Lífið

Þotuliðið borgar 100 þúsund fyrir góðgerðakvöldverð

Roger Moore er einn stuðningsmanna UNICEF
Roger Moore er einn stuðningsmanna UNICEF
Glæsilegur fjáröflunarkvöldverður verður haldinn fyrir UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðannam, í kvöld a veitingastaðnum Domo. Miðaverðið er 100.000 krónur fyrir hvern gest. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil og heyrst hefur að stuðsveitin Super Moma Djombo muni taka lagið fyrir gesti.

Óvíst er hvort kvöldverðurinn í kvöld slær út hinn síðasta, en þá heiðraði sjálfur Roger Moore samkomuna með nærveru sinni.

Hundrað þúsund kallinum verður örugglega vel varið. Markmið UNICEF eru að veita börnum góða byrjun í lífinu, að byggja upp verndandi umhverfi fyrir börn, veita þeim góða grunnmenntun, lífsnauðsynlegar bólusetningar og bætiefni og að fyrirbyggja HIV smit og veita smituðum umönnun ásamt því að sjá til þess að börnum sem eru munaðarlaus af völdum alnæmis sé veittur stuðningur og umönnun.

Þeir sem ekki eiga fyrir kvöldverðinum góða geta styrkt starfið með því að gerast heimsforeldri eða kaupa kort og gjafir UNICEF.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.