Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Óskaði Obama alls hins besta - hryðjuverkaárás vofir enn yfir George W. Bush fráfarandi Bandaríkjaforseti hélt sinn síðasta blaðamannafund á ferlinum í Hvíta húsinu í dag. Hann sat fyrir spurningum fréttamanna og þar kom meðal annars fram að engar líkur séu á vopnahléi á Gaza svæðinu ef Hamas samtökin hætta ekki að skjóta eldflaugum á Ísrael. 12.1.2009 14:56
Ástralir skelfingu lostnir yfir hákarlaárásum Kafarinn Steven Foggerty segist hafa fundið sting í annari löppinni og strax áttað sig á hverju sætti. „Ég leit niður til þess að athuga hvort lappirnar væru enn á sínum stað og sem betur fer voru þær það.“ Foggerty segist að því búnu hafa lamið og barið frá sér af öllum mætti til þess að verjast frekari árásum. Það bar árangur og forðaði hákarlinn sér. 12.1.2009 14:00
Sarah Palin sár og reið Sarah Palin er ekki búin að jafna sig eftir ósigurinn í bandarísku forsetakosningunum. Hún er bitur út í fjölmiðla sem hún segir hafa gert grín að sér. 12.1.2009 12:37
Heiftarleg átök á Gaza í morgun Ísraelskir hermenn og liðsmenn Hamas hafa háð heiftarlega skotbardaga á Gaza ströndinni í morgun. Tæplega 900 Palestínumenn hafa fallið í átökunum. 12.1.2009 12:06
Serbar setja fé til höfuðs Mladic Serbnesk yfirvöld heita nú einni milljón evra í verðlaun fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku stríðsglæpamannsins Ratko Mladic. 12.1.2009 08:31
Gasmál ESB og Rússa enn í uppnámi Enn eru gasmál Evrópusambandsins og Rússa í uppnámi eftir að þeir síðarnefndu sögðu upp samkomulagi um eftirlit með gasdælingu gegnum Úkraínu til ríkja ESB. 12.1.2009 08:24
Asíubréf lækkuðu í morgun Hlutabréf á asískum mörkuðum lækkuðu í morgun, einkum bréf iðn- og framleiðslufyrirtækja hvers kyns. Bréf alþjóðlega námufyrirtækisins Rio Tinto Group, móðurfélags Alcan í Straumsvík, lækkuðu til að mynda um 5,3 prósentustig og Keppel-fyrirtækið, sem smíðar olíuborpalla, lækkaði um rúmlega sjö prósentustig eftir að stór pöntun til þess var dregin til baka. 12.1.2009 08:22
Humarinn Georg slapp naumlega við að verða étinn Dýraverndunarsamtök björguðu hundrað og fjörutíu ára gömlum risahumri naumlega frá því að enda ævina á matardiski. 12.1.2009 08:15
Bresk ferðaþjónusta berst í bökkum vegna ruddalegs starfsfólks Breska ferðaþjónustan á á hættu að tapa sem nemur rúmlega 750 milljörðum króna komi tvennt ekki til - pundið hætti að veikjast og breskir hótelstarfsmenn venji sig á almenna mannasiði. 12.1.2009 08:08
Aftakaveður í Noregi um helgina Norðmenn fengu heldur betur að finna fyrir náttúruöflunum um helgina þegar aftakaveður gekk yfir nánast allan Noreg á sama tíma. Snjóflóð og grjótskriður lokuðu vegum, óvenjuhátt sjávaryfirborð olli flóðum víða við strendur og úrkoma var langt yfir meðallagi enda gengu tvær krappar lægðir samtímis yfir landið. 12.1.2009 07:25
Fimmtán dönsk börn í SMS-meðferð í fyrra Um það bil 15 dönsk börn og ungmenni gengust á síðasta ári undir meðferð hjá sérstakri hjálparstofnun á Sjálandi til að venja sig af SMS-fíkn. Að sögn starfsmanns stofnunarinnar var yngsti skjólstæðingurinn tólf ára gamall. 12.1.2009 07:24
Slapp ótrúlega vel frá hákarlsárás Þrettán ára stúlka þykir hafa sloppið ótrúlega vel frá árás fimm metra langs hvíthákarls undan austurströnd Ástralíu um helgina en hákarlinn beit brimbretti, sem stúlkan var á, í tvennt og slasaði hana alvarlega á hægra fæti. 12.1.2009 07:20
