Fleiri fréttir

Derby kaupir framherja

Botnlið Derby í ensku úrvalsdeildinni hefur gengið frá kaupum á mexíkóska framherjanum Emanuel Villa frá liði UAG Tecos fyrir um 2 milljónir punda. Villa er 25 ára gamall og hefur undirritað þriggja og hálfsárs samning við enska félagið.

NBA í nótt: Tæpt hjá toppliðunum

Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Toppliðin í deildinni unnu nauma sigra á lægra skrifuðum andstæðingum sínum.

Ísland og Noregur skildu jöfn

Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Norðmenn í öðrum leik sínum á æfingamótinu í Danmörku í dag 28-28 eftir að hafa verið með tveggja marka forystu í hálfleik 14-12.

Jafnt á Villa Park í hálfleik

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik í viðureign Aston Villa og Manchester United sem er lokaleikurinn í bikartörn dagsins á Englandi. Leikurinn hefur verið frekar bragðdaufur og Villa-menn verið afar varkárir í sínum sóknaraðgerðum.

Isaksson má fara

Sven Göran Eriksson, stjóri Manchester City, segir að markverðinum Andreas Isaksson sé frjálst að yfirgefa félagið. Þessi 26 ára Svíi er varamarkvörður fyrir Joe Hart.

Hinkel kominn til Celtic

Skoska liðið Glasgow Celtic hefur keypt þýska hægri bakvörðinn Andreas Hinkel frá spænska liðinu Sevilla.

Ísland tapaði fyrir Póllandi

Íslenska landsliðið tapaði fyrir því pólska í kvöld 31-35. Þetta var fyrsti leikurinn á fjögurra þjóða móti í Danmörku, LK Cup. Pólska liðið var með tveggja marka forskot í hálfleik.

Ragnar áfram hjá Gautaborg

Íslenski landsliðsmaðurinn Ragnar Sigurðsson hefur skrifað undir nýjan samning við sænsku meistarana í Gautaborg. Samningurinn er til ársins 2011.

Real setti risaverðmiða á Ramos

Það er ljóst að Real Madrid ætlar ekki að selja varnarmanninn Sergio Ramos til AC Milan nema Evrópumeistararnir séu tilbúnir að borga stjarnfræðilega upphæð.

Einar Örn til Hauka í sumar

Handknattleikskappinn Einar Örn Jónsson mun snúa heim í sumar og ganga til liðs við Hauka á ný. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hafnarfjarðarliðið sem tekur gildi í sumar.

Sevilla mætir Barcelona

Í dag var dregið í 16-liða úrslit spænsku bikarkeppninnar og bar þar helst til tíðinda að Sevilla mætir Barcelona.

Danny Mills lánaður til Derby

Varnarjaxlinn Danny Mills mun klára tímabilið með Derby í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann var lánaður þangað frá Manchester City.

Hannes: Ekki mér að kenna

Hannes Þorsteinn Sigurðsson segir í samtali við norska ríkisútvarpið að það hafi ekki verið honum að kenna að ráðist var á hann í miðbæ Reykjavíkur.

Butt: Allardyce má ekki fara

Nicky Butt hefur komið knattspyrnustjóra sínum hjá Newcastle, Sam Allardyce, til varnar og segir að félagið verði að halda tryggð við hann.

Hutton hafnaði Tottenham

Varnarmaðurinn Alan Hutton hefur hafnað því að ganga til liðs við Tottenham sem hefur átt í viðræðum við Rangers um kaup á honum fyrir átta milljónir punda.

Stórt tap Lottomatica Roma

Lottomatica Roma tapaði í gær fyrir Fenerbahce á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í körfubolta, 84-63. Jón Arnór Stefánsson lék ekki með liðinu.

Gunnlaugur verður með Formúluna á Sýn

Sjónvarpsstöðin Sýn hefur senn beinar útsendingar frá Formúlu 1 kappakstrinum. Gunnlaugur Rögnvaldsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður útsendinganna en hann hefur sinnt Formúlu 1 umfjöllun á Íslandi á þriðja áratug, ýmist fyrir dagblöð, tímarit eða sjónvarp.

Elías Már til Hauka

Elías Már Halldórsson er genginn til liðs við Hauka í N1-deildinni. Elías kemur frá þýska liðinu Empor Rostock en áður lék hann með Stjörnunni og HK.

Vorum hreint út sagt ömurlegir

„Við vorum bara hræðilega lélegir. Ég ætla ekki að taka neitt af Grindavík, þeir spiluðu vel og allt það en við vorum hreint út sagt ömurlegir," sagði Sigurður Ingimundarson.

Hverjir fá tækifæri hjá Capello?

Fyrsti leikur enska landsliðsins undir stjórn Fabio Capello verður gegn Sviss þann 6. febrúar. Fróðlegt verður að sjá hvaða leikmenn munu hljóta náð fyrir augum þess ítalska.

Ivanovic á leið til Chelsea

The Sun greinir frá því að serbneski varnarmaðurinn Branislav Ivanovic sé á leið til Chelsea. Blaðið segir að leikmaðurinn muni koma til London á næstu dögum og skrifa undir samning.

Scholes farinn að æfa á ný

Miðjumaðurinn Paul Scholes er farinn að æfa á ný með Manchester United og reiknar með að vera orðinn keppnisfær í lok mánaðarins.

Lippi orðaður við Bayern

Fréttir frá Ítalíu herma að forráðamenn Bayern München muni á næstu dögum funda með Marcello Lippi.

Stórleikur í Grindavík í kvöld

Það verður sannkallaður stórleikur í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld þegar grannarnir Grindavík og Keflavík eigast við í Röstinni í Grindavík. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn og hefst klukkan 20.

Barton laus gegn tryggingu

Joey Barton hefur verið látinn laus úr fangelsi gegn tryggingu. Honum var fyrr í dag neitað að losna úr fangelsinu, en eftir klukkustundar réttarhöld nú síðdegis samþykkti dómari að leysa hann úr haldi. Hann mætir aftur fyrir rétt þann 16. janúar.

Pandev í stað Berbatov?

Enginn knattspyrnumaður á Englandi fær meiri umfjöllun í fjölmiðlum í fjölmiðlum þar í landi þessa dagana en Dimitar Berbatov hjá Tottenham. Daily Mail hefur sýnar skoðanir á framtíð framherjans snjalla.

Everton kaupir ungan varnarmann

Everton hefur náð samkomulagi við Plymouth um kaup á varnarmanninum Dan Gosling sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir Plymouth aðeins 16 ára gamall. Hann á að baki 10 leiki fyrir liðið og hefur átt sæti í yngri landsliðum Englands.

Barton grætur af hræðslu í fangelsinu

Svo virðist sem Joey Barton hjá Newcastle sé ekki sami harðjaxlinn í fangelsinu og á knattspyrnuvellinum, en breska blaðið Sun segir hann í mikilli krísu í fangavistinni.

Sjá næstu 50 fréttir