Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Arnar Grétarsson: Tókum meðbyrinn með okkur Arnar Grétarsson var brosmildur eftir að Breiðablik tryggði sér sæti í úrslitum VISA-bikarsins í kvöld. 13.9.2009 18:48
Damien Duff fullkomnaði endurkomu Fulham á móti Everton Damien Duff tryggði Fulham 2-1 sigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni með því að skora sigurmarkið ellefu mínútum fyrir leikslok. Everton hafði komist í 1-0 í fyrri hálfleik með skallamarki Tim Cahill. 13.9.2009 17:56
Selfyssingar biðja um leyfi hjá KR til að ræða við Gumma Ben Knattspyrnudeild Selfoss hefur óskað eftir leyfi hjá KR til að ræða við Guðmund Benediktsson með það fyrir augum að hann taki við þjálfun liðsins. Bylgjan greindi frá þessi í hádeginu. 13.9.2009 17:54
Yngvi Borgþórs: Áttum að nýta færin í byrjun Eyjamenn fóru tómhentir heim úr Kaplakrika í dag þar sem þeir steinlágu fyrir Íslandsmeisturum FH. Hafnarfjarðarliðið var mun sterkara og vann a endanum 5-0 sigur. 13.9.2009 17:16
Þorvaldur Árnason: Þetta var alveg hrikalega ódýrt víti Stjörnumaðurinn Þorvaldur Árnason opnaði markareikninginn sinn í Pepsi-deild karla á Vodafone-vellinum í dag þegar hann skoraði tvíveigis í 3-3 jafntefli við Val. 13.9.2009 17:01
Pape: Markaleysið var farið að kosta andvökunætur Blaðamaður Vísis hefur sjaldan séð sáttari mann eftir knattspyrnuleik en hinn unga og efnilega Pape Mamadou Faye eftir sigurleik Fylkis gegn Þrótti í dag. Pape skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í leiknum. Fallegt skallamark eftir hornspyrnu. 13.9.2009 16:52
Arnar Sveinn: Búinn að bíða eftir þessu síðan að ég var fimm ára Arnar Sveinn Geirsson lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði Vals í dag, stóð sig vel og skoraði laglegt mark í 3-3 jafntefli liðsins á móti Stjörnunni. 13.9.2009 16:38
Tryggvi: Erum minnugir þess sem gerðist í fyrra „Það er hægt að segja það að þetta hafi verið verðskuldað," sagði Tryggvi Guðmundsson, leikmaður FH, eftir 5-0 sigur Hafnarfjarðarliðsins á ÍBV í dag. Tryggvi bar fyrirliðabandið í leiknum þar sem Davíð Þór Viðarsson tók út leikbann. 13.9.2009 16:30
Heimir Hallgríms: Þú spilar ekki með hausinn í bringunni gegn FH Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, segir að FH hafi verið of stór biti fyrir sína menn í dag. FH-ingar unnu öruggan 5-0 sigur á heimavelli sínum. 13.9.2009 16:22
Aðeins eitt félag hefur tapað þrjú ár í röð í undanúrslitum bikarsins Breiðablik mætir Keflavík í undanúrslitaleik VISA-bikars karla á Laugardalsvellinum í dag og reynir þar að enda átta leikja taphrinu félagsins í undanúrslitum bikarsins. Blikar hafa meðal annars tapað í undanúrslitum undanfarin tvö ár en aðeins eitt félag hefur þurft að sætta sig við að tapa undanúrslitaleik þrjú ár í röð. Það var lið Keflavíkur á árunum 1961-63. 13.9.2009 15:30
Umfjöllun: Breiðablik í úrslit bikarsins í fyrsta sinn síðan 1971 Breiðablik er komið í úrslit VISA-bikars karla í fyrsta sinn frá árinu 1971 eftir, 3-2, sigur á Keflavík í undanúrslitum á Laugardalsvelli. Breiðablik mætir Fram í úrslitum. 13.9.2009 15:00
Ryan Giggs: Ánægður með að fá að taka aukaspyrnurnar á nýjan leik Ryan Giggs er aftur farinn að fá að taka aukaspyrnur fyrir Manchester United nú þegar Cristiano Ronaldo er farinn til Real Madrid. Giggs nýtti tækifærið vel í gær þegar hann jafnaði leikinn á móti Tottenham með laglegu marki beint úr aukaspyrnu. Manchester United vann leikinn síðan 3-1. 13.9.2009 14:30
Umfjöllun: Vítaspyrna Sigurbjarnar tryggði Val stig annan leikinn í röð Valur og Stjarnan gerðu 3-3 jafntefli á Vodafone-vellinum í Pepsi-deild karla í dag. Fyrirliði Valsmanna, Sigurbjörn Hreiðarsson, tryggði sínum mönnum stig þegar hann skoraði af öryggi úr vítaspyrnu tveimur mínútum fyrir leikslok. Þorvaldur Árnason hafði áður komið Stjörnunni í 3-2 með tveimur mörkum á einni og hálfri mínútu. 13.9.2009 13:00
