Fleiri fréttir

Pósar í glergámi í Chicago

Fókus, sem fylgir með DV í dag, talaði við hina 25 ára gömlu Þóru Lind Möller, sem starfar sem módel í Bandaríkjunum. Hún var á sínum tíma valin Miss Teen Colorado og fór sem fulltrúi þeirra á aðalkeppnina í Flórída á sínum tíma. Þessa dagana er hún á sundbol í glergámi til að vekja athygli á utanlandsferðum til Mexíkó.

Þessi mynd er skíturinn

"Það er ekki komið nafn á hana ennþá. Nokkrar tillaganna eru Rokkræningjarnir, Pilots of Purple og Börn ógæfunnar," segir Frosti Runólfsson, sem prýðir forsíðu Fókus, sem fylgir með DV í dag. Frosti er að leggja lokahönd á heimildarmynd um Mínus. Hann nær öllu litrófi sveitarinnar, upphafinu, upphefðinni, fylleríinu og einlægninni.

Bestu og verstu umslögin

Í Fókus, sem fylgir DV í dag er gerð ýtarleg úttekt á plötuumslögum jólavertíðarinnar. Skemmst er frá því að segja að álitsgjafarnir telja rokkgrúppuna Brain Police eiga smekklegasta umslag ársins en gítargúrúinn Björn Thoroddsen það ljótasta. Stóru orðin eru ekki spöruð og engum hlíft í úttektinni.

Skemmtilegast á uppboðum

Jeppapartasala Þórðar á Tangarhöfða 2 er rúmlega tuttugu ára gamalt fyrirtæki. Björgvin Guðmundsson hefur starfað þar í átta ár og eignaðist fyrirtækið fyrir tveimur árum.

32 manna úrslit í Stjörnuleitinni í kvöld

32 manna úrslit í IDOL Stjörnuleitinni fara fram á Stöð 2 klukkan 20:40 í kvöld. Nú munu atkvæði sjónvarpsáhorfenda ráða úrslitum en dómnefndin verður samt áfram að störfum, þó aðeins til að gefa álit. Úrslitin verða alfarið í höndum landsmanna en símanúmer keppenda eru auglýst í þættinum. Niðurstaða símakosningar verður tilkynnt í beinni útsendingu á ellefta tímanum  í kvöld.

Loksins, loksins Willys

Þorkell Stefánsson framkvæmdastjóri lét draum frá unglingsárunum rætast í fyrra.

Kiss á Gauknum?

Gaukur á Stöng heldur upp á afmæli um helgina. Fókus fagnar að af því tilefni mætir "hljómsveitin" Kiss á svæðið og gerir allt vitlaust. Fyrir nokkrum árum kom þessi sama "hljómsveit" fram á Hard Rock og þá létu hvorki meira né minna en 800 manns sjá sig á staðnum. Allt um það í Lífinu eftir vinnu í Fókus, sem fylgir DV í dag.

Frægðin hefur styrkt sambandið

Idolstjarnan Karl Bjarni Guðmundsson, eða Kalli Bjarni eins og allir þekkja hann, hefur svifið á skýi frægðarinnar síðan hann sigraði keppnina. Óhætt er að segja að líf hans hafi umturnast. Eða svona næstum því. Heima í Grindavík er lítið breytt; þar á hann yndislega fjölskyldu sem hefur aldrei verið samrýmdari.

Tekjuskattur lækkar um 4%

Tekjuskattur lækkar um fjögur prósentustig á næstu þremur árum. Eignaskattur fellur niður og barnabætur hækka. Ráðstöfunartekjur hjóna með þrjú hundruð þúsund krónur á mánuði hækka um rúmlega tuttugu og þrjú þúsund krónur á mánuði, samkvæmt útreikningum ríkisstjórnarinnar.

Eiður Smári frægastur

Eiður Smári Guðjohnsen er frægasti Íslendingurinn samkvæmt könnum DV á meðal grunnskólabarna í Reykjavík. Eiður ber af og skýtur fjölmörgum poppstjörnum og stjórnmálamönnum ref fyrir rass.

Harry Belafonte á Íslandi

Skemmtikrafturinn heimsfrægi Harry Belafonte er hér á landi og hvetur Íslendinga til að gerast heimsforeldrar. Hægt er að hitta Belafonte í Smáralind á morgun þegar hann opnar þar ljósmyndasýningu um Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Fréttamaður Stöðvar 2 hitti hann í dag.

Mezzoforte og kór Langholtskirkju

Nýtt íslenskt kórverk, með djassbræðingi, verður flutt á tónleikum í Langholtskirkju á morgun. Hljómsveitin Mezzoforte og Kór Langholtskirkju verða þar leidd saman.

