Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þingmaður biður Gordon Brown að víkja Enn eykst þrýstingurinn á Gordon Brown formann Verkamannaflokksins í Bretlandi um að hann láti af formannsstöðunni. 30.7.2008 07:25
Karadzic er kominn til Haag Radovan Karadzic fyrrum leiðtogi Serbíu er kominn til Haag í Hollandi. Þangað var hann fluttur með flugi í nótt frá Belgraad. 30.7.2008 07:20
3000 breskum vegabréfum stolið Þjófar í Englandi komust í gær á brott með tæplega 3000 óútfyllt vegabréf og er andvirði þeirra talið nema 2,5 milljón punda. 29.7.2008 23:00
Stuðningsmenn Karadzic safnast saman Fjölmargir stuðningsmenn Radovan Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba, söfnuðust saman á fjöldafundi í Belgrad, höfuðborg Serbíu, í dag. 29.7.2008 20:15
Doha-viðræður út um þúfur Viðræður Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um afnám niðurgreiðslna og tolla á landbúnaðarvörur fóru út um þúfur í dag. Samningamenn telja að mörg ár geti liðið áður en þráðurinn verður tekinn upp aftur. 29.7.2008 19:00
Sjö sakfelldir fyrir stríðsglæpi Sjö Bosníu-Serbar hafa verið sakfelldir fyrir þjóðarmorð og dæmdir í fangelsi fyrir aðild sína að fjöldamorðunum á múslímum í Srebrenica í Bosníu sumarið 1995. 29.7.2008 17:15
Kínversk stjórnvöld hafna ásökunum um mannréttindabrot Stjórnvöld í Kína hafna ásökunum um að mannréttinda hafi ekki verið gætt í aðdraganda að Ólympíuleikunum sem fara fram þar í landi í ágúst. 29.7.2008 16:23
Heyrnarskemmdir hrjá einn af þremur Bandaríkjamönnum Einn af hverjum þremur fullorðnum Bandaríkjamönnum þjáist nú af skertri heyrn. Talið er að heyrnarskemmdir verði eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum þjóðarinnar á næstu árum. 29.7.2008 08:04
Karadzic áfrýjaði ekki framsalinu Radovan Karadzic fyrrum forseti Serbíu skilaði ekki inn áfrýjun á framsali sínu til stríðsglæpadómstólsins í Haag áður en fresturinn til að gera slíkt rann út síðdegis í gær. 29.7.2008 07:41
Ástralir hætta að fangelsa hælisleitendur Áströlsk stjórnvöld hafa látið af þeirri stefnu sinni að fangelsa alla þá sem leita eftir pólitísku hæli í landinu. 29.7.2008 07:38
Bush samþykkir dauðadóm yfir hermanni Bush bandaríkjaforseti hefur samþykkt dauðadóm yfir hermanni sem dæmdur var fyrir morð og nauðgun. Er þetta í fyrsta sinn í rúma hálfa öld að Bandaríkjaforseti samþykkir dauðadóm yfir hermanni. 29.7.2008 07:34
Kínverjar nafngreina hópa sem eru öryggisvandamál Kínversk stjórnvöld hafa nafngreint fjóra hópa fólks sem þeir telja að geti ógnað örygginu í kringum komandi Olympíuleika í Bejing. 29.7.2008 07:31
Mannfall vegna flóða í Úkraínu Undanfarið hefur rignt gríðarlega mikið í austanverðri Evrópu og er talið að minnsta kosti 22 hafi farist í Úkraínu vegna flóða. 28.7.2008 23:15
Obama sækir í sig veðrið Barack Obama forsetaframbjóðandi demókrata sækir í sig veðrið í skoðanakönnunum í Bandaríkjunum. Hann hefur níu prósenta forskot yfir keppinaut sinn John McCain frambjóðanda Repbublikana. 28.7.2008 21:30
Mikil loftmengun í Peking Gríðarleg loftmengun er í Peking sem sérfræðingar segja að geti haft áhrif á árangur keppenda á Olympíuleikunum sem hefjast 8. ágúst. 28.7.2008 20:30
Þingmaður vill að Brown víki Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, hefur mistekist og hann á að segja af sér, að mati Gordon Prantice þingmanns Verkamannaflokksins. Prentice er annar þingmaður flokksins sem opinberlega hefur farið fram á afsögn Browns. 28.7.2008 19:45
Kúrdar neyta aðild að sprengjutilræðunum í Istanbul Talsmenn Verkamannaflokks Kúrda, PKK, neita því að vera viðriðnir sprengjutilræði í Istanbul í gærkvöldi. Sautján létust í tveimur sprengingunum og hundrað og fimmtíu slösuðust. 28.7.2008 19:00