Umfjöllun: FH alltof stór biti fyrir ÍBV FH-ingar áttu ekki í teljandi vandræðum með að leggja Eyjamenn að velli í Pepsi-deildinni í dag. FH vann öruggan 5-0 sigur þar sem Atli Viðar Björnsson skoraði tvívegis. 13.9.2009 13:00
Umfjöllun: Fylkismenn kláruðu áhugalausa Þróttara Fylkismenn unnu sannfærandi sigur á Þrótturum í dag, 2-0. Þróttarar voru fallnir fyrir leikinn í dag en Fylkismenn eru enn í baráttu um Evrópusæti. Bæði mörk Fylkis komu í seinni hálfleik. Albert Brynjar Ingason átti það fyrra en Pape Mamadou Faye það síðara. Viðtöl og nánari umfjöllun um leikinn dettur hér inn á vefinn innan skamms. 13.9.2009 13:00
Agbonlahor tryggði Aston Villa þriðja sigurinn í röð Gabby Agbonlahor skoraði sigurmark Aston Villa sex mínútum fyrir leikslok þegar liðið vann 1-0 sigur á Birmingham í nágrannaslagnum í ensku úrvalsdeildinni en leikurinn fór fram í hádeginu. 13.9.2009 12:54
Capello dreymir um það að mæta Ítölum í úrslitaleiknum á HM Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, myndi ekki sætta sig við neitt annað en að enska landsliðið kæmist alla leið í úrslitaleikinn á HM í Suður-Afríku næsta sumar. Hann viðurkennir líka að hann dreymi um að mæta þar löndum sínum í ítalska landsliðinu. 13.9.2009 12:30
Barcelona hefur áhuga á að kaupa Toni í janúar Ítalski framherjinn Luca Toni gæti verið á leiðinni til spænsku Evrópumeistaranna í Barcelona í janúarglugganum ef marka má fréttir frá Ítalíu. Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, hefur áhuga á að bæta við framherja þrátt fyrir að Zlatan Ibrahimovic hafi skoraði í fyrstu tveimur deildarleikjum liðsins. 13.9.2009 12:00
Fagnaðarlæti og takka-tröðkun Adebayor fara bæði fyrir aganefndina Stjórnarformaður enska knattspyrnusambandsins hefur staðfest það að Aganefnd enska knattspyrnusambandsins muni á næsta fundi sínum á morgun taka fyrir tvö atvik tengd Emmanuel Adebayor í leik Manchester City og Arsenal í gær. Adebayor fór mikinn á móti sínum gömlu félögum, lét finna fyrir sér í tæklingum og skoraði síðan þriðja mark sinna manna. 13.9.2009 11:30
Makelele: Eiður Smári getur orðið nýja stjarnan í frönsku deildinni Claude Makelele er fyrrum félagi Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea og verður mótherji hans í fyrsta leik Eiðs með AS Monaco á morgun. Makelele er leikmaður Paris Saint-Germain sem sækir Monakó-liðið heim á morgun. Makelele hrósar okkar manni mikið í viðtölum fyrir leik liðanna sem verður í beinni á Stöð2 Sport klukkan 19.00 í kvöld. 13.9.2009 11:00
Capello: Heskey er lykillinn í leikkerfi enska landsliðsins Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, heldur mikla tryggð við Emile Heskey þrátt fyrir að Heskey hafi aðeins skorað 7 mörk í 56 landsleikjum. Heskey er og verður fastamaður í framlínu enska landsliðsins þrátt fyrir að Jermain Defoe hafi skorað 8 mörk í síðustu 10 landsleikjum sínum. 13.9.2009 09:00
Thomas Sorensen: Meiðslin eru ekki eins slæm og ég óttaðist Danski markvörðurinn Thomas Sorensen hjá Stoke meiddist í leik Stoke og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær og varð að yfirgefa völlinn á 41. mínútu leiksins. Varamarkvörðurinn Steve Simonsen tók stöðu hans í marki Stoke. 13.9.2009 08:00
Kaka lagði upp tvö og Ronaldo skoraði eftir að hafa komið inn af bekknum Real Madrid vann góðan 3-0 sigur á Espanyol í gærkvöldi og er því áfram við hlið Barcelona á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Esteban Granero, Guti og varamaðurinn Cristiano Ronaldo skoruðu mörk Madrídar-liðsins í leiknum. 13.9.2009 07:00
