Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eto'o búinn að ná samkomulagi við Inter Samuel Eto'o hefur náð samkomulagi við Ítalíumeistara Inter samkvæmt umboðsmanni leikmannsins. Svíinn Zlatan Ibrahimovic fer til Barcelona í skiptum og þá mun Alexander Hleb ganga til liðs við Inter á lánssamningi. 23.7.2009 15:45
Skrtel sendur aftur til Englands Varnarmaðurinn Martin Skrtel hjá Liverpool fór meiddur af velli í gær þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Tæland í æfingaleik í Bangkok. Skrtel meiddist á læri og er á leið aftur til Englands í nánari skoðun. 23.7.2009 15:00
Tekst það loksins hjá Fylki í tólftu tilraun? Fylkir heimsækir Keflavík í 13. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Árbæjarliðið á enn eftir að vinna leik í efstu deild í Keflavík en liðin mætast þarna í tólfta sinn. 23.7.2009 14:30
Liverpool segist ekki vera að fara selja Alonso til Real Liverpool hefur neitað þeim sögusögnum að félagið sé búið að samþykkja kauptilboð spænska liðsins Real Madrid á Xabi Alonso. Það ýtti undir sögusagnirnar að spænski miðjumaðurinn missti af æfingaleik liðsins á móti Tælandi í gær. 23.7.2009 14:00
Fölsk frétt um að Toni sé kominn til Dortmund Frétt birtist á opinberri heimasíðu þýska félagsins Borussia Dortmund þess efnis að félagið hefði keypt Luca Toni frá Bayern München. Þessi frétt reyndist ekki sönn heldur verk tölvuþrjótar sem hakkaði sig inn á síðuna. 23.7.2009 13:41
Steinþór stefnir á að ná leiknum gegn FH Steinþór Freyr Þorsteinsson er enn á meiðslalistanum og getur ekki leikið með Stjörnunni gegn Þrótti í kvöld. Steinþór hefur verið einn besti leikmaður Íslandsmótsins og hefur verið sárt saknað í Garðabæjarliðinu. 23.7.2009 13:30
Arnar Grétars: Ætlum okkur klárlega þrjú stig Breiðablik beið afhroð á Valbjarnarvelli í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar. Leikmenn liðsins eru væntanlega staðráðnir í að bæta upp fyrir það í kvöld þegar þeir taka á móti botnliði ÍBV á Kópavogsvelli. 23.7.2009 12:36
Umfjöllun: Eyjamenn unnu frækinn sigur gegn Blikum í rússíbanaleik ÍBV vann frækinn 3-4 sigur gegn Breiðabliki í Pepsi-deild karla á Kópavogsvelli í kvöld en staðan var 1-2 í háfleik fyrir ÍBV. Varamennirnir stálu hins vegar senunni í seinni hálfleik. 23.7.2009 12:20
Guðmundur: Óli Þórðar hefur barið liðsanda í Fylki „Það er mikill léttir að allt þetta sé að baki og maður geti farið að einbeita sér alfarið að Keflavík," segir Guðmundur Steinarsson sem hefur loksins fengið leikheimild með Keflvíkingum og spilar í kvöld gegn Fylki. 23.7.2009 12:00
Leik Larissa og KR útvarpað KR-ingar eiga stórt verkefni fyrir höndum í dag þegar þeir leika gegn Larissa í Grikklandi í Evrópudeild UEFA. KR er í góðri stöðu eftir 2-0 sigur í heimaleiknum í síðustu viku. 23.7.2009 11:45
Ingvar Kale líklega í marki Blika í kvöld Ingvar Kale mun líklega standa í marki Breiðabliks í kvöld þegar liðið tekur á móti ÍBV í Pepsi-deildinni. Ingvar fór meiddur af velli í leik gegn Grindavík á dögunum og lék ekki í 4-0 tapinu gegn Þrótti í vikunni. 23.7.2009 11:41
