Fleiri fréttir De Rossi biðst afsökunar á olnbogaskoti sínu Ítalski landsliðsmaðurinn Daniele De Rosso hefur beðist afsökunar á olnbogaskoti sínu í leiknum gegn USA sem kostaði hann rautt spjald. Atvikið gerðist í fyrrihálfleik er hann gaf Brian McBride skotið. 19.6.2006 02:51 Parreira stendur með Ronaldo Carlos Alberto Parreira, þjálfari Brasilíu stendur 100% með Ronaldo og segir hann hafa sýnd mikla framför milli leikja. Ronaldo sem var markakóngur í síðustu keppni með 8 mörk hefur ekki náð að skora í þeim tveimur leikjum sem búnir eru og hefur honum verið skipt útaf í báðum þessum leikjum. 19.6.2006 02:46 De Rossi rægður Það er ekki gaman hjá Daniele De Rossi í dag, miðjumanninum frá Roma sem barði Brian McBride í leiknum í gær, öll blöð, öll tímarit, öll heimsbyggðin fordæmir það sem hann gerði. Marcello Lippi segist ekki einu sinni hafa yrt á hann ennþá, enda ljóst að þessi mistök hans voru Ítölum dýr. 18.6.2006 20:29 Klinsmann vill að Low taki við af sér Jurgen Klinsmann, þjálfari Þýskalands vill að Joachim Low, aðstoðarmaður sinn taki við af sér með landsliðið ef hann ákveður að hætta með liðið eftir HM. 18.6.2006 16:03 Stjórnarmaður FIFA seldi miða á svörtu Ismail Bhamjee sem er frá Botsvana og stjórnarmaður hjá FIFA hefur verið uppvís af því að selja miða á leiki á HM á svörtum markaði. Stjórnarmaðurinn seldi 12 miða á leik Englendingar og Trinidad & Tóbagó og þrefaldaði hann verðið og seldi stakan miða fyrir 300 evrur eða um 28.000 krónur. Bhamjee hefur verið skipað að hætta afskitpum af HM og segja af sér í stjórn FIFA. 18.6.2006 15:59 Hvað gerir Eriksson í næsta leik Englendinga? Þjálfari Englendinga Sven Goran Eriksson, mun að öllum líkindum hvíla annaðhvort Frank Lampard eða Steven Gerrard í næsta leik liðsins. 18.6.2006 14:00 HM leikir dagsins Í dag byrjar veislan klukkan 13:00 með viðureign Japan og Króatíu, þau leika í F-riðli ásamt Brasilíu og Ástralíu sem mætast klukkan 16:00. Dagurinn endar svo á leik úr G-riðli milli Frakklands og Suður Kóreu sem hefst klukkan 19:00. Allir leikirnir eru að sjálfsögðu í beinni á Sýn. 18.6.2006 09:39 Zlatan ekki með gegn Englendingum Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður sænska landsliðsins verður líklega ekki með liði sínu þegar það mætir því enska í lokaleik riðlakeppninnar á HM. Leikurinn er á þriðjudaginn kemur. Zlatan þurfti að fara af velli í leiknum við Paragvæ og eftir rannsókn kom í ljós að hann er meiddur á nára. 17.6.2006 22:26 Enska liðið getur farið alla leið Hernan Crespo, leikmaður Argentínu segir að enska liðið eigi góða möguleika að fara alla leið á HM þrátt fyrir að sýna kannski ekki sinn besta leik í þeim tveimur leikjum sem þeir hafa spilað til þessa. 17.6.2006 22:21 Cole ekki með gegn Svíum? Ashley Cole, bakvörður enska landsliðsins er meiddur á læri og óvíst um hans þátttöku í leiknum við Svía á þriðjudaginn. Leikmaðurinn á von á því að taka samt sem áður þátt í æfingu liðsins um helgina og sjá hversu langt hann kemst á þessu. 17.6.2006 22:09 Styttan af Figo Alveg frábær grein eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Blaðinu í dag, hún talar um Figo, hún minnir á að það má ekki tala illa um Louis Figo, hann er mubla, stytta, og næg ástæða til þáttöku í hans tilfelli segir Kolbrún, hvað maðurinn er fallegur. Figo fallegi. 