Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fimm fjallgöngumenn fórust í snjóflóði Að minnsta kosti fimm fjallgöngumenn fórust í snjóflóði á fjallinu K-2 á landamærum Pakistans og Kína um helgina. 3.8.2008 09:55
Palestínumenn flýja til Ísraels Tæplega 200 palestínumenn flúðu til Ísraels í gær þegar harðir bardagar brutust út á milli Hamas og Fatah hreyfinganna á Gaza ströndinni. Níu palestínumenn féllu og níutíu og fimm særðust í bardögunum. 3.8.2008 09:50
Quantas vél nauðlenti vegna leka í vökvakerfi Boeing 767 þota frá ástralska flugfélaginu Quantas varð í dag að snúa við og lenda aftur í skyndi vegna leka í vökvakerfi. Í síðustu viku varð vél frá félaginu að nauðlenda eftir að sprenging gerði stórt gat á skrokk hennar. Quantas er annars eitt öruggasta flugfélag í heimi og hefur aldrei misst flugvél í slysi. 2.8.2008 22:00
Vilhjálmur Bretaprins fer til starfa í varnarmálaráðuneytinu Vilhjálmur Bretaprins mun hefja störf í varnarmálaráðuneytinu í haust. Prinsinn hefur undanfarna mánuði verið undirliðsforingi á einu af herskipum hennar hátignar. Hann hefur einnig lokið flugnámi hjá flughernum. Verið er að búa prinsinn undir að verða yfirmaður breska heraflans þegar hann verður konungur. 2.8.2008 20:00
Rútuböðull fyrir dómara Enginn veit af hverju Vince Weiguang Li réðist skyndilega á meðfarþega sinn hinn 22 ára gamla Tim McLean. 2.8.2008 18:15
Hryðjuverkamaður úr ETA látinn laus Almenningur á Spáni er furðu lostinn yfir því að Jose Ignacio de Juana Chaos, félagi úr aðskilnaðarhreyfingu Baska, hafi verið látinn laus eftir 21 árs fangelsisvist. 2.8.2008 13:06
Útför Thatchers skipulögð Bresk yfirvöld eru byrjuð að undirbúa útför Margaretar Thatcher, þrátt fyrir að hún sé enn lifandi og við ágæta heilsu. 2.8.2008 12:00
Hamas og Fatah berjast Öryggissveitir Hamas á Gaza ströndinni réðust í dag inn í hverfi stuðningsmanna Fatah hreyfingarinnar. Fatah hefndi sín með árásum á hverfi Hamas á Vesturbakkanum. 2.8.2008 11:45
Unglingar myrtir við sundiðkun í Michigan Níu ungmenni voru að synda í á í Marinette sýslu í Michigan á fimmtudagskvöldið. Þau áttu sér einskis ills von þegar allt í einu maður vopnaður riffli hóf formálalaust skothríð á þau. 2.8.2008 11:41
Geislavirk efni láku úr kafbáti Geislavirk efni láku úr bandarískum kafbáti sem var í heimsókn í Japan fyrr á þessu ári. Yfirvöld segja að lekinn hafi verið svo lítill að hann hafi ekki valdið neinum skaða. 2.8.2008 10:35
Airbus A380 lenti á Kennedy velli í fyrsta sinn Airbus A380 lenti í fyrsta sinn á bandarískri jörðu í gær eftir áætlunarflug. A 380 vélin, sem er stærsta farþegaflugvél í heimi, lenti á Kennedy vellinum í New York. Hún er frá flugfélaginu Emirates, flaug frá Dubai og voru 489 farþegar um borð. Mikil eftirvænting ríkti vegna flugsins því að Airbus er í mikilli samkeppni við Boeing flugframleiðandann um framtíðarstöðu á flugvélamarkaði. 2.8.2008 10:05
Ríkisnefnd um mannasiði fyrir Ólympíuleikana Kínverjum hefur verið gert að taka sig á í mannasiðum fyrir Ólympíuleikana - svo sem að hætta að hrækja um allar götur og smjatta. Sérstök ríkisnefnd hefur verið sett á laggirnar til að tryggja framfarir í mannasiðum - nefnd til uppbyggingar andlegrar siðmenningar, eins og hún heitir. 1.8.2008 20:30
Pelosi kemur í veg fyrir kosningu um olíuborun Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings notar vald sitt til þess að koma í veg fyrir kosningu um hvort létta eigi banninu við olíuboranir við strendur Bandaríkjanna. Hefur þetta valdið mikilli óánægju meðal Repúblikana sem hafa þrýst á þingið í margar vikur að létta banninu. 1.8.2008 14:32
Nornaveiðar fjölmiðla komi í veg fyrir sanngjörn réttarhöld Radovan Kardzic, fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba telur að „nornaveiðar" fjölmiðla komi í veg fyrir að hann fái sanngjörn réttarhöld. Ákærur voru lesnar yfir honum í stríðsglæpadómstólnum í Haag í gær. 1.8.2008 12:59
