Erlent

Fjöldaslagsmál í tengslum við knattspyrnuleik í Danmörku

Til átaka kom á milli áhangenda dönsku knattspyrnuliðanna OB og Horsens sem áttust við í Óðinvéum í dag. Gestirnir frá Horsens létu ófriðlega strax við komuna á brautarstöðina í Óðinsvéum og ollu þar skemmdum en síðan héldu þeir á knæpu þar sem stuðningsmenn OB sátu. Að því er Jótlandspósturinn hermir voru flöskur, hafnaboltakylfur og billjarðkúlur notaðar í fjöldaslagsmálunum sem í hönd fóru. Lögreglan kom svo á vettvang og handtók verstu ólátaseggina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×