17.6.2006 19:46 Hasar í leik Ítalíu og Bandaríkjanna, staðan 1-1 Albetro Gilardino skoraði með flugskalla á 22. mínútu eftir Sendingu frá Adrea Pirlo. Fjórum mínútum síðar jöfnuðu Bandaríkjamenn eftir sjálfsmark Cristian Zaccardo . Skömmu eftir það fékk Daniel De Rossi rautt spjald fyrir fólskulega árás á Brian McBride. Ítalir leika því einum færri það sem eftir er. 17.6.2006 19:26 Ganamenn klúðra fyrsta vítinu á HM Asamoah Gyan leikmaður Gana var rétt í þessu að skjóta í stöng úr vítaspyrnu sem hefði komið Gana tveimur mörkum yfir. Tékkar sluppu því með skrekkinn. Tomas Ujfalusi leikmaður Tékka var rekinn af leikvell. Tékkar leika því einum færri. 17.6.2006 17:23 Portúgal 2 - Íran 0 Cristiano Ronaldo skoraði annað mark Portúgala úr vítaspyrnu. 17.6.2006 14:37
Sjá næstu 50 fréttir
De Rossi biðst afsökunar á olnbogaskoti sínu Ítalski landsliðsmaðurinn Daniele De Rosso hefur beðist afsökunar á olnbogaskoti sínu í leiknum gegn USA sem kostaði hann rautt spjald. Atvikið gerðist í fyrrihálfleik er hann gaf Brian McBride skotið. 19.6.2006 02:51
Parreira stendur með Ronaldo Carlos Alberto Parreira, þjálfari Brasilíu stendur 100% með Ronaldo og segir hann hafa sýnd mikla framför milli leikja. Ronaldo sem var markakóngur í síðustu keppni með 8 mörk hefur ekki náð að skora í þeim tveimur leikjum sem búnir eru og hefur honum verið skipt útaf í báðum þessum leikjum. 19.6.2006 02:46
De Rossi rægður Það er ekki gaman hjá Daniele De Rossi í dag, miðjumanninum frá Roma sem barði Brian McBride í leiknum í gær, öll blöð, öll tímarit, öll heimsbyggðin fordæmir það sem hann gerði. Marcello Lippi segist ekki einu sinni hafa yrt á hann ennþá, enda ljóst að þessi mistök hans voru Ítölum dýr. 18.6.2006 20:29
Klinsmann vill að Low taki við af sér Jurgen Klinsmann, þjálfari Þýskalands vill að Joachim Low, aðstoðarmaður sinn taki við af sér með landsliðið ef hann ákveður að hætta með liðið eftir HM. 18.6.2006 16:03
Stjórnarmaður FIFA seldi miða á svörtu Ismail Bhamjee sem er frá Botsvana og stjórnarmaður hjá FIFA hefur verið uppvís af því að selja miða á leiki á HM á svörtum markaði. Stjórnarmaðurinn seldi 12 miða á leik Englendingar og Trinidad & Tóbagó og þrefaldaði hann verðið og seldi stakan miða fyrir 300 evrur eða um 28.000 krónur. Bhamjee hefur verið skipað að hætta afskitpum af HM og segja af sér í stjórn FIFA. 18.6.2006 15:59
Hvað gerir Eriksson í næsta leik Englendinga? Þjálfari Englendinga Sven Goran Eriksson, mun að öllum líkindum hvíla annaðhvort Frank Lampard eða Steven Gerrard í næsta leik liðsins. 18.6.2006 14:00
HM leikir dagsins Í dag byrjar veislan klukkan 13:00 með viðureign Japan og Króatíu, þau leika í F-riðli ásamt Brasilíu og Ástralíu sem mætast klukkan 16:00. Dagurinn endar svo á leik úr G-riðli milli Frakklands og Suður Kóreu sem hefst klukkan 19:00. Allir leikirnir eru að sjálfsögðu í beinni á Sýn. 18.6.2006 09:39
Zlatan ekki með gegn Englendingum Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður sænska landsliðsins verður líklega ekki með liði sínu þegar það mætir því enska í lokaleik riðlakeppninnar á HM. Leikurinn er á þriðjudaginn kemur. Zlatan þurfti að fara af velli í leiknum við Paragvæ og eftir rannsókn kom í ljós að hann er meiddur á nára. 17.6.2006 22:26
Enska liðið getur farið alla leið Hernan Crespo, leikmaður Argentínu segir að enska liðið eigi góða möguleika að fara alla leið á HM þrátt fyrir að sýna kannski ekki sinn besta leik í þeim tveimur leikjum sem þeir hafa spilað til þessa. 17.6.2006 22:21
