Fleiri fréttir

Danny Guthrie til Newcastle

Newcastle hefur komist að samkomulagi við Liverpool um kaup á Danny Guthrie. Þessi 21. árs leikmaður var lánaður til Bolton síðasta tímabil og á aðeins eftir að ná samkomulagi við Newcastle um kaup og kjör.

Viðar hættur hjá Fylki

Miðjumaðurinn Viðar Guðjónsson er hættur hjá Fylki en frá þessu er greint á vefsíðu félagsins. Hann fékk fá tækifæri hjá liðinu og lék aðeins einn leik í Landsbankadeildinni.

Mendy kominn til Hull

Hull hefur fengið franska varnarmanninn Bernard Mendy á frjálsri sölu. Mendy er 26 ára og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hull sem er komið upp í ensku úrvalsdeildina.

Daníel valdi Víking

Daníel Hjaltason verður lánaður frá Val til Víkings út þetta tímabil. Tvö önnur lið í 1. deildinni höfðu áhuga á að fá Daníel, Stjarnan og Leiknir Breiðholti, en Daníel valdi Víking.

Brynjar Björn meiddur

Brynjar Björn Gunnarsson, leikmaður Reading, meiddist á æfingu í gær og fer í myndatöku eftir helgi. Talið er að liðbönd séu tognuð sem þýðir að Brynjar verður væntanlega úr leik í sex til átta vikur.

Sunderland á eftir Dorin Goian

Sunderland hefur áhuga á varnarmanninum Dorin Goian sem vakti athygli með Rúmeníu á Evrópumótinu í sumar. Goian leikur með Steaua Búkarest en er ofarlega á óskalista Roy Keane.

Portsmouth búið að ganga frá kaupum á Crouch

Peter Crouch er formlega orðinn leikmaður Portsmouth en hann var kynntur á blaðamannafundi sem nú stendur yfir. Portsmouth er talið hafa borgað Liverpool 11 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Liverpool fær markvörð

Brasilíski markvörðurinn Diego Cavalieri hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool. Þessi 25 ára leikmaður kemur frá Palmeiras en kaupverðið er ekki gefið upp.

Bjargvættur Víkinga tekur fram skóna í kvöld

Það verður mikið um dýrðir á vallarsvæði Víkings í Fossvoginum í kvöld en þá mun Björn Bjartmarz klæðast Víkingsbúningnum á nýjan leik. Björn er lifandi goðsögn hjá Víkingum eftir að hafa tryggt þeim Íslandsmeistaratitilinn 1991.

Eiður mun líklegast yfirgefa Barcelona

„Ég held að hann muni fara frá Barcelona og hann heldur möguleikunum opnum," segir Arnór Guðjohnsen, faðir og umboðsmaður Eiðs Smára, í viðtali við vefsíðu Sky.

Beckham næstum farinn í Milan

David Beckham segir litlu hafa munað að hann gengi til liðs við AC Milan í fyrra. Eftir að hafa yfirgefið Real Madrid vildi ítalska liðið fá Beckham sem ákvað á endanum að taka tilboði LA Galaxy í bandarísku MLS-deildinni.

Nasri búinn að skrifa undir

Arsenal hefur gengið frá kaupum á Samir Nasri, miðjumanni Marseille, en kaupverðið var ekki gefið upp. Þessi 21. árs leikmaður hefur skrifað undir langtímasamning við Arsenal.

Ronaldo frá í þrjá mánuði

Cristiano Ronaldo segist verða frá keppni í allt að þrjá mánuði eftir uppskurð sem framkvæmdur var á ökkla hans. Fyrst var talið að hann yrði aðeins frá í helming þess tíma.

Fowler æfir með Blackburn

Robbie Fowler ætlar að æfa með Blackburn Rovers á undirbúningstímabilinu en hann hefur hafnað nýjum samningi við Cardiff. Fowler er 33 ára en hann hefur ekkert spilað síðan í desember í fyrra.