Ferguson með fullar hendur fjár Sir Alex Ferguson er með um 60 milljónir punda sem hann getur varið í leikmannakaup fyrir tímabilið sem senn hefst. United fékk 80 milljónir punda fyrir söluna á Cristiano Ronaldo. 23.7.2009 10:55
Bjarki og Andri Steinn löglegir fyrir kvöldið Valur heimsækir Fjölni í Pepsi-deild karla í kvöld. Bjarki Gunnlaugsson er kominn með leikheimild með Valsmönnum en hann gekkst undir læknisskoðun í byrjun vikunnar. 23.7.2009 10:40
Tottenham vill Huntelaar Tottenham hefur staðfest áhuga sinn á hollenska sóknarmanninum Klaas-Jan Huntelaar hjá Real Madrid. Þrátt fyrir að leikmaðurinn hafi aðeins verið hjá spænska stórliðinu síðan í janúar er það reiðubúið að selja hann. 23.7.2009 10:30
Eiður: Mikilvægt að Zlatan aðlagi sig fljótt Eiður Smári Guðjohnsen ráðleggur Svíanum Zlatan Ibrahimovic að aðlaga sig leikstíl Barcelona eins fljótt og hann getur þegar félagaskipti hans frá inter í Mílanó eru frágengin. Þetta kemur fram í viðtali við Eið í Aftonbladet í dag. 23.7.2009 10:02
Maradona til Portsmouth? Portsmouth vill fá argentínsku goðsögnina Diego Maradona til starfa hjá félaginu. Nýr eigandi Portsmouth, Sulaiman Al Fahim, hefur áhuga á að fá Maradona til að verða nokkurskonar sendiherra félagsins á heimsvísu. 23.7.2009 09:45
Theodór Elmar í Gautaborg Theodór Elmar Bjarnason hefur yfirgefið herbúðir norska liðsins Lyn og samið við sænska liðið Gautaborg. Frá þessu er greint á heimasíðu Gautaborgar en samningur leikmannsins er til 2012. 23.7.2009 09:01
Auðun: Þurfum að eiga toppleik „Við þurfum að eiga algjöran toppleik til að komast áfram," segir Auðun Helgason, fyrirliði Fram. Safamýrarliðið mætir Sigma Olomouc frá Tékklandi öðru sinni í kvöld í Evrópudeild UEFA. Leikurinn hefst klukkan 19:00 á Laugardalsvelli. 23.7.2009 08:00
Þurfum að halda áfram og byggja á sigrinum Þróttarar fundu taktinn svo eftir var tekið gegn Breiðabliki í Pepsi-deild karla á dögunum og unnu 4-0 stórsigur. Þetta var annar sigurleikur Þróttara í deildinni í sumar og kom þeim upp úr botnsætinu. 23.7.2009 07:00
Erna Björk: Þetta var sérstaklega sætt fyrir mig „Ég held að ég hafi fagnað manna mest þegar Sandra skoraði í lokin," sagði Erna Björk Sigurðardóttir, fyrirliði Blika eftir 2-1 sigur á Stjörnunni í kvöld. Mistök Ernu gáfu Stjörnunni víti og höfðu næstum því kostað Breiðablik sigurinn. Sandra Sif Magnúsdóttir bjargaði hinsvegar fyrirliðanum sínum með því að skora sigurmarkið í uppbótartíma. 22.7.2009 22:45
Þorkell Máni: Ég er ekki að sjá Val klúðra þessu Þorkell Máni Pétursson, þjálfari Stjörnunnar, tók mikla áhættu í lokin í 1-2 tapi á móti Breiðablik í Pepsi-deild kvenna í kvöld. Þorkell fækkaði í vörninni og ætlaði að taka stig. Stjarnan náð að jafna en Blikar tryggðu sér síðan sigurinn í uppbótartíma. Með sigrinum komust Blikar upp fyrir Stjörnuna á markatölu. 22.7.2009 22:30
Sandra Sif: Sá að markvörðurinn var ekki tilbúinn „Þetta var frábært því við þurftum á þremur stigum að halda," sagði hetja Blika, Sandra Sif Magnúsdóttir, sem skoraði sigurmark Breiðabliks í uppbótartíma eftir baráttuleik á móti Stjörnunni í Pepsi-deild kvenna í kvöld. 22.7.2009 22:15
