Fleiri
Mús í Urriðamaga 10.5.2011 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Umfjöllun: Grétar tryggði Keflavík stig gegn FH Leikur Keflavíkur og FH í 3. umferð Pepsídeildar karla lauk með hádramatískum hætti. Fyrstu 80 mínútur leikins voru í rólegra laginu. Þá tók við stórskemmtileg atburðarrás. Matthías Vilhjálmsson skoraði úr glæsilegri aukaspyrnu. Viktor Örn í liði FH fær að líta rauða spjaldið skömmu seinna og á lokaandartökum leiksins jafnar varamaðurinn Grétar Hjartarson metin í 1-1 sem voru lokatölur leikins. Keflvíkingar hafa því safnað saman 5 stigum í fyrstu 3 umferðunum á meðan Íslandsmeistaraefnin í FH sitja aðeins á eftir með 4 stig. 11.5.2011 14:31
Stendur Warnock við orð sín og lætur Heiðar fá nýjan samning? London Evening Standard skrifar um mál Heiðars Helgusonar í dag en Heiðar vill gera nýjan samning við Queens Park Rangers sem vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni fyrir næsta tímabil. Blaðið veltir því fyrir sér hvort stjórinn Neil Warnock standi við orð sín frá því í mars en þá sagði hann að Heiðar myndi fá nýjan samning. 11.5.2011 14:15
Þrír nýliðar í landsliðshópi Sigurðar Ragnars fyrir Búlgaríuleikinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins, er búinn að tilkynna landsliðshóp sinn fyrir fyrsta leik stelpnanna í undankeppni EM 2013 sem verður á móti Búlgaríu á Laugardalsvellinum 19. maí næstkomandi. 11.5.2011 13:23
Yfirlýsing frá Val: Valur hefur í engu brotið reglur KSÍ Knattspyrnudeild Vals hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunnar fjölmiðla um formlega kvörtun KR-inga til KSÍ vegna afskipta þjálfara Vals af Ingólfi Sigurðssyni, Ingólfur er samningsbundinn KR en Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, sagði við Fréttablaðið að Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari Vals, hafi skipt sér fullmikið af máli Ingólfs sem vill losna frá KR. 11.5.2011 13:00
Micky Adams rekinn frá Sheffield United Í morgun tók enska Championship-liðið Sheffield United þá ákvörðun að reka Micky Adams úr starfi sem framkvæmdarstjóra liðsins. 11.5.2011 12:15
Woods og Mickelson: Ballesteros er goðsögn Seve Ballesteros lést síðastliðin laugardag úr krabbameini sem hann hafði barist við í langan tíma. Ballesteros var einn allra besti kylfingur síðari tíma og gríðarlega virtur innan golfheimsins. 11.5.2011 11:30
Röng íþróttasíða fylgdi Fréttablaðinu í dag Vegna mistaka fylgdi röng íþróttasíða Fréttablaðinu í dag. Síðan sem birtist í blaðinu í gær var birt aftur í dag. 11.5.2011 11:00
Roberts: Það verður ekkert partý hér Jason Roberts, leikmaður Blackburn Rovers, ætlar sér stóra hluti gegn Manchester United næstkomandi laugardag, en þá getur Man. Utd. tryggt sér enska meistaratitilinn í 19. sinn í sögu félagsins. 11.5.2011 11:00
Bynum fékk fimm leikja bann Andrew Bynum, leikmaður L.A. Lakers, missir af fimm fyrstu leikjum næsta tímabils en hann hefur verið dæmdur í bann fyrir óíþróttamannslega hegðun í leik fjögur gegn Dallas Mavericks. 11.5.2011 10:15
Webber mun berjast við Vettel í mótum Christian Horner, yfirmaður Red Bull segir að liðsmenn hans, Sebastian Vettel og Mark Webber muni takast á um sigra í mótum og tvö næstu mótssvæði hafi skilað Webber betri árangri en Vettel í fyrra. Keppt verður á Spáni um aðra helgi og Mónakó viku síðar. Vettel hefur unnið þrjú af fyrstu fjórum mótum ársins, en Lewis Hamilton eitt. 11.5.2011 09:48
