Fleiri fréttir

Loftárás á vopnaflutningalest

Nýjar upplýsingar hafa skotið upp kollinum um hvað íraelski flugherinn var að ráðast á, þegar hann gerði loftárás innan landamæra Sýrlands fyrr í mánuðinum Flestir hafa hingað til álitið að loftárás Íraela hafi beinst að kjarnorkuveri í Sýrlandi en heimildir innan stjórnar Ísrael segja að árásin hafi verið gerð á vopnaflutningalest á leið til Líbanon.

Dýrt að hlusta á Al Gore

Al Gore er þekktur fyrir baráttu sína gegn loftlagsbreytingum þeim sem nú eiga sér stað í heiminum. En það kostar skildinginn að hlusta á skoðanir Gore. Ástralskir fjölmiðlar hafa töluvert fjallað um hádegisverðarfund sem Gore og John Howard forsætisráðherra landsins héldu í Sidney í gærdag. Alls keyptu 700 manns sér aðgang að fundinum og komust færri að en vildu.

Dan Rather krefst skaðabóta frá CBS

Bandaríski fréttaþulurinn Dan Rather hefur höfðað mál á hendur sjónvarpsstöðinni CBS fyrir samningsbrot. Krefst hann þess að stöðin greiði honum um 4,4 milljarða króna í skaðabætur.

Formlegri leit að Steve Fossett hætt

Yfirvöld í Nevada fylki í Bandaríkjunum hafa fyrirskipað að formlegri leit að ævintýramanninum og auðjöfrinum Steve Fossett skuli hætt. Fossett hefur verið leitað í tvær vikur en án árangurs.

Madeleine málið tekur nýja stefnu

Rannsókn portúgölsku lögreglunnar á hvarfi Madeleine McCann virðist hafa tekið nýja stefnu. Samkvæmt heimildum Sky News fréttastofunnar hefur portúgalska lögreglan ekki lengur í hyggju að kalla foreldra stúlkunnar til yfirheyrslu.

Næstráðandi Rauðu Kmerana handtekinn

Næstráðandi Rauðu Kmeranna í Kambódíu var handtekinn í dag. Eftir er að ákveða hvort hann verði kærður fyrir þjóðarmorð. Sérstakur dómstóll Sameinuðu þjóðanna rannsakar nú fjöldamorð Kmeranna á valdatíma þeirra.

Gasa-ströndin óvinasvæði

Ísraelar hafa skilgreint Gasa-ströndina sem óvinasvæði vegna síendurtekinna eldflaugaárása Hamas-liða á Ísrael þaðan. Hamas-liðar segja þetta stríðsyfirlýsingu. Ákvörðun Ísraela gæti leitt til þess að þeir lokuðu fyrir vatni, eldsneyti og rafmagn til svæðisins.

Þjóðverjar greiða Gyðingum skaðabætur

Þýsk stjórnvöld ákváðu í dag að greiða öllum þeim Gyðingum sem voru í nauðungarvinnu í Þýskalandi á tímum nasista skaðabætur. Hver og einn fær um 176 þúsund krónur í sinn hlut en heildargreiðslur geta numið allt að 9 milljörðum króna.

Erdogan vill ekki mismuna konum út af höfuðklútum

Tayyip Erdogan forsætisráðherra Tyrklands varði í dag fyrirhugaðar breytingar sínar á stjórnarskrá landsins, en veraldlega þenkjandi gagnrýnendur hans eru æfir yfir því að hann hafi aflétt banni við því að kvenkyns háskólanemar gangi með höfuðklút.

Bíll líbansks þingmanns sprengdur í loft upp

Líbanski þingmaðurinn Antoine Ghanem, sem var mikill andstæðingur Sýrlandsstjórnar, lést í sprengjutilræði í Beirút í morgun. Fimm aðrir létust og minnst fjórir særðust þegar bíll Ghanems sprakk. Hús í nágrenninu skemmdust og kviknaði í minnst fjórum bílum.

OJ Simpson fyrir dómara

OJ Simpson voru nú áðan birtar ákærur gegn honum fyrir rétti í Nevadafylki í Bandaríkjunum vegna þjófnaðar á minjagripum á hótelherbergi í Las Vegas síðastliðinn fimmtudag. Dómarinn fór fram á 10 milljóna króna tryggingu gegn lausn hans.