Morðalda í Mexíkó Morð og mannrán eru um þessar mundir tíðari í Mexíkó en nokkru sinni fyrr og hyggjast stjórnvöld þar í landi grípa til stórhertra aðgerða gegn eiturlyfjahringjum og skipulagðri glæpastarfsemi. 12.1.2009 07:17
Pandan Gu Gu söm við sig Pandan Gu Gu í dýragarðinum í Peking er allt annað en gestrisin í garð óboðinna gesta. Á því fékk maður að kenna á miðvikudag þegar hann klifraði yfir eins og hálfs metra háa girðingu til að ná í leikfang sem fimm ára sonur hans hafði misst ofan í búr pöndunnar. 12.1.2009 06:00
Bush heldur upp á afmælið með fallhlífarstökki George H.W. Bush eldri, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, ætlar að halda upp á 85 ára afmælið sitt með því að stökkva í fallhlíf. Sonur hans, George W. Bush yngri og núverandi Bandaríkjaforseti segir hann klikkaðan. 11.1.2009 20:57
Þúsundir gætu látist úr kulda og flensu í Bretlandi Kuldi og flensa gætu fellt þúsundir manna í Bretlandi í vetur að mati mannúðarsamtaka þar í landi. Mikill kuldi, skæð flensa og efnahagskreppan koma illa við eldri borgara og þá sem veikari eru fyrir. 11.1.2009 16:13
Obama boðar breytingar á utanríkisstefnu Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, boðaði breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í viðtali í dag. Hann sagðist vilja beinar viðræður á skilyrða við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Hann segist ætla að standa við loforð sitt um að loka Guantanamo-fangabúðunum. 11.1.2009 19:34
Harðir bardagar á Gaza í dag Ísrelskir hermenn börðust í návígi við herskáa Palestínumenn í úthverfum Gaza-borgar í dag. Bardagarnir munu þeir hörðustu frá upphafi landhernaðar Ísraela á Gaza fyrir rúmri viku. 11.1.2009 19:15
Sænskt sjúkrahús jafnað við jörðu á Gaza Ísraelsher jafnaði í dag við jörðu sjúkrahús sem sænska kirkjan rekur á Gazaströndinni. Sjúkrahúsið varð fyrst fyrir flugskeyti úr þyrlu hersins og skömmu síðar rigndi skotum frá skriðdrekum yfir húsið. Engann sakaði, en sjúkrahúsið er gjörónýtt. 11.1.2009 17:59
Ellilífeyrisþegi kveikti í þingmanni Reiður ellilífeyrisþegi réðst á singapúrskan þingmann í dag og kveikti í honum, vegna óánægju með að hafa ekki fengið nýársgjöf. 11.1.2009 15:15
Bretar vilja úr ESB Nærri tveir þriðjuhlutar breskra kjósenda vilja skera á tenglsin við Evrópusambandið að hluta eða alfarið. 11.1.2009 12:01
Ferja sökk í aftakaveðri Ferja með 250 farþega og 17 manna áhofn innanborðs sökk í aftakaveðri í austurhluta Indonesíu í nótt. Samgönguráðherra landsins sagði að 150 hefði verið náð úr flakinu, en tiltók ekki hvort fólkið var lífs eða liðið. Talsmaður ráðuneytisins sagði fyrr í dag að vitað væri að átján manns hefðu lifað slysið af. Fellibylur geysar nú á svæðinu og er ölduhæð mikil. 11.1.2009 11:15
Opnað fyrir gasið Eftirlitsmenn frá Evrópusambandinu eru á leið til gasdælustöðva í Úkraínu til að hafa eftirlit með rússagasi sem flæðir um leiðslur þar til viðskiptavina í Mið- og Suður-Evrópu. Rússar skrúfuðu fyrir gas til Úkraínumanna í desember vegna deilna um verð. Þeir sökuðu síðan Úkraínumenn um að stela úr leiðslum gasi sem átti að fara annað og skrúfuðu fyrir það líka. Nú verður opna fyrir það streymi eftir að ráðamenn í Kænugarði samþykktu í gær að hleypa eftirlitsmönnum inn í landið. Þannig fá krókloppnir Evrópubúar aftur gas til húshitunar en það getur þó tekið allt upp í þrjá sólahringa að fá fram fullt flæði. Gasdeila Rússa og Úkraínumann er enn óleyst. 11.1.2009 10:23