Kaka hugsanlega á leið til Chelsea í skiptum fyrir Drogba Brasilíski miðjumaðurinn, Kaka, hefur verið sterklega orðaður við Chelsea að undanförnu og nú þegar móðir hans hefur einnig tjáð sig um málið á Twitter þá telja breskir fjölmiðlar það aðeins vera tímaspursmál hvenær Roman Abramovich, eigandi félagsins, gangi frá kaupum á þessum snjalla leikmanni. 11.5.2011 09:30
NBA: Chicago Bulls þarf aðeins einn sigur í viðbót Chicago Bulls er aftur komið í bílstjórasætið í einvíginu gegn Atlanta Hawks í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA-deildinni. Bulls sigraði Atlanta Hawks, 95-83, í fimmta leik liðanna og leiða því einvígið 3-2, en alls þarf að vinna fjóra leiki til að komast í næstu umferð. 11.5.2011 09:00
Saka Frey um óheiðarleg vinnbrögð Hinn 18 ára gamli leikmaður KR, Ingólfur Sigurðsson, setti allt á loft upp í Vesturbænum er hann ákvað að koma umkvörtunum sínum um félagið á framfæri á óvenjulegan. Hann setti inn færslu á samskiptasíðuna Twitter þar sem hann sagði ungum og efnilegum leikmönnum að halda sér frá KR. 11.5.2011 07:00
Guðjón: Fór í Val til að bæta mig sem fótboltamann Valsmaðurinn Guðjón Pétur Lýðsson er besti leikmaður 2. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. Guðjón Pétur átti mjög góðan leik í 2-0 sigri Vals í Grindavík og skoraði flottasta mark umferðarinnar. Guðjón er búin að skora í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum i Valsbúningum og Valsmenn eru einir á toppnum með fullt hús. 11.5.2011 06:00
Velkomin á Veiðivísi Nú höfum við sett í loftið veiðivef inná Vísi sem ber nafnið Veiðivísir. Hér kemur þú til með að finna veiðifréttir úr öllum áttum, hvort sem um er að ræða lax- og silungsveiði, veiðar á sjóstöng eða skotveiðar. Við viljum hvetja ykkur til að senda okkur veiðifréttir og myndir til að deila með lesendum okkar, og þegar aðeins verður liðið á veiðitímann komum við til með að fara í skemmtilega myndaleiki þar sem þið getið unnið til glæsilegra verðlauna. T.d. veiðileyfi o.fl. Við óskum ykkur ánægjulegra stunda við vötnin og árnar, og minnum ykkur á að byrja veiðiferðina með veiðifréttunum á Veiðivísi. Bestu kveðjur og góða skemmtun við bakkana í sumar! 10.5.2011 12:28
Stórhættulegt að kalla dómara "steik" Íslenskir dómarar virðast taka það mjög nærri sér að vera kallaðir "steik". Það hefur nú gerst í annað sinn að leikmaður fær rauða spjaldið fyrir að kalla dómara steik. 10.5.2011 23:30
Þolandi karatesparks Cantona réðst á þjálfara sonar síns Matthew Simmons, stuðningsmaður Crystal Palace, varð heimsfrægur á einni nóttu í janúar 1995, þegar hann reitti Frakkann Eric Cantona svo til reiði að Cantona réðst að honum með karatesparki. 10.5.2011 22:45
Enn ein þrennan hjá Ronaldo Portúgalinn Cristiano Ronaldo varð í kvöld fyrsti maðurinn í sögu spænsku úrvalsdeildarinnar til þess að skora sex þrennur á einni leiktíð. Ronaldo skoraði þrennu í 4-0 sigri Real Madrid á Getafe í kvöld. Karim Benzema komst einnig á blað. 10.5.2011 22:21
Mercedes styður Schumacher þrátt fyrir brösótt gengi Nobert Haug, yfirmaður Mercedes í akstursíþróttum segir að Mercedes styðji veru Michael Schumacher sem ökumanns liðsins í Formúlu 1 heilshugar, þó gengi hans hafi ekki verið sem best. Hann gerði þriggja ára samning við liðið í fyrra. Honum gekk heldur illa í mótinu í Tyrklandi á sunnudaginn. 10.5.2011 22:01
Hart: Nú þurfum við að vinna bikar Joe Hart og félagar í Man. City voru að vonum himinlifandi eftir sigurinn á Tottenham í kvöld enda er City með sigrinum búið að tryggja sér þáttökurétt í Meistaradeildinni að ári. 10.5.2011 21:41
