Rússar og Úkraínumenn komast að samkomulagi 4. janúar 2006 12:21
Rússar og Úkraínumenn hafa komist að samkomulagi í gasdeilunni. En rússneska gasfyrirtækið Gazprom lokaði fyrir gassölu til Úkraínu í fyrradag vegna ósættis um verðlag. Evrópskir fjölmiðlar segja gjörðir Rússa hafa gert heimsbyggðina tortryggna gagnvart Pútín forseta og stjórnvöldum í landinu. Gassamningurinn gildir til fimm ára og felur í sér verðhækkanir í áföngum. Deilurnar spruttu vegna þess að Rússar sökuðu Úkraínumenn um að stela gasi sem dælt er um Úkraínu til Vestur Evrópu og hækkuðu því verðið margfallt. Deila ríkjanna tveggja hefur haft áhrif víða í Evrópu en Evrópuríki fá um fjórðung þess gass sem þau nota, frá Rússlandi og um 80% af því gasi er flutt um leiðslur sem liggja yfir Úkraínu. Stjórnmálskýrendur segja málið snúast um stjórnmál frekar en peninga. Evrópskir fjölmiðlar hafa gagnrýnt stjórnvöld í Rússlandi fyrir að beita óábyrgum og óskynsamlegum aðferðum í gasdeilunni og að Pútín hafi gert ríki Evrópu tortryggin gagnvart sér og sinni stjórn. Breska blaðið Financial Times segir málið hafa skaðað ímynd Rússlands því augljóst sé að Pútín hafi verið að koma fram hefndum gegn Yushchenko, forseta Úkraínu. Segir blaðið lítinn mun á því að sýna fram á efnahagslegan styrk sinn og að senda skriðdreka inn í ríki til að refsa fyrir ótryggð eins og gert var á tímum Sovétríkjanna. Þá segir Herald Tribune í París hegðun rússneskra stjórnvalda óskynsamlega og grimma.
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira