Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
FH með fjögurra stiga forskot á toppnum FH-ingar náðu í kvöld fjögurra stiga forystu á toppi Landsbankadeildar karla í knattspyrnu þegar þeir lögðu Framara 2-0 á Laugardalsvelli í lokaleik fjórðu umferðarinnar. Framarar áttu ágætan leik í kvöld en það var frammistaða Hafnfirðinga fyrir framan markið sem réði úrslitum. 29.5.2007 21:45
Óli Jó: Verðum að halda okkur á jörðinni "Það eru allir leikir erfiðir í þessari deild og þessi var engin undantekning. Færin hinsvegar duttu okkar megin og það skilur að," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari FH í samtali við Hörð Magnússon á Sýn í kvöld. Hann var spurður hvort hans menn hefðu verið dálítið værukærir í byrjun. Hann var ekki sammála nafna sínum Þórðarsyni um það hvort liðið hefði verið betra í leiknum. 29.5.2007 22:14
Óli Þórðar: Við vorum miklu betri en þeir Ólafur Þórðarson, þjálfari Fram, var allt annað en ánægður með frammistöðu sinna manna fyrir framan mark FH-inga í kvöld þegar lið hans lá 2-0 heima fyrir Íslandsmeisturunum. Hann var ekki í vafa um að hans menn hefðu verið betri í leiknum. 29.5.2007 22:03
Fram - FH í beinni á Sýn í kvöld Fjórðu umferð Landsbankadeildar karla lýkur í kvöld með viðureign Fram og FH á Laugardalsvelli. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður sýndur beint á Sýn. Íslandsmeistarar FH geta náð fjögurra stiga forskoti á toppi deildarinnar með sigri í kvöld, en Fram þarf nauðsynlega á stigum að halda þar sem liðið er í næstneðsta sæti með aðeins 2 stig. Næsti leikur í deildinni er ekki á dagskrá fyrr en 7. júní vegna landsleikja í næstu viku. 29.5.2007 19:12
Gravesen í tveggja leikja bann Peter Gravesen, leikmaður Fylkis í Landsbankadeildinni, var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann vegna brottvísunar sem hann fékk í leik Fylkis og ÍA í gær. Gravesen fékk sitt annað gula spjald og brottvísun í leiknum fyrir að gefa Ellerti Björnssyni olnbogaskot. Hann mun því missa af leikjum Árbæjarliðsins gegn FH og HK í næstu tveimur umferðum. 29.5.2007 19:09
Markalaust í hálfleik á Laugardalsvelli Nú er kominn hálfleikur í leik Fram og FH á Laugardalsvelli og staðan jöfn 0-0. Leikurinn hefur verið nokkuð fjörugur og er sýndur beint á Sýn. Jónas Grani Garðarsson átti líklega besta færi leiksins þegar hann komst inn fyrir vörn fyrrum félaga sinna í FH, en Daði Lárusson sá við honum og varði vel. 29.5.2007 20:46
Vandræði KR halda áfram KR-ingar sitja enn á botni Landsbankadeildar karla í knattspyrnu eftir leiki kvöldsins. KR tapaði 2-1 á heimavelli fyrir Víkingi í kvöld. Keflvíkingar lögðu nýliða HK 3-0 í Keflavík og Breiðablik og Valur gerðu markalaust jafntefli í Kópavogi. FH-ingar eru efstir í deildinni með 9 stig eftir þrjá leiki og geta aukið forskot sitt í fjögur stig með sigri á Fram á Laugardalsvelli í lokaleik fjórðu umferðar annað kvöld. 28.5.2007 21:20
Eitt mark komið í fyrri hálfleik Aðeins eitt mark er komið í leikjunum þremur sem standa yfir í Landsbankadeild karla og hófust klukkan 19:15. Keflvíkingar hafa yfir 1-0 gegn HK í Keflavík þar sem Þórarinn Kristjánsson skoraði mark heimamanna. Ekkert mark er komið á Kópavogsvelli þar sem Blikar taka á móti Val og sömu sögu er að segja af leik KR og Víkings í Vesturbænum. 28.5.2007 20:03
Páll Gísli hetja Skagamanna í Árbænum Fylkir og ÍA gerðu 2-2 jafntefli í Árbænum í fyrsta leik dagsins í Landsbankadeildinni. Dramatíkin var mikil í leiknum og David Hannah misnotaði vítaspyrnu í uppbótartíma þegar Páll Gísli Jónsson varði frá honum. Fylkismenn léku manni færri frá 20. mínútu þegar Peter Gravesen var vikið af leikvelli. 28.5.2007 18:55