Fegurðardrottning fær jólabarn

Íris Björk Árnadóttir og kærastinn hennar Kristján Jón Jónatansson létu plata sig á blint-stefnumót á sínum tíma og sjá ekki eftir neinu í dag. Þau eiga vona á sínu öðru barni í lok desember en fyrir eiga þau dótturina Katrínu Emblu sem varð eins árs í október.

Sverrir Kári í löggubúningi

Margar konur laðast að einkennisbúningum, aðrar að jakkafatatýpunum á meðan enn aðrar velja íþróttagæjana. DV Magasín klæddi Sverrir Kára Karlsson, Herra Ísland 2002, upp í nokkrar útgáfur af klæðnaði og lét nokkrar valinkunnar konur velja hvaða klæðnaður fer honum best. Hvar er hann mest sexý?

13 kærustur í einu

Dagur B. Eggertsson átti 13 kærustur í einu þegar hann var í Árbæjarskóla.

Pils sem passa á alla

Sigrún & Selma hanna flott pils á allar konur sama hvernig þær eru í laginu. Pilsin eru fjölbreytt, alveg frá því að vera einlit hversdags-pils upp í skreytt pils sem hægt er að nota spari.

21 hugmynd að stefnumótum

Tilhugalífið fer að mestu fram á djamminu en væri ekki gaman ef á því væri breyting? Bíóferðin hefur einhvern veginn lifað en það er svo margt annað í boði.

Sennilega gömul sál

Hanna María er ein ástsælasta og önnum kafnasta leikkona landsins. Hún fer nú um stundir með hlutverk í sýningum Borgarleikhússins á Héra Hérasyni, Chicago og Línu langsokk auk þess sem hún er að æfa í Híbýli vindanna sem sett verður upp í janúar

Belafonte kominn

Söngvarinn heimsþekkti, Harry Belafonte, er kominn til landsins. Hann er kominn hingað til að kynna jólakort UNICEF á Íslandi og mun meðal annars opna ljósmyndasýningu um UNICEF í Smáralind klukkan hálf fjögur á laugardaginn. Harry Belafonte á að baki langan og farsælan feril sem söngvari, leikari og framleiðandi.

Massíf úlpa í kuldanum

Aðspurður um hvaða flík sé í algjöru uppáhaldi þessa dagana þá er Kristján Ingi Gunnarsson, einn af þáttastjórnendum Ópsins í Sjónvarpinu, í engum vafa

Kynköld á pillunni

Halló Ragga Er pillan þekkt fyrir að valda kynkulda? Ég var á pillunni heillengi fyrir tvítugt en man eiginlega ekki hvernig mér leið þá. Svo kom nokkurra ára tímabil þar sem skírlífi og smokkar skiptust á...

Húfur í öllum litum

Hulda Kristinsdóttir hefur verið með handavinnu og heklunál í höndunum frá því hún man eftir sér. Þegar hún svo eignaðist prjónavél fyrir 30 árum fannst henni hún hafa himin höndum tekið og hefur verið óþreytandi að hanna og prjóna trefla og húfur handa börnum sínum og barnabörnum.

Helgarferðin breyttist í martröð

Helgarferð fertugar konu á ráðstefnu til Reykjavíkur endaði með martröð. Vaknaði á götuhorni klukkustundum síðar eftir að hafa verið svæfð síðan nauðgað á meðan upptökuvélar gengu.

Hugmynd komið í verk

Í dag þegar framboð af ódýrum fatnaði hefur aukist til muna telst það til undantekninga að konur sitji heima og saumi föt á fjölskylduna. Hinsvegar virðist aðsókn á námskeið í fatahönnun og saumaskap ekki minnkað með árunum, heldur aukist ef eitthvað er

Renglan sem varð að kyntákni

Leikkonan og gyðjan Sophia Loren fæddist inn í fátæka fjölskyldu. Sophia var feimin sem unglingur en eftir að hafa keppt í fegurðarsamkeppnum og unnið sem fyrirsæta setti hún stefnuna á leiklistina. Sophia giftist kvikmyndaleikstjóranum Carlo Ponti og hefur leikið í fjölda mörgum kvikmyndum undir hans leikstjórn.

Börðust með bjór gegnum skaflana

Fyrsti Víking jólabjórinn er væntanlegur að norðan innan stundar. Í fyrra var flogið með bjórinn suður en nú var bjórinn ferjaður landleiðina. Fyrstu kassarnir voru fluttir með ofurjeppum suður Kjöl í dag og fóru öflugir jeppar til móts við norðanmenn.

Gómsæt, bragðmikil beikon- og kartöflusúpa

Þegar framreiða á góða súpu er nauðsynlegt að eiga fallegar súpuskálar til að bera hana fram í, hvort sem er hvers dags eða spari því fallegar umbúðir auka alltaf á gæðin. Súpuskálar og diskar eru til í öllum stærðum og gerðum. Súpudiskar hafa til þessa verið algengari en skálarnar sækja á og svo eru svokallaðir súpubollar að verða æ vinsælli.

