Matur

Gómsæt, bragðmikil beikon- og kartöflusúpa

Þegar framreiða á góða súpu er nauðsynlegt að eiga fallegar súpuskálar til að bera hana fram í, hvort sem er hvers dags eða spari því fallegar umbúðir auka alltaf á gæðin. Súpuskálar og diskar eru til í öllum stærðum og gerðum. Súpudiskar hafa til þessa verið algengari en skálarnar sækja á og svo eru svokallaðir súpubollar að verða æ vinsælli.

Meðfylgjandi er uppskrift af gómsætri, bragðmikilli beikon og kartöflusúpu sem eykur kraft og vellíðan.

6 beikonsneiðar

4 hvítlauksgeirar

1 kg flysjaðar kartöflur

1 bolli kjúklingasoð

2 bollar vatn

1 1/4 bolli sýrður rjómi

1/4 bolli steinselja

Steikið beikon og hvítlauk þar til beikonið er orðið "krispí". Bætið niðurskornum kartöflunum við, síðan vatninu og kjúklingasoðinu.

Náið upp suðu, lækkið hitann og látið malla þar til kartöflurnar eru orðnar passlega mjúkar. Hrærið rólega sýrða rjómanum og steinseljunni saman við. Tilbúið.

Bláblómótt Röstrand súpuskál kr. 1.495 Búsáhöld, Kringlunni
Pólsk munstruð súpuskál kr. 1.890 Borð fyrir tvo
Rauð Vista súpuskál kr. 595 Búsáhöld, Kringlunni
Frönsk ljós súpuskál kr. 1.750 Borð fyrir tvo
Græn súpuskál Ittala kr. 870 Búsáhöld, Kringlunni





Fleiri fréttir

Sjá meira


×