Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Leikir dagsins á Sýn Þrír leikir verða á dagskrá á HM í dag. Veislan byrjar klukkan 13.00 er Suður Kórea og Togo spila saman en þau eru í G-riðli. Klukkan 16.00 er svo leikur Frakka og Sviss í sama riðli. Kvöld leikurinn er svo Brasilía og Króatía og hefst hann klukkan 19.00. 13.6.2006 11:15
Við verðskulduðum sigur Marcello Lippi, þjálfari ítala segir að lið sitt hafi verðskuldað 2-0 sigur á Ghana í gær. Ítalska liðið hafði mikið fyrir því að innbyrða þennan sigur en það voru þeir Andrea Pirlo og Vincenzo Iaquinta sem gerðu mörk liðsins í þessum leik. 13.6.2006 11:06
Adriano hvetur Emerson til að leika með Inter Adriano, framherji Brasilíu og Inter á Ítalíu, hvetur landa sinn Emerson til þess að fara til Inter, fari svo að Juventus verði dæmt niður um deild. Emerson hefur áður sagt að það komi ekki til greina að spila í Ítölsku B deildinni og því ljóst að hann muni yfirgefa félagið fari svo að það verði dæmt niður um deild. 13.6.2006 07:00
Óvissa með Justo Villar Justo Villar, markvörður Paragvæ, mun fara í læknisskoðun í dag þar sem úr því verður skorið hvort að leikmaðurinn verði meira með á HM. 13.6.2006 06:00
Bera til baka fregnir af slagsmálum Svía Forráðamenn sænska landsliðsins neita þeim orðrómi að slagsmál hafi brotist út í búningsherbergi þeirra eftir jafnteflið gegn Trinidad & Tobago. Fjölmiðlar hafa greint frá því að Freddy Ljungberg og Olaf Mellberg hafi lent í ryskingum inn í klefa sænska landsliðsins eftir leikinn, en forráðamenn sænska landsliðsins segja það algjöra vitleysu. 13.6.2006 05:00
Koller klár í 16 liða úrslit Jan Koller, framherji Tékklands, er bjartsýnn á að geta spilað meira fyrir Tékka á HM. Koller tognaði á læri í leik Tékklands og Bandaríkjanna í dag og var búist við því að hann yrði ekki meira með á mótinu. 13.6.2006 03:18
Blátt er best Það sást vel til himins í kvöld, Ítalir gera eins og Þjóðverjar, sækja frá fyrstu mínútu á lið sem eru óútreiknanlegar HM stærðir, Guðjón Guðmunsson gekk svo langt í kvöld að spá Ítölum heimsmeistaratitli, og hárrétt hjá honum, margir blaðamenn í Munchen voru þeirrar skoðunnar líka. Það sem af er, þessir fjórir leikdagar, eru sigur fótboltans. 13.6.2006 00:19
1-0 fyrir Ítalíu í hálfleik Það er hálfleikur í leik Ítalíu og Gana á HM. það var Andrea Pirlo sem það skoraði á 40. mínútu með þrumuskoti fyrir utan vítateig eftir sendingu frá Francesco Totti. Ítalir hafa verið sterkara liðið á vellinum. 12.6.2006 19:42
Totti byrjar Kl. 19:00 hefst leikur Ítala og Ganamanna. Þetta gæti orðið spennandi leikur. Það er alltaf búist við miklu af Ítölum en þeir misstigu sig illilega í síðustu keppni. Ganamenn eru stórt spurningarmerki og þeir koma eflaust til þess að reiða sig mikið á dýrasta Afríska knattspyrnumann allra tíma Micheal Essien. Athygli vekur að Francesco Totti er í byrjunarliði Ítala en hann hefur verið meiddur lengi. 12.6.2006 18:26
Aldrei eitt núll framar! Loksins, hefðbundinni 1-0 hm jarðarför, þar sem leikurinn fjarar út í leiðindum, var snúið til betri vegar, Tim Cahill jarðsetti Japani með tveimur mörkum með fimm mínútna millibili. Þvílíkur snillingur, þótt hann spili með Everton. Ég var orðin vondaufur þegar 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik, þetta verður enn eitt eitt núll svekkelsið, en ekki aldeilis. 12.6.2006 16:33
