Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hvetur landa sína til að sniðganga vörur frá Ísrael Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, hefur hvatt landa sína til að sniðaganga vörur frá Ísrael vegna óánægju með stefnu Ísraela í málefnum Palestínu. Flokkur hennar, Sósíalíski vinstriflokkurinn, hefur í lok mánaðarins átak til þess að auka skilning á málstað Palestínu og hvatningin er liður í því. 5.1.2006 09:45
Þrjú lík til viðbótar fundust í skautahöll í Þýskalandi Björgunarmenn hafa fundið lík þriggja manna til viðbótar sem létust þegar þak skautahallar í bænum Bad Reichenall í Þýskalandi hrundi undan snjóþunga á mánudag. Alls hafa því fjórtán fundist látnir eftir slysið, flestir þeirra börn og unglingar. Þá er eins enn saknað. 5.1.2006 09:30
Úkraínumenn greiða tvöfalt hærra verð fyrir gasið Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í Moskvu í gær, að samkomulag við stjórnvöld í Úkraínu um kaup á gasi frá Rússlandi á hærra verði en áður, yrði til að tryggja stöðugt framboð á gasi til annarra Evrópuríkja. Munu Úkraínumenn greiða að jafnvirði um sex þúsund krónum fyrir hverja þúsund rúmmetra af gasi frá Rússlandi sem er tvöfallt hærri upphæð frá því sem áður var. 5.1.2006 09:15
Um fimmtíu létust í árásinni 49 hið minnsta létu lífið í sprengjuárás í borginni Kerbala í sunnanverðu Írak í morgun og tala látinna gæti enn átt eftir að hækka. 58 eru særðir. Maður með sprengiefni bundin um sig sprengdi sig í loft upp í mannþröng nærri einu af helstu helgiskrínum sjíamúslima. 5.1.2006 08:54
Biðjast afsökunar á röngum upplýsingum Forsvarsmenn kolanámunnar í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum, þar sem 12 námuverkamenn létu lífið eftir að sprenging varð, segjast harma það innilega að ættingjum og ástvinum hinna látnu hafi borist rangar upplýsingar um að mennirnir væru á lífi. Aðstandendur komu saman við kirkju í ríkinu í gær til að minnast hinna látnu. 5.1.2006 08:45
Ellefu létust í sprengjuárás Ellefu létust og átján særðust í sprengingu í Kerbala í Írak fyrir fáeinum mínútum. Þetta er önnur sprengjuárásin í borginni á jafnmörgum dögum en í gær særðust þrír í bílsprengjuárás en hún var sú fyrsta sinnar tegundar í borginni síðan í desember 2004. 5.1.2006 08:01
Systkin látast úr fuglaflensu í Tyrklandi Fjórtán ára drengur og systir hans hafa látist af völdum fuglaflensu í Tyrklandi síðan í gær. Þetta eru fyrstu tilfelli þess að fólk láti lífið þar af völdum veikinnar. Heilbrigðisráðherra Tyrklands greindi frá dauða drengsins á blaðamannafundi og fregnir af dauða systur hans bárust svo í morgun. 5.1.2006 08:00
Sharon enn í lífshættu Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk annað heilablóðfall í gærkvöld, mun alvarlegra en það sem hann fékk þann 18. desember síðastliðinn. Læknar segja batahorfur hans ekki vera góðar þó tekist hafi að stöðva blæðingar í heila. 5.1.2006 07:51
Reyndu að brjóta niður girðingar á Gasasvæðinu Hópur herskárra Palestínumanna stal tveimur jarðýtum í gær og hóf að reyna að brjóta niður landamæragirðingu milli Gasasvæðisins og Egyptalands. Mennirnir voru að mótmæla því að einn leiðtoga þeirra hafi verið handtekinn af palestínsku lögreglunni en hann er grunaður um aðild að ráni á þremur Bretum á Gasaströndinni í síðustu viku. 5.1.2006 07:30
Sharon sagður lamaður fyrir neðan mitti Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, fékk annað heilablóðfall í gærkvöld, mun alvarlegra en það sem hann fékk þann 18. desember síðastliðinn og segja læknar batahorfur ekki vera góðar. 5.1.2006 07:09
