Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fellibylir tvöfalt fleiri nú en árið 1900 Tíðni fellibylja við Atlandshafið er tvöfalt hærri nú en við upphaf síðustu aldar. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn sem birtist í breska tímaritinu Philosophical Transactions. Grandskoðaðir voru fellibylir við Atlandshafið allt frá aldarmótum 1900 og hvernig þeim hefur fjölgað frá ári til árs til dagsins í dag. 30.7.2007 14:34
Bandaríkin semja um hernaðaraðstoð við ríki í Mið-Austurlöndum Bandaríkin skýrðu í dag frá því að þau ætli sér að semja um 13 milljarða dollara heraðstoð við Egypta og 30 milljarða dollara varnarsamning við Ísrael. Þá ætla þeir sér einnig að semja um styrki í hermálum við Sádi-Arabíu og fleiri ríki við Persaflóann. 30.7.2007 14:15
Suðaustur-Asíuríki setja á fót mannréttindastofnun Utanríkisráðherrar Suðaustur-Asíuríkja fögnuðu sögulegum áfanga í dag þegar þeir náðu samkomulagi um að setja á fót mannréttindastofnun fyrir svæðið. Gagnrýnendur segja þó að þeir hafi ekki verið nógu harðorðir í garð herstjórnarinnar í Myanmar, áður Búrma. 30.7.2007 13:49
Rússar styðja Abbas sem forseta allra Palestínumanna Rússar viðurkenna Mahmoud Abbas sem forseta allra Palestínumanna og segjast munu styðja hann eftir megni í því að sameina palestinsku þjóðina og semja frið við Ísrael. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands lýsti þessu yfir við komu Abbas til Moskvu, þar sem hann er nú í opinberri heimsókn. 30.7.2007 13:34
Sett á geðsjúkrahús gegn vilja sínum Einn af meðlimum stjórnarandstöðusamtakanna í Rússlandi, sem leidd eru af Garry Kasparpov, heimsmeistara í skák, var í dag settur á geðsjúkrahús gegn vilja sínum. 30.7.2007 13:24
Utanríkisráðherrar Arabaríkja funda í Kaíró Utanríkisráðherrar nokkurra arabaríkja munu hittast á fundi í Kaíró í Egyptalandi í dag til að bregðast við tillögum George Bush Bandaríkjaforseta um að alþjóðlegur friðarfundur verði haldinn seinna á þessu ári, um ástandið í Miðausturlöndum. 30.7.2007 12:23
Átta milljónir Íraka búa við sára fátækt Þriðji hver Íraki þarf á neyðaraðstoð að halda og hátt í átta milljónir þeirra búa við sára fátækt samkvæmt nýrri skýrslu bresku hjálparsamtakanna Oxfam. 30.7.2007 12:00
Sýndarveruleikinn færist nær Í Second Life-sýndarheiminum halda tónlistarmenn tónleika, háskólar kenna fjarnemum og fyrirtæki opna reglulega útibú. Notendur eru tæplega tvær milljónir og er heimurinn opinn öllum. 30.7.2007 12:00
Talibanar framlengja lokafrest til hálftólf í dag Talibanar sem hafa 22 Suður-Kóreumenn í haldi hafa framlengt lokafrest sinn til klukkan hálftólf í dag. Fresturinn sem þeir gáfu upphaflega rann út í morgun og ekki var vitað hvort að gíslarnir væru enn á lífi. Talsmaður talibana staðfesti þó í dag að þeir væru enn á lífi. 30.7.2007 11:20
Norðmenn hætta að þjálfa írakskar löggur Norðmenn eru hættir að taka að sér þjálfun íraskra lögregeluforingja í Noregi. Ein ástæðan er sú að tíu þeirra hafa notað tækifærið til þess að stinga af og hefja nýtt líf á Vesturlöndum. Þeir hafa hreinlega horfið sporlaust nema hvað einn hefur sótt um hæli í Noregi sem pólitískur flóttamaður. 30.7.2007 11:12
Fjöldaframleidd lífverkfræðihönd Skoskt fyrirtæki býður almenningi upp á fyrst u fjöldaframleiddu taugast ýrðu lí fverkfræðihöndina. Þetta hljómar eins og eitthvað úr Terminator eða Star Wars en er deginum sannara. Búið er að setja á markað svokallaðan „bionic arm“, eins konar lífverkfræðilega hönd. 30.7.2007 11:00
