Fleiri fréttir

Fyrsti risaslagur tímabilsins á Anfield

Það fara fram þrír flottir fótboltaleikir í ensku úrvalsdeildinni í dag og þar á meðal er fyrsti risaslagur tímabilsins þegar Liverpool tekur á móti Chelsea á Anfield.

Góðir sigrar Íslendingaliðanna í gær

West Ham, Reading og Portsmouth unnu öll sína fyrstu sigra í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Wigan skellti Sunderland og fór óvænt upp í toppsætið. Tottenham vann sinn fyrsta sigur með stæl.

Markalaust hjá Newcastle og Aston Villa

Newcastle og Aston Villa gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var frekar bragðdaufur en segja má að Aston Villa hafi verið sterkari aðillinn í leiknum. Newcastle er nú með fjögur stig en Aston Villa fékk sitt fyrsta stig í deildinni.

Reading batt enda á sigurgöngu Everton

Reading batt enda sigurgöngu Everton með því að leggja liðið að velli, 1-0, á heimavelli sínum í dag í ensku úrvalsdeildinni. Það var Stephen Hunt sem skoraði sigurmarkið rétt undir lok fyrri hálfleiks. Tottenham og Wigan unnu stórsigra og West Ham vann sinn fyrsta leik. Middlesbrough náði í sín fyrstu stig þegar liðið lagði Fulham að velli þar sem táningurinn Lee Cattermole skoraði sigurmarkið undir lok leiksins.

Alan sáttur við stigin þrjú

Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, sagðist þokkalega sáttur með leik sinn manna í kvöld en liðið vann sinn fyrsta sigur í deildinni í ár með því að bera sigurorð af Birmingham. Curbishley sagði í lok leiks að sínir menn hefðu verið töluvert óöruggir til að byrja með

Spáð í spilin: Newcastle v Aston Villa

Newcastle tekur á móti Aston Villa á St. James' Park í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Newcastle vann auðveldan sigur á Bolton í 1. umferðinni en ASton Villa tapaði fyrir Liverpool á heimavelli. Leikurinn er sýndur í beinn útsendingu á Sýn 2 og hefst kl. 16.15.

Við verjum að verjast betur

Sammy Lee og lærisveinar hans í Bolton eru enn án stiga í ensku úrvalsdeildinni eftir 3-1 tap gegn Portsmouth í dag. Þrátt fyrir stigaleysið er Lee þó jákvæður en benti þó réttilega á að það væri erfitt að vinna leiki ef liðið héldi aldrei hreinu.

Einn besti leikurinn undir minni stjórn

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, var himinlifandi með leik sinna manna í sigurleiknum gegn Bolton í dag og sagði leikinn einn þann besta sem liðið hefði spilað undir hans stjórn.

Spáð í spilin: Birmingham v West Ham

Birmingham tekur á móti West Ham á St. Andrews í ensku úrvalsdeildinni í dag. Birmingham er með eitt stig eftir tvo leiki en drengirnir hans Eggerts Magnússonar í West Ham er án stiga eftir tap gegn Manchester City í fyrstu umferðinni. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn 2 og hefst kl. 14.

Spáð í spilin: Reading v Everton

Reading, með Íslendingana Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson innanborðs, tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Reading hefur nælt sér í eitt stig gegn tveimur bestu liðum deildarinnar, Manchester United og Chelsea, en Everton er með fullt hús stiga. Líklegt er að bæði Ívar og Brynjar Björn verði í byrjunarliði Reading. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra.

Joorabchian vill láta skoða Tevez-málið upp á nýtt

Íranski athafnamaðurinn Kia Joorabchian, sem er umboðsmaður og eigandi Carlosar Tevez, vill láta skoða mál skjólstæðings síns ofan í kjölinn á nýjan leik þar sem hann segir margt óskýrt enn. Joorabchian segist vera tilbúinn til að borga allan kostnað sjálfur af nýrri rannsókn.

Spáð í spilin: Fulham v Middlesbrough

Fulham og Middlesbrough mætast í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fulham vann mikilvægan sigur á Bolton í miðri viku en Middlesbrough hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 3 og hefst kl. 14.

Spáð í spilin: Tottenham v Derby

Tottenham og Derby eigast við í ensku úrvalsdeildinni í dag. Tottenham hefur byrjað tímabilið afar illa og tapað tveimur fyrstu leikjunum. Nýliðar Derby nældu sér hins vegar í stig í fyrstu umferðinni og virðast vera sprækir. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 2 og hefst kl. 14.