Kristján þjálfari ársins í Svíþjóð Einn efnilegasti þjálfari Íslands, Kristján Andrésson, hefur heldur betur verið að gera það gott sem þjálfari síðan hann neyddist til þess að leggja skóna á hilluna á besta aldri. 10.5.2011 21:15
Redshaw sendur heim eftir 45 mínútur Þolinmæði Framara í garð Englendingsins Mark Redshaw var ekki mikil því hann hefur þegar verið sendur til síns heima. 10.5.2011 19:58
Berlin með góðan sigur Fuchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, er komið með tveggja stiga forskot á Rhein-Neckar Löwen í baráttunni um þriðja sætið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. 10.5.2011 19:45
Man. City leikur í Meistaradeildinni á næstu leiktíð Man. City tryggði sér í kvöld sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. City lagði þá Spurs, 1-0, og gulltryggði um leið fjórða sætið í deildinni. 10.5.2011 18:37
Redknapp: Við þurfum kraftaverk til þess að ná fjórða sætinu Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur viðurkennt að það þurfi mikið að gerast ætli liðið að komast aftur í Meistaradeildina. Tottenham er sex stigum á eftir Manchester City þegar þrjár umferðir eru eftir en liðin mætast einmitt í Manchester í kvöld. 10.5.2011 18:15
Gabbidon sektaður fyrir twitterfærslu Danny Gabbidon, leikmaður West Ham United, hefur verið sektaður af enska knattspyrnusambandinu eftir harða twitter færslu sem leikmaðurinn setti inn í apríl. 10.5.2011 17:30
Völsungur verður að kaupa varabúning Þó svo Völsungur frá Húsavík hafi fagnað bikardrættinum í dag, er liðið dróst gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks, þá skapaði drátturinn einnig ákveðið vandamál fyrir félagið. 10.5.2011 16:45
Adam og DJ Campbell héldu áfram að rífast á heimleiðinni Það vakti athygli í leik Tottenham og Blackpool í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi þegar Blackpool-mennirnir Charlie Adam og DJ Campbell vildu báðir fá að taka vítaspyrnu í seinni hálfleik. Það leyndi sér ekki að þeir voru mjög ósáttir og nú hefur komið í ljós að þeir héldu áfram að karpa um þetta á heimleiðinni norður til Blackpool. 10.5.2011 16:38
Líf í Elliðavatni Elliðavatn opnaði í lok apríl en fátt hefur verið í fréttum frá veiðimönnum þaðan. Risjótt veðurfar hefur sett strik í reikninginn en líka sú staðreynd að margir veiðimenn halda sig við gamla hefð og byrja ekki í vatninu fyrr en 1. maí sem var alltaf opnunardagsetning vatnsins hér áður. 10.5.2011 16:00
Gunnar Jarl dæmir ekki annað kvöld Gunnar Jarl Jónsson, knattspyrnudómari, mun ekki dæma leik í þriðju umferð Pepsi-deildar karla annað kvöld. Gunnar verður varadómari á leik Vals og ÍBV að Hlíðarenda. 10.5.2011 16:00
KR-ingar vilja ekki lána Ingólf í Pepsi-deildina Ingólfur Sigurðsson staðfesti það við Íþróttadeild Stöðvar 2 að hann vilji losna frá KR sem allra fyrst. Ingólfur setti inn harðorða færslu á twitter-síðu sína í gærkvöldi þar sem hann ráðlagði ungum leikmönnum að halda sig frá KR. Ingólfur tók færsluna út tíu mínútum síðar en þá var hún komin út um allt. 10.5.2011 15:30
Beckham gæti spilað með Man. Utd. í kveðjuleik Gary Neville Svo gæti farið að David Beckham, núverandi leikmaður LA Galaxy og fyrrverandi leikmaður Man. Utd., leiki með Manchester United í kveðjuleik Gary Neville gegn Juventus þann 24. maí, en sérstakur leikur hefur verið settur upp honum til heiðurs 10.5.2011 14:45