Fylkir - ÍA í beinni á Sýn í dag Fjórir leikir fara fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í dag. Fyrsti leikur dagsins er viðureign Fylkis og ÍA í Árbænum og verður hann sýndur beint á Sýn. Útsending hefst klukkan 16:45. Klukkan 19:15 eigast svo við Breiðablik - Valur, KR - Víkingur og Keflavík - HK. 28.5.2007 16:07
Christiansen jafnar fyrir Fylkismenn Christian Christiansen var að jafna metin fyrir Fylki gegn ÍA í Árbænum og staðan orðin 2-2. Markið skoraði hann með góðu einstaklingsframtaki á 82. mínútu þegar hann prjónaði sig í gegn um vörn Skagamanna. 28.5.2007 18:41
Skagamenn komnir yfir á ný Skagamenn eru komnir í 2-1 á Fylkisvelli þegar um 20 mínútur eru til leiksloka. Markið skoraði Vejekoslav Savadjumovic eftir aukaspyrnu Bjarna Guðjónssonar frá hægri. Skagamenn eru manni fleiri í leiknum sem sýndur er beint á Sýn. 28.5.2007 18:31
Valur Fannar jafnar fyrir Fylki Fylkismenn voru ekki lengi að jafna metin í 1-1 gegn ÍA í Árbænum þrátt fyrir að vera manni færri. Valur Fannar Gíslason skoraði jöfnunarmark Fylkis með skoti úr teignum aðeins um fimm mínútum eftir að Skagamenn komust yfir. Valur skoraði einnig í síðasta leik Fylkismanna og virðist kunna vel við sig í nýju hlutverki á miðjunni. 28.5.2007 17:42
Skagamenn komnir yfir Skagamenn hafa náð 1-0 forystu gegn Fylki í Árbænum.Það var Jón Vilhelm Ákason sem skoraði markið á 36. mínútu eftir laglega sókn gestanna sem eru nú farnir að nýta sér liðsmuninn eftir að Peter Gravesen var rekinn af velli. 28.5.2007 17:36
Gravesen sá rautt Staðan í leik Fylkis og ÍA í Árbænum er jöfn 0-0 þegar 20 mínútur eru liðnar af leiknum en heimamenn urðu fyrir áfalli á 20. mínútunni þegar Peter Gravesen var vikið af leikvelli eftir að hann fékk sitt annað gula spjald. Skagamenn verða því manni fleiri það sem eftir lifir leiks, en liðið er aðeins með eitt stig í deildinni. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 28.5.2007 17:20
FH burstaði HK - KR og ÍA á botninum FH-ingar eru enn með fullt hús stiga þegar þriðja umferðin í Landsbankadeildinni er langt komin. FH burstaði nýliða HK 4-0 í Hafnarfirði í kvöld, Breiðablik og Keflavík skildu jöfn 2-2 í Kópavogi, líkt og ÍA og Fram á Skaganum og þá unnu Fylkismenn 1-0 sigur á Víkingi í Fossvogi. KR hefur aðeins eitt stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar eftir 2-1 tap fyrir Val á Laugardalsvelli. 24.5.2007 19:32
Heil umferð í Landsbankadeildinni í kvöld Það verður mikið fjör í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Þá fer fram þriðja umferð deildarinnar með fimm leikjum og aðalleikur kvöldsins verður slagur Reykjavíkurliðanna Vals og KR á Laugardalsvellinum. Fylgst verður með gangi mála í leikjunum hér á Vísi í kvöld. 24.5.2007 18:55
Rúnar Kristinsson mætti á æfingu hjá KR í kvöld Fyrrum landsliðsmaðurinn Rúnar Kristinsson er kominn aftur heim eftir langa veru í atvinnumennskunni erlendis og í kvöld mætti hann á sína fyrstu æfingu með KR. Guðjón Guðmundsson hitti Rúnar að máli í kvöld, en hann verður líklega í leikmannahópi KR gegn Val annað kvöld. 23.5.2007 21:45
KR skellti Blikum Einn leikur fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld þar sem KR vann sannfærandi 4-1 útisigur á Breiðablik í Kópavogi eftir að hafa verið yfir í hálfleik 1-0. Edda Garðarsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir, Katrín Ómarsóttir og Olga Færseth skoruðu mörk KR en Greta Mjöll Samúelsdóttir minnkaði muninn fyrir Blika. 22.5.2007 21:41
HK lagði ÍA í Kópavoginum Nýliðar HK unnu góðan sigur á ÍA í Landsbankadeild karla í kvöld. Leikurinn, sem fram fór á heimavelli HK í Kópavoginum, endaði 1-0 en það var Jón Þorgrímur Stefánsson sem skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu. HK er með 4 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Skagamenn eru enn stigalausir. 21.5.2007 21:44