Helgi tryggði Val sigur á KR

Helgi Sigurðsson var hetja Íslandsmeistara Vals í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á KR í vesturbænum. Valsmenn eru fyrir vikið komnir í þriðja sæti Landsbankadeildarinnar.

Komum hingað til að vinna

"Þetta var frábær sigur hjá okkur og mér fannst við eiga skilið að vinna þó við værum undir pressu undir það síðasta," sagði Helgi Sigurðsson Valsmaður í samtali við Stöð 2 Sport eftir 2-1 sigur Vals á KR í kvöld.

Markasúpa í 1. deildinni

Þrír leikir voru á dagskrá í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld og óhætt er að segja að leikmenn hafi verið á skotskónum.

Lampard vill koma til Inter

Yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter Milan á Ítalíu segir miðjumanninn Frank Lampard hjá Chelsea hafa áhuga á að fara til Ítalíu og spila undir fyrrum stjóra sínum Jose Mourinho.

Inter vinnur - vegna Mourinho

Marcello Lippi, landsliðsþjálfari Ítala, segir að Inter Milan sé sigurstranglegasta liðið á næstu leiktíð í A-deildinni. Hann byggir spá sína fyrst og fremst á þeirri staðreynd að Jose Mourinho sé þar orðinn þjálfari.

Barton þarf að dúsa áfram í fangelsi

Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle þarf að sitja í fangelsi í allt að einn mánuð í viðbót. Leikmaðurinn, sem situr í fangelsi vegna ofbeldisbrota, hafði gert sér vonir um að fá sig lausan mánuði fyrr en ætlað var gegn því að ganga með eftirlitsbúnað.

Ólga í herbúðum Barcelona

Mikil ólga ríkir nú í herbúðum spænska knattspyrnufélagsins Barcelona eftir að átta af sautján stjórnarmönnum þess sögðu af sér í dag til að mótmæla ákvörðun Joan Laporta forseta að sitja sem fastast eftir að í ljós kom að hann nýtur ekki stuðnings stjórnarinnar.

Beckham í stjörnuliði MLS

David Beckham var í dag valinn í sérstakt stjörnulið MLS deildarinnar bandarísku sem leika mun vináttuleik við enska úrvalsdeildarfélagið West Ham í Toronto síðar í þessum mánuði.

Elton Brand semur við 76ers

Mikið var um að vera á leikmannamarkaðnum í NBA deildinni í dag þegar félög í deildinni gátu kynnt nýja leikmenn sína til leiks.

Mancini orðinn leikmaður Inter

Amantino Mancini er orðinn leikmaður Inter en félagið náði samningum við Roma nú síðdegis. Mancini átti frábært tímabil með Roma og er hann fyrsti leikmaðurinn sem Jose Mourinho fær til sín.

Stjarnan vill fá Daníel Hjaltason

Daníel Hjaltason, leikmaður Vals, er að öllum líkindum á leið í 1. deildina. Stjarnan úr Garðabæ hefur bæst í hóp þeirra liða sem hafa áhuga á honum.

Birkir ætlar að kveðja með sigri

Birkir Már Sævarsson mun í kvöld leika sinn síðasta leik fyrir Val, að minnsta kosti í bili, þegar liðið heimsækir KR í stórleik í Landsbankadeildinni. Birkir sagði við Vísi að það væri mikill spenningur fyrir leiknum.

Zeljko hefur áhuga á að taka við HK

Stjórn HK hefur hvorki haft samband við Magnús Gylfason né Zeljko Óskar Sankovic um að taka við þjálfun liðsins. Sá síðarnefndi sagði við Vísi að hann hefði áhuga á starfinu.

Magni Fannberg næstur á blaði hjá HK-ingum?

Torfi Ólafur Sverrisson, formaður hjá HK, vildi hvorki játa né neita þegar Vísir spurði hann að því hvort Magni Fannberg væri í viðræðum við félagið um að taka við sem þjálfari meistaraflokks félagsins.