1. deild: Frækinn sigur Þórs gegn erkifjendunum í KA Tveir leikir fóru fram í 13. umferð 1. deildar karla í kvöld. Þórsarar unnu 3-2 sigur gegn KA í 1. deildinni í Akureyrarslag á nýjum og glæsilegum heimavelli sínum. 22.7.2009 22:00
Gerrard ber við sjálfsvörn í kærumálinu Fyrirliðinn Steven Gerrard hjá Liverpool gat ekki ferðast með félagi sínu í æfingarferðina til Asíu vegna þess að hann þarf að koma fyrir rétti á Englandi vegna kærumáls fyrir slagsmál á skemmtistað í lok síðasta árs. 22.7.2009 20:45
Eiður Smári enn óviss með framtíð sína hjá Barca Landsliðsframherjinn Eiður Smári Guðjohnsen viðurkennir í samtali við Sky Sports fréttastofuna að hann sé óviss um framtíð sína hjá Barcelona og segir að aðeins tíminn leiði í ljós hvað muni gerast í hans málum. 22.7.2009 20:00
Sandra Sif tryggði Blikum annað sætið með marki í uppbótartíma Breiðablik komst upp í 2. sætið í Pepsi-deild og hafði sætaskipti við Stjörnuna eftir 2-1 sigur í innbyrðisleik liðanna í Garðabænum í kvöld. Liðin eru með jafnmörg stig en Blikar hafa örlítið betri markatölu. Sandra Sif Magnúsdóttir tryggði Breiðabliki sigurinn í uppbótartíma með sínu öðru marki í leiknum. 22.7.2009 19:57
Davíð Þór: Þetta var miklu skárra en stórslysið í fyrri leiknum Fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson hjá FH segir að allt annað hefði verið að sjá til Íslandsmeistaranna í seinni leik liðsins gegn Aktobe í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þrátt fyrir 2-0 tap. 22.7.2009 19:15
280 leikir á fjórum dögum á ReyCup - setning í kvöld Alþjólega knattspyrnuhátíðin ReyCup verður sett klukkan 21.00 í kvöld við gervigrasvöllinn í Laugardal en þetta er stærsta og umfangsmesta knattspyrnumót sem haldið á landinu 2009. Sjálfboðaliðar á mótinu á vegum Þróttar eru um 250 manns. 22.7.2009 18:30
FH tapaði aftur fyrir Aktobe og er fallið úr keppni Íslandsmeistarar FH eru fallnir úr keppni eftir 2-0 tap gegn Aktobe frá Kasakstan í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. 22.7.2009 17:47
Kyle og Kyle keyptir til Tottenham Tottenham var að kaupa tvo unga varnarleikmenn frá Sheffield United og þeir heita báðir Kyle. Kyle Naughton er tvítugur og Kyle Walker er einu ári yngri. 22.7.2009 17:30
Liverpool gerði jafntefli við Tæland Liverpool lék æfingaleik gegn landsliði Tælands í dag. Ryan Babel kom Liverpool yfir snemma leiks og héldu þá eflaust margir að þetta yrði öruggur sigur. Annað kom á daginn og endaði leikurinn með jafntefli 1-1. 22.7.2009 17:00
Drogba ætlar að framlengja við Chelsea til 2012 Didier Drogba er ekkert á förum frá enska úrvalsdeildarliðinu Chelsea. Drogba er að fara skrifa undir nýjan þriggja ára samning við enska liðið að sögn stjórans Carlo Ancelotti. 22.7.2009 16:00
Brunabjallan í lið með sænska liðinu Kalmar Sænska liðið Kalmar er ekkert í alltof góðum málum í undankeppni Meistaradeildarinnar fyrir seinni leik sinn á móti ungverska liðinu Debrecen seinna í dag. Debrecen vann fyrri leikinn 2-0 í Ungverjalandi og eru því í góðri stöðu en það er þó hætt við því að leikmenn liðsins mæti þreytulegir til leiks í dag. 22.7.2009 15:00
