Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Wikileaks birtir myndir af saklausum Írökum deyja Vefsíðan Wikileaks hefur birt myndband sem sýnir hvernig nokkrir óvopnaðir Írakar, þar á meðal börn, voru skotin í Bagdad í júlí árið 2007. Fullyrt er að bandaríska leyniþjónustan hafi njósnað um fólkið og haft í hótunum við það eftir að upp komst að birta ætti myndbandið. 5.4.2010 16:52
Rændu spilavíti steinsnar frá höfuðstöðvum Interpol Grímuklæddir ræningjar komust á brott með um 25 þúsund pund þegar þeir réðust inn í spilavíti í frönsku borginni Lyon í gær og ógnuðu gestum og starfsfólki með hríðskotarifflum. Spilavítið er í miðborg Lyon og það sem meira er, það er aðeins steinsnar frá höfuðstöðvum Interpol, alþjóðlegu lögreglustofnuninni. 5.4.2010 20:00
NATO viðurkennir dráp á óbreyttum borgurum Talsmenn NATO í Afganistan viðurkenndu í gærkvöldi að fimm óbreyttir borgarar hefðu látist í næturárás á hús í suðausturhluta landsins í febrúar síðastliðinn. Næturárásir af þessu tagi hafa verið harðlega gagnrýndar af heimamönnum í landinu og hefur Hamid Karzai forseti krafist þess að NATO láti af þeim þegar í stað. 5.4.2010 08:15
Snarpir skjálftar við strendur Mexíkó Snarpir jarðskjálftar skóku strendur Bandaríkjanna og Mexíkó í gærkvöld. Sá snarpasti var 7,2 á Richter. Hans varð vart í Baja Kalíforníu, Arizona og suðurhluta Kalíforníu, að því er fréttastofa CNN hefur eftir Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna. 5.4.2010 00:46
Reyndu að grafa sig inn í bankahvelfingu Enn ein tilraunin var gerð í nótt til þess að grafa göng inn í bankahvelfinu í París. Þetta er þriðja tilraunin á þessu ári þar sem svokölluð termítagengi reyna þessa aðferð við bankarán. Í þetta sinn reyndu mennirnir að grafa sig inn í hvelfingu BNP Paribas bankans en höfðu ekki erindi sem erfiði og þurftu frá að hverfa. Áður en þeir forðuðu sér kveiktu þeir eld í kjallara bankans til þess að reyna að fela slóð sína. 4.4.2010 20:19
Hóta hefndum fyrir morðið á Terreblanche Stuðningsmenn Suður-Afríska öfgaleiðtogans Eugene Terreblanche hóta nú hefndum en leiðtoginn var myrtur á búgarði sínum í nótt. Terreblanche hélt því fram að hvíti kynstofninn væri öðrum æðri og barðist hann fyrir sjálfstæðu ríki hvítra í Suður-Afríku. Lögregla segir að Terreblanche, sem var 69 ára gamall, hafi verið barinn til dauða af tveimur vinnumönnum á búgarðinum en þeir höfðu staðið í vinnulaunadeilu. 4.4.2010 14:25
Kínverskt kolaskip strandaði við Ástralíu Kínverskt kolaflutningaskip hefur strandað á Kóralrifinu mikla undan ströndum Ástralíu og óttast er að gríðarlegt mengunarslys sé í uppsiglingu. 4.4.2010 12:20
Þrjátíu féllu í þremur sprengingum í Bagdad Þrjár öflugar sprengjur sprungu í Bagdad höfuðborg Íraks í morgun. Innanríkisráðherra landsins segir að 30 séu látnir hið minnsta. Ein sprengjan sprakk nærri íranska sendiráðinu í borginni og önnur er sögð hafa sprungið nærri sendiráði Þjóðverja. Í fyrradag voru 25 Súnníar teknir af lífi af byssumönnum sem dulbúnir voru sem íraskir hermenn í úthverfi borgarinnar. 4.4.2010 10:45