Robinho frá í tvær til þrjár vikur og missir af United-leiknum Landsliðsferðir Robinho og Carlos Tevez til Suður-Ameriku voru dýrkeyptar fyrir enska úrvalsdeildarliðið Manchester City því tveir stjörnuleikmenn liðsins meiddust báðir það illa með landsliðum sínum að þeir verða frá í nokkrar vikur. 13.9.2009 06:00
Van Persie: Adebayor ætlaði sér að meiða mig í dag Hollendingurinn Robin van Persie hjá Arsenal hefur sakað fyrrum félaga sinn Emmanuel Adebayor um að hafa stigið viljandi á andlit sitt í 4-2 tapi Arsenal á móti Manchester City í dag. „Ég er leiður og vonsvikinn vegna þess að þetta var viljandi og hugsunarlaust," sagði Van Persie á heimasíðu Arsenal. 12.9.2009 22:30
Logi Ólafsson: Þeirra plan gekk upp í dag „Það eru alltaf vonbrigði að tapa leikjum og sérstaklega þegar þeir eru svona þýðingarmiklir eins og þessi," sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR eftir 0-1 tap á móti Fram í undanúrslitaleik VISA-bikars karla í dag. 12.9.2009 22:00
AC Milan náði aðeins markalausu jafntefli á móti Livorno AC Milan er ekki að byrja vel undir stjórn Brasilíumannsins Leonardo á þessu tímabili því liðið fylgdi á eftir 0-4 stórtapi á móti nágrönnum sínum í Inter með því að ná aðeins að gera markalaust jafntefli á móti nýliðum Livorno í dag. 12.9.2009 21:00
Ibrahimovic og Messi á skotskónum með Barcelona Zlatan Ibrahimovic skoraði í öðrum leiknum í röð með Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann 2-0 sigur á Getafe og fór á toppinn. Lionel Messi kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið. 12.9.2009 20:45
Alex Ferguson: Var hann rekinn útaf af því að hann heitir Paul Scholes Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði að sitt lið hafi staðist stórt próf á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. United lenti 0-1 undir á útivelli eftir aðeins eina mínútu og spilaði manni færri síðasta hálftíma leiksins. United vann leikinn engu að síður 3-1. 12.9.2009 20:30
Ancelotti: Við áttum skilið að skora þetta mark Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, fagnaði vel þegar Florent Malouda tryggði Chelsea 2-1 sigur á Stoke á fjórðu mínútu uppbótartíma. Þetta var fimmti sigur liðsins í fimm leikjum og er Chelsea nú með þriggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. 12.9.2009 20:00
Rafael Benitez: Yossi að sanna sig sem byrjunarliðsmaður Rafael Benitez, stjóri Liverpool, sagði að Ísraelsmaðurinn Yossi Benayoun hafi sannað sig með því að skora þrennu í 4-0 sigri á Burnley í dag. Benitez segir að Benayoun hafi ekki látið ferðaþreytu hafa áhrif á sig. 12.9.2009 19:33
Þorvaldur: Það mátti ekki miklu muna í þessum leik „Þetta var góður sigur hjá okkur og við erum mjög sáttir," sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram eftir að liðið sló bikarmeistara KR út úr undanúrslitum VISA-bikarsins með 1-0 sigri á Laugardalsvellinum í dag. 12.9.2009 19:15
Grétar: Það er klassamunur á þessum liðum en það sást ekki í dag „Þetta eru mikil vonbrigði og hreinlega óásættlanlegt," sagði Grétar Sigfinnur Sigurðsson, fyrirliði KR sem gat ekki leynt vonbrigðum sínum í leikslok eftir 0-1 tap á móti Fram í undanúrslitaleik bikarsins. 12.9.2009 18:59
Draumabyrjun Tottenham dugði ekki til að halda sigurgöngunni áfram Sigurganga Tottenham í ensku úrvalsdeildinni endaði með 1-3 tapi fyrir Englandsmeisturum Manchester United á heimavelli á White Hart Lane í dag en Tottenham hafði unnið fjóra fyrstu leiki sína á tímabilinu. Það dugði ekki fyrir lærisveinana hans Harry Redknapp að komast yfir strax á fyrstu mínútu leiksins því United svaraði með þremur mörkum. 12.9.2009 18:40
Liverpool fær 16,6 milljarða fyrir samning við Standard Chartered Liverpool mun ekki spila með Carlsberg auglýsingu framan á búningum sínum á næsta tímabili eins og liðið hefur gert undanfarin sautján ár. Frá og með 2010-11 tímabilinu mun Liverpool auglýsa Standard Chartered framan á búningum sínum eftir að félagið gerði fjögurra ára samning við bankann. 12.9.2009 18:00