Spáð í spilin: Wigan v Sunderland

Roy Keane og lærisveinar hans í Sunderland sækja Wigan heim á JJB-leikvanginn. Nýliðar Sunderland eru enn taplausir í deildinni en Wigan er líka á góðu róli eftir sigur gegn Middlesbrough á miðvikudaginn. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Extra 4 og hefst kl. 14.

Öruggur sigur hjá Portsmouth

Portsmouth bar sigurorð af Bolton, 3-1, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Nwankwo Kanu, John Utaka og Matt Taylor skoruðu mörk Portsmouth eftir að Frakkinn Nicolas Anelka hafði komið Bolton yfir. Hermann Hreiðarsson spilaði allan leikinn fyrir Portsmouth en Heiðar Helguson spilaði síðustu sex mínútur leiksins. Portsmouth er komið með fimm stig en Bolton er enn án stiga.

Bellamy kominn upp á kant við Curbishley

Það tók vandræðagemlinginn Craig Bellamy aðeins mánuð að komast upp á kant við Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham. Bellamy reifst heiftarlega við Curbishley eftir tapleik liðsins gegn Manchester City um síðustu helgi og gæti þess vegna hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.

Ferguson skýtur fast á Eriksson

Það ríkir lítill kærleikur á milli knattspyrnustjóranna Alex Ferguson hjá Manchester united og Sven Görans Eriksson hjá Manchester City. Liðin mætast á morgun í ensku úrvalsdeildinni og hefur Ferguson þegar hafið sálfræðistríð gegn Svíanum. Hann segist búast við grófum leik af hendi Manchester City og að hann þekki aðeins tvo af þeim átta leikmönnum sem Eriksson keypti fyrir tímabilið. Ferguson og Eriksson háðu margan hildinn þegar Eriksson var landsliðsþjálfari Englands og rifust oft eins og hundur og köttur.

Spáð í spilin: Portsmouth v Bolton

Það verður sannkallaður Íslendingaslagur á Fratton Park nú eftir þegar Portsmouth, lið Hermanns Hreiðarssonar, tekur á móti Heiðari Helgusyni og félögum hans í Bolton. Ekki er búist við öðru en að þeir verði báðir í byrjunarliðum sinna félaga. Leikurinn hefst klukkan 11.45 og er í beinni útsendingu á Sýn 2.

Torres hlakkar til leiksins gegn Chelsea

Spænski framherjinn Fernando Torres hjá Liverpool getur ekki beðið eftir því að mæta Chelsea en liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Torres þykir hafa byrjað vel með Liverpool eftir að hann var keyptur frá Atletico Madrid fyrir 26 milljónir punda í sumar og segir leikinn gegn Chelsea á Anfield vera þann sem hann hafi hlakkað hvað mest til þegar hann skrifaði undir samning við Liverpool.

Hreifst af metnaði félagsins

Kieron Dyer, nýjasti liðsmaður Íslendingaliðsins West Ham, segist hafa hrifist af gríðarlegum metnaði félagsins og að sá mikli vilji Eggerts Magnússonar og annarra forráðamanna þess um að koma liðinu í fremstu röð hafi ráðið mestu í ákvörðun sinni um að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.

Vill að Ronaldo fái meiri vernd

Fótbolti Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, vill að dómarar í ensku úrvalsdeildinni veiti Cristiano Ronaldo meiri vernd í návígjum. Ferguson vill meina að Ronaldo sé ávallt í umtalsverðri hættu á að hljóta alvarleg meiðsl.

Campbell og James valdir

Varnarmaðurinn Sol Campbell og markvörðurinn David James, gömlu kempurnar í liði Portsmouth, voru í gær valdir í enska landsliðið á nýjan leik.

Hermann og Heiðar mætast

Hádegisleikurinn í ensku úvalsdeildinni í knattspyrnu verður Íslendingaslagur af bestu gerð en Hermann Hreiðarsson og Heiðar Helguson mætast þá í fyrsta sinn með sínum nýju félögum.

Lítið að segja um Eið Smára

Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, tók undir ummæli Eggerts Magnússonar, stjórnarformanns síns, þegar hann var spurður um áhuga sinn á íslenska landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen í gær.