Of feitur til að fara í fangelsi Maður í Flórída var á dögunum sakfelldur fyrir að svíkja út mat á fjölda veitingastaða og verslana. Hann játaði brotin fúslega á sig en þarf ekki að fara í fangelsi. Ástæðan fyrir því að George Joliceur þarf ekki að sitja inni er sú að kostnaður fangelsisins við að greiða fyrir læknisþjónustu og annað uppihald hans er of mikill. 4.4.2010 08:00
Pútín og Chavez hefja viðamikið samstarf Vladimir Pútín forsætisráðherra Rússlands er nú staddur í heimsókn hjá Hugo Chavez forseta Venesúela og hafa ríkin tvö undirritað ýmsa samninga, meðal annars samning um að Rússar aðstoði Venesúela við að koma sér upp kjarnorkuveri. Annar samningur gerir ráð fyrir að Rússar hjálpi landinu til að koma sér upp iðnaði á sviði geimvísinda. 3.4.2010 19:30
Reyndu að sökkva norsku hvalveiðiskipi Reynt var að sökkva norskum hvalveiðibáti í höfninni í Svolvær í Noregi í nótt. Líklegt er talið að hvalverndunarsinnar hafi staðið að baki en botnlokur skipsins voru fjarlægðar. Mikill leki kom að skipinu en eiganda þess tókst að koma í veg fyrir hann áður en skipið sökk. 3.4.2010 14:50
25 teknir af lífi í Írak Íraskir byssumenn myrtu í dag að minnsta kosti 25 manns sem hliðhollir voru hersveitum Súnnía sem eru andstæðingar Al Kæeda í landinu. Byssumennirnir dulbjuggu sig sem Íraska hermenn og fóru hús úr húsi í þorpi suður af Bagdad og handtóku fólk sem síðar var tekið af lífi. 3.4.2010 14:47
Þýskir hermenn fella bandamenn í Afganistan Þýskir hermenn á vegum fjölþjóðaliðs Nató í Afganistan felldu í gær að minnsta kosti fimm afganska hermenn fyrir mistök. Afganirnir voru í tveimur ómerktum bifreiðum og höfðu ökumennirnir ekki virt stöðvunarmerki þegar þeir óku upp að bílalest Þjóðverjanna í Kunduz héraði. Þjóðverjarnir voru á leið á svæði þar sem þrír félagar þeirra höfðu legið í valnum eftir bardaga við talíbana. 3.4.2010 13:15
Langmest framleitt af hassi í Afganistan Í Afganistan er ekki einungis framleitt meira ópíum en í öðrum löndum, heldur eru Afganir nú einnig orðnir afkastamestir ríkja heims í framleiðslu á hassi. 3.4.2010 06:00
Enn meiri ofveiði í krafti ESB-styrkjanna Styrkveitingar Evrópusambandsins í sjávarútvegi hafa orðið til þess að auka ofveiði frekar en að draga úr henni, samkvæmt nýrri skýrslu frá rannsóknarstofnuninni Pew Environment Group. 3.4.2010 06:00
Óttast að síamstvíburar muni deyja vegna skriffinnsku Foreldrar tvíbura systra sem komu í heiminn samgrónar á maga á Gaza svæðinu, óttast að þær kunni að deyja, þar sem skriffinska tefur fyrir því að hægt sé að koma þeim til Saudi Arabíu í nauðsynlegar aðgerðir. 2.4.2010 17:24
Sautján ára gömul stúlka grunuð um að hafa sprengt sig Sautján ára gömul ekkja uppreisnarmanns frá Kákasus er grunuð um að vera önnur þeirra sem sprengdu sig í loft upp á neðanjarðarlestarstöð í Moskvu á mánudagsmorgun. 2.4.2010 11:45
Fundu fíkniefni og vopn hjá dönskum Vítisenglum Danska lögreglan réðst í gær inn í klúbbhús Vítisengla í Árósum. Lögreglan hafði fengið vitneskju um að félagar í vélhjólaklúbbnum ætluðu að efna til veislu yfir páskana og ákvað að láta til skarar skríða áður en teitið hæfist. 2.4.2010 08:00
Súkkulaði gott fyrir hjartað Þýskaland, AP Súkkulaði gæti minnkað líkurnar á hjartasjúkdómum, samkvæmt nýrri þýskri rannsókn. Hún leiddi í ljós að þeir sem borða lítinn skammt af súkkulaði á hverjum degi gætu minnkað líkurnar á að fá hjartaáfall eða heilablóðfall um allt að 40 prósent. 1.4.2010 06:00