HK leiðir gegn ÍA í hálfleik Jón Þorgrímur Stefánsson hefur skorað eina markið í leik HK og ÍA í Landsbankadeildinni, en flautað hefur verið til hálfleiks á Kópavogsvellinum. Markið skoraði hann undir lok hálfleiksins en fram að þeim tíma höfðu gestirnir frá Akranesi verið sterkari aðilinn. Leikurinn er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. 21.5.2007 20:44
FH vann í Keflavík Íslandsmeistarar FH eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir Landsbankadeildar karla í knattspyrnu en í kvöld vann liðið góðan sigur á Keflavík á útivelli, 2-1. Öll mörkin komu í síðari hálfleik en Matthías Guðmundsson skoraði sigurmarkið á 80. mínútu. 20.5.2007 21:50
Víkingur vann í Laugardalnum Víkingur vann frækinn 2-0 útisigur á Fram í Landsbankadeildinni í kvöld en KR-ingar náðu aðeins jafntefli gegn Blikum í Frostaskjólinu. Í Keflavík eigast við heimamenn og Íslandsmeistarar FH og er staðan enn markalaus þegar nokkuð er liðið á síðari hálfleik. 20.5.2007 21:17
KR yfir í hálfleik gegn Breiðablik Eitt mark hefur verið skorað í fyrri hálfleik í þeim leikjum Landsbankadeildar karla sem fram fara í kvöld. Sigmundur Kristjánsson gerði það fyrir KR gegn Breiðablik en markið skoraði hann strax á 7. mínútu. Enn er markalaust er á Laugardalsvelli þar sem Framarar og Víkingar eigast við. 20.5.2007 20:05
Valur vann Fylki í Árbænum Tvö mörk Valsmanna á síðasta stundarfjórðungnum tryggðu liðinu frækinn 2-1 útisigur á Fylki í Landsbankadeild karla. Það var danski leikmaðurinn Rene Carlsen sem skoraði sigurmarkið á 83. mínútu en áður hafði Halldór Hilmisson komið Fylki yfir. Annar Dani í lið Vals, Dennis Bo Mortensen, hafði áður jafnað metin. 20.5.2007 17:55
Matthías Guðmundsson er leikmaður 1. umferðar Eins og venja er orðin frá fyrri Íslandsmótum mun Fréttablaðið standa fyrir vali á liði og leikmanni hverrar umferðar að henni lokinni. Í þetta sinn varð Matthías Guðmundsson, sóknarmaður FH, fyrir valinu. Hann skoraði eitt marka FH í 3-2 sigri liðsins á ÍA á útivelli í opnunarleik mótsins. 16.5.2007 07:00
Björgólfur bjargaði toppsætinu fyrir FH-inga Í lok hverrar umferðar í efstu deild Íslandsmóts karla mun Fréttablaðið gera upp liðna umferð með þeim hætti sem sést nú. Lesendur geta glöggvað sig á ýmissi tölfræði, velt fyrir sér vali á liði og leikmanni umferðarinnar auk þess sem við veljum þau bestu ummæli sem látin voru falla í tengslum við leikina fimm. 15.5.2007 23:28
Fylkir vann Breiðablik Fylkir bar sigurorð af Breiðabliki í Kópavoginum í kvöld með einu marki gegn engu. Markið kom í seinni hálfleik en blikar voru manni færri meirihluta leiks. Blikar gerðu harða hríð að marki fylkismanna án þess að það bæri árangur. Christian Christiansen skoraði mark Fylkis. 13.5.2007 21:10
Framarar jöfnuðu á lokamínútunum Óðinn Árnason jafnaði fyrir framara þegar um tvær mínútur voru eftir af leik Fram og Vals í Landsbankadeildinni. Áður hafði Helgi Sigurðsson, fyrrum leikmaður Fram, komið valsmönnum yfir. Leikurinn endaði því með janftefli, einu marki gegn einu. 13.5.2007 17:51
Helgi skoraði gegn gömlu félögunum Valsmenn eru yfir gegn Fram þegar rúmlega 20 mínútur eru liðnar af leiknum. Það var Helgi Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður Fram sem skoraði um miðjan fyrri hálfleik. 13.5.2007 16:23
FH: Í sérflokki síðustu sumur Fréttablaðið hefur síðustu daga talið niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu og við spáum FH-ingum Íslandsmeistaratitlinum. FH-ingar eru á eftir sínum fjórða titli í röð og margt bendir til þess að Íslandsbikarinn verði áfram í Krikanum. Liðið er frábært, breiddin einstök, umgjörðin glæsileg og ofan á allt heldur Hafnarfjarðarmafían uppi taktinum og stemningunni í kringum liðið. 10.5.2007 23:45