Eyjólfur tryggði GAIS jafntefli með marki á síðustu mínútunni Eyjólfur Héðinsson tryggði GAIS 2-2 jafntefli á útivelli á móti Elfsborg. Markið skoraði Eyjólfur á síðustu mínútu leiksins en aðeins fjórum mínútum áður héldu heimamenn að þeir hefðu tryggt sér sigurinn í leiknum. 12.9.2009 17:30
Adebayor: Fyrirgefið mér en tilfinningarnar tóku yfir Emmanuel Adebayor baðst afsökunar á því eftir leik Man. City og Arsenal í dag að hafa hlaupið allan völlinn endilangan til þess að geta fagnað marki sínu fyrir fram stuðningsmenn Arsenal sem voru mættir til Manchester. Emmanuel Adebayor skoraði í fjórða leiknum í röð og átti flottan leik þegar Manchester City vann 4-2 sigur á Arsenal. 12.9.2009 17:00
Harry Redknapp: Við getum alveg unnið United í dag Harry Redknapp, stjóri Tottenham. býst við knattspyrnuviðburði á White Hart Lane í dag þegar Tottenham tekur á móti Englandsmeisturum Manchester United. Tottenham hefur unnið fjóra fyrstu leiki sína í deildinni og það hefur ekki gert oft á undanförnum árum að Spurs er ofar í töflunni þegar þessi lið mætasts. 12.9.2009 15:30
Gróttumenn komnir upp í 1. deild í fyrsta sinn í sögu félagsins Gróttumenn tryggðu sér í dag sæti í 1. deild karla í fótbolta í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir 4-0 útisigur á Víðir í Garði. Það ræðst ekki fyrr en í hreinum úrslitaleik um næstu helgi á milli Suðurnesjaliðanna Reynis úr Sandgerði og Njarðvík hvort liðið fylgir Gróttu upp í 1. deild. 12.9.2009 15:15
Umfjöllun: Framarar í bikarúrslitin eftir 1-0 sigur á KR Framarar eru komnir í bikarúrslitaleikinn eftir 1-0 sigur á KR í undanúrslitaleik liðanna á Laugardalsvellinum í dag. Það var varamaðurinn Joseph Tillen sem tryggði Fram sigurinn með marki tólf mínútum fyrir leikslok. 12.9.2009 15:00
Gunnlaugur Jónsson verður næsti þjálfari Valsmanna Gunnlaugur Jónsson mun ekki þjálfa Selfossliðið í Pepsi-deildinni næsta sumar því Gunnlaugur hefur ákveðið að gerast þjálfari Valsmanna og taka þar við starfi Atla Eðvaldssonar. 12.9.2009 14:23
Framarar hafa unnið þrettán undanúrslitaleiki í röð í bikarnum Framarar mæta bikarmeisturum KR í undanúrslitaleik VISA-bikars karla á Laugardalsvellinum klukkan 16.00 í dag. Framarar hafa söguna með sér í leiknum því Framliðið hefur unnið alla undanúrslitaleiki sína í bikarkeppninni síðan árið 1971. Alls hefur Framliðið unnið þrettán undanúrslitaleiki í röð. 12.9.2009 14:00
Haukar unnu topplið Selfyssinga og eru komnir upp í Pepsi-deildina Haukar eru komnir upp í efstu deild í fyrsta sinn síðan 1979 eftir 3-2 sigur á Selfossi í næstsíðustu umferð 1. deildar karla í dag.. HK náði aðeins markalausu jafntefli upp á Akranesi og getur ekki náð Haukum að stigum. 12.9.2009 13:57
Emmanuel Adebayor skoraði í fjórða leiknum í röð og City vann Arsenal Sigurganga Manchester City hélt áfram í ensku úrvalsdeildinni í dag en liðið vann þá 4-2 heimasigur á Arsenal. Emmanuel Adebayor fór mikinn á móti sínum gömlu félögum og skoraði meðal annars þriðja mark City. Emmanuel Adebayor hefur þar með skoraði fjórum fyrstu leikjum sínum á tímabilinu. 12.9.2009 13:55
Adebayor segir að Bendtner sé alltof mikill egóisti Emmanuel Adebayor og Nicklas Bendtner eru ekki miklir vinir þrátt fyrir að hafa spilað saman hjá Arsenal í nokkur ár. Þeir háðu harða baráttu um sæti í byrjunarliðinu og hún hefur greinilega skilið eftir einhver sár nú þegar Adebayor hefur fært sig um set til Manchester City . Þeir Adebayor og Bendtner verða líklega í aðalhlutverki í dag þegar City tekur á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. 12.9.2009 13:30