Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mourinho bíður í Börsung José Mourinho hefur að sögn fjölmiðla á Bretlandseyjum boðið Barcelona tæpar fjórar milljónir punda fyrir Brasilíumanninn Juliano Belletti. Sá er sókndjarfur hægri bakvörður sem er líklega þekktastur fyrir að hafa skorað sigurmark Barcelona gegn Arsenal í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir tveim árum. 23.8.2007 10:22
Real Madrid nær samkomulagi við Chelsea um Robben Real Madrid hefur náð samkomulagi við Chelsea um kaupverð á hollenska vængmanninum Arjen Robben. Robben hefur lengi verið undir smásjá Spánarmeistaranna og lofaði einmitt forseti klúbbsins, Ramon Calderon, að hann myndi fá Robben til liðsins yrði hann kosinn forseti. 22.8.2007 21:28
Heinze skrifar undir hjá Real Madrid á morgun Real Madrid hefur náð samkomulagi við Manchester United um kaup á varnarmanninum Gabriel Heinze. Spánarmeistararnir hafa lengi haft augastað á varnarmanninum og í kjölfar þess að Heinze fékk ekki að ganga til liðs við Liverpool gerði félagið tilboð í leikmanninn. Real Madrid hefur staðfest að tilboðið hafi verið samþykkt. 22.8.2007 19:12
Úttekt: Hvað græða liðin á að reka stjórann? Martin Jol og Sammy Lee þykja líklegir kandídatar í að verða fyrstu knattspyrnustjórarnir til þess að taka pokann sinn á þessu tímabili. Vísir rifjar hér upp hverju það hefur skilað liðum á síðustu árum að reka knattspyrnustjórann svo snemma á leiktíðinni. 22.8.2007 16:21
Benítez er ekki sáttur við stjórn úrvalsdeildarinnar Rafa Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir stjórn úrvalsdeildarinnar vera ósanngjarna gagnvart Liverpool. Benítez er mjög ósáttur við að Gabriel Heinze fái ekki leyfi til að yfirgefa Manchester United þrátt fyrir að vera með skjöl sem sanna það að hann hafi rétt á því. 22.8.2007 16:16
Yakubu að fara til Everton Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough hefur staðfest að félagið sé búið að semja við Everton um kaupverð á nígeríska framherjanum Yakubu Aiyegbeni. Klúbbarnir hafa átt í samningsviðræðum síðustu vikur og hafa nú loksins náð samkomulagi um að Everton borgi rúmar ellefu milljónir punda fyrir framherjann. 22.8.2007 14:10
Beckham flýgur 18 þúsund kílómetra á sex dögum Það er ekki tekið út með sældinni að vera David Beckham. Ákvörðun hans um að spila áfram með enska landsliðinu eftir að hann fluttist til Bandaríkjanna er þegar farin að taka sinn toll. Þetta sést best á ferðaáætlun hans þessa vikuna sem Vísir er búinn að taka saman. 22.8.2007 13:05
West Ham vill fá Heinze Íslendingafélagið West Ham reynir nú að krækja í argentínska varnarmanninn Gabriel Heinze sem vill ekkert frekar en að komast frá Manchester United. Ljóst er að hann fer ekki til Liverpool eftir að nefnd ensku úrvalsdeildarinnar úrskurðaði að félag hans réði hvert hann færi og það opnaði fyrir áhuga West Ham. 22.8.2007 10:46
Jol fær 520 milljónir ef hann verður rekinn Þrátt fyrir að forráðamenn Tottenham geri hvað þeir geta til að draga fjöður yfir þá staðreynd að þeir vilja losna við hollenska knattspyrnustjórann Martin Jol þá hafa þeir nú gengið frá drögum að starfslokasamningi Jol ef hann verður rekinn. 22.8.2007 09:54
Viðræður um Yakubu standa yfir Viðræður standa enn yfir milli Everton og Middlesbrough um sóknarmanninn Yakubu Aiyegbeni. Fréttir höfðu borist um að Everton væri búið að gefast upp á því að krækja í Yakubu en þær eru víst úr lausu lofti gripnar. 21.8.2007 20:14
Shevchenko ekki í góðu formi Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko hjá Chelsea er ekki í nægilega góðu formi til að spila heilan leik. Þetta segir Oleg Blokhin, landsliðsþjálfari Úkraínu, en hann kennir um mikilli bekkjarsetu Shevchenko hjá enska stórliðinu. 21.8.2007 19:29