Sharon aftur á sjúkrahús eftir heilablóðfall Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var fluttur með hraði á sjúkrahús í Jerúsalem í kvöld eftir að hafa fengið heilablóðfall. Aðeins eru tæpar þrjár vikur síðan Sharon var lagður inn á spítalann, einnig vegna heilablóðfalls, sem reyndist minniháttar. Heilablóðfallið sem ráðherrann fékk í kvöld er hins vegar mun alvarlegra, að því er ísraelskir fjölmiðlar hafa eftir lækni á sjúkrahúsinu. 4.1.2006 21:36
Rodney Coronado dæmdur Dýraverndunarsinni sem sökkti tveimur hvalbátum í Reykjavíkurhöfn fyrir tuttugu árum á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisvist í Bandaríkjunum. Hann er talinn forsprakki í hópi sem lögregla í Bandaríkjunum segir að sé stórhættuleg hryðjuverkasamtök. 4.1.2006 19:12
Allir nema einn létust í námuslysinu Gleði breyttist í mikla sorg og reiði þegar ættingjum manna sem lokuðust af í kolanámu í Bandaríkjunum var fyrst sagt að allir nema einn hefðu komist lífs af, en þremur klukkustundum síðar að einn hefði lifað en allir hinir látið lífið. 4.1.2006 18:45
Skæruliðahópur sprengdi olíuholur- og leiðslur Skæruliðahópur í Kólumbíu sprengdi átta olíuborholur og þrjár olíuleiðslur í Amason-regnskógunum í loft upp í gær. Olían hefur valdið miklum umhverfisspjöllum og liggur nú á 100 km löngum kafla árinnar Putumayo. 4.1.2006 13:00
Rússar og Úkraínumenn komast að samkomulagi Rússar og Úkraínumenn hafa komist að samkomulagi í gasdeilunni. En rússneska gasfyrirtækið Gazprom lokaði fyrir gassölu til Úkraínu í fyrradag vegna ósættis um verðlag. Evrópskir fjölmiðlar segja gjörðir Rússa hafa gert heimsbyggðina tortryggna gagnvart Pútín forseta og stjórnvöldum í landinu. 4.1.2006 12:21
Náðu samkomulagi í gasdeilu Rússar og Úkraínumenn hafa komist að samkomulagi í gasdeilunni. En rússneska gasfyrirtækið Gazprom lokaði fyrir gassölu til Úkraínu í fyrradag vegna ósættis um verðlag. Evrópskir fjölmiðlar segja gjörðir Rússa hafa gert heimsbyggðina tortryggna gagnvart Pútín forseta og stjórnvöldum í landinu. 4.1.2006 12:15
Yfir þrjátíu féllu í jarðarför í Írak Að minnsta kosti þrjátíu manns féllu og yfir fjörtíu eru særðir eftir að sprengja sprakk í útför háttsetts sjíta múslima um nítíu kílómetra frá Bagdad, höfuðborgar Íraks í morgun. Hópur uppreisnarmanna hóf skothrí í miðri útför og er um blóðugustu árás að ræða eftir kosningar í landinu sem fram fóru þann 15. desember síðastliðinn. Engin samtök hafa lýst ábyrgð á verknaðinum. 4.1.2006 12:14
Omri segir af sér Omri Sharon, sonur Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt af sér þingmennsku. Omri var ákærður fyrir að taka við erlendum fjárframlögum til að standa straum af kosningabaráttu föður síns fyrir Likud-flokkinn árið 1999. Forsætisráðherrann verður þó ekki ákærður vegna skorts á sönnunum 4.1.2006 12:11
Sonur Sharons segir af sér Omri Sharon, sonur Ariels Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt af sér þingmennsku. Omri var ákærður fyrir að taka við erlendum fjárframlögum til að standa straum af kosningabaráttu föður síns fyrir Likud-flokkinn árið 1999. Forsætisráðherrann verður þó ekki ákærður vegna skorts á sönnunum. 4.1.2006 11:49
Skæruliðar sprengdu olíuborholur Skæruliðahópur í Kólumbíu sprengdi átta olíuborholur og þrjár olíuleiðslur í loft upp í Amasonregnskógunum í gær. Olían hefur valdið miklum umhverfisspjöllum og liggur nú á 100 kílómetra löngum kafla árinnar Putumayo. 4.1.2006 10:29
ESA kannar jafnréttislög í Noregi Eftirlitsstofnun EFTA hefur hafið rannsókn á því hvort lög í Noregi sem kveða á um að að minnsta kosti fjörutíu prósent stjórnarmanna í fyrirtækjum skuli vera af hvoru kyni samræmist reglum Evrópusambandsins. Þeim verða Norðmenn að hlíta í gegnum EES-samninginn. 4.1.2006 10:15