Íranskur kjarnorkufræðingur í Bandaríkjunum Íranskur kjarnorkuvísindamaður hefur fengið pólitískt hæli í Bandaríkjunum að sögn ABC fréttastofunnar. 31.3.2010 16:14
Búrkur og blæjur bannaðar í Belgíu Þverpólitísk þingnefnd í Belgíu samþykkti einróma í dag að banna blæjur og annan klæðnað sem algerlega hylur andlit manna. 31.3.2010 15:21
Biskupar hvetja fólk til að kæra misnotkun Evrópskir biskupar eru farnir að hvetja fórnarlömg kynferðislegrar misnotkunar í kaþóolsku kirkjunni að fara með mál sín til lögregluyfirvalda. 31.3.2010 15:05
Skoda með fljótasta löggubílinn í Danaveldi Skoda og Ford umboðin í Danmörku eru komin í pínulítið stríð út af löggubílum. Í síðustu viku sagði Extrabladet frá Ford Focus sem umboðíð hafði látið mála sem lögreglubíl. 31.3.2010 14:21
Krabbameinsleit fremur gagnleg en skaðleg Krabbameinsleit í brjóstum gerir meira gagn en ógagn. Fjöldi lífa sem bjargað er með slíkri leit er tvöfaldur á við þær leitir sem gerðar eru að tilefnislausu. Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem gerðar voru á 80 þúsund konum. 31.3.2010 10:36
Loftslagsprófessor gerði ekkert rangt Vísindanefnd breska þingsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að prófessor sem var í miðdepli hins svokallaða tölvupóstahneykslis í loftslagsmálum hafi ekki falsað neinar niðurstöður. 31.3.2010 09:48
Ellefu fórust í sjálfsmorðssprengjuárás Að minnsta kosti ellefu fórust í tveimur sjálfsmorðssprengjuárásum í bænum Kisljar á Kákasussvæðinu við Rússland í nótt. Meðal þeirra sem fórust voru sex lögreglumenn. Þjóðarsorg var í Rússlandi í gær vegna hryðjuverkanna í Moskvu í fyrradag. 31.3.2010 08:09
Fresta skýrslu um morðið á Bhutto Sameinuðu þjóðirnar hafa frestað útgáfu skýrslu um morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistan, að beiðni pakistanskra stjórnvalda. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, samþykkti þessa frestun í gær, einungis fáeinum klukkustundum áður en skýrlsan átti að koma út. Bhutto var myrt í sjálfsmorðsárás á leið sinni á framboðsfund í Rawalpindi í desember 2007. 31.3.2010 08:00
Rændu 100 indverskum sjómönnum Sómalskir sjóræningjar hafa rænt meira en 100 indverskum sjómönnum undan ströndum Sómalíu. Gíslarnir voru á sjö til átta farþegaskipum þegar þeim var rænt, en skipin eru núna á valdi sjóræningjanna. 31.3.2010 08:00
Biðjast afsökunar á fjöldamorðunum í Srebrenica Serbneska þingið samþykkti í gær ályktun þar sem beðist er afsökunar á fjöldamorðunum í Srebrenica fyrir fimmtán árum síðan. Í ályktuninni segir að Serbar hefðu átt að gera meira til þess að koma í veg fyrir þær hörmungar sem urðu. Um átta þúsund múslimar í Bosníu voru myrtir í árásunum en árásarmennirnir voru bandamenn Slobodans Milesovic, sem þá var forseti Serbíu. Ályktunin var samþykkt með naumum meirihluta eftir 13 tíma umræður í serbneska þinginu. 31.3.2010 07:51
Súkkulaði dregur úr líkum á hjartasjúkdómum Líkurnar á því að fá hjartasjúkdóma eða heilablóðfall geta minnkað um 39%, borði menn súkkulaði á hverjum degi. Þetta fullyrðir þýskur næringarfræðingur sem hefur rannsakað málið. 31.3.2010 07:00
Örfáir eru algerlega öruggir Aðeins einn af hverjum fjörutíu ökumönnum getur ekið bíl og talað í farsíma á sama tíma án þess að það bitni á öryggi hans og ökuhæfileikum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. 31.3.2010 04:00