Newcastle bíður eftir boði í Martins Newcastle United býst við að fá tilboð frá Manchester United í Obafemi Martins. Þessi ungi leikmaður er einn af fjölmörgum sóknarmönnum sem hafa verið orðaðir við ensku meistarana en liðið hefur aðeins skorað eitt mark í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku deildinni. 21.8.2007 19:03
Martin Jol áfram með Tottenham Tottenham Hotspur hefur staðfest að Martin Jol verði áfram knattspyrnustjóri liðsins en haldinn var stjórnarfundur í dag. Framtíð Jol var talinn í óvissu og talað um að stjórn félagsins vildi fá Juando Ramos, þjálfara Sevilla, til starfa. Nú er hinsvegar ljóst að Jol verður áfram. 21.8.2007 18:25
Ívar er ekki til sölu Reading ætlar ekki að selja neinn af byrjunarliðsmönnum sínum áður en félagaskiptaglugganum lokar. Nokkur úrvalsdeildarlið hafa sýnt leikmönnum liðsins áhuga en þar á meðal er Everton sem vill fá til sín íslenska landsliðsmanninn Ívar Ingimarsson. 21.8.2007 18:06
Sagna: Eboue er vanmetinn Bacary Sagna, varnarmaður Arsenal, segir að hægri bakvörðurinn Emmanuel Eboue sé einn vanmetnasti leikmaðurinn í enska boltanum. Hann sparar ekki stóru orðin þegar hann talar um Eboue og segir að það sé frábært að spila með honum. 21.8.2007 17:29
Fer Heinze til Spánar? Manchester United hefur lýst yfir ánægju sinni með ákvörðun stjórnar ensku úrvalsdeildarinnar um að neyða félagið ekki til að selja Gabriel Heinze til Liverpool. Nú er útlit fyrir að þessi 29 ára argentínski vinstri bakvörður fari í spænsku deildina en United hefur víst boðið leikmanninn til Real Madrid og Barcelona. 21.8.2007 17:09
Ekki þörf fyrir Euell hjá Middlesbrough Jason Euell er sár og svekktur eftir að honum var tjáð að hans væri ekki þörf hjá Middlesbrough og gæti farið að leita sér að nýju liði. Eitt ár er síðan Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough, keypti Euell frá Charlton. 21.8.2007 16:26
Richards hefur ekki skrifað undir Varnarmaðurinn Micah Richards hefur enn ekki skrifað undir samning við Manchester City. Þessi bráðefnilegi varnarmaður sem er fæddur 1988 fékk nýjan samning í hendurnar í síðasta mánuði en hefur enn ekki skrifað nafn sitt undir hann. 21.8.2007 16:00
Real enn á eftir Robben Spænska liðið Real Madrid heldur enn í vonina um að krækja í hollenska landsliðsmanninn Arjen Robben sem er á mála hjá Chelsea. Hans, faðir Arjen, segir að enn sé möguleiki á því að sonur sinn klæði sig í hvíta búninginn áður en lokað verði fyrir félagaskipti. 21.8.2007 15:40
Guti undir smásjá City Manchester City fylgist grannt með stöðu Guti hjá spænska stórliðinu Real Madrid. Guti var ekki í byrjunarliði Madrídarliðsins á sunnudaginn þegar það tapaði fyrir Sevilla í hinum árlega Super Copa leik. Hann er víst að skoða stöðu sína hjá Real Madrid þessa dagana. 21.8.2007 15:22
Tottenham býður í Riquelme Umboðsmaður argentínska miðjumannsins Juan Roman Riquelme segir að Tottenham hafi komið með tilboð í leikmanninn. Spænska liðið Villareal er tilbúið að selja Riquelme en leikmaðurinn eyddi seinni helmingi síðasta tímabils á lánssamningi hjá Boca Juniors í heimalandinu. 21.8.2007 15:06
Johnson ekki með gegn Þýskalandi Andy Johnson, sóknarmaður Everton, verður ekki með enska landsliðinu í vináttulandsleiknum gegn Þýskalandi á morgun. Hann er meiddur á hné og dregur sig því út úr hópnum. Þetta er enn eitt áfallið fyrir enska liðið en margir leikmenn geta ekki spilað vegna meiðsla. 21.8.2007 14:56
Verður aldrei fullt á nýja Anfield? Hjá Liverpool eru hugmyndir uppi um skilja 96 sæti alltaf eftir auð á nýjum leikvangi félagsins. Á það að vera til minningar um stuðningsmennina sem létu lífið á Hillsborough 1989. Það voru alls 96 aðdáendur Liverpool sem biðu bana þegar þeir krömdust upp við girðingu á undanúrslitaleik FA bikarsins gegn Nottingham Forest. 21.8.2007 14:38
Lazio vill fá Cudicini Lazio hefur haft samband við Chelsea vegna markvarðarins Carlo Cudicini. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum vill Lazio fá Cudicini lánaðan. Argentínski markvörðurinn Juan Pablo Carrizzo fékk ekki ítalskt ríkisfang og því horfir Lazio til Cudicini. 21.8.2007 14:20
Ronaldo: Nani má vera stoltur Menn hafa misjafnar skoðanir á byrjun tímabilsins hjá portúgalska leikmanninum Nani og hefur hann fengið talsverða gagnrýni. Cristiano Ronaldo, liðsfélagi hans hjá Manchester United, segir þó að landi sinn geti verið mjög stoltur af því hvernig hann fer af stað með Englandsmeisturunum. 21.8.2007 14:08
Er Anelka á förum? Nicolas Anelka gæti yfirgefið herbúðir Bolton áður en félagaskiptaglugganum lokar. Þessi franski sóknarmaður hefur verið orðaður við Manchester liðin City og United eftir mjög slæma byrjun Bolton á tímabilinu. Einnig fylgist Lyon í heimalandi hans grannt með gangi mála. 21.8.2007 13:54
Ekkert vandamál milli Jol og Berbatov Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov segir að sögusagnir um slæmt samband hans við Martin Jol, knattspyrnustjóra sinn hjá Tottenham, séu ekki réttar. Talað hefur verið um að Jol vilji losna við Berbatov eftir að leikmaðurinn brást ókvæða við því að vera skipt af velli gegn Sundarland. 21.8.2007 13:26
Heinze fer ekki til Liverpool Enska knattspyrnusambandið úrskurðaði nú rétt í þessu að Manchester United bæri ekki skylda til að selja Argentínumanninn Gabriel Heinze til Liverpool. Heinze hefur haldið því fram að honum hafi verið lofað að fara frá Manchester ef viðunandi verð fengist fyrir hann. Manchester United neitar hins vegar að selja leikmanninn til keppinauta sinna. Við það vildi Heinze ekki una og knattspyrnusambandið því fengið til að úrskurða í málinu. 21.8.2007 13:13
Eigandi Newcastle kannast ekki við kauptilboð frá Pálma Haraldssyni Talsmaður eiganda enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle segir að aldrei hafi staðið til að selja knattspyrnuliðið. Hann segir engar samningaviðræður hafa átt sér stað við Pálma Haraldsson, athafnamann, og að eigendum hafi ekki borist neitt tilboð í félagið. 21.8.2007 12:54
Ummæli vikunnar Vísir hefur tekið saman nokkur af skemmtilegustu ummælunum sem látin hafa verið falla undanfarna viku í ensku úrvalsdeildinni. Benitez, Mourinho og Keane eru allir með munninn fyrir neðan nefið eins og sést af ummælum vikunar. 21.8.2007 10:48
Ronaldo segir þriggja leikja bann fáránlegt Cristiano Ronaldo hefur nú tjáð sig um þriggja leikja bannið sem hann fékk fyrir að skalla Richard Hughes, leikmann Portsmouth í síðustu viku. Og það er óhætt að segja að hann sé afar ósáttur. Alex Ferguson skammaði Ronaldo vegna atviksins og sektaði hann um viku laun. Ferguson sagði að Ronaldo yrði að læra að standast ögranir lakari leikmanna sem vildu koma honum úr jafnvægi. 21.8.2007 09:52
Pálmi mun ekki kaupa Newcastle Athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson ætlar ekki að kaupa enska úrvalsdeildarliðið Newcastle. Þetta staðfesti hann í samtali við blaðamann Vísis í morgun. Þar með er ljóst að hvorki hann né Jón Ásgeir Jóhannesson, sem báðir voru tengdir við möguleg kaup á félaginu um helgina, munu kaupa það. 21.8.2007 08:55
Ég lofaði mömmu að kaupa ekki fótboltalið Svo virðist vera að að það sé aðeins athafnamaðurinn Pálmi Haraldsson sem sé að íhuga kaup á enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle. Jón Ásgeir Jóhannesson, sem var orðaður við kaupin í fjölmiðlum á sunnudaginn, sagði í samtali við Vísi í gærkvöld að hann kæmi ekki nálægt kaupunum á Newcastle. "Ég lofaði mömmu að kaupa ekki fótboltalið," sagði Jón Ásgeir. 21.8.2007 00:01
Mál Heinze leysist í fyrsta lagi á morgun Mál argentíska varnarmannsins sterka, Gabriel Heinze, mun ekki leysast fyrr en í fyrsta lagi á morgun. Heinze vill ólmur komast frá Manchester United til Liverpool en það vilja forráðamenn United ekki fallast á. Heinze flutti mál sitt frammi fyrir stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í dag þar sem hann sagði að sér hafi verið lofað að hann mætti fara ef tilboð upp á 6,8 milljónir punda bærist í hann. 20.8.2007 21:25
