Við hittumst bara þegar þið komið 18. nóvember 2004 00:01 "
Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á hinu óþekkta. Lífið fyrir handan er eiginlega mesta ráðgátan og hefur alla tíð verið hjá mannkyninu," segir Guðmundur Kristinsson. Hann var ekki nema fimm til sex ára þegar hann fyrst fór að velta vöngum yfir hvað tæki við þegar jarðvistinni sleppti og fannst lífið um margt undarleg vegferð. Sjálfur var Guðmundur líkast til undarlegt barn, hnokkar á hans aldri eiga sér flestir önnur og léttvægari hugðarefni en líf eftir dauðann. Langt er síðan Guðmundur og kona hans, Ásdís Ingvarsdóttir kynntust þremur miðlum nokkuð náið og með árunum hefur fjölgað í hópnum. Hafa þau sótt miðilsfundi um margra ára skeið, innanlands og utan, og upplifað margt sem fært hefur þeim heim sanninn um líf eftir dauðann og vistina í æðri heimum. Þá hefur Guðmundur lesið margt um þessi málefni og skrifað líka en hann færði sögu Bjargar miðils Ólafsdóttur í letur fyrir tuttugu árum. En það var sonarmissirinn 2002 sem var kveikjan að skrifunum á Til æðri heima. "Einkasonur okkar, Ingvar, lést í bílslysi í mars og 42 dögum síðar fórum við á miðilsfund til Sigríðar Jónsdóttur í Kópavogi. Á fundinum kom drengurinn sjálfur fram og lýsti slysinu og jarðarförinni og raunar öllu mögulegu," segir Guðmundur. "Fyrst kom Egill Thorarensen, fyrrum kaupfélagsstjóri hér á Selfossi, og vottaði okkur samúð sína og allt það. Svo kom unglingsleg rödd í gegn, nokkuð hikandi fyrst og sagði hæ hæ og fór að lýsa slysinu." Guðmundur rifjar upp hvernig Ingvar sagði frá þegar slysið varð, hvernig förin upp bar að og þegar hann hitti vini sína og ættingja efra. Hann sagðist einnig hafa verið viðstaddur jarðarförina og fylgjast vel með fólkinu sínu niðri. Orðrétt er meðal annars haft eftir Ingvari í bókinni: "Svo þykir mér vænt um, hvernig þið hugsið - að þið vitið - að við hittumst bara, þegar þið komið. Þá tek ég á móti ykkur." Miðilsfundirnir hafa gert margt fyrir Guðmund og Ásdísi og hjálpuðu þeim í sorginni. "Það er fjöldi fólks í sömu sporum og við, yfirbugað af sorg og finnur enga leið út úr henni. Því miður fær það enga huggun frá prestunum eða kirkjunni," fullyrðir Guðmundur en í formála bókarinnar gagnrýnir hann hina kristnu kirkju og segir dulrænuna ganga þvert gegn boðskap hennar um grafarsvefn og dómsdag. Vitnar hann til dæmis til orða Búddha sem sagði meðal annars: Trúið engu vegna þess að það er kallað Guðs orð. Trúið aðeins því, sem dómgreind ykkar segir ykkur að sé satt." Og eftir þessu lifir Guðmundur, hann trúir því sem dómgreindin segir honum og dómgreind hans segir að það sé líf eftir dauðann.
Menning Mest lesið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Lífið samstarf Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Sjá meira