Heimsótti skotgrafir fyrri heimsstyrjaldar 90 árum eftir að hafa barist þar Síðasti eftirlifandi Bretinn sem barðist í skotgröfum fyrri heimsstyrjaldarinnar heimsótti nýverið staðinn þar sem fleiri en 250 þúsund breskir hermenn létu lífið fyrir 90 árum síðan. Harry Patch, 109 ára, fór til Belgíu til þess að minnast bardagans um þorpið Passchendaele. 30.7.2007 10:50
Forseti Fílabeinsstrandarinnar heimsækir norðurhluta landsins í fyrsta sinn í fimm ár Laurent Gbagbo, forseti Fílabeinsstrandarinnar, kom í dag í sína fyrstu heimsókn síðan árið 2002 til norðurhluta landsins en þá tóku uppreisnarmenn völdin í honum. 30.7.2007 09:43
Fara á ösnum í skólann Borgarstjóri einn í Kólumbíu hefur fundið nýja leið til að reyna að auka menntun barna í þorpunum í kring. 29.7.2007 19:46
Brown reyndi að slá á sögur um kólnandi samskipti Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, flaug til fundar við Bush Bandaríkjaforseta í dag. Brown reyndi fyrir ferðina að slá á sögur um að samskipti þjóðanna færu kólnandi og lagði áherslu á mikilvægi þeirrar öflugu samvinnu sem ríki þeirra á milli. 29.7.2007 19:09
Tveir þýskir ferðmenn drukkna við strendur Jótlands Tveir þýskir ferðamenn, móðir og sonur, drukknuðu í sjónum úti við danska bæinn Söndervig á vesturströnd Jótlands í dag. Pilturinn var á sundi þegar sterk undiralda hreif hann með sér á haf út. Móðirinn gerði tilraun til að bjarga syni sínum með fyrrgreindum afleiðingum. 29.7.2007 19:09
Shinzo Abe segir ekki af sér þrátt fyrir kosningaósigur Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, ætlar ekki að segja af sér þrátt fyrir að hann viðurkenni ósigur síns flokks í kosningum til efri deildar japanska þingsins í dag. Ekki er þó útilokað að gerðar verði breytingar á ráðherraskipan innan ríkisstjórnarinnar á næstunni. 29.7.2007 17:06
Sameinað Írak fagnar sigri á Asíuleikunum Írakar hafa safnast þúsundum saman á götum úti til að fagna í sigri íraska fótbaltalandsliðsins á Saudi Aröbum í úrslitaleik liðanna á Asíuleikunum í Indónesíu í dag. Sjíar, Sunníar og Kúrdar þustu með fagnaðarlátum út á göturnar og heyra hefur mátt bílflautur þeyttar og byssuskot eftir að úrslitin lágu fyrir. 29.7.2007 16:35
Sjö létu lífið þegar flutningavél hrapaði í Rússlandi Sjö létu lífið þegar flutningavél hrapaði skömmu eftir flugtak í Moskvu í Rússlandi í nótt. Engan á jörðu niðri sakaði en flugvélin lenti í skóglendi og varð alelda á svipstundu. Ekki er vitað hver orsök slysins er. 29.7.2007 12:34
Hætta á flóðum hefur rénað Lík nítján ára pilts fannst umflotið vatni á vestur-Englandi í nótt en piltsins hafði verið saknað í um viku, eða frá því flóðin á svæðinu hófust. Hætta á flóðum á Bretlandseyjum hefur minnkað en rigningar sem gengu yfir suðvestur England í nótt höfðu töluvert minni áhrif en spáð hafði verið. 29.7.2007 12:13
Brown fundar með Bush í dag Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, fundar með Bush Bandaríkjaforseta í dag. Brown reyndi fyrir ferðina að sannfæra Bandaríkjamenn um að hans koma í embættið myndi engu breyta í samskiptum þjóðanna. 29.7.2007 10:01
Japanar ganga að kjörborðinu Japanar ganga að kjörborðinu í dag og kjósa um helming sæta í efri deild japanska þingsins. Kosningarnar gætu orðið til þess að Sinzo Abe, forsætisráðherra Japana, þurfi að hrökklast úr embætti. 29.7.2007 09:54
Flóttamenn fá að fara í gegnum Ísrael til Vesturbakkans Þúsundir palestínskra flóttamanna sem nú eru strandaglópar í Egyptalandi hafa fengið leyfi til að fara til Vesturbakkans samkvæmt samkomulagi egypskra og ísraelskra stjórnvalda. Fólkið flúði til Egyptalands frá Gazasvæðinu eftir að Hamas-samtökin tóku völdin þar fyrr í sumar. 28.7.2007 20:41