Video: Ótrúleg tilþrif Falcao

Þeir verða ekki mikið öflugari í innanhúsbolta en Falcoa. Brasilíumaðurinn á nokkur brögð í erminni sem fáir geta leikið eftir. Hann leikur með landsliði Brasilíumanna í innanhúsfótbolta og á þessu myndbandi sést hann leika listir sínar.

Fjögurra stiga forysta mikilvæg

Framherjinn frábæri Didier Drogba hjá Chelsea segir að það geti reynst liðinu mikilvægt að vera komið með fjögurra stiga forystu á Manchester United eftir aðeins tvær umferðir. Chelsea hefur unnið báða leiki sína til þessa en Manchester United aðeins náð jafntefli gegn Reading og Portsmouth.

Moyes brjálaður eftir að Van Der Meyde skrópaði á æfingu

Hollenski miðjumaðurinn hjá Everton, Andy Van Der Meyde, hefur verið sektaður um nokkra vikna laun fyrir að hafa skrópað á æfingu síðasta sunnudag. David Moyes, þjálfari liðsins, er sagður brjálaður vegna málsins og ætlar að taka ákvörðun um framtíð leikmannsins í næstu viku.

McLaren valdi Beckham í landsliðið

Steve McClaren, landsliðsþjálfari Englendinga, valdi rétt í þessu hópinn sem mætir Þjóðverjum í vináttuleik á miðvikudag. Það er helst að frétta af valinu að David Beckham var valinn í hópinn ásamt nýliðanum Steven Taylor hjá Newcastle. Þá voru reynsluboltarnir hjá Portsmouth, Sol Campbell og David James, valdir á ný í hópinn. Hann má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Schmeichel stoltur af syninum

Hinn goðsagnarkenndi markvörður Peter Schmeichel, sem lék með Manchester United á árum áður, er stoltur af syni sínum Kasper, sem haldið hefur hreinu fyrir Manchester City í fyrstu tveim leikjum tímabilsins. "'Eg er mjög stoltur því Kasper hefur staðið sig vel," segir Schmeichel eldri í viðtali við Daily Mail í dag.

Undrabarn skrifar undir hjá LIverpool

Liverpool hefur fengið til liðs við sig ungverska undrabarnið Peter Gulacsi. Gulacsi þessi er 17 ára markvörður og þykir einn sá allra efnilegasti í Evrópu. Hann kemur frá MTK Búdapest en það lið skrifaði undir samstarfssamning við Liverpool fyrr á árinu. Samningurinn kveður á um að Liverpool fái forkaupsrétt á efnilegum leikmönnum MTK sem á móti getur fengið leikmenn að láni frá Liverpool.

Glaumgosi kaupir QPR

Ítalski glaumgosinn Flavio Briatore mun ganga frá kaupum á hinu fornfræga knattapyrnuliði Queens Park Rangers á mánudaginn. Briatore mun greiða 22 milljónir punda fyrir klúbbinn og bjarga QPR frá yfirvofandi gjaldþroti.

Keypti 57 þúsund króna rauðvínsflösku fyrir Sir Alex

Sven Goran Erikson ætlar að bjóða Sir Alex Ferguson í rauðvín eftir leik erkióvinanna í United og City á sunudaginn. Erikson er þegar búinn að kaupa flösku fyrir tilefnið en það er 57 þúsund króna Cabernet Sauvignon flaska.

Dregið í aðra umferð deildarbikarsins í Englandi

Dregið var í aðra umferð deildarbikarsins í kvöld. Tólf úrvalsdeildarlið koma inn í keppnina núna, en engin úrvalsdeildarlið drógust þó saman. Áhugavert verður að fylgjast með leik Portsmouth og Leeds en eins og margir vita þá féll Leeds niður í þriðju efstu deild Englands síðastliðið vor. Íslendingaliðið West Ham heimsækir Bristol Rovers. Leikirnir verða spilaðir 27. ágúst.

Curbishley ósáttur með ummæli Konchesky

Alan Curbishley, knattspyrnustjóri West Ham, íhugar málsókn gegn fyrrverandi leikmanni West Ham, Paul Konchesky. Konchesky, sem yfirgaf West Ham í sumar, gagnrýndi Curbishley harkalega í viðtali sem birtist um helgina. Konchesky gagnrýndi meðal annars stjórnunarhæfileika stjórans og sagði að West Ham kæmist ekkert áfram með Curbishley í brúnni.

