrstu sunnudaga á aðventu. Segja má að það sé komin hefð á upplestra úr nýjum bókum fyrir jólin á Gljúfrasteini. Upplestrarnir hafa mælst vel fyrir enda andrúmsloftið í stofunni einstakt og tilvalið að hlýða á upplestra í kyrrð og friði.

Christina Aguilera berar bumbuna - og allt hitt

Christina Aguilera fetaði á dögunum í fótspor óléttra stallsystra sinna vestanhafs, og sýndi óléttubumbuna nakin í bandarísku útgáfu Marie Claire tímaritsins.

Ragnar Th Sigurðsson sýnir í Fótógrafí

Ragnar Th. Sigurðsson opnar sýningu í ljósmyndagalleríinu Fótógrafi Skólavörðustíg 4 laugardaginn 1. desember frá klukkan 12 til 18. Sýningin stendur til 4. janúar. Sýningin nefnist Litir jarðar. Myndirnar eru allar teknar síðastliðið haust og sýna blæbrigði íslenskra villijurta í nærmynd.

Paris Hilton langar í barn

Paris Hilton og Nicole Richie hafa bæði verið bestu vinkonur og svarnir óvinir í gegnum tíðina. Nú hefur Paris látið hafa það eftir sér að hún vonist til þess að börnin þeirra verði bestu vinir í framtíðinni.

Smurbrauðsjómfrúin sjötug á laugardag

Smurbrauðsjómfrúin Ida Davidsen verður sjötug á laugardag. Hún hefur smurt brauð til heiðurs margra helstu stjarna Danmerkur, á borð við Viktor Borge - sem var gerður ódauðlegur á rúgbrauðssneið með slettu af majónesi og sjávarréttum - og Hans Christian Andersen, sem er minnst með beikoni, tómati, kæfu og piparrót.

Sjá næstu 50 fréttir