Róteindir nálguðust ljóshraða Sviss, ap Vísindamönnum við Evrópsku kjarnorkurannsóknarstöðina (CERN) tókst í gær að koma róteindum nærri hraða ljóssins og láta þær svo rekast saman í risavöxnum sterkeindahraðli. 31.3.2010 03:00
Ísraelar ósamstiga um kröfur Bandaríkjanna Ísrael, AP Tilgangur Baracks Obama með því að boða Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, á sinn fund í Washington í síðustu viku var að kynna þær kröfur sem Bandaríkjamenn gera til Ísraelsstjórnar. 31.3.2010 03:00
Hægir á verðhækkun orku Tólf mánaða verðbólga í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) minnkaði lítillega í febrúar á þessu ári, var 1,9 prósent. Í fyrra mánuði mældist 2,1 prósents verðbólga. 31.3.2010 02:00
Óvíst um afdrif námumanna Kína, AP Ættingjar 153 námuverkamanna kröfðust svara og aðgerða af björgunarfólki og stjórnvöldum í Kína. Um þúsund björgunarmenn hafa unnið á vöktum við að bjarga mönnum úr námu í Shanxi-héraði eftir að vatn flæddi niður í hana á sunnudag. 31.3.2010 01:00
Kanada löðrungaði Hillary Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna fékk óþægilegan skell í Kanada í dag. 30.3.2010 17:12
Helstirnið í nærmynd Cassini geimfarið tók þessa mynd af Mimas tungli Satúrnusar úr aðeins 9.500 kílómetra fjarlægð. Það er það næsta sem geimfar hefur farið tunglinu. 30.3.2010 16:44
Þakhluti á höll Nerós hrundi í dag Stór hluti af þakinu á hinni Gullnu höll Nerós í Róm hrundi í dag. Ekki er vitað til þess að neinn hafi orðið þar undir, en slökkviliðsmenn hafa girt svæðið af og eru að leita í rústunum. 30.3.2010 15:47
Með hríðskotariffla í neðanjarðarlestum Lestarfarþegum í neðanjarðarlestum í New York brá í brún í morgun þegar þeir sáu lögreglumenn með hríðskotariffla, hjálma og í skotheldum vestum um borð í lestarvögnunum. 30.3.2010 14:24
Hvar í helv... er klósettpappírinn? Starfsmenn í Stjórnsýslumiðstöð breska ríkisins í West Midlands eru öskureiðir yfir því að búið er að setja upp tímamæla sem slökkva ljós á klósettum miðstöðvarinnar eftir tíu mínútur. 30.3.2010 13:45
Morðkvendin í Moskvu hyllt Margar vefsíður sem tengjast Al Kaida hafa hyllt konurnar tvær sem myrtu þrjátíu og níu Rússa í sprengjuárásum á neðanjarðarlestarkerfi Moskvu í gær. 30.3.2010 11:03
Tony Blair aftur í slaginn Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands blandar sér í dag í kosningabaráttuna fyrir þingkosningarnar sem að öllum líkindum verða haldnar sjötta maí næstkomandi. 30.3.2010 10:24
Oksanen hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs Finnska skáldkonan Sofi Oksanen hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010. Verðlaunin hlýtur hún fyrir þriðju bók sína Puhdistus. 30.3.2010 10:07
Nú brosir Silvio breitt Það virðist vera nokkuð sama hversu mikið andstæðingarnir hamast á Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu. Hann heldur sínu og vel það. 30.3.2010 10:04
Viðurkennir að hafa ætlað að myrða Obama Tuttugu og eins árs gamall nýnasisti frá Tennesse í Bandaríkjunum hefur viðurkennt að hafa ætlað að myrða fjölda svartra Bandaríkjamanna. Þar á meðal Barack Obama, sem þá var öldungardeildarþingmaður og forsetaframbjóðandi. 30.3.2010 08:23