Cole ekki með gegn Svíum? Ashley Cole, bakvörður enska landsliðsins er meiddur á læri og óvíst um hans þátttöku í leiknum við Svía á þriðjudaginn. Leikmaðurinn á von á því að taka samt sem áður þátt í æfingu liðsins um helgina og sjá hversu langt hann kemst á þessu. 17.6.2006 22:09
Styttan af Figo Alveg frábær grein eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Blaðinu í dag, hún talar um Figo, hún minnir á að það má ekki tala illa um Louis Figo, hann er mubla, stytta, og næg ástæða til þáttöku í hans tilfelli segir Kolbrún, hvað maðurinn er fallegur. Figo fallegi. 17.6.2006 19:46
Hasar í leik Ítalíu og Bandaríkjanna, staðan 1-1 Albetro Gilardino skoraði með flugskalla á 22. mínútu eftir Sendingu frá Adrea Pirlo. Fjórum mínútum síðar jöfnuðu Bandaríkjamenn eftir sjálfsmark Cristian Zaccardo . Skömmu eftir það fékk Daniel De Rossi rautt spjald fyrir fólskulega árás á Brian McBride. Ítalir leika því einum færri það sem eftir er. 17.6.2006 19:26
Ganamenn klúðra fyrsta vítinu á HM Asamoah Gyan leikmaður Gana var rétt í þessu að skjóta í stöng úr vítaspyrnu sem hefði komið Gana tveimur mörkum yfir. Tékkar sluppu því með skrekkinn. Tomas Ujfalusi leikmaður Tékka var rekinn af leikvell. Tékkar leika því einum færri. 17.6.2006 17:23
Portúgalar komnir yfir Staðan í leik Portúgal og Íran er 1-0 fyrir Portúgal. Það var Deco, samherji Eiðs Smára í Barcelona sem skoraði markið með glæsilegu skoti fyrir utan vítateig. 17.6.2006 14:29
Eiður Smári samdi við Barcelona Fremsti knattspyrnumaður Íslands í dag, Eiður Smári Guðjohnsen, hefur samið við spænska stórliðið Barcelona til þriggja ára, en félagið er Spánar- og Evrópumeistari. Þar með lýkur sex ára veru Eiðs Smára hjá Chelsea þar sem hann átti farsælan feril. 17.6.2006 08:30
HM leikir dagsins Það eru þrír leikir á dagskrá á HM í dag. Fjörið byrjar klukkan 13.00 en þá leika Portúgal og Íran í D-riðli. Portúgalir tryggja sér áframhaldandi þátttöku með sigir en Íranir jafna þá að stigum með sigri og þá ráðast úrslitin í riðlinum ekki fyrr en á miðvikudag. 17.6.2006 03:08
Aimar á leið til Zaragoza? Svo virðist sem Pablo Aimar, leikmaður Valencia sé á leið til Real Zaragoza. Aimar sem er Argentínskur landsliðsmaður og hafa forráðamenn Valencia áhuga að gera nýjan samning við hann. Umboðsmaður hans segir að leikmaðurinn sé spenntur fyrir því að færa sig um set og ganga til liðs við Real Zaragoza. 17.6.2006 03:05
Bierhoff vill forðast að fá Englendinga Oliver Bierhoff, aðstoðarþjálfari þýska landsliðsins vill með öllu forðast að mæta enska liðinu í 16 liða úrslitum. Svo gæti farið að þessar tvær þjóðir geta mæst ef önnur lendir í fyrsta sæti og hin í öðru. 17.6.2006 02:38
Cruyff ánægður með Van Basten Hollenska goðsögnin, Johan Cruyff er mjög ánægður með Marco van Basten, landsliðsþjálfara hollendinga, Segir hann að liðið sé á rétti leið og Basten sé að gera hárétta hluti með það. 17.6.2006 02:27
Tango nuevo Hér er enn einn snilldarleikurinn, Argentína, hvað er hægt að segja við svona sýningu, ljóðrænni, töfrandi fegurð einsog í útsetningu Astor Piazzolla á gamla argentíska tangóinum, þetta er hinn nýi tangó í fótboltanum, hinn hreini tónn. Ég fann sömu tilfinningu og þegar ég horfði á Spánverjana í fyrsta leik, þetta eru töfrar, auðvitað er fótbolti líka barátta, taktík og allt það, en þetta er hrein snilld, ekkert minna. 16.6.2006 14:54
Vinsæll hjá samkynhneigðum í Hollandi Cristiano Ronaldo, landsliðsmaður Portúgal hefur verið valinn af samtökum samkynhneigðra í Hollandi fallegasti og mest kynæsandi leikmaðurinn á HM. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem samkynhneigðir velja nafnbót á leikmanninn en hann er sagður mjög vinsæll meðal homma og hefur tekið við hlutverki David Beckham. 16.6.2006 14:06