Mido skrifar undir hjá Middlesbrough

Egypski framherjinn Mido hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Middlesbrough. Middlesbrough borgar Tottenham sex milljónir punda fyrir þennan 24 ára gamla leikmann. Mido gæti þreytt frumraun sína með félaginu gegn Fulham um helgina.

Steven Gerrard er tábrotinn

Forráðamenn Liverpool hafa staðfest að fyrirliði liðsins, Steven Gerrard, hafi tábrotnað í leiknum gegn Toulouse í gær. Gerrard þurfti að yfirgefa völlinn á 64. mínútu vegna meiðslanna og í læknisskoðun kom í ljós að táin væri brotin. Gerrard mun samt spila gegn Chelsea á sunnudaginn en mun svo hvíla í 2-3 vikur.

“Ég ætlaði ekki að fiska Ronaldo útaf

Leikmaðurinn sem Cristiano Ronaldo skallaði í gærkvöld, og fékk rautt spjald fyrir, hefur tjáð sig um atvikið. Richard Hughes segir það ekki hafa verið ætlun sína að fiska Ronaldo út af eins og Alex Ferguson gaf í skyn eftir leikinn í gær.

Dyer kominn til West Ham

West Ham hefur gengið frá kaupum á enska landsliðsmanninum Kieran Dyer frá Newcastle fyrir tæpar 7 milljónir punda. Talið var að kaupin yrðu að engu eftir að Newcastle snarhækkaði verðmat sitt á leikmanninum fyrir skömmu en liðin hafa nú náð samkomulagi um sanngjarnt verð fyrir Dyer.

Bellamy og Ljungberg vilja Eið Smára

Samkvæmt heimildum Vísis úr innsta hring knattspyrnuklúbbsins West Ham eru tveir af bestu leikmönnum liðsins, Craig Bellamy og Freddie Ljungberg, æstir í að fá Íslendinginn Eið Smára Guðjohnsen til liðsins. Þeir telja Eið kjörinn til að koma bitlausum sóknarleik liðsins í lag

Myndaveisla úr 2. umferð enska boltans

Vísir heldur áfram að safna saman bestu ljósmyndunum úr enska boltanum. Nú getur þú séð nokkrar af skemmtilegustu myndunum úr 2. umferð. Smelltu á myndaalbúmið hér fyrir neðan til að skoða myndirnar.

Ætla í mál við Eggert og Björgólf

Talsmaður Sheffield United tilkynnti áðan að liðið hyggist höfða skaðabótamál gegn West Ham og krefjist að Eggert, Björgólfur og félagar bæti þeim fjárhagstjónið sem Sheffield varð fyrir við það að falla niður um deild.

Enski: Öll mörk gærkvöldsins á Vísi

Fimm leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni i gærkvöld. Eins og við var að búast var skoraður fjöldinn allur af glæsilegum mörkum af öllum gerðum. Eins og venjulega getur þú séð öll mörkin hér á Vísi.

Abramovich sagði nei

Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur neitað að samþykkja kaup félagsins á brasilíska bakverðinum Daniel Alves frá Sevilla fyrir 24,5 milljónir punda. Hann hefur sent Peter Kenyon, yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu þau skilaboð að drífa sig aftur til Spánar og kaupa Alves fyrir lægra verð.

Drogba er leikmaður 2. umferðar í úrvalsdeildinni

Framherjinn frábæri Didier Drogba hjá Chelsea er leikmaður 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Drogba kom inn í lið Chelsea eftir meiðsli gegn Reading í kvöld og átti stóran þátt í sigri síns liðs, 2-1. Drogba lagði upp fyrra mark Chelsea og skoraði það síðara með glæsilegu skoti.

Heiðar skoraði gegn sínum gömlu félögum

Heiðar Helguson nýtti tækifærið vel að vera í byrjunarliði Bolton í kvöld því að það tók hann aðeins 12 mínútur að koma sínu liði yfir. Mark Heiðars dugði þó ekki til sigurs því að Fulham svaraði með tveimur mörkum fyrir leikhlé og þar við sat. Heiðari var svo skipt út af á 72. mínútu fyrir Daniel Braaten.

Sjá næstu 50 fréttir