Draumadeild Landsbankans og Vísis komin á fullt Nú er hin árlega Draumadeild Landsbankans og Vísis komin í loftið. Deildin hefur verið uppfærð mikið frá síðasta ári og nú geta þátttakendur slkipt meira um menn í sínu liði og kominn er SMS virkni og fleira. Skráning fyrstu dagana hefur verið góð, þegar hafa 2.000 lið skráð sig til þátttöku og bætist við með hverri mínútu. 10.5.2007 13:42
Valur: Þriðja árið hans Willums Fréttablaðið heldur áfram að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu og við spáum Valsmönnum þriðja sætinu. Í fyrra náðu Valsmenn að halda sæti sínum meðal þriggja bestu liðanna í fyrsta sinn síðan árið 1988 og voru í raun aðeins nokkrum sekúndum frá því að vinna KR í lokaleiknum og hreppa þar með 2. sætið annað árið í röð. 9.5.2007 16:14
Íslandsmeisturunum spáð góðu gengi Fyrirliðar, þjálfarar og formenn knattspyrnuliða í Landsbankadeildum karla- og kvenna spáðu í dag í spilin á árlegum kynningarfundi fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu sem hefst á næstu dögum. FH og Valur munu því verja titla sína ef spárnar rætast. Nýliðum HK er spáð falli í karlaflokki og Valur og KR urðu hnífjöfn í öðru til þriðja sæti í spánni. 8.5.2007 18:55
Landsbankadeildin fyrirferðamikil á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn mun í sumar gera Landsbankadeildinni í knattspyrnu betri skil en nokkru sinni fyrr og alls verða þrjár beinar útsendingar á stöðinni frá fyrstu umferðinni. Sérstakur upphitunarþáttur verður í opinni dagskrá stöðvarinnar á fimmtudagskvöldið klukkan 21. 8.5.2007 18:00
Rúnar Kristinsson á leið í KR Knattspyrnumaðurinn Rúnar Kristinsson hjá Lokeren í Belgíu ætlar að ganga aftur í raðir KR í Landsbankadeildinni í sumar. Rúnar staðfesti þetta í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í dag, en óvíst er hvenær hann lýkur keppni með belgíska liðinu sem er í bullandi fallhættu í deildinni þegar tvær umferðir eru eftir. Rúnar gæti þó orðið klár í slaginn í þriðju umferðinni hér heima þegar KR mætir Val. 7.5.2007 18:25
Sanngjarn sigur FH á Keflavík Íslandsmeistarar FH unnu sanngjarnan sigur á bikarmeisturum Keflavíkur í hinni árlegu Meistarakeppni KSÍ. Það var Bjarki Gunnlaugsson sem skoraði eina mark leiksins á 18. mínútu leiksins. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekkert sérstakar á frjálsíþróttavellinum í Krikanu í gær. Nokkur vindur gerði leikmönnum erfitt fyrir en eftir að leikmenn höfðu vanist aðstæðum mátti sjá góð tilþrif. 7.5.2007 00:01
ÍA: Hvað gerir Guðjón upp á Skaga? Fréttablaðið heldur áfram að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu en næstu daga munum við birta spá íþróttamanna Fréttablaðsins um lokastöðu liðanna í Landsbankadeild karla 2007. Við spáum Skagamönnum sjötta sætinu. 5.5.2007 07:30
Valur vann KR Valur er deildameistari kvenna í fótbolta í þriðja sinn eftir 2-1 sigur á KR í úrslitaleik í Egilshöllinni í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir kom Val yfir eftir 25. mínútu og Nína Ósk Kristinsdóttir bætti síðan við öðru marki tólf mínútum eftir hálfleik. 5.5.2007 00:01
FH-ingar deildarbikarmeistarar Íslandsmeistarar FH tryggðu sér í dag sigur í Lengjubikarnum eftir að þeir lögðu Val 3-2 eftir framlengdan úrslitaleik á Stjörnuvelli. Valsmenn voru betri aðilinn í fyrri hálfleik, en Sigurbjörn Hreiðarsson fór illa að ráði sínu í upphafi leiks þegar hann lét Daða Lárusson verja frá sér vítaspyrnu. 1.5.2007 18:32
HK: Nýliðarnir númeri of litlir Fréttablaðið byrjar í dag að telja niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu því næstu ellefu daga munum við birta spá íþróttamanna Fréttablaðsins um lokastöðu liðanna í Landsbankadeild karla 2007. Það spáir nýliðum HK 10. sætinu og að Kópavogsliðið falli því úr deildinni í haust. 1.5.2007 17:32