Mikill áhugi á Pálma Rafni

Erlend félagslið hafa áhuga á Pálma Rafni Pálmasyni, miðjumanni Vals. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá því að Stabæk í Noregi og Örebro í Svíþjóð væru bæði að sýna Pálma mikinn áhuga.

Toppslagir í 1. deild í kvöld

Það verða stórleikir í 1. deild karla í kvöld þegar 11. umferð hefst með þremur leikjum. Fjögur efstu lið deildarinnar mætast innbyrðis.

Garcia á leið til Tottenham

Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Tottenham komist að samkomulagi um kaup á Luis Garcia frá Espanyol. Enska liðið hefur unnið samkeppni við Benfica um þennan spænska leikmann.

Býst við spennu allt til enda

Lewis Hamilton, ökumaður McLaren, býst við því að úrslitin um meistaratitilinn í ár ráðist ekki fyrr en í lokin. Hann er jafn Kimi Raikkonen og Felipe Massa hjá Ferrari þegar tímabilið er hálfnað.

Blatter: Leyfið Ronaldo að fara

Sepp Blatter, forseti FIFA, er mótfallinn því að Manchester United haldi Cristiano Ronaldo gegn hans vilja. Spænska stórliðið Real Madrid vill fá Ronaldo sem hefur látið hafa eftir sér að draumur hans sé að leika með liðinu.

Boateng hefur náð samkomulagi við Hull

Nýliðar Hull City í ensku úrvalsdeildinni eru að ganga frá kaupum á miðjumanninum George Boateng frá Middlesbrough. Þessi 32 ára leikmaður hefur samþykkt tveggja ára samning.

Valsmenn hafa yfir í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í viðureign KR og Vals í Landsbankadeild karla. Íslandsmeistarar Vals hafa yfir 1-0 og það var markahrókurinn Helgi Sigurðsson sem skoraði mark Valsmanna rétt fyrir hlé.

KR - Valur í beinni á Boltavaktinni

Leikur KR og Vals í Landsbankadeild karla hófst klukkan 20:00 og verður fylgst grannt með öllu sem gerist á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins.

Mancini færist nær Inter

Brasilíumaðurinn Amantino Mancini, leikmaður Roma, mun að öllum líkindum ganga til liðs við Ítalíumeistara Inter. Samningar eru á lokastigi en kaupverðið er kringum 10 milljónir punda.

Maggette á leið til Warriors

Framherjinn Corey Maggette hefur samþykkt að ganga í raðir Golden State Warriors frá LA Clippers eftir því sem fram kemur í San Francisco Chronicle. Maggette mun fá um 50 milljónir dollara fyrir fimm ára samning, en hann skoraði 22 stig að meðaltali í leik með Clippers á síðasta vetri.

Ayesteran að taka við af Queiroz?

Breska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Pako Ayesteran komi til greina sem eftirmaður Carlos Queiroz hjá Manchester United. Blaðið segir Queiroz fyrsta manninn á lista portúgalska knattspyrnusambandsin til að taka við landsliðinu af Phil Scolari.

Casillas eða Torres fái gullknöttinn

Ítalskir fjölmiðlar segjast í dag hafa heimildir fyrir því að baráttan um gullknöttinn fræga verði milli spænsku landsliðsmannanna Fernando Torres og Iker Casillas.

Fulham í viðræðum við Zamora og Pantsil

Fulham hefur fengið leyfi hjá West Ham til að ræða við þá Bobby Zamora og John Pantsil með það fyrir augum að fá þá í sínar raðir. West Ham-mennirnir tveir eru sagðir helstu skotmörk Roy Hodgson, stjóra Fulham, á leikmannamarkaðnum í sumar.

Sambandið skorti kjark til að ráða mig

Luiz Felipe Scolari hefur upplýst að hann hafi verið tilbúinn að taka við enska landsliðinu eftir að hafa átt fund með forráðamönnum enska knattspyrnusambandsins fyrir tveimur árum síðan.

Sjá næstu 50 fréttir