Van Basten segir fjölmiðla blása sögur upp Marco van Basten, þjálfari hollenska landsliðsins segir að fjölmiðlar hafi blásið upp og búið til sögur um að Arjen Robben og Robin van Persie hafi lent saman eftir leikinn gegn Serbíu. Van Basten segir þetta vera rangt. 16.6.2006 11:33
Owen á von að vera settur á bekkinn Micheal Owen, leikmaður enska landsliðsins segir að hann eigi allt eins von á því að verma bekkinn í síðasta leiknum í riðlakeppninni en þá leikur England gegn Svíum. 16.6.2006 11:23
HM leikir dagsins: Þrír leikir eru á dagskrá á HM í dag en nú er vika liðin af mótinu. Þeir leikir sem þegar hafa verið leiknir lofa mjög góðu fyrir framhaldið. Argentína og Serbía mætast klukkan 13.00 og verður þetta án efa mjög harður og spennandi leikur, enda báðar þjóðir þekktar fyrir hörku og meiri hörku. 16.6.2006 10:33
Stjörnur Juventus munu halda til Englands Ítalski umboðsmaðurinn, Silvano Martina segir að bestu leikmenn Juventus muni fara til Englands, verði félagið dæmt niður um deild. Félagið hefur verið sakað um að hafa haft áhrif á úrslit leikja á Ítalíu en rannsókn er í fullum gangi um þessar mundir. 16.6.2006 10:24
Lahm er ekki til sölu Bayern Munchen hefur ekki í hyggju að selja þýska landsliðsbakvörðinn Philipp Lahm þrátt fyrir mikinn áhuga Chelsea á að kaupa leikmanninn. 15.6.2006 16:33
39 mörk voru skoruð í 1 umferðinni Alls voru skoruð 39 mörk í 1 umfer HM sem fram fer í Þýskalandi. Það gerir að meðaltali 2,44 mörk eru gerð í leik. Þetta eru ívið fleiri mörk en skoruð voru fyrir fjórum árum. Á HM 2002 voru skoruð að meðaltali 2,19 mörk í leik. Á HM í Frakklandi voru skoruð 2,63 mörk í leikjum fyrstu umferðar. 15.6.2006 12:34
Ronaldo fluttur á sjúkrahús Brasilíski framherjinn Ronaldo var fluttur á sjúkrahús í gærkvöld vegna höfuðverks og svima. Ekkert óeðlilegt kom fram við skoðun lækna á sjúkrahúsinu, sem sendu kappann aftur á hótel Brasilíumanna í nótt. 15.6.2006 12:27
Messi með gegn Serbíu Ungstirni Barcelona, Lionel Messi, er búinn að ná sér af þeim meiðslum sem hafa verið að hrjá hann að undanförnu. Fjölmiðlar greindu frá því í dag að Messi verði í leikmannahópi Argentínu á morgun þegar lið hans mætir Serbíu/Svartfjallalandi. 15.6.2006 12:22
Fyrirsagnir og fyrrverandi stjörnur Ég held að ein besta fyrirsögn í heimi hafi komið í heimsblöðunum í dag, Eiður til Barcelona, komin sjálfsagt hátt í tuttugu ár síðan ég sat niðri við hliðarlínu á Nou Camp vellinum og tók ljósmyndir af Framliðinu í leik, þá var ég hættur að spila sjálfur, þá var ég ungur. 15.6.2006 11:26
Buffon mundi spila með Juve í Seríu B Gianluigi Buffon, markvörður Juventus og landsliðs Ítalíu segist fylgja sínu liði niður í Seríu C ef þannig ber undir. Eins og flestir vita er í gangi lögreglurannsókn á Ítalíu vegna Juventus þar sem talið er að forráðamenn félagins hafi hagrætt úrslitum í leikjum. 15.6.2006 11:13
Klinsmann ánægður með varamennina Jurgen Klinsmann, þjálfari Þjóðverja var að vonum ánægður með 1-0 sigur sinna manna á Pólverjum í gær. Hann var sérstaklega ánægður með innkomu varamannanna í leiknum en það var Oliver Neuville sem skoraði sigurmark heimamanna en hann hafði komið inná stuttu áður. 15.6.2006 11:00