Harðlínumenn í Ísrael vilja kosningar Harðlínumenn í ísraelsku stjórnarandstöðunni krefjast þess nú að efnt verði til kosninga þegar í stað. Það gæti orðið til þess að helsti haukurinn í Likud-bandalaginu, Benjamin Netanyahu, komist aftur til valda. 1.8.2008 12:20
Maður grunaður um að dreifa militisbrandi tók eigið líf Talið er að vísindamaður sem grunaður var um að hafa átt aðild að því að miltisbrandi var dreift í pósti í Bandaríkjunum í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. september 2001 hafi svipt sig lífi. 1.8.2008 11:31
Sextán stúlkur fórust í sprengingu í Tyrklandi Sextán skólastúlkur eru látnar eftir að heimavist hrundi í Tyrklandi í nótt í kjölfar gasspreningar. Talið er að rúmlega 40 stúlkur hafi verið í byggingunni þegar hún hrundi og voru þær flestar sofandi. 1.8.2008 10:55
Friðargæsluliðar verða áfram í Darfur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur ákveðið að framlengja dvöl friðargæsluliða sinna í Darfur héraðinu í Súdan um eitt ár. 1.8.2008 07:40
Auglýsing með Paris Hilton kemur í bakið á McCain Auglýsing John McCain þar sem hann líkir Obama við þær Paris Hilton og Britney Spears gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir McCain. 1.8.2008 07:28
Ellefu skólastúlkur létust í sprengingu í Tyrklandi Ellefu skólastúlkur eru látnar eftir að gassprenging olli því að svefnskáli þeirra hrundi saman í Tyrklandi snemma í morgun. 1.8.2008 07:25
Nýr kongur krýndur á eyjunni Tonga George Tupou V hefur verið krýndur konungur á eyjunni Tonga í Kyrrahafinu. Þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem nýr konungur er krýndur á Tonga. 1.8.2008 07:14
Aðeins munar 1% á Obama og McCain Ný skoðanakönnun Gallup í Bandaríkjunum sýnir að nú munar aðeins einu prósentustigi á fylgi þeirra Barak Obama og John McCain. 1.8.2008 07:13
Sjö rússneskir íþróttamenn settir í bann Sjö rússneskir íþróttamenn, þar af fimm olympíufarar, hafa verið settir í bann vegna lyfjaneyslu. 1.8.2008 07:11
Geimfarið Phoenix finnur vatn á Mars Geimfarið Phoenix á Mars hefur fundið vatn á plánetunni. Vatnið greindist í sýni sem geimfarið tók af jarðvegi á Mars í vikunni. 1.8.2008 07:08
McCain reynir að gera lítið úr Obama John McCain forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum reynir nú allt hvað af tekur að gera lítið úr keppinaut sínum, Barack Obama. 31.7.2008 23:45
Mao-iðnaður fyrir Ólympíuleika Heilmikill Mao-iðnaður er orðinn til fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í Kína eftir rúma viku. Þessi fyrrum æðsti leiðtogi Kína nýtur enn mikillar hylli meðal Kínverja og nú er arfleifð hans og ímynd meðal þess helsta sem ferðamenn í Kína sækja í. Fréttastofa beinir kastljósinu að Kína í dag og næstu daga í aðdraganda Ólympíuleikanna. 31.7.2008 22:30
Voðaverk framin í Kenýa Bandarísk mannréttindasamtök hafa hvatt til þess að vopnasölubann verði sett á Kenya vegna manndrápa og voðaverka hersins í ættbálkadeilum í vesturhluta landsins. Breska varnarmálaráðuneytið íhugar að stöðva þjálfun kenýskra hermanna sem sakaðir eru um aðild að málinu. 31.7.2008 20:45
Vilja að Brown sparki Miliband Tveir þingmenn breska Verkamannaflokksins vilja að Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi flokksins, víki David Miliband, utanríkisráðherra, úr ríkisstjórnina vegna blaðagreinar sem hann ritaði nýverið. 31.7.2008 18:15
Karadzic fyrir rétt í dag Radovan Karadizc virtist samstarfsfús þegar réttarhöldin yfir honum hófust í Haag í dag, öfugt við fyrrum samherja sinn Slobodan Milosevitsj, sem var viðskotaillur þar frá fyrsta degi. 31.7.2008 19:15
Olían hlýðir engum markaðslögmálum Chakib Khelil forseti OPEC sagði á blaðamannafundi á Indónesíu að eðlilegast sé að framboð og eftirspurn stjórni markaðsverði. Því sé ekki til að dreifa með olíuna. 31.7.2008 18:08
Sjö létu lífið í flugslysi í Minnesota Að minnsta kosti sjö manns létu lífið í flugslysi í Owatonna, í Minnesota í dag, samkvæmt Flugmálastjórn þar í landi. 31.7.2008 16:47