Bretaprins biðst afsökunar Harry Bretaprins hefur beðist afsökunar á orðbragði sínu á upptöku sem breska blaðið News of the World birtir í dag. Upptakan er frá 2006 og tekin af félaga prinsins þar sem þeir og fleiri liðsforingjaefni í breska hernum biðu eftir flugi til æfingabúða á Kýpur. Í samtali notar Harry niðrandi orð um Pakistana og Araba. Hann talar um "Paki" þegar hann vísar til kunningja síns frá Pakistan en það orð þykir afar niðrandi. Harry kallar einnig annan félaga sinn handklæðahaus eða "raghed" sem þykir bera vott um fordóma í garð Araba og vísa til höfuðklúta þeirra. Prinsinn hefur sent frá sér opinbera afsökunarbeiðni og segist harma orðavalið. Ummælin hafi hins vegar ekki átta að vera meiðandi. 11.1.2009 09:45
Sjóræningjar fengu þrjár milljónir dollara Sómalskir sjóræningjar hafa í gær og í morgun skilað tveimur skipum sem þeir rændu í nóvember. Annað þeirra er sádí arabísk risaolíuskip. Fyrir það fengust þrjár milljónir bandaríkjadala í lausnargjald. Fimm sjóræningjanna drukknuðu skömmu eftir að þeir höfðu skilað skipinu. 10.1.2009 12:20
Sérfræðingar vonlitlir um vopnahlé á Gaza Þrátt fyrir að Hamas-samtökin og Ísraelar hafi sent fulltrúa til Egyptalands til viðræðna um vopnahlé á Gaza dvína vonir um að nokkuð verði af samkomulagi um slíkt. Sprengjum rigndi yfir Gaza í nótt fimmtánda daginn í röð og flugskeytum var áfram skotið á Ísrael. 10.1.2009 12:12
Obama til í að tala við Hamas Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, mun að líkindum láta af þeirri stefnu George Bush fráfarandi forseta að einangara Hamas-samtökin og neita viðræðum við þau um átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Breska blaðið Guardian hefur þetta eftir heimildarmönnum úr ráðgjafahóp Obama. 10.1.2009 10:05
Sjóræningjar skila skipi Sómalskir sjóræningjar skiluðu í morgun írönsku flutningaskipi, The Delight, sem rænt var undan strönd Jemen í nóvember. Verið var að flytja þrjátíu og sex þúsund tonn að hveiti með skipinu frá Íran til Þýskalands þegar því var rænt. Tuttugu og fimm manna áhöfn var um borð. Ekki er vitað hvort lausnargjald var borgað fyrir skipið og þá hve há upphæð. Sjórnæningjar skiluðu í gær sádí arabíska risaolíuskipinu Sirius Star sem einnig var rænt í nóvember. Þrjár milljónir bandaríkjadala voru greiddar í lausnargjald fyrir það. Fimm sjóræningjar drukknuðu þegar bát þeira hvolfdi nærri Sirius Star en þeir höfðu þá skömmu áður farið úr olíuskipinu yfir í eigin bát. Ekki er vitað hvort þeir voru með lausnargjaldið á sér. 10.1.2009 09:56
Viðræður um vopnahlé í Egyptalandi Samningamenn Hamas og Ísraelsstjórnar eru komnir til Egyptalands til að ræða mögulegt vopnahlé á Gaza. Loftárásir og bardagar héldu þó áfram í nótt. 10.1.2009 09:52
Sirius Star úr höndum sjóræningja Sómalskir sjóræningjar létu í dag frá sér Sádí arabískt risaolíuskip, Sirius Star, sem þeir hertóku úti fyrir strönd Sómalíu um miðjan nóvember. Í gær voru greiddar þrjár milljónir bandaríkjadala í lausnargjald fyrir skipið. 9.1.2009 14:02
Gasflæðið komist í lag um helgina Evrópusambandið telur að hægt verði að tryggja eðlilegt gasflæði frá Rússlandi til Vestur-Evrópu um helgina. Rússar og ESB sömdu í gær um eftirlit með gasflutningum með leiðslum um Úkraínu til að tryggja að gasi væri ekki stolið. 9.1.2009 12:09
Þrjátíu féllu í einni árás á Gaza Vitni hafa greint fulltrúum Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu frá því að Ísraelar hafi fellt þrjátíu Palestínumenn í einni árás á hús í Gaza-borg fyrr í vikunni. Þessi sömu vitni segja að ísraelskir hermenn hafi flutt um hundrað Palestínumenn í húsið skömmu áður. 9.1.2009 12:06
Stærsta raftækjasýning heims svipur hjá sjón Raftækjasýningin í Las Vegas, sem alla jafna laðar að sér mikinn fjölda gesta, er ekki nema svipur hjá sjón í ár. 9.1.2009 08:36
Öryggisráð SÞ ályktar um vopnahlé á Gaza Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í nótt ályktun um að krefjast þegar í stað vopnahlés á Gaza-svæðinu. Fjórtán af 15 ráðsmönnum samþykktu ályktunina en Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat hjá við atkvæðagreiðsluna. 9.1.2009 08:31
Ekki fleiri uppsagnir í Bandaríkjunum í rúm 30 ár Líklega hefur fleira starfsfólki ekki verið sagt upp í Bandaríkjunum einn og sama mánuðinn í meira en 30 ár en í nýliðnum desembermánuði. Þetta er talið vera meðal tölfræðilegra staðreynda sem settar eru fram í skýrslu Bandaríkjastjórnar um atvinnuástandið sem gerð verður opinber í dag. 9.1.2009 08:28
Spielberg bannar mynd af sér í háskólabæklingi Leikstjórinn Steven Spielberg hefur bannað háskóla í Wales að nota mynd af sér til að auglýsa námskeið. 9.1.2009 08:20
Flest símtöl til 112 í Danmörku skakkt númer Þrjú af hverjum fjórum símtölum til neyðarlínunnar í Danmörku eru byggð á misskilningi. Þar í landi er ætlast til þess að fólk hringi í númerið 114 til að fá samband við lögreglu, og til dæmis tilkynna um stolið hjól, en 112 sé það í verulegum nauðum statt, enda um neyðarlínu að ræða. 9.1.2009 08:17
Japanar fylgjast með úrgangslosun um gervitungl Japanska umhverfisráðuneytið hefur nú tekið í notkun gervitungl til að hafa auga með ólöglegri losun ýmiss konar iðnaðarúrgangs á strjálbýlli svæðum landsins. 9.1.2009 08:15
Lækkun stýrivaxta engin töfralausn segja fræðingar Lækkaðir stýrivextir seðlabanka gera almenningi takmarkað gagn þar sem vaxtalækkunin skilar sér ekki alltaf gegnum viðskiptabankana til lántakenda auk þess sem sparifjáreigendur horfa á sparnaðinn rýrna við vaxtalækkunina. 9.1.2009 08:12
Pandabjörninn Gu Gu lítt við alþýðuskap Skapstygg panda í dýragarðinum í Peking, höfuðborg Kína, bergði á mannsblóði í þriðja skiptið í gær þegar hún beit gest sem klifraði yfir girðinguna til að ná í leikfang sem barn hafði misst inn fyrir. 9.1.2009 08:08
Vargöld í miðbæ Óslóar í gærkvöldi Yfir 30 voru handteknir þegar til harðra átaka kom í miðborg Óslóar í gærkvöldi milli stuðningsmanna Ísraelsmanna, sem héldu samkomu fyrir framan þinghúsið, og andstæðinga þeirra. 9.1.2009 07:10
Seinheppinn siglingakappi Hann er heldur óheppinn, fransmaðurinn Jean Le Cam sem nú siglir kringum hnöttinn í Vendee Globe siglingakeppninni. Landi mannsins, Vincent Riou, sem einnig tekur þátt í keppninni, bjargaði honum fyrr í vikunni eftir að skútu hans hvolfdi í stórsjó út af suðurströnd Argentínu. 8.1.2009 14:31
Fundu fjögur börn í rústum húss Alþjóða rauði krossinn sakar Ísraelsmenn um slæma framkomu gagnvart almennum borgurum, eftir að starfsmenn samtakanna fundu fjögur börn sem héldu dauðahaldi í látnar mæður sínar í húsarústum á Gaza. 8.1.2009 14:07
Eldflaugum skotið á Ísrael frá Líbanon Eldflaugum var skotið á Ísrael frá Líbanon í dag. Ísraelar hafa þegar svarað árásinni. Tvær fullorðnar ísraelskar konur særðust þegar eldflaugum var skotið frá Líbanon í dag. Yfirmaður friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í landinu hvatti til stillingar og sagðist hafa kallað út auka liðsafla til að koma í veg fyrir frekari árásir. 8.1.2009 12:15
Tölvur á ruslahaugum gróðrarstía auðkennastulds Gamall tölvubúnaður sem er hent getur auðveldlega lent í röngum höndum og auðveldað auðkennastuld. 8.1.2009 08:31