Redknapp ætlar að losa sig við Gomes Hinn margreyndi framkvæmdarstjóri Tottenham, Harry Redknapp, er búin að missa alla þolinmæði gagnvart Heurelho Gomes, markverði liðsins, og hefur sett markmiðið á að klófesta annaðhvort Shay Given frá Manchester City eða Maarten Stekelenburg frá Ajax. 10.5.2011 14:15
Ingólfur er tilbúinn að ganga langt til þess að losna frá KR Ingólfur Sigurðsson, 18 ára leikmaður KR í Pepsi-deild karla, er allt annað en sáttur með sína stöðu hjá félaginu en þetta kemur fram í viðtalið við leikmanninn inn á fótbolta.net. 10.5.2011 13:45
Eyjamenn fá til sín sterkan miðjumann Eyjamenn hafa ekki farið í felur með það að þeir vilja styrkja hópinn enn meira fyrir sumarið. Nú rétt í þessu var Bryan Hughes að semja við lið ÍBV, en hann lék til að mynda með Birmingham í átta ár. 10.5.2011 13:30
Keflvíkingar missa besta miðherja deildarinnar Keflvíkingar tilkynntu það á heimasíðu sinni í dag að ísfirski miðherjinn Sigurður Gunnar Þorsteinsson muni ekki endurnýja samning sinn við félagið. Sigurður Gunnar hefur verið í stóru hlutverki hjá Keflvíkingum undanfarin fimm ár og var á dögunum valinn í úrvalslið ársins í annað skiptið á þremur árum. 10.5.2011 13:00
Bikarmeistarar FH drógust gegn strákunum hans Óla Þórðar Í hádeginu var dregið í 32 liða úrslitum Valitors bikars karla í fótbolta og fór drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ. 20 lið stóðu eftir þegar annarri umferð lauk í gærkvöldi og liðin tólf úr Pepsi-deild karla bættust síðan við í pottinn. 10.5.2011 12:35
Vidic: Barcelona er sigurstranglegra liðið Nemanja Vidic, leikmaður Man. Utd., segir að Barcelona sé sigurstranglegra liðið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu sem fram fer á Wembley Stadium þann 28. maí næstkomandi. 10.5.2011 12:15
Willum sleppur með skrekkinn Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflvíkinga í knattspyrnu, mun ekki fá neina refsingu fyrir ummæli sín eftir leik KR og Keflavíkur á sunnudagskvöld, en þar fór þjálfarinn ófögrum orðum um frammistöðu Gunnars Jarls, dómara leiksins. 10.5.2011 11:30
Heiðdís gengur til liðs við Val Heiðdís Rún Guðmundsdóttir, fyrrum leikmaður meistaraflokks FH í handknattleik, hefur samið við Íslandsmeistara Vals fyrir næstkomandi tímabil, en samningurinn er til þriggja ára. 10.5.2011 11:00
Gerrard: Förum aftur framúr United á næstu árum Steven Gerrard, leikmaður Liverpool, tjáði sig um árangur Manchester United í enskum fjölmiðlum í gær, en hann telur að Liverpool eigi eftir að komast framúr Man. Utd. í baráttunni um fjölda meistaratitla. 10.5.2011 10:30
Óvænt úrslit í Valitor-bikarnum Það var mikið um að vera í Valitor-bikar karla í gærkvöldi en alls fóru fram ellefu leikir. Vísir greindi í gær frá frábærum leik milli Skagamanna og Selfyssinga sem fór alla leið í vítaspyrnukeppni og bráðabana þarsem Selfyssingar stóðu uppi sem sigurvegarar. 10.5.2011 09:33
OKC jafnði einvígið eftir þríframlengdan leik gegn Grizzlies Miami Heat er komið í algjöra lykilstöðu gegn Boston Celtics í undanúrslitum Austurdeildar NBA, en liðið bar sigur úr býtum, 98-90, eftir framlengdan leik. 10.5.2011 08:56
Einar: Óvíst hvort ég spila handbolta aftur "Þetta eru líklega endalokin. Ég er búinn að hitta lækni og hann er ekki bjartsýnn á framtíðina. Þetta er búið að vera mjög erfitt," sagði Einar Hólmgeirsson, leikmaður Ahlen-Hamm, sem hefur leikið sinn síðasta leik sem atvinnumaður. Tíminn mun svo leiða í ljós hvort hann spilar aftur handbolta síðar en svo gæti farið að hann verði að leggja skóna á hilluna. 10.5.2011 07:00