Sakar Obama um að nota sér kynþátt sinn Kosningaherferð John McCain, frambjóðanda Repúblikana sakar Barack Obama, frambjóðanda Demókrata um að nýta sér kynþátt sinn í kosningabaráttunni. 31.7.2008 16:37
Ákærur lesnar yfir Karadzic Ákærur voru lesnar yfir Radovan Karadzic fyrrum leiðtoga Bosníu-Serba í stríðsglæpadómstólnum í Haag í dag. Karadzic sat þögull á meðan kærurnar voru lesnar upp en hann er kærður fyrir þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi. 31.7.2008 15:48
Ætla 100 prósent diplómatísku leiðina Bretar eru 100 prósent einbeittir á að fara diplómatísku leiðina í deilu þeirra og annarra þjóða við Írana um kjarnorkumál þeirra. Þeir vilja ekki að Ísraelsmenn ráðist á kjarnorkustöðvar Írana. Þetta sagði David Miliband utanríkisráðherra Bretlands í dag. 31.7.2008 13:43
Myndband af Ólympíuleikaæfingu lekur út Myndband af æfingu fyrir opnunarhátíð Ólympíleikanna lak út á suður-kóreska sjónvarpsstöð. Olli sá leki ekki mikilli ánægju á meðal hina kínversku skipuleggjenda leikanna. Sjónvarpstöðin SBS segjast ekki hafa stundað neitt ólöglegt athæfi með því að taka upp æfingunna, enginn hafi stoppað þá þegar þeir fóru æfingasvæðið. 31.7.2008 10:38
Internetfíkn er vaxandi vandamál Internetfíkn er nú vaxandi vandamál um allan heim. Sérfræðingar telja að á milli 5 og 10 prósent Bandaríkjamanna þjáist af internetfíkn og að hlutfallið sé enn hærra hjá öðrum þjóðum. 31.7.2008 08:17
Líkir Obama við Britney Spears og Paris Hilton John McCain er farin að beita æ harðari og neikvæðari auglýsingum gegn Barak Obama í kosningabaráttu þeirra um forsetaembætti Bandaríkjanna. 31.7.2008 07:34
Eiginkona Shinawatra dæmd fyrir skattsvik Eiginkona fyrrrum forsætisráðherra Taílands, Taksin Shinawatra, hefur verið dæmd í þriggja ára fangelsi fyrir skattsvik. 31.7.2008 07:24
Karadzic fyrir dómara í dag Radovan Karadzic fyrrum leiðtogi Bosníuserba verður leiddur fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í dag og formlega ákærður fyrir þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyninu. 31.7.2008 07:21
Segjast hafa fundið aðferð til að drepa HIV-veiruna Læknar við rannsóknarstofu Læknaháskólans í Texas segja að þeir hafi hugsanlega fundið upp aðferð til að lækna HIV-smit og þar með alnæmi. 31.7.2008 07:14
Fundu fljótandi efni á yfirborði Titan Vísindamenn hjá NASA, Bandarísku geimferðastofnuninni, segja að þeir hafi fundið ár og vötn á Titan, einu tungli Satúrnusar. 31.7.2008 07:11
Slæmar horfur í N-Kóreu Hungurvofan ógnar nú lífi og velferð milljóna manna í Norður-Kóreu vegna mikilla flóða og uppskerubrests. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að ástandið þar sé nú verra en nokkru sinni síðan hungursneyðin mikla felldi hundruð þúsunda fyrir um áratug. 30.7.2008 21:45
Miliband segist ekki stefna á leiðtogasæti David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands og ein helsta vonarstjarna Verkamannaflokksins, segist ekki stefna á að verða leiðtogi flokksins. Þetta fullyrðir hann þrátt fyrir að hafa skrifað grein um framtíð Verkamannaflokksins án þess að minnast einu orði á Gordon Brown, formanns flokksins og forsætisráðherra. 30.7.2008 20:00
Olmert lætur af embætti eftir tvo mánuði Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í dag að hann muni láta af embætti eftir tvo mánuði. Olmert hefur átt í miklum erfiðleikum undanfarna mánuði vegna meintrar spillingar og gæti afsögnin bent til þess að staða hans í þeim málum sé verri en hann hefur viljað viðurkenna til þessa. Þá hefur hann lengi sætt ámæli fyrir stríðið við Hezbollah í fyrrasumar, sem hann hóf en tókst ekki að ljúka með ótvíræðum sigri. 30.7.2008 19:00
Tyrkneskir dómstólar banna ekki stjórnarflokkinn Stjórnlagadómstóll Tyrklands hefur undanfarna daga íhugað hvort banna skuli stjórnarflokk landsins, Réttlætis- og þróunarflokkinn, sem hefur meirihluta á tyrkneska þingi og hefur farið með stjórnað landinu undanfarið. Forystumenn flokksins voru meðal annars sakaðir um að vilja að koma fót trúarlegri stjórnskipan að íslömskum sið. 30.7.2008 17:22