Fleiri fréttir

Tæplega hundrað fangar hafa látist í fangelsum Bandaríkjahers

Tæplega hundrað fangar hafa látið lífið í fangelsum Bandaríkjahers í Írak og Afganistan síðan í ágúst árið 2002. Fjölmargir þeirra munu hafa verið pyntaðir til dauða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights First.

Bush segir að samningar um hafnir verði að ganga í gegn

George Bush Bandaríkjaforseti sagði við blaðamenn sem ferðuðust með honum í forsetavél hans í gær að samningar við arabíska fyrirtækið sem hefur tekið að sér að sjá um rekstur sex stórra hafna í Bandaríkjunum verði að ganga í gegn.

Mannfall í aðdraganda friðarviðræðna

Þrír uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka létu lífið á árás í borginni Batticaloa þar í landi í morgun. Uppreisnarmenn segja að sex vopnaðir menn, klæddir í búninga stjórnarhersins, hafi ráðist á þá. Friðarviðræður milli fulltrúa stjórnvalda og Tamíl tígra eiga að hefjast í Sviss í dag.

98 fangar dáið í haldi Bandaríkjamann í Írak og Afganistan

Tæplega 100 fangar hafa látið lífið í fangelsum Bandaríkjahers í Írak og Afganistan síðan í ágúst árið 2002. Fjölmargir þeirra munu hafa verið pyntaðir til dauða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu bandarísku mannréttindasamtakanna Human Rights First.

Sendiráð Dana í Indónesíu senn opnað aftur

Danska sendiráðið í Djakarta í Indónesíu verður opnað aftur fljótlega, en það hefur nú verið lokað í tíu daga vegna óeirða í borginni í tengslum við skopteikningarnar af Múhameð spámanni.

Mannskæð árás á markaði í Bagdad

Að minnsta kosti 22 létust og 30 særðust í bílsprengjuárás á markaði í suðurhluta Bagdad í dag. Fregnir herma að sprengunni hafi verið beint að lögreglumönnum á eftirlitsferð.

Mikil tengsl verði milli Palestínu og Írans

Pólitískur leiðtogi Hamas, Khaled Meshaal, segir engan grundvöll fyrir viðræðum við Ísraela fyrr en þeir hafi yfirgefið Palestínu fyrir fullt og allt. Meshaal var staddur í Teheran þar sem hann ræddi við þarlend yfirvöld og sagði hann líklegt að Íran myndi spila stærra hlutverk í utanríkismálum Palestínu en verið hafi. Ráðamenn í Bandaríkjunum og Ísrael óttast að Íranar reyni að hafa óeðlileg áhrif á nýja palestínska stjórn sem mynduð verður á næstu dögum.

Aftökunni frestað

Yfirvöld í Kaliforníu urðu í morgun að fresta aftöku yfir dæmdum morðingja eftir að læknar sem taka áttu þátt í aftökunni höfnuðu því af siðferðisástæðum.

Mladic að líkindum handtekinn

Óstaðfestar fregnir herma að Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, hafi verið handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðin í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru myrtir.

Ratko Mladic handtekinn

Ratko Mladic, æðsti yfirmaður hers Bosníu-Serba, var handtekinn í Serbíu í dag. Hann hefur verið eftirlýstur fyrir stríðsglæpi í rúman áratug, þar á meðal fjöldamorðið í Srebrenica þar sem að minnsta kosti átta þúsund manns voru stráfelldir. Fréttir af handtökunni hafa ekki verið staðfestar af serbneskum yfirvöldum.

Óskaði eftir aðstoð lögreglu við að fá endurgreitt frá eiturlyfjasala

Fólk óskar eftir aðstoð lögreglunnar í hinum ýmsu og oft ótrúlegustu málum en ósk Þjóðverja nokkurs á dögunum slær líklega flestar beiðnir um lögregluaðstoð út. Maðurinn keypti sér 200 grömm af maríjúana af ónefndum eiturlyfjasala, en þegar hann prófaði varninginn skömmu eftir viðskiptin var hann langt í frá ánægður með gæði efnisins.

Viðræður um kjarnorkuáætlun N-Kóreumanna hefjast á ný

Stefnt er að því að viðræður um lausn á deilunni um kjarnorkuáætlun Norðurkóreumanna hefjist á ný í mars eða apríl. Vesturveldin hafa lagt hart að Norðurkóreumönnum að hefja ekki auðgun úrans en stjórnvöld í Pyongyang segja það gert til raforkuframleiðslu.

Nauðsynlegt að fólk virði öll trúarbrögð

Benedikt páfi XVI segir nauðsynlegt að fólk virði öll trúarbrögð heimsins og forðist það eftir fremsta megni að vega ómaklega að trúarbrögðum, táknum þeirra og kennisetningum.