Geimförum hjá NASA leyft að fljúga þrátt fyrir áfengisneyslu Geimförum hjá bandarísku geimvísindastofnuninni NASA hefur verið leyft að fljúga eftir mikla áfengisneyslu þrátt fyrir aðvaranir lækna. Yfirmaður hjá Nasa fullyrðir að eftirlit með áfengisneyslu geimfaranna verði hert svo slíkt gerist ekki aftur. 28.7.2007 19:06
Skipt um rafhlöður í Dick Cheney Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, gekk undir uppskurð í dag þar sem skipt var um rafhlöður í gangþráð hans. Aðgerðin fór fram á George Washington háskólasjúkrahúsinu í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, og þótti takast vel. 28.7.2007 19:03
Sameinuðu þjóðirnar veita fé í uppbyggingu skólastarfs í Jórdaníu og Sýrlandi Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að veita tæpum 130 milljónum bandaríkjadala, andvirði tæpra átta milljarða íslenskra króna í uppbyggingu skólastarfs fyrir börn íraskra flóttamanna í Sýrlandi og Jórdaníu. Yfir hundrað og fimmtíu þúsund írösk flóttamannabörn búa þar og eiga þess ekki kost að ganga í skóla. 28.7.2007 18:57
Íbúar varaðir við áframhaldandi rigningu í Suður Englandi Lögregluyfirvöld í Suður Englandi hafa varað íbúa flóðasvæðanna við mikilli rigningu sem spáð hefur verið um helgina og er fólk hvatt til að halda sig inni. Gríðarlegt tjón hefur orðið á vegum, gróðri og húsum vegna flóðanna undanfarna daga og einna mest í Glosterskíri. Þúsundir manna eru enn án rafmagns og vatns. 28.7.2007 18:47
Sex falla í sjóbardaga við Sri Lanka Að minnsta kosti sex uppreisnarmenn Tamil tígra féllu í sjóbardaga milli þeirra og sjóhers Sri Lanka fyrir utan norðvesturströnd landsins í morgun. Mennirnir sex voru um borð í tveimur bátum og höfðu þeir falið sig í hópi um 60 indverskra fiskibáta. 28.7.2007 15:24
Skotinn í hausinn vegna ágreinings um reykingabann Breska lögreglan handtók í dag 19 ára gamlan pilt sem grunaður er um morðið á James Oyebola,fyrrum þungavigtarmeistara í hnefaleikum. Oyebola var skotinn í höfuðið á skemmtistað í London á mánudaginn eftir að hann bað gesti um að hætta reykja inni á skemmtistaðnum. 28.7.2007 14:56
Sex fluttir á sjúkrahús eftir að hafa sýkst af hermannaveiki Flytja þurfti sex farþegar á skemmtiferðarskipi á spítala í Stokkhólmi í Svíþjóð í morgun eftir að grunur vaknaði um að þeir hefðu sýkst af hermannaveiki. Skipið var á ferð um Eystrasaltið þegar fólkið veiktist. 28.7.2007 13:32
130.000 heimili vatnslaus í Gloucesterskíri Spáð er enn meiri rigningu í Englandi og Wales yfir helgina og gæti það aukið verulega á flóðahættu á þeim svæðum. Í kringum 130.000 heimili í Gloucesterskíri eru enn vatnslaus og talið er að ástandið muni ekki lagast næstu daga. 28.7.2007 12:16
Fjórir létust í þyrluslysi í Arisona ríki Fjórir létust þegar tvær þyrlur í eigu bandarískra sjónvarpsstöðva í Arisona ríki hröpuðu til jarðar í gær. Þyrlurnar hröpuðu báðar á skólalóð í borginni Phoenix eftir að þær höfðu verið að mynda lögregluna elta vörubíl. 28.7.2007 12:12
Fimm láta lífið í sprengingu í Bagdad Fimm létust og að minnsta kosti tíu særðust þegar sprengja sprakk á fjölfarinni verslunargötu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengjunni var komið fyrir í trukk sem búið var að leggja við bílasölu. 28.7.2007 12:03