Aðeins fimmtán leikhæfir leikmenn hjá FH í dag FH-ingar mæta á eftir Aktobe í seinni leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn hefst klukkan 16.00 að íslenskum tíma. FH-liðið hefur kynnst miklu mótlæti í aðdraganda leiksins því það er ekki nóg með að hafa tapað fyrri leiknum 0-4 á heimavelli þá var liðið án fimm leikmanna í þetta langa ferðalag. 22.7.2009 14:30
Sbragia yfirnjósnari Sunderland Ricky Sbragia hefur verið ráðinn nýr yfirnjósnari Sunderland. Sbragia tók við liðinu eftir að Roy Keane var rekinn á síðasta tímabili og náði að stýra því frá falli. Hann sagði síðan upp eftir tímabilið og sagði að félagið þyrfti á stærra nafni að halda til að ná lengra. 22.7.2009 13:30
Guðmundur löglegur með Keflavík á morgun Besti leikmaður úrvalsdeildar karla í fótbolta á síðustu leiktíð, Guðmundur Steinarsson, fær leikheimild með Keflavík í Pepsí deildinni í dag. Þetta staðfesti Guðmundur við fréttastofu í morgun. 22.7.2009 13:00
Crouch gæti farið til Tottenham Lundúnaliðin Tottenham og Fulham hafa áhuga á sóknarmanninum Peter Crouch hjá Portsmouth. Crouch virtist vera á leið til Sunderland þegar snuðra hjóp á þráðinn. 22.7.2009 13:00
Mikilvægt tímabil framundan hjá Foster „Ég hef sagt það áður og segi það enn, hann verður markvörður Englands," segir Sir Alex Ferguson um Ben Foster, markvörð sinn hjá Manchester United. 22.7.2009 12:30
Nýr heimavöllur Þórs vígður með stórleik í kvöld Það verður hart barist á íþróttasvæði Þórs á Akureyri í kvöld þegar KA kemur í heimsókn. Um er að ræða fyrsta heimaleik Þórs á nýjum og glæsilegum heimavelli sem var notaður fyrir landsmótið á dögunum. 22.7.2009 12:00
Indriði: Mun ekki fara til að verða vinstri bakvörður Líklegt er að landsliðsmaðurinn Indriði Sigurðsson yfirgefi herbúðir norska liðsins Lyn á næstunni. Liðið er í neðsta sæti deildarinnar og fjárhagsstaða þess vægast sagt slæm. 22.7.2009 11:30
FH ætlar að leiðrétta slysið Íslandsmeistarar FH leika síðari leik sinn gegn Aktobe í Kasakstan í dag. Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma. Vonir Hafnarfjarðarliðsins um að komast áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar eru litlar sem engar eftir 0-4 tap í Kaplakrika í síðustu viku. 22.7.2009 10:45
Sven-Göran: Einstakt tækifæri Svíinn Sven-Göran Eriksson er orðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá enska 3. deildarliðinu Notts County. Eriksson er fyrrum þjálfari enska landsliðsins. 22.7.2009 10:00
Landsleikur gegn Suður-Afríku í október Frágengið er að íslenska landsliðið muni leika vináttulandsleik við Suður-Afríku á Laugardalsvelli þann 13. október. Frá þessu er greint á vefsíðu KSÍ. 22.7.2009 09:14
Mourinho þurfti að játa sig sigraðan gegn Chelsea Didier Drogba og Frank Lampard skoruðu mörk Chelsea sem vann 2-0 sigur á Inter í æfingaleik í Bandaríkjunum í nótt. Inter hefur ekki náð sigri í neinum af þremur leikjum sínum í ferðinni. 22.7.2009 08:59
Ensk úrvalsdeildarfélög í eldlínunni í kvöld Tottenham stillti upp sterku liði í 0-4 sigri gegn Peterborough í kvöld en Darren Bent, Luka Modric, Jermain Defoe og Roman Pavlyuchenko skoruðu mörk Lundúnaliðsins í leiknum. 21.7.2009 23:00