Obama beinir athyglinni að efnahagsmálum Barack Obama forsetaframbjóðandi Demókrata hefur beint athyglinni frá utanríkismálum að efnahagsmálum í Bandaríkjunum. Hefur hann kallað saman stjörnuráðgjafa til þess að ræða við hann. Er tilgangurinn að reyna að vinna bætur á þeirri lægð sem er í efnahagslífi í Bandaríkjunum. 28.7.2008 13:37
Klístraður jarðvegur gerir Fönix erfitt fyrir á Mars NASA könnunarfarið Fönix hefur undanfarnar vikur ferðast um Mars og sankað að sér ýmsum upplýsingum og sýnum sem gætu svipt hulunni af því hvort einhvern tímann hafi verið líf á plánetunni. 28.7.2008 16:33
10 prósent minni sala á krám í Bretlandi Sala á bjór hefur minnkað um 10 prósent síðastliðið ár á krám í Bretlandi vegna hærra verðs, lokunar kráa og vegna aðhalds neytenda. Á sama tíma hefur sala á bjórum í búðum hækkað um 3,8 prósent. 28.7.2008 15:03
Hnífaleikur á Facebook veldur usla Leikur á vinatengslvefnum Facebook hefur verið fjarlægður þar sem hann gerir notendum kleift að stinga aðra notendur yfir netið. Heitir þessi fítus „Shank" á ensku sem er slangur á götum úti yfir hnífaárás og er mynd af hnífi við fítusinn. Hefur leikurinn valdið miklum usla í Bretlandi sökum gríðarlegs fjölda morða af völdum stunguárása í höfuðborg landsins að síðköstu. 28.7.2008 11:24
Leitarstríðin - Cuil til höfuðs Google Leitarvélin Cuil, sem sett er til höfuðs leitarflaggskipinu Google í samkeppnislegu tilliti, hefur göngu sína á Netinu í dag. Cuil er runnin undan rifjum hjónanna Tom Costello og Önnu Patterson en hún kom að hönnun Google-leitarvélarinnar á sínum tíma. Eiginmaður hennar er prófessor í tölvunarfræðum við Stanford-háskólann. 28.7.2008 10:36
Þrjár sjálfsmorðssprengingar í Baghdad 25 manns létust og um 52 særðust í þremur sjálfsmorðssprengingum í Baghdad í morgun. Fórnalömbin voru Shia-múslimar í pílagrímsför í Baghdad til þess að taka þátt í árlegum hátíðarhöldum þeirra. 28.7.2008 10:23
Telur að Steve Fossett hafi sviðsett dauða sinn Cynthia Ryan yfirmaður í Flugbjörgunarsveit Bandaríkjanna segir að hún telji að ævintýramaðurinn og auðjöfurinn Steve Fossett hafi sviðsett dauða sinn á síðasta ári. 28.7.2008 07:57
Þrír stripplingar trufluðu landsleik í póló Þrír naktir stripplingar ullu nokkru uppnámi á landsleikjamóti í póló við Windsor-kastalann í gær. Meðal áhorfenda var Karl bretaprins. 28.7.2008 07:33
Fellibylurinn Fung Wong veldur usla á Taiwan Fellibylurinn Fung Wong hefur náð á land á Taiwan og veldur þar töluverðum usla. 28.7.2008 07:30
Skotárás í kirkju kostaði tvo lífið og sjö særða Maður vopnaður haglabyssu réðist inn í kirkju í Tennessee í gær og hóf skothríð á viðstadda. Áður en tókst að yfirbuga manninn hafði hann drepið tvo og sært sjö aðra. 28.7.2008 07:26
Kaupmaður dauðans fyrir rétti í Taílandi Rússneski vopnasalinn Viktor Bout verður leiddur fyrir rétt í Taílandi í dag þar sem afstaða verður tekin til þess hvort framselja eigi hann til Bandaríkjanna. 28.7.2008 07:17
Fylgi Obama enn á uppleið Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup í Bandaríkjunum dregur aftur í sundur með þeim Barak Obama og John McCain. Mælist Obama nú með 9% meira fylgi en McCain. 28.7.2008 07:14
Tvær sprengjur kostuðu 16 lífið í Istanbul Að minnsta kosti 16 eru látnir og meir en 150 sárir eftir hryðjuverkaárás í verkamannahverfi í Istanbul höfuðborg Tyrklands í gærkvöldi. 28.7.2008 07:12
Gríðarlegir eldar í Kalíforníu Um tvö þúsund heimili eru í hættu vegna elds sem braust út nærri Yosemite þjóðgarðinum í Kalíforníu á föstudag 27.7.2008 20:34
Ítalska lögreglan handtekur alræmdan mafíuforingja Leiðtogi í einni af alræmdustu hreyfingu úr Napolí mafíunni var handtekinn þegar hann var í verslunarleiðangri í Róm. 27.7.2008 19:38
Flóð valda usla víða um heim Mestu flóð í hundrað ár hafa kostað 17 manns lífið í Úkraínu, Moldóvu og Rúmeníu og valdið gríðarlegum skemmdum á ökrum og beitilandi. Jafnframt eru flóð í suður- og vestur Þýskalandi að gera mönnum lífið leitt. 27.7.2008 19:00