Leit að námuverkamönnum hefur engan árangur borið

Leitin af sextíu og fimm námuverkamönnum sem festust á þriggja kílómetra dýpi eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas í Mexíkó í gær, hefur engan árangur borið.

Umdeilt að arabískt fyrirtæki reki hafnir í Bandaríkjunum

Fjölmargir bandarískir stjórnmálamenn hafa gagnrýnt þá ákvörðun stjórnar Bush Bandaríkjaforseta að heimilia arabísku fyrirtæki að taka yfir rekstur sex stórra hafna þar í landi. Fyrirtækið, sem staðsett er í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, hefur keypt breskt fyrirtæki sem hefur séð um rekstur hafna í sex borgum, þar á meðal Miami og New York.

Innflytjendalöggjöf í Hollandi hert

Innflytjendur sem hyggjast setjast að í Hollandi þurfa að standast tungumála- og menningarpróf áður en þeir fá að koma til landsins, samkvæmt nýjum innflytjendalögum sem taka gildi um næstu mánaðamót

Veik von um að mennirnir séu enn á lífi

Aðstandendur sextíu og fimm námaverkamanna í Mexíkó, sem sitja fastir á þriggja metra dýpi, bíða nú milli vonar og ótta um að það takist að bjarga þeim í tæka tíð.

Þriggja ára fangelsi fyrir að afneita helförinni

Enn er tekist á um hvar mörk tjáningarfrelsisins liggja, að þessu sinni í réttarsal í Vínarborg í dag. Þar viðurkenndi breski sagnfræðingurinn David Irving að hafa afneitað helförinni gegn gyðingum. Fyrir vikið var hann dæmdur í þriggja ára fangelsi.

Segist hafa gert ráðstafanir vegna öryggis starfsmanna sinna

Fyrirtækið Enex, sem Jón Þór Ólafsson starfaði hjá, segist hafa gert viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi starfsmanna sinna í El Salvador. Forsvarsmenn þess vísa fréttum, þar sem gefið er í skyn að þeir hafi hunsað ráðleggingar um slíkt, á bug.

Krefjast óskoraðs sjálfstæðis Kosovo

Viðræður um framtíð hins umdeilda Kosovo-héraðs í Serbíu hófust í Austurríki í dag. Kosovo-Albanar vilja að héraðið fái fullt og óskorað sjálfstæði en serbneski minnihlutinn hugsar til þess með hryllingi.

Sömdu um skiptingu hafsvæðis

Utanríkisráðherrar Danmerkur og Noregs undirrituðu í dag samning um skiptingu landsgrunns og hafsvæðis milli Svalbarða og Grænlands

Þokast í átt að nýrri ríkisstjórn

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hóf í dag viðræður við Hamas-samtökin sigurvegara þingkosninga í landinu um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Fulltrúi Hamas-samtakanna sagði að líklega myndi Abbas á fundinum fela Ismail Abbas, forsætisráðherraefni Hamas-samtakanna, umboð til að setja saman ríkisstjórn.

Viðræður halda áfram á morgun

Rússar og Íranir ætla að halda áfram viðræðum á morgun um auðgun Rússa á úrani fyrir Írani. Samningaviðræður vegna málsins hófust í morgun og lauk fundinum fyrir skömmu.

Enn lífsmark í aurskriðum á Filippseyjum

Björgunarmenn vinna nú hörðum höndum að því að grafa frá skóla sem að lenti undir aurskriðu á eynni Leyte á Filippseyjum eftir að lífsmarks varð vart undir skriðunni.

Fundað um fuglaflensu

Þýsk stjórnvöld leggja mikla áherslu á að koma í veg fyrir að hinn banvæni H5N1 fuglaflensu stofn breiðist út um Þýskaland. Lanbúnaðarráðherrar Evrópuríkja funda í Brussel í dag um fuglaflensuna og mögulegar aðgerðir gegn henni.

Rússar og Íranar ræða kjarnorkumál

Samningaviðræður Rússa og Írana um samvinnu vegna kjarnorkuáætlunar Írana hófust í Moskvu í morgun. Þetta er haft eftir talsmanni öryggisráðs rússneska þingsins. Rússar hafa boðist til þess að auðga úran fyrir Írana og þar með draga úr þeirri alþjóðadeilu sem er uppi vegna kjarnorkuáætlunar stjórnvalda í Teheran.

Kennari játar morð á nemanda sínum

Japanskur kennari játaði í morgun á sig morð á einum nemenda sinna. Maðurinn kom fyrir dóm í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa ráðist með hnífi á nemendann, tólf ára gamla stúlku, inni í skólastofu og veitt henni banvæn sár.

Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum fækkar

Ákærum í kynferðisbrotamálum gegn börnum í Danmörku fækkaði töluvert á síðasta ári miðað við árin á undan. Þetta sýna bráðabirgðatölur lögreglunnar þar í landi. Ákært var í 227 málum í fyrra, eða um helmingi færri en árið 2004 þegar tæplega 460 mál fóru fyrir dómstóla.

Flak þýsku flugvélarinnar fundið

Flak þýsku flugvélarinnar sem hrapaði í norðurhluta Íraks á fimmtudag er fundið. Um borð í vélinni voru fimm Þjóðverjar og einn Íraki og voru þeir allir látnir þegar komið var að vélinni.

Líklega ekki um fuglaflensu að ræða í Finnlandi

Heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi greindu frá því í gær að niðurstöður úr sýnum úr hræjum nokkurra svana sem fundust þar í landi bendi ekki til að fuglarnir hafi drepist úr nokkurri gerð fuglaflensu.

Samstarf Rússa og Írana um auðgun úrans

Íranar eru reiðubúnir að fallast á tillögur stjórnvalda í Moskvu um samstarf við auðgun úrans í Rússlandi, ef samkomulag tekst um breytingar á tillögunum í viðræðum sem hefjast í Moskvu í dag.

Skotbardagi fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn

Tveir liggja með skotsár á sjúkrahúsi eftir að ágreiningur manna á milli fór úr böndunum fyrir utan skemmtistað í Kaupmannahöfn í gærmorgun. Mennirnir fengu báðir byssukúlu í annan fótinn og þá var þriðji aðili skorinn í andlitið.

Ísraelar afhenda ekki skatta

Ísraelar ætla ekki að afhenda heimastjórn Palestínumanna skatta sem þeir taka af palestínskum verkamönnum. Þá ætla þeir heldur ekki að afhenda þeim tolla sem Ísraelsstjórn innheimtir af vörum sem Palestínumenn flytja inn.

Sextíu og tveggja ára kona frá Californiu ól barn

Sextíu og tveggja ára kona frá Californiu ól barn síðastliðinn föstudag og er hún meðal elstu kvenna sem það hefur gert í heiminum. Janise Wulf átti fyrir 11 börn, 20 barnabörn og þrjú barna barnabörn. Meðganga þessa 12 barns Janise gekk vel framan af, en vegna hækkandi blóðþristings var barnið tekið með keysaraskurði viku fyrir tímann.

Bin Laden segist ekki verða tekinn höndum lifandi

Osama bin Laden, leiðtogi al Kaída hryðjuverkasamtakanna, heitir því að hann verði aldrei tekinn höndum lifandi og segir Bandaríkjamenn hafa gripið til sömu villimannslegu úrræðanna í Írak og Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseti. Þetta kemur fram í hljóðupptöku sem birt var á vefsíðu herskárra samtaka í morgun.

Beit nef af kærustu sinni og gleypti það

Rólegt matarboð fjölskyldu í Californíu endaði með hörmungum þegar maður beit nef af kærustu sinni og gleypti það. Jody Bannet kom fram í stofu alblóðug í framan eftir að hafa verið í rifrildum við kærsta sinn og sá þá heimilisfólkið að nefið vantað á hana, lögregla og sjúkralið var kvatt á staðinn og kærastinn hendtekinn.

Skopmyndundunum af Múhameð enn mótmælt

Þúsundir manna komu saman bæði í Pakistan og í Tyrklandi í gær til að mótmæla skopmyndunum af Múhameð spámanni. Lögreglan þurfti að beita táragasi og gúmmíkúlum til að dreifa mannfjöldanum sem hrópaði slagorð gegn Bush Bandaríkjaforseta.

Sögulegar viðræður um framtíð Kosovo-héraðs

Samninganefndir Serba og Kosovo-Albana koma saman til sögulegs fundar í Vín í Austurríki í dag til að ræða framtíð Kosovo-héraðs. Kosovo-Albanir krefjast þess að héraðið fái sjálfstæði frá Serbíu en Serbar segja Kosovo mikilvægan hluta af ríki sínu og vilja halda einhverri stjórn þar.

Óttast um líf 65 námuverkamanna

Óttast er að enginn hafi komist lífs af eftir að gassprenging varð í kolanámu í bænum San Juan de Sabinas, um 135 kílómetra suðvestur af Texas í Bandaríkjunum í gær. Alls eru sextíu og fimm námuverkamenn fastir inni í námunni og hefur ekkert samband náðst við þá þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

Sjá næstu 50 fréttir