Clinton bókasafnið opnað

Bókasafn Bill Clintons verður opnað með pompi og prakt í heimabæ forsetans fyrrverandi, Little Rock í Arkansas, í dag. Bókasafnið, sem kostaði heila 10 milljarða íslenskra króna, er framúrstefnulegt í hönnun og þar mun meðal annars verða nákvæm eftirlíking af skrifstofu forsetans í Hvíta Húsinu.

Lennon veltir Presley

John Lennon hefur velt Elvis Presley af stalli sem rokk og ról kóngur allra tíma samkvæmt nýrri könnun breska tónlistartímaritsins Q. Paul McCartney, félagi Lennons úr Bítlunum, lenti í tólfta sæti.

Outkast með flestar tilnefningar

Evrópsku tónlistarverðlaunin verða haldin í Rómarborg í kvöld. Aðalkynnir kvöldsins verður leikkonan sykursæta, Sarah Michelle Gellar, en aðrir sem koma fram eru meðal annars Eminem, Beastie Boys og söngkonan Kylie Minogue. Rappdúettinn Outcast er tilnefndur til flestra verðlauna, eða fimm talsins, meðal annars fyrir besta lagið og sem besta hljómsveit ársins.

Skrímslaborgarinn verstur

Næringarfræðingar hafa valið skrímslisborgarann, sem fyrirtækið Hardee hefur sett á markað, sem versta hamborgara í heimi. Borgarinn inniheldur hátt í 1500 hitaeiningar og kostar aðeins um 350 krónur. Borgarinn samanstendur af tveim stórum nautahakkssneiðum, fjórum beikonstrimlum, þrem ostsneiðum og slatta af maíonesi.

Connery vill McGregor sem Bond

Skoski sjarmörinn Sean Connery vill að landi sinn Ewan McGregor verði næsti James Bond. Connery segir McGregor tilvalinn í hlutverkið og mælir með því að hann taki það að sér, verði honum boðið það.

Sverðfiskur og karríkássur

Ég hef frekar svona "low life"-smekk þegar kemur að mat," segir Erling Klingenberg listamaður, "og er heldur ekkert sérstakur kokkur.

Breiðhyltingar fá sinn fisk

Elmar Þór Diego er eigandi fiskbúðarinnar Vegamóta sem hefur verið opnuð í Breiðholti. Þorkell Diego, faðir hans, hjálpar honum við reksturinn.

Útvarpslestur í Kópavogi

Jón Ásgeir Sigurðsson á Morgunvakt Útvarpsins vinnur heima hjá sér á morgnana og les þar leiðara heimsblaðanna.

Menningarhelgi á Tálknafirði

Tálknfirðingar ætla í heitu pottana í kvöld og kela við rómantíska tónlist og kertaljós. Þeir gerðu það líka um daginn en fannst það ekki nóg og vilja meira.

Við hittumst bara þegar þið komið

Í bókinni Til æðri heima skrifar Guðmundur Kristinsson, fyrrum aðalféhirðir í Landsbankanum á Selfossi, um frásagnir framliðinna af andláti þeirra og lífinu fyrir handan. Hann lýsir til dæmis frásögn sonar síns sem lést í bílslysi árið 2002 og birtist á miðilsfundi 42 dögum eftir slysið.

Hreindýra carpaccio

Sannir matgæðingar hafa beðið þessa árstíma með mikilli eftirvæntingu enda kitlar fátt bragðlaukana jafnmikið og nýveidd villibráð. Bjarni Gunnar Kristinsson, yfirmatreiðslumaður á Grillinu, gefur hér uppskrift að hreindýra carppacio með franskri andalifur.

Kemst jólabjórinn suður?

Það vekur ávallt eftirtekt þegar fyrsti Víking jólabjórinn kemur að norðan. Víking jólabjórinn er bruggaður á Akureyri og er koma hans suður yfir heiðar  er eitt af fyrstu merkjunum um það að jólin eru á næsta leyti. Í fyrra flaug bæjarstjóri Akureyrar, með fyrsta bjórinn suður en í ár verða fyrstu kassarnir verða fluttir með ofurjeppum suður Kjöl á  morgun.

Arnold í Hvíta Húsið?

Vöðvafjallið Arnold Schwarzenegger hefur sett stefnuna á Hvíta Húsið. Arnie, sem þekktur er fyrir ómannlegan viljastyrk, sagði fyrir stuttu að hann setti alltaf stefnuna á toppinn, þegar hann var spurður hvort hann stefndi að því að verða forseti.

Sjá næstu 50 fréttir