Walter Zenga tekur við Gaziantepspor í Tyrklandi Walter Zenga, fyrrum landsliðsmarkvörður Ítalíu hefur verið ráðinn þjálfari hjá Tyrkneska liðinu Gaziantepspor. Zenga var þjálfari hjá Rauðu Stjörnunni í Belgrad í vetur. Hann var einnig orðaður við Livorno en fór heldur til Tyrklands og ætlar að rífa liðið upp sem átti ekki gott tímabil í vetur. 15.6.2006 10:43
Ítölsk lið á eftir Klose Fiorentina og Palermo hafa mikinn áhuga að fá til sín Miroslav Klose, landsliðsmann Þjóðverja og leikmann Werder Bremen. Klose sem er 28 ára gamall hefur nú þegar skorað tvö mörk á HM. Samningur hans við Bremen rennur ekki út fyrr en 2008 og spurning hvort hann hafi áhuga að söðla um og fara yfir Alpana til Ítalíu. 15.6.2006 10:39
Spánverjar bjartsýnir á gott gengi á HM Luis Aragones, þjálfari Spánar segir að lið hans hafi sett allt á haus hjá veðbönkum eftir 4-0 sigur liðsins gegn Úkraínu í gær. Spánverjar léku sannkallaðan konfekt fótbolta og voru án efa að sýna bestu tilþrif á HM til þessa. 15.6.2006 10:01
England mætir Trinidad og Tóbagó Að venju verða þrír leikir á dagskrá á HM í dag. Klukkan 13.00 hefst leikur Ekvador og Kosta Ríka. England mætir Trinidad og Tóbagó klukkan 16.00. Kvöldleikurinn er svo leikur Svía og Paragvæ og hefst hann klukkan 19.00. Allt þetta og miklu meira á Sýn. 15.6.2006 09:51
Þykir ekki mikið til Englendinga koma Beenhakker sagði að sínir menn bæru virðingu fyrir Englendingum en þeir hefðu hins vegar ekki hrifist af leik Englendinga gegn Paragvæ. „Við sáum Englendingana í tómum vandræðum allan leikinn á móti Paragvæ.“ 14.6.2006 22:00
Ronaldo fær annan séns Brasilíski framherjinn Ronaldo sem að leikur með Real Madrid mun fá annan séns í byrjunarliði Brasilíu þrátt fyrir afleita frammistöðu í leiknum gegn Króötum á þriðjudag. 14.6.2006 17:39
Spánn valtaði yfir Úkraínu Spánverjar voru með algera yfirburði í leiknum og léku sér á köflum að Úkraínumönnunum. Þetta er án efa besta frammistaðan sem sést hefur á mótinu til þessa og verða Spánverjar að teljast mjög líklegir til árangurs eftir þessa frammistöðu. 14.6.2006 17:30
Si, claro Það var í dag sem það gerðist, að Spánverjar sprengdu HM í loft upp. Þetta var engin venjuleg sólarlandaferð, þegar þeir tóku Úkraínu 4-0, alveg nýtt spánskt fótgöngulið, sem fór með Shevchenko og félaga einsog þeir væru í fjórða flokki. 14.6.2006 17:14
Leikir dagsins Þrír leikir er á dagskrá á HM í dag. Klukkan 13.00 er athyglisverður leikur á milli Spánar og Úkraínu. Klukkan 16.00 er svo leikur Túnis og Sádí Arabíu. Kvöldleikurinn er svo leikur nágrannaþjóðanna Þýskalands og Póllands. Allt þetta og miklu meira á Sýn í dag. 14.6.2006 10:45
Stór Kaka Markið sem Kaka leikmaður AC Milan skoraði undir lok fyrri hálfleiks, fer í sögubækur, hreint ótrúlega yfirvegaður leikmaður, skotið hnitmiðað, í hornið fjær, einfalt, stílhreint, og hann einn besti maður liðsins, kannski sá eini sem stóð undir þessum geggjuðu kröfum sem gerðar eru til drengjanna í gulu peysunum. 14.6.2006 00:15
Brasilía er yfir 1-0 í hálfleik Brasilíumenn leiða í hálfleik í leiknum gegn Króatíu á HM í Þýskalandi. Það var snillingurinn Kaka sem skoraði markið á 44. mínútu með hnitmiðuðu skoti fyrir utan vítateig. Króatar sem hafa leikið vel í leiknum urðu fyrir áfalli þegar Nico Kovac þurfti að fara meiddur af leikvelli. 13.6.2006 19:56
Brassar stíga senn á dansgólfið Nú styttist í leik Brasilíu og Króatíu á HM. Það ríkir mikil eftirvænting eftir því að sjá "Sambakóngana" í brasilíska liðinu stíga inn á það dansgólf sem HM er fyrir þá. Liðin eru þannig skipuð. 13.6.2006 18:44