Kusu gegn auknum réttindum Guantanamofanga

Öldungadeild bandaríska þingsins felldi í dag tillögu um að veita föngum í Guantanamo rétt til að fá úr málum sínum skorið fyrir bandarískum dómstólum. Lögin hefðu verið afturhvarf frá einu af lykilatriðum í stríðinu gegn hryðjuverkum, en þau hefðu veitt grunuðum erlendum hryðjuverkamönnum Habeas corpus, sem felur í sér grundvallarvernd gegn handahófskenndu varðhaldi án dómsúrskurðar, og pyndingum.

Dætur Pavarottis véfengja erfðaskrá

Þrjár dætur Luciano Pavarottis af fyrra hjónabandi deila nú um erfðaskrá hans eftir að í ljós kom að hann ánafnaði eiginkonu sinni eignir í Bandaríkjunum sem metnar eru á tvo milljarða.

Adnan og Sana eru skilin

Adnan og Sana Klaric eru skilin. Þau búa í bænum Zenica í Bosníu. Adnan er 32. ára og Sana 27. Adnan ákvað að skilja við Sönu eftir að hann komst að því að hún hafði verið að daðra við karlmann á netinu. Sana ákvað að skilja við Adnan eftir að hún komst að því að hann hafði verið að daðra við konu á netinu.

Lýsa Gaza strönd óvinasvæði

Ríkisstjórn Ísraels hefur lýst Gaza ströndina óvinasvæði í kjölfar síendurtekinna eldflaugaárása á landið frá vígamönnum Hamas á Gaza. Ákvörðunin gæti leitt til þess að Ísraelar loki fyrir flutning á vatni, eldsneyti og rafmagni til svæðisins.

Móðir yfirgefnu stúlkunnar var myrt

Lík móður stúlkunnar sem var yfirgefin á lestarstöð í Ástralíu á laugardag fannst í dag. Lögreglan hafði leitað konunnar frá því á laugardag og fann lík hennar í skotti bíls við heimili fjölskyldunnar á Nýja Sjálandi. Bíllinn er skráður á föður stúlkunnar sem er þriggja ára.

Eyddu vitlausu fóstri

Tveir ítalskir læknar sem eyddu heilbrigðu fóstri fyrir slysni eiga yfir höfði sér kæru vegna vanrækslu í starfi. Í aðgerðinni, sem fór fram í júní, ætluðu læknarnir sér að eyða tvíbura sem greinst hafði með Downs heilkenni. Eftir sónarskoðun skiptu læknarnir um stað og hófu aðgerðina, en eyddu hinum tvíburanum sem var heilbrigður.

Síðasti eftirlifandi Rauði Khmerinn kærður

Sérstakur dómstóll á vegum Sameinuðu þjóðanna sem rannsakar nú fjöldamorð Rauður Khmeranna í Kambódíu hefur kært fyrrverandi næstæðsta yfirmann þeirra fyrir glæpi gegn mannkyni.

Ferðir sendifulltrúa takmarkaðar

Bandarískum sendifulltrúum í Írak er nú bannað að ferðast utan Græna svæðisins svokallaða í Bagdad. Þetta var ákveðið eftir að írösk yfirvöld bönnuðu starfsemi verktakafyrirtækisins Blackwater í landinu. Fyrirtækið hefur annast gæslu sendifulltrúa.

Spútnik fimmtíu ára

Fyrir fimmtíu árum greip um sig mikil skelfing í Bandaríkjunum vegna áttatíu og þriggja kílóa málmbolta. Risastórar fyrirsagnir í blöðunum voru eins og heimsendir væri í nánd. Í herstöðvum Bandaríkjanna víða um heim fengu allir skammbyssur sem þeir áttu að bera á sér dag og nótt. Ástæðan fyrir þessari skelfingu var sú að málmboltinn var á braut um jörðu. Og Rússar höfðu sent hann þangað.

Danskir hermenn særast í Afganistan

Tveir danskir hermenn særðust í morgun í bardaga við talíbana í Helmandsýslu í Afganistan. Annar hermannnanna var skotinn í brjóstið og aðra höndina, en hinn fékk skot í fótlegg. Mennirnir voru fluttir á hersjúkrahús en eru ekki í lífshættu. Danskar hersveitir berjast nú undir stjórn breska hersins í Halmandsýslu.

Móðir finnst látin á sama stað og dóttir hennar nokkrum vikum áður

Móðir táningsstúlku sem fannst látin á lestarteinum í Bretlandi fyrir fimm vikum fannst í gær látin á sama stað. Hin sautján ára Natasha Coombs hvarf þegar hún var á leið heim eftir kvöldstund með vinkonum sínum á veitingastað í Ipswich þann 27. júlí. Tveimur vikum áður hafði hún hætt með kærastanum sínum, og var leið yfir því. Hún fannst svo 10. ágúst í kjarri nálægt lestarteinum í nágrenninu. Hún hafði orðið fyrir lest.