Leikmenn Englands óánægðir með skiptingarnar Leikmenn enska landsliðsin voru síður en svo ánægðir með skiptingarnar sem að Sven Göran Erikson gerði í leiknum gegn Paragvæ á föstudaginn. Leikmennirnir voru bæði hissa og ráðvilltir yfir ákvörðunum Sven Görans og sást það greinilega í andlitum þeirra þegar skiptingarnar áttu sér stað. 12.6.2006 12:45
Keane leggur skóna á hilluna Roy Keane hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna en hann hefur átt í erfiðleikum með að hrista af sér meiðsli á mjöðm sem hafa verið að hrjá hann á undanförnu tímabili. 12.6.2006 12:41
Athyglisverðir leikir á dagskrá Þrír leikir eru á dagskrá á HM í dag. Ástralía spilar við Japan klukkan 13.00. Klukkan 16.00 mætast svo Tékkar og Bandaríkjamenn. Dagurinn endar svo með leik Ítalíu og Ghana klukkan 19.00. 12.6.2006 10:28
Figo, þú sem ert á himnum Ég sé hálfvegis eftir því að hafa talað heldur illa um Louis Figo í 442 á Sýn í kvöld, reyndar ekki mjög illa, en við hverju býst maður af sjálfum Frelsaranum, sem steig upp til himna hjá Barcelona, en féll svo í neðra þegar hann fór til Real Madrid. Hann er án efa einn af þeim allra bestu. 12.6.2006 00:03
Hollendingar hvað? Serbarnir voru hálfvolgir í seinni hálfleik, en aldrei sérlega hættulegir og því miður, þegar hægri bakvörðurinn fær gult spjald fyrir að tefja, þá er hart í ári, alger óþarfi, Hollendingar eiga að gera það sem þeir gera best, sækja, sækja, sækja, og spila. 11.6.2006 20:36
"Sýnum hvað við getum og vinnum þessa keppni" Steven Gerrard, leikmaður enska landsliðsins segir að enska liðið eigi að sýna úr hverju það er gert og fara fulla á ferð áfram og vinna heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi í sumar. 11.6.2006 13:55
Miðjumenn Brasilíu hrósa ensku miðjunni Brasilíumennirnir Kaka og Emerson gáfu það út eftir fyrsta leik Englendinga í Þýskalandi að þeir teldu liðið hafa eina bestu miðju á að skipa í mótinu. 11.6.2006 13:48
Scolari búinn að skrifa undir nýjan samning Þjálfarinn Luiz Felipe Scolari sem gerði Brasilíumenn að heimsmeisturum árið 2002 hefur framlengt samning sinn við portúgalska knattspyrnusambandið til ársins 2008. 11.6.2006 13:39
Fótbolti er skemmtilegur Það er svo geðveikt hreinlega að sjá Fílabeinstrendinga, líktog einhver kallaði þá í dag, samanber Skagstrendinga, baráttulið og héngu í sterkum Argentínumönnum. Ég hef ekki verið mikill aðdáandi Drogba, en mikið andskoti er maðurinn duglegur á vellinum, og allt liðið raunar, sterkir, leiknir og áræðnir í meira lagi, þeir eiga mikið hrós skilið fyrir að gera þriðja leikinn í kvöld að stórkostlegri skemmtun lengstum. 11.6.2006 02:24
Kenningin segir að Þjóðverjar vinni HM Atli Eðvaldsson, þjálfari Þróttar og fyrrum landsliðsþjálfari Íslands kom með mjög skemmtilega kenningu í gær í þættinum 442 á Sýn. Þar segir Atli að árið 1974 þegar Þjóðverjar unnu HM sem var haldinn í Þýskalandi þá skoraði vinstrifótarmaður og bakvörður fyrsta markið fyrir Þýskaland og var það sjálfur Paul Breitner. 10.6.2006 16:05
Þvílíkur opnunarleikur á HM Það var mikið um dýrðir á opnunar degi HM í Þýskalandi. Okkar maður Þorsteinn J var á staðnum og hafði hann meðal annars þetta að segja um stemmninguna á opnunarleiknum: "fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti." 10.6.2006 13:34
Öskrandi fjör útá götu Gott kvöld, góðir gestir, þvílíkur opnunarleikur á HM, 4-2, og að sitja í þessum helgidómi, á nýja Munchenarvellinum, fánar í regnbogans litum, innfluttur amerískur bjór sem allir Þjóðverjar bölvuðu, en frábær fótbolti. 10.6.2006 13:29
Spámaðurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson spáir um úrslitin í leikjum dagsins á HM í Þýskalandi. Leikir dagsins eru Þýskaland - Kosta Ríka kl 16 og Póland - Ekvadór kl 19. 9.6.2006 11:18
Styttist í opnunarleikinn Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefst í dag. Flestir sparksérfræðingar eru sammála um að Þjóðverjar vinni Kosta Ríka auðveldlega í opnunarleik HM sem fer fram í kvöld, þrátt fyrir að vera án Michael Ballack. 9.6.2006 10:00
Hann spilar, spilar ekki, spilar... Morgun, 1.dagur: 2DF sjónvarpstöðin er að telja niður, 8 klukkustundir, og tæplega 40 mínútur í fyrsta leik. Þulurinn, kona á þrítugsaldrei, er í skærustu dragt sem ég hef nokkurn tíma séð, skærgræn, litur vonarinnar, hún er hress og kynnir efni í morgunþáttinn 9.6.2006 09:55
Hélt heim í jarðaför Oswaldo Sanchez, markvörður Mexíkó, yfirgaf í gær æfingabúðir Mexíkómanna og hélt heim til Mexíkó til þess að vera viðstaddur jarðarför föður síns. 9.6.2006 09:44
Stór hluti leikmanna veikur Stór hluti landsliðs Króatíu á HM hefur síðustu daga verið að glíma við veikindi. Um vírussýkingu er að ræða, þrátt fyrir það léku Króatar vináttuleik gegn Spánverjum í gær sem að þeir töpuðu naumlega 2:1. 8.6.2006 22:38
Segir að Rooney sé nú á sína ábyrgð Landsliðseinvaldur Englendinga segir að það muni vera hann og Wayne Rooney sem muni ákveða hvenær hann spili sinn fyrsta leik á HM, ekki Manchester United. 8.6.2006 22:25
1,5 milljarðar manna horfa á opnunarleik HM Búist er við því að 1,5 milljarðar manna horfi á opnunarleik HM, Þýskaland gegn Costa Rica á morgun kl 16:00. Fótboltaunnendur í 200. löndum munu horfa á opnunarleikinn í beinni, fjölmiðlasérfræðingar búast við því að 15, til 20, milljónir Þjóðverja muni horfa á lið sitt í sjónvarpi. 8.6.2006 22:20
FIFA mun beita tölvutækninni á HM FIFA mun beita tölvutækninni á HM, til þess að skera úr um hvort að um sjálfsmark eða ekki sé að ræða í þeim tilvikum þar sem að það á við. Þrettán aðilar innan FIFA munu fá myndir sendar beint í tölvuna hjá sér og geta þannig skorið um það hvort að markið sé sjálfsmark eður ei. 8.6.2006 22:12
Kahn bíður þess að Lehmann geri mistök Í Þýskalandi eru ekki allir vinir allavega ekki Jens Lehmann og Oliver Kahn. Þeir eru samt saman í liði. Þorsteinn J okkar maður á HM var staddur á Alianz Arena í Munchen í morgun. Það er magnað mannvirki sem skiptir litum á kvöldin. Hann segir orðrétt um völlinn „þetta er stórfenglegasti helgidómur sem ég hef komið í lengi“. Smellið á bloggið hans Þorsteins og lesið meira. 8.6.2006 15:25
Barcelona ætla að bjóða í Frank Lampard Barcelona eru tilbúnir að bjóða í Frank Lampard og ætla að láta Deco ganga upp í kaupin, en Deco lék einmitt undir stjórn Jose Mourinho hjá Porto þegar þeir urðu Evrópumeistarar fyrir 2 árum. 8.6.2006 15:08
Gerrad slæmur í bakinu Steven Gerrard segir að það séu helmingslíkur á að hann verði orðinn góður af bakmeiðslum fyrir leikinn gegn Paragvæ 10. júní. 8.6.2006 14:56
Larsson stefnir hátt með Svíþjóð Fyrrum leikmaður Celtic og Barcelona, Henrik Larsson segir að Svíar verði að hafa trú á því að þeir geti komist alla leið í úrslitaleikinn á HM í sumar. 8.6.2006 14:47