Fjórtán láta lífið vegna flóða á Indlandi og Bangladesh Að minnsta kosti fjórtán hafa látið lífið í miklum flóðum sem nú geysa á Indlandi og í Bangladesh. Mikil úrkoma hefur verið á svæðinu undanfarna daga og hafa ár hafa flætt yfir bakka sína og hundruðir þúsunda þurft að yfirgefa heimili sín. Þá hefur rafmagn farið af stórum svæðum vegna flóðanna. 28.7.2007 11:36
Bandaríska þingið boðar aukið eftirlit Bandaríska þingið hefur samþykkt frumvarp sem felur í sér aukin fjárframlög til þeirra borga sem talin eru í mestri hryðjuverkahættu og verður öryggiseftirlit eflt á öllum sviðum. 28.7.2007 10:40
Ástralir sleppa meintum hryðjuverkamanni Indverskum lækni sem sakaður var um að vera einn höfuðpaura í bílsprengjutilraun í Bretlandi var í gær sleppt í Ástralíu eftir að yfirvöld þar í landi felldu niður málið vegna sönnunarskorts. 28.7.2007 10:27
Einn lætur lífið í skotárás í Manchester Rúmlega tvítugur maður var skotinn til bana og þrír særðust í skotárás í Manchester í Bretlandi í nótt. Maðurinn var skotinn í Medlock sýslu í Manchester nálægt háskólanum í borginni á miðnætti í gær. Maðurinn lést þegar hann kom á spítalann. 28.7.2007 10:24
Endurvann sjálfa sig Konu í bænum Sittingbourne á Englandi var bjargað af slökkviliðsmönnum eftir að hún féll ofan í tunnu sem notuð er til endurvinnslu. Konan hafði ætlað að endurvinna föt þegar henni snérist hugur og reyndi hún að teygja sig eftir þeim ofan í tunnuna. 27.7.2007 23:22
Sjónvarpsþyrlur rákust saman í Phoenix Tvær sjónvarpsþyrlur rákust saman er þær voru að mynda bílaeltingarleik lögreglu í Phoenix í dag. Flugmaður og myndatökumaður voru í hvorri vél fyrir sig og létust allir. Við áreksturinn kviknaði í þyrlunum og hröpuðu þær til jarðar. Engin slys urðu á fólki á jörðu niðri. 27.7.2007 21:35
Spielberg hótar því að hætta sem listrænn ráðgjafi Ólympíuleikanna Kvikmyndaframleiðandinn Steven Spielberg segir að hann muni mögulega hætta sem listrænn ráðgjafi Ólympíuleikanna í Peking 2008 ef Kína tekur ekki harðar á málum í Súdan. 27.7.2007 21:13
Fíkniefnapeningum varið í meðferðarúrræði Lögregla í Bandaríkjunum handtók á miðvikudag Zhenli Ye Gon, mexíkóskan mann af kínverskum uppruna, fjórum mánuðum eftir að einn stærsti peningafundur fíkniefnasögunnar var gerður á heimili hans í Mexíkóborg. Peningar sem samsvara 205 milljónum Bandaríkjadala fundust þar bak við falska veggi. 27.7.2007 20:00
Rigningum spáð á flóðasvæðum í Bretlandi um helgina Íbúar flóðasvæðanna í Bretlandi búa sig nú undir miklar rigningar sem spáð er um helgina. Fjölmargir hafa snúið aftur til síns heima en margir eru þó enn án drykkjavatns. Karl Bretaprins og eiginkona hans Kamilla heimsóttu íbúa flóðasvæðanna í dag. 27.7.2007 18:46
Króna veikist vegna óvissu á erlendum hlutabréfamörkuðum Krónan hefur veikst um tæp þrjú prósent á síðustu þremur dögum en talið er að rekja megi lækkunina til óvissu á erlendum hlutabréfamörkuðum undanfarið . 27.7.2007 18:42
Unglingar myrtir í Lundúnum Sautján unglingar hafa verið skotnir eða stungnir til bana í Lundúnum á þessu ári. Breska lögreglan leitar nokkurra unglinga sem taldir eru tilheyra glæpagengi en þeir eru grunaðir um að hafa myrt sextán ára pilt í suðurhluta Lundúna í gær. Piltarnir eltu fórnarlambið uppi á hjólum í ninjubúningum og skutu til bana. 27.7.2007 18:35
Fallið frá ákæru á hendur indverskum lækni Fallið hefur verið frá ákæru á hendur Mohamed Haneef, indverskum lækni, sem grunaður var um aðild að hinum misheppnuðu sprengjutilræðum í London og Glasgow í síðasta mánuði. Haneef hefur verið sleppt úr haldi áströlsku lögreglunnar en bíður eftir að ákvörðun verði tekin um vegabréfsáritun hans. 27.7.2007 18:29