Mál meints hryðjuverkamanns falið bosnískum yfirvöldum Danska lögreglan hefur hætt við að ákæra einn þeirra sem handteknir voru vegna gruns um að skipuleggja hryðjuverkaárás í landinu og falið bosnískum yfirvöldum málið. Maðurinn sem um ræðir var handtekinn í Bosníu síðla síðasta árs en hann er Dani af tyrknesku bergi brotinn. 4.1.2006 10:00
Varað við skemmdarverkum á laxeldiskvíum í Noregi Lögregla í Noregi hefur hvatt laxeldisfyrirtæki til að vera á varðbergi gagnvart skemmdarverkum sem kunni að verða unnin á kvíum þeirra. Þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten. Lögregla rannsakar nú hvort herskáir umhverfisverndarsinnar hafi skemmt kvíar í Finnmörku í júní í fyrra en þá sluppu um hundrað þúsund laxar úr kvíunum. 4.1.2006 09:30
Telja meirihluta þingmanna spilltan Meirihluti þingmanna er spilltur að mati meirihluta Bandaríkjamanna samkvæmt skoðanankönnun Gallup fyrir CNN og USA Today. Ekki nóg með það heldur telja þeir að um fimmtungur þingmanna sé mjög spilltur. 4.1.2006 09:30
Allir námuverkamennirnir í Virginíu látnir nema einn Aðeins einn af kolanámuverkamönnunum sem sátu fastir í námu í Vestur-Virginíu komst lífs af samkvæmt nýjustu fregnum, en svo virðist sem upplýsingum um málið hafi verið snúið við. Tólf menn létu því lífið en ekki einn. Talsmaður kolanámufyrirtækisins greindi fjölskyldum mannanna frá þessu. 4.1.2006 08:09
Omri Sharon segir af sér Omri Sharon, sonur Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær af sér þingmennsku eftir að hafa verið sakfelldur fyrir ólöglega fjármögnun kosningabaráttu. Omri tók við erlendum fjárframlögum til að standa straum af kosningabaráttu föður síns í Likud flokknum árið 1999 en erlend fjárframlög eru bönnuð samkvæmt kosningalögum í Ísrael. 4.1.2006 07:00
Tólf námuverkamenn í V-Virginíu fundust á lífi Tólf þeirra kolanámumanna sem festust inni í námu í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum snemma í gærmorgun, fundust á lífi í morgun. Þá var einn látinn. Óttast var að allir hefðu farist en mennirnir voru fastir á um eitt hundrað metra dýpi og sýndu mælingar mikið magn eiturefna í andrúmsloftinu í námunni. 4.1.2006 07:00
Námumennirnir enn lokaðir inni í Sago kolanámunni Ekki er enn búið að bjarga námumönnunum 13 sem lokuðust inni þegar sprenging varð í Sago kolanámunni í Virginíafylki í Bandaríkjunum um hádegi í gær. Óvíst er hversu lengi þeir geta lifað inn í námunni en súrefni er þar af skornum skammti. Mælingar gefa til kynna að kolsýringur mælist langt yfir hættumörkum þar sem mennirnir eru lokaðir inni. Ekki er enn vitað hvað olli sprengingunni en ekki er útilokað að neisti frá eldingu hafi orsakað sprenginguna. 3.1.2006 22:30
Námuverkamennirnir enn fastir í námunni Þrettán námuverkamenn eru enn milli heims og helju í námu í Virginíu í Bandaríkjunum og komast ekki út. Baneitrað kolmónoxíð hefur safnast upp í námunni. Leit að mönnunum stóð enn yfir á sjöunda tímanum í kvöld. 3.1.2006 18:56
Óttast um efnahag Úkraínumanna hækki verð á gasi Svo kann að fara að þjóðaframleiðsla Úkraínumanna lækki um fimm prósent á þessu ári og verðbólga aukist um allt að þrjátíu prósent ef verð á rússnesku gasi, sem selt er til Úkraínu, fjórfaldast líkt og Rússar hafa krafist. 3.1.2006 16:52
Íranar hefja kjarnorkurannsóknir á ný Íranar ætla að hefja kjarnorkurannsóknir á ný þrátt fyrir mikla andstöðu Bandaríkjamanna og Evrópusambandsins. 3.1.2006 16:47
Skipt um sjö undur veraldar Nýr listi yfir sjö undur veraldar verður kynntur við upphaf næsta árs. Aðeins eitt núverandi undur á möguleika á að halda sess sínu, það er Píramídarnir í Gíza í Egyptalandi. 3.1.2006 16:14
