Lífið

Hraun í fimm sveita úrslit The Next Big Thing á BBC

SEV skrifar
Hljómsveitin Hraun er komin í fimm sveita úrslit í tónlistarkeppni BBC world service, The Next Big Thing. 2000 hljómsveitir hvaðanæva að úr heiminum sendu inn lög í keppnina. Markmið hennar er að leita að spennandi nýrri tónlist, hljómsveitum og tónlistamönnum sem munu móta framtíðina.

Lag Hrauns í keppninni heitir Ástarsaga úr Fjöllunum og er að finna á plötu Hrauns frá því í vor, I can't believe it's not happiness. Svavar Knútur söngvari sveitarinnar sagði við Vísi á dögunum að lagið hafi verið tekið upp síldartanki í gömlu síldarvinnslunni í Djúpuvík á Ströndum eitt rauðvínslegið júníkvöld. Staðsetningin og stemningin sem regnið sem féll á tankinn myndaði hafi skilað sér í lagið, og líklega átt sinn þátt í að heilla dómnefndina, sem samanstendur meðal annarra af ekki ómerkara fólki en Tori Amos og Nitin Sawhney.

Fjöldi dómara segir Hraun vera uppáhalds sveit sína í keppninni. Paul Stoke, ritstjóri NME og einn dómara segist dást að því hvernig sveitinni tekst að blanda íslenskum tónlistarhefðum og alþjóðlegum áhrifum. Lag Hrauns búi yfir tilfinningu af sólskyni vesturstrandar Bandaríkjanna og dularfullri sjálfsskoðun og reykfylltri orku íslenska hraunsins. Nitin Sawhney segir sveitina blanda gullfallegum söng og draugalegum, tilfinningaþrungnum tónum og minni á Sigurrós og Damien Rice. Annar dómara segir að ef það er svona sem ísland hljómi þurfi hann að drífa sig í heimsókn hið snarasta.

Úrslitakvöldið verður á næstu dögum. Þa spilar sveitin fyrir dómarana í London og verður keppnini út- og sjónvarpað á BBC.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.