Helgidómurinn á HM Það verður að segjast að þessi nýi völlur hér í Munchen er stórkostlegur, ég hef verið á Nou Camp í Barcelona, Péturskirkjunni í Róm, kveikt á kerti í Landakotskirkju, en þetta er stórfenglegasti helgidómur sem ég hef komið í lengi. 8.6.2006 14:16
Nistelrooy verður seldur eftir HM Manchester United vill fá 15 milljónir punda fyrir hollenska framherjann Ruud van Nistelrooy. Nær öruggt er talið að Ruud yfirgefi United eftir harðvítugar deilur við Sir Alex Ferguson í lok leiktíðarinnar en forsvarsmenn félagsins vilja ekki láta hann fara fyrir ekki neitt. 8.6.2006 10:34
Sendu okkur HM-tengil Við viljum minna á að undir liðnum „þínar fréttir“ (hér neðst á síðunni) geta netverjar sent inn skemmtilega HM-tengla sem þeir hafa fundið á netinu. Vegna áhuga okkar á keppninni kemur allt til greina. Ferlið gæti ekki verið einfaldara, fyrst er skráð lýsing á tenglinum, svo í næstu línu er slóðin límd inn. 8.6.2006 10:01
Gerrard flaug til Englands í læknisskoðun Enski landliðsmaðurinn, Steven Gerrard, missti af æfingu í gær vegna verkja í baki. Þessi 26 ára leikmaður Liverpool þurfti að hætta á æfingu í fyrradag vegna þessa meiðsla og í gær flaug hann með Rooney til Englands í læknisskoðun. Líklegt þykir að Gerrard leiki ekki í fyrsta leik Englands gegn Parúgvæ á laugardaginn. 8.6.2006 09:47
Ballack gæti misst af opnunarleiknum! Fyrirliði Þýska landsliðsins, Michael Ballack, hefur ekki enn náð sér af þeim meiðslum sem hafa hrjáð hann undanfarna daga. Nú þykir það nærri öruggt að hann leiki ekki í opnunarleik mótsins á föstudaginn gegn Kosta Ríka. 8.6.2006 09:38
Der ball ist rund! Þetta er einföld heimspeki Þjóðverja þegar kemur að því að skilgreina fótbolta: Boltinn er hnöttóttur, der ball ist rund, og jájá. Ellefu leikmenn í hvoru liði, sæmilegur dómari og svo verður þetta að ráðst útfrá lögmálum boltans og bestu leikmanna. Öll liðin eru komin til Þýskalands og bíða nú dauða síns, fer eftir því hver fyrsti leikur er, en samt, þrír leikir og svo er eilífðin framundan. 7.6.2006 22:49
Öruggur um að komast alla leið Leikmaður Brasilíu Roberto Carlos segir að Brasilía hafi alltaf komist í úrslitaleikinn á HM, er hann hefur spilað með liðinu. Leikmaðurinn sem oft er mjög sjálfsöruggur sagði einnig að Brasilía myndi hræða Króata er Brassar hefja titilvörn sína á HM. 7.6.2006 19:17
Englendinga skortir skynsemi Jens Lehmann, markvörður Arsenal og þýska landsliðsins segir að Englendinga skorti skynsemi til að ná langt á stórmóti. Þessar tvær þjóðir gætu mæst í annarri umferð á heimsmeistaramótinu. 7.6.2006 18:36
Stefnir á að koma Englandi á óvart Roque Santa Cruz sem er framherji hjá Bayern Munchen ætlar ásamt liði sínu, Paragvæ, að koma Englendingum verulega á óvart með því að sigra þá í opnunarleik þjóðanna á HM. 7.6.2006 18:23
Terry vill gullbikar og ekkert minna á HM John Terry segir að leikmenn enska liðsins séu vanir því að vinna bikara með félagsliðum sínum en þeir eru allir úr silfri og að nú sé kominn tími á að taka alvöru bikar úr gulli með því að sigra HM. 7.6.2006 18:15
Með sama bílstjóra og Eros Ramazotti Þorsteinn J er kominn til Þýskalands þar sem allir hafa skoðun á HM. Tyrkneski leigubílstjórinn sem keyrði Þorstein og félaga vissi heldur betur hvað væri í gangi. Hann sagði Kosta Ríkamenn með samsæri gegn Þjóðverjum og að Íranar væru með skuggalegt lið. Lesið nýjustu bloggfærslu Þorsteins hér á HM-vefnum. 7.6.2006 11:24