Mourinho segir enga leikara vera í Chelsea Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur byrjað enn eitt orðaskakið við kollega sinn hjá Liverpool, Rafa Benitez. Núna heldur hann því fastlega fram að enginn í liði hans sé með leikaraskap. 20.8.2007 18:10
Bojnov spilar ekki meira á þessu ári Forráðamenn Manchester City hafa staðfest það að framherjinn Valeri Bojinov verði frá vegna meiðsla næstu fimm mánuði vegna meiðsla. Bojinov var borinn af leikvelli í leiknum gegn Manchester United í gær og eftir skoðun kom í ljós að hann hefði slitið liðbönd í hnénu. Bojinov gekk til liðs við City fyrr í mánuðinum en talið er að hann muni ekki spila knattspyrnu fyrr en í fyrsta lagi í janúar. 20.8.2007 17:47
Diouf vill yfirgefa Bolton El-Hadji Diouf, framherji Bolton, segist vilja yfirgefa Bolton og ganga til liðs við félög sem eru með metnað til að spila í Meistaradeild Evrópu. Diouf segir að Bolton setji of háan verðmiða sig að það sé ástæðan fyrir því að hann sé ekki farinn nú þegar. Bolton vill fá tíu milljónir punda fyrir leikmanninn. Diouf segir að Tottenham, Celtic, Lyon og tveir aðrir klúbbar hafi gert tilboð í sig. 20.8.2007 16:40
Gallas frá næstu þrjár vikur William Gallas, fyrirliði Arsenal, verður hugsanlega frá í allt að þrjár vikur vegna meiðsla í nára sem hann hlaut í leiknum gegn Blackburn um helgina. Þessi þrítugi varnarmaður þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik eftir að hafa farið í tæklingu gegn Roque Santa Cruz. 20.8.2007 15:26
Maður 3. umferðar: Micah Richards Leikmaður helgarinnar er Micah Richards. Það er of langt mál að telja upp öll skiptin sem sóknaraðgerðir Manchester United strönduðu á Richards um helgina. Hann var sem klettur í vörninni ásamt reynsluboltanum Richard Dunne og gaf Tevez og félögum engin grið. 20.8.2007 15:08
Bent, Hargreves, Campbell og Gerrard draga sig úr landsliðshópnum Darren Bent, Sol Campbell, Steven Gerrard og Owen Hargreaves hafa allir dregið sig úr landsliðshóp Englands fyrir vináttuleikinn gegn Þjóðverjum á miðvikudaginn vegna meiðsla. Þessar fréttir eru áfall fyrir Steve McClaren, stjóra enska landsliðsins, en leikurinn er sá fyrsti á tímabilinu fyrir enska landsliðið. 20.8.2007 15:05
Makelele framlengir við Chelsea Franski miðjumaðurinn Claude Makelele og Chelsea hafa náð samkomulagi um að framlengja samning kappans um eitt ár sem gerir það að verkum að Makelele er nú samningsbundinn félaginu næstu tvö árin, en hann átti eitt ár eftir að samning sínum. 20.8.2007 14:14
Styles ekki með um næstu helgi Dómarinn sem dæmdi leik Liverpool og Chelsea í gær verður hvíldur um næstu helgi vegna slakrar frammistöðu sinnar. Þetta staðfesti Keith Hackett, yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, nú rétt í þessu. Styles þótti standa sig afspyrnuilla í leiknum og dæmdi meðal annars umdeilda vítaspyrnu. 20.8.2007 11:22
Öll mörk helgarinnar á Vísi Það var mikið um að vera í enska boltanum um helgina. Eins og venjulega getur þú séð öll mörk helgarinnar og öll bestu tilþrifin í enska boltanum á Vísi. Ekki miss af neinu. 20.8.2007 11:16
Ákvörðun um framtíð Heinze tekin í dag Enska knattspyrnusambandið mun í dag fjalla um mál Gabriel Heinze og ákvarða hvort honum verði leyft að fara frá Manchester United til Liverpool. Eins og áður hefur verið greint frá heldur Heinze því fram að hann hafi í höndunum skriflegt loforð frá forráðamönnum United um að hann fái að fara. 20.8.2007 10:02
Gerrard brjálaður út í Styles Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, er allt annað en sáttur með frammistöðu Rob Styles í leik Liverpool og Chelsea í gær. Styles gaf Chelsea afar umdeilda vítaspyrnu við litla hrifningu Gerrrard og félaga hans. "Leikmenn Chelsea settu mikla pressu á dómarann allan leikinn og á endanum gaf hann þeim víti," sagði Gerrard. 20.8.2007 09:39