:-) 25 ára í dag

Broskallinn góðlegi sem hóf líf sitt sem tölvutákn er 25 ára í dag. Glaðlega andlitið sem birtist yfirleitt á hlið er nú notaður í milljörðum tölvupósta á degi hverjum. Hann var skapaður af prófessor Scott Fahlman, tölvusérfræðingi í Pittsburg í Bandaríkjunum.

Gullhornin fundin-fjögur handtekin

Lögreglan í Danmörku hefur fundið Gullhorn þau sem stolið var um síðustu helgi og hefur handtekið fjóra, tvo karla og tvær konur vegna málsins. Einnig hefur fundist 9000 ára gamall rafskartgripur í líki skógarbjörns úr innbrotinu.

Einfrumungur drepur þrjá drengi

Heilbrigðisyfirvöld í Flórída aðvara nú fólk um að halda sig frá vötnum sem eru meir en 28 gráðu heit á Orlando-svæðinu því lífshættulegur einfrumungur hefur tekið sér bólfestu í þeim. Aðvörunin kemur í kjölfar þess að þrír ungir drengir hafa látist með skömmu millibili af völdum þessa einfrumungs.

Elsti maður heims 112 ára í dag

Japaninn Tomoji Tanabe, sem er talinn vera elsti núlifandi karlmaðurinn, hélt upp á 112 ára afmæli sitt í dag. Hann hefur aldrei snert áfengi og segir það vera leyndarmálið á bak við langlífi sitt.

Fjöldi tungumála í útrýmingarhættu

Málvísindamenn óttast að á komandi árum muni fjöldi tungumála í útrýmingarhættu aukast hratt. Mörg eru nú þegar nánast útdauð. Þeir hafa skilgreint fimm svæði í heiminum þar sem vandamálið er hvað verst. Tungumál frumbyggja í norðurhluta Ástralíu er talið vera í hvað mestri útrýmingarhættu.

Kærðir fyrir að brjóta viðskiptabann á Íran

Bandarísk yfirvöld kærðu í dag hollenskt fyrirtæki fyrir brjóta gegn viðskiptabanni Bandaríkjamanna á Íran. Hollenska fyrirtækið keypti flugvélaparta frá Bandaríkjunum og endurseldi þá til Írans. Eigandi fyrirtækisins á yfir höfði sér 50 ára fangelsi og sekt upp á allt að 65 milljónir króna verði hann fundinn sekur.

Óttast um móður yfirgefnu stúlkunnar

Óttast er um afdrif móður stúlkunnar sem var skilin eftir á brautarpalli í Melbourne í Ástralíu nýlega. Leitað er að föðurnum um allan heim. Pabbinn sem skildi fjögurra ára dóttur sína, Qian Xun Xue, eftir á brautarpalli í Melbourne er enn ekki kominn fram, þó leitað sé um allan heim.

Breska stjórnin ver sparifjáreigendur

Breska stjórnin hefur heitið sparifjáreigendum því að þeir muni ekki tapa innistæðum sínum hjá Northern Rock, bankanum sem hefur staðið tæpt undanfarna daga.

Evrópusambandið endurskoðar innflutningsbann

Sérfræðingar hjá Evrópusambandinu munu endurskoða innflutningsbann á breskar landbúnaðarvörur um næstu mánaðamót. Evrópusambandið lokaði á allan innflutning á fersku kjöti, búfénaði og mjólkurafurðum frá Bretlandseyjum í síðustu viku eftir að gin-og klaufaveikismit greindist á nautgripabúi í suðurhluta Englands.

Tímamótabreyting á stjórnarskrá Zimbabwe

Stærsti stjórnarandstöðuflokkur Zimbabwe segir að náðst hafi samkomulag við ríkisstjórnina um lagabreytingu á stjórnarskránni. Um er að ræða tímamótabreytingu sem kemur flestum mjög á óvart. Breytingarnar munu gera sameiginlegt framboð til þing- og forsetakosninga mögulegar árið 2008. Þær munu meðal annars leiða af sér fjölgun þingmanna.

Írakar endurskoða öryggisfyrirtæki

Yfirvöld í Írak segja að þau muni endurskoða stöðu allra öryggisfyrirtækja í einkaeigu sem stunda rekstur í landinu. Yfirlýsingin kemur eftir að byssubardagi öryggisvarða í Baghdad kostaði átta óbreytta borgara lífið. Ríkisstjórnin sagði að hún vildi komast að því hvort fyrirtækin færu eftir lögum í landinu.