Hungursneyð í Afríku Hungursneyð er yfirvofandi á gríðarstóru svæði í austanverðri Afríku. Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna segir að hátt í fimmtán milljónir manna þurfi aðstoðar við eigi ekki að koma til stórkostlegra hörmunga. 27.7.2008 18:30
Lamdi flugfreyju með vodkaflösku og reyndi að opna í 10.000 fetum Tvær breskar stúlkur létu heldur betur til sín taka í um 10.000 feta hæð yfir Austurríki í gær. Vinkonurnar sem voru að koma með flugi frá Grikklandi yfir til Bretlands höfðu fengið sér aðeins of mörg púrtvínsstaup í vélinni. Eftir að hafa verið með almenn leiðindi við áhöfnina lamdi önnur stúlknanna flugfreyju í hausinn með vodka flösku og reyndi síðan að opna neyðarútgang á vélinni. 27.7.2008 16:43
Mbeki: Viðræður halda áfram í Zimbabwe Forseti Suður Afríku, Thabo Mbeki, sagði fyrr í dag að viðræður á milli Roberts Mugabe og hans manna og stjórnarandstöðuflokksins MDC í Zimbabwe myndu halda áfram til þess að leysa stjórnmálavandann sem nú ríkir í landinu. 27.7.2008 15:37
Hersveitir NATO fella uppreisnarmenn í Afganistan Hersveitir NATO felldu tylft Talíbanskra uppreisnarmanna í loftárásum á bæinn Khost í suðausturhluta Afganistan í morgun. Það eru stjórnvöld á staðnum sem halda þessu fram. Ofbeldi hefur aukist í Afganistan á síðustu tveimur árum eftir endurskipulagningu uppreisnarmanna og baráttu þeirra gegn stjórnvöldum og erlendum hersveitum. 27.7.2008 13:56
Búist við sigri Hun Sen í Kambódíu Þingkosningar voru í Kambódíu í dag og er fastlega búist við ótvíræðum sigri Huns Sens, forsætisráðherra sem hefur verið við völd lengur en nokkur annar þjóðarleiðtogi í Asíu - eða allt síðan hann sagði skilið við Rauðu Khmerana á sínum tíma og var settur til valda af Víetnömum 1985. 27.7.2008 12:30
Ráðherrar vilja ekki að Brown víki Ráðherrar bresku ríkisstjórnarinnar segja alrangt að þeir séu að skipuleggja atlögu gegn Gordon Brown forsætisráðherra, eins og bresku blöðin hafa haldið fram. Einn þeirra sem nefndur hefur verið sem hugsanlegur eftirmaður Browns segist engan áhuga hafa á starfinu. 27.7.2008 11:56
Talíbanar að sigra í áróðursstríðinu Talíbanar í Afghanistan eru að sigra Vesturlönd - í áróðursstríðinu. Svo segir virt rannsóknarstofnun sem einnig bendir á að Talíbanar nýti vandlega reiði almennings yfir of tíðum árásum sem leiði til dauða óbreyttra borgara. 27.7.2008 09:45
45 féllu í sprengingunum á Indlandi Talið er að lítt þekktur hópur íslamskra öfgamanna hafi staðið að 17 sprengingum sem urðu 45 manns að bana í borginni Ahmedabad í vesturhluta Indlands í gær. 27.7.2008 09:31
Grunur um að súrefniskútur hafi sprungið í áströlsku vélinni Rannsóknarmenn ástölsku flugslysanefndarinnar beina nú sjónum sínum að þeim möguleika að súrefniskútur hafi sprungið og valdið skemmdunum á farþegavélinni sem þurfti að nauðlenda á Filippseyjum fyrir helgina. Stórt gat kom á búk vélarinnar skömmu eftir flugtak í Hong Kong. 27.7.2008 09:24
29 hafa látist og 88 slasast í sprengjuárás á Indlandi 29 manns hafa látist hið minnsta og 88 eru slasaðir eftir að sautján sprengjur sprungu á innan við klukkutíma í morgun, í borginni Ahmedabad á Indlandi í morgun. Þetta hefur lögregla og stjórnvöld staðfest. 26.7.2008 20:32
Flokksfélagar Browns hvetja hann til þess að segja af sér Útlit er fyrir að verulega sé farið að síga á síðari hlutann í forsætisráðherratíð Gordons Brown því nú eru bæði þingmenn hans og ráðherrar farnir að hvetja hann til að segja af sér - eða jafnvel að setja hann af. 26.7.2008 19:12
Karadizc heillaði landa sína með náttúrusmyrslum Á meðan Radovan Karadizc fór huldu höfði ferðaðist hann meðal annars til Austurríkis og heillaði landa sína þar með handayfirlagningu og náttúrusmyrslum. Lögreglumenn sem ræddu við hann þar grunaði aldrei að þessi skeggjaði og síðhærði spekingur væri í raun eftirlýstur fyrir stríðsglæpi og fjöldamorð. Stuðningsmenn hans heima eru reiðir yfir handtökunni. 26.7.2008 18:39