Neyðarástandi líklega aflétt í Frakklandi á morgun Jacques Chirac, Frakklandsforseti, tilkynnti í morgun að hann hyggðist afnema neyðarlög sem sett voru í nóvember vegna verstu óeirða þar í landi í tæpa fjóra áratugi. Búist er við að lögin verði afnumin formlega á morgun, rúmum sex vikum fyrr en upphaflega var áætlað. 3.1.2006 13:00
Stórfótaræði í Malasíu Einskonar Bigfoot- eða stórfótaræði hefur gripið um sig í Malasíu vegna fregna úr þjóðgarði þar sem herma að sést hafi til stórfótar, eða þriggja metra hárrar veru. Hún er sögð kafloðin eins og górilla en gangi upprétt á afturfótunum. 3.1.2006 12:45
Þrettán námuverkamenn sitja enn fastir Óvíst er um örlög þrettán námuverkamanna sem sitja fastir tæplega áttatíu metra fyrir neðan yfirborð jarðar eftir að sprenging varð í kolanámu í vesturhluta Virgínuríkis í Bandaríkjunum í gær. 3.1.2006 12:03
Heita að koma gasflutningum til V-Evrópu í samt horf Rússar hafa heitið því að koma gasflutningum til Vestur-Evrópu í samt horf eftir raskanir sem hafa orðið eftir að lokað var fyrir gas til Úkraínu á sunnudag vegna deilna um verðlag. Stjórnmálaskýrendur segja stjórnvöld í Rússland nota gasleiðslur til að fá sínu framgengt. 3.1.2006 11:45
Neyðarástand í Kaliforníu Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, hefur lýst yfir neyðarástandi í sjö sýslum í ríkinu vegna mikilla rigninga sem hafa valdið flóðum og aurskriðum. 3.1.2006 09:59
Lest ekið á fimm íslenska hesta í Danmörku Lögreglan í Köge á Jótlandi í Danmörku telur það ganga kraftaverki næst að morgunlestin, sem fór þar um að morgni nýjársdags, skyldi ekki fara út af sporinu, þegar henni var ekið á þó nokkri ferð á fimm íslenska hesta, sem voru á teinunum, með þeim afleiðingum að þeir drápust allir. 3.1.2006 09:45
Tólf skotnir í Nígeríu fyrir að reyna að stela olíu Öryggissveitir í Nígeríu skutu 12 manns til bana í gær eftir að mennirnir reyndu að stela olíu úr leiðslum í suðurhluta landsins. Að sögn fjölmiðla þar í landi hófst skotbardagi milli öryggissveitanna og mannanna eftir að eftirlitsmenn fundu þá við boranir. 3.1.2006 09:15
Þrír létust í flugskeytaárás Ísraela Að minnsta kosti þrír Palestínumenn féllu í flugskeytaárás Ísraela á bifreið í Jabalya flóttamannabúðunum á Gaza í gærkvöld. Ísraelar segja að í bílnum hafi verið liðsmenn palestínsku samtakanna Heilagt stríð. 3.1.2006 09:00
Snjókoma hamlar neyðaraðstoð í Pakistan Mikil snjókoma hefur hamlað aðstoð við eftirlifendur jarðskjálftanna í Kasmír en talið er að yfir þrjár milljónir manna séu nú heimilislausar. Vegir eru lokaðir og þyrlur í flugbanni sökum óveðursins. Flætt hefur inn í tjöld fólksins sem hírist nú í kulda á svæðinu en neyðarbirgðir hafa ekki borist fólkinu í þrjá daga. 3.1.2006 07:15
Sléttur brenna í Oklahoma og Texas Á vesturströnd Bandaríkjanna, þar sem er heitt og vindasamt, hafa slökkviliðsmenn í allan dag barist við mikla elda sem hafa breiðst um þurrar sléttur Oklahoma og Texas. 2.1.2006 21:03
Eldar blossuðu upp í Sidney í Ástralíu í dag Eldar blossuðu upp í Sidney í Ástralíu í dag og loguðu eldar þar á þúsundum hektara lands og náðu þeir mest þrjátíu metra hæð. Hitinn í Sidney fór mest í 44,2 gráður, og hefur ekki mælst svo mikill í borginni í heil 66 ár. 2.1.2006 21:02
Norður Karolína á kafi. Allt er nú á kafi í Norður Karólínu eftir að ár flæddu yfir bakka sína um helgina eftir mikklar rigningar á svæðinu. Tvær miklar vindhviður gengu yfir og nú er allt í aur og leðju á stórum svæðum. 2.1.2006 21:01
Á fjórða tug manna týndi lífi í Indónesíu Mikil flóð hafa verið í Indónesíu í dag og er talið að á fjórða tug manna hafi týnt lífi. Hundruð manna misstu heimili sín í flóðunum og hafast nú við í bænarhúsum og skólum. 2.1.2006 21:00