Löggur reknar í kippum

Héraðsstjórinn í Uttar Pradesh héraði í Indlandi hefur rekið um 10.500 lögregluþjóna úr starfi á einni viku. Héraðsstjórinn segir að þeir hafi keypt sér embættin til þess að geta hagnast á mútum og öðru ólöglegu athæfi. Yfir 22000 lögregluþjónar eru enn til rannsóknar og viðbúið að einhverjir þeirra verði einnig reknir.

Athyglina aftur á leitina að Madeleine

Fjölskylda Madeleine McCann kallaði í dag eftir því að endi yrði bundinn á stjórnlausar vangaveltur um málið og að athygli yrði aftur beint að leit stúlkunnar. Clarence Mitchell talsmaður fjölskyldunnar sagði að vangaveltur um hvort Kate og Gerry McCann hefðu harmað dóttur sína væru eins „fáránlegar og þær væru fjarstæðukenndar.“

Sádi-Arabískar konur vilja ökubanni aflétt

Konur í Sádi-Arabíu berjast nú í fyrsta sinn fyrir því að fá ökubanni kvenna í konungsríkinu verði aflétt. Meðlimir í nefnd sem beitir sér fyrir þessum rétti kvenna munu leggja fram beiðni við þingið fyrir sunnudag, en þá er þjóðhátíðardagur landsins.

Rússar óttast stríðsátök í Íran

Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa lét í dag hafa eftir sér að hann hræddist yfirvofandi hættu á stríði í Íran eftir samtal við franska utanríkisráðherrann, Bernard Kouchner. Á sunnudag ollu ummæli Kouchners um Íran mikilli spennu í Teheran, en hann sagði að heimurinn yrði að „undirbúa sig fyrir það versta, og það versta væri stríð.“

Þriðji maðurinn handtekinn í Simpson málinu

Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í Las Vegas í Bandaríkjunum í dag í tengslum við vopnað rán sem framið var á hótelherbergi í borginni á fimmtudag. O.J. Simpson var handtekinn í fyrrakvöld fyrir meinta aðild að ráninu á The Palace Station hótelinu.

Abe áfram á sjúkrahúsi

Shinzo Abe forsætisráðherra Japans verður áfram á spítala og alls óvíst er hvenær hann kemur aftur til vinnu.

Biðraðir minnka við Northern Rock

Hlutabréfaverð í Northern Rock bankanum í Bretlandi hækkaði á ný í morgun eftir að bresk stjórnvöld hétu því að sparifjáreigendur myndu engu tapa á viðskiptum sínum við bankann.

Mikill vindsnúningur þegar vélin fórst

Háttsettur embættismaður í taílensku flugumferðarstjórninni segir að mikill vindsnúningur hafi orðið í þann mund sem vélin sem fórst á Phuket-flugvelli var að lenda. Áttatíu og níu manns fórust þegar vélin brotlenti, og brann. Embættismaðurinn segir að flugmenn vélarinnar hafi vitað af þessum vindsnúningi.

Portúgalska lögreglan á ystu nöf?

Portúgalskir fjölmiðlar velta því nú fyrir sér hvort þarlend lögregluyfirvöld hafi farið út á ystu nöf með því að bendla foreldra Madeleine við dauða hennar. Efi á sakleysi McCann hjónanna hefur dvínað og almenningsálitið snúist þeim aftur í vil eftir að portúgalskur dómari neitaði að fyrirskipa að Kate skyldi snúa aftur til yfirheyrslu.

Grænlensk börn fara svöng í rúmið

Níu prósent barna á Grænlandi lifa neðan við fátækramörk, samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð hefur verið þar í landi. Stjórnandi rannsóknarinnar, Sissel Lea Nielsen, segir að fátækt grænlenskra barna eigi sér margar birtingarmyndir. Til dæmis hafi foreldrar ekki efni á að láta börn sín taka þátt í tómstundaiðkun og félagslífi.

Óttast um móður lestarstöðvar-stúlkunnar

Lögregla í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Bandaríkjunum leitar nú foreldra þriggja ára stúlku sem skilin var eftir á lestarstöð í Ástralíu á laugardag. Óttast er um móður stúlkunnar sem hefur ekki sést síðan 10. september. Bíll konunnar sem er kínversk fannst við flugvöllin í Auckland á Nýja Sjálandi í gær.

Sjá næstu 50 fréttir