Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hengdur í klefa sínum Einn alræmdasti fíkniefnasali Brasilíu fannst látinn í fangaklefa sínum í fangelsi í Rio de Janeiro. Marquinhos Niteroi hafði verið barinn illilega og síðan hengdur. Ljóst þótti að ekki væri um sjálfsmorð að ræða en ekki var vitað í fyrstu hver myrti hann. Niteroi deildi klefa með sjö öðrum föngum sem tilheyrðu sama fíkniefnagengi og hann. 11.9.2005 00:01
Mestu óeirðir í nær áratug Eldarnir í Belfast loguðu fram eftir degi í kjölfar mestu óeirða síðari ára sem brutust út í Belfast í fyrrinótt. Þúsundir baráttumanna úr röðum mótmælenda gengu berserksgang eftir að yfirvöld bönnuðu þeim að ganga um hverfi kaþólikka til að minnast sigra mótmælenda á kaþólikkum fyrr á öldum. 11.9.2005 00:01
Kosningabaráttan í algleymi Kosningabaráttan er hafin í aðdraganda fyrstu fjölflokkakosninganna í Sómalílandi, héraðs sem klauf sig frá Sómalíu og vonast nú eftir viðurkenningu alþjóðasamfélagsins. 246 frambjóðendur eru í boði, þar af fimm konur, en 82 sæti eru á þinginu. 11.9.2005 00:01
Tólf drukknuðu Í það minnsta tólf líkum skolaði upp að suðurströnd Sikileyjar í gærmorgun eftir að skip hlaðið ólöglegum innflytjendum lenti í sjávarháska undan ströndum eyjunnar. Talið er að fólkið sé allt frá Erítreu. Nokkrir táningar voru í hópi þeirra sem létust. Í það minnsta hundrað manns var bjargað úr skipinu og margir þeirra fluttir á sjúkrahús. 11.9.2005 00:01
Nær milljón flýði heimili sín Rúmlega átta hundruð þúsund Kínverjar höfðu verið fluttir á brott og meira en 35 þúsund bátum og skipum hafði verið snúið til hafnar þegar fellibylurinn Khanun skall á austurströnd Kína í gær. Ekki er vitað til þess að nokkurt mannfall hafi orðið en tjón varð mikið. 11.9.2005 00:01
Átök í kirkjugarðinum Átök brutust út þegar nokkur þúsund manns gengu um götur Santíago, höfuðborgar Chile, til að minnast þess að 32 ár væru liðin frá valdaráni Augustos Pinochet. Þrettán voru handteknir en ekki kom fram hvort einhverjir hefðu meiðst. 11.9.2005 00:01
Rafmagnað andrúmsloft á kjördag Nokkur atkvæði geta ráðið úrslitum um það hvort mynduð verður hægri- eða vinstristjórn að loknum kosningum til norska Stórþingsins sem fram fara í dag. 11.9.2005 00:01
Leyfir ekki sharíalög Ontarioríki í Kanada verður ekki fyrsta stjórnsýslustigið á Vesturlöndum til að heimila að sharíalög sem byggja á Íslam verði notuð til að skera úr um fjölskyldumál. 11.9.2005 00:01
Ráðherra sýnt morðtilræði Varnarmálaráðherra Afganistans slapp naumlega undan morðtilræði snemma í morgun. Ráðherrann var nýstiginn út úr bifreið sinni og kominn upp í þyrlu á flugvelli í höfuðborginni, Kabúl, þegar nokkrir byssumenn hófu skothríð á bifreiðina. Enginn særðist í árásinni og búið er að handtaka árásarmennina. 10.9.2005 00:01
Svartur blettur á ferli Powells Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist líða hryllilega yfir því að hafa fært fölsk rök fyrir öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Þetta kom fram í viðtali við hann hjá Barböru Walters á sjónvarpsstöðinni ABC í gærkvöldi. 10.9.2005 00:01
Mubarak hlaut 88,6% atkvæða Hosni Mubarak sigraði með yfirburðum í fyrstu lýðræðislegu forsetakosningunum í Egyptalandi. Mubarak hlaut 88,6% atkvæða og hefur því brátt sitt fimmta kjörtímabil sem forseti. 10.9.2005 00:01
Áhlaup á vígi uppreisnarmanna Írakskar og bandarískar hersveitir hófu í gærkvöldi skipulagt áhlaup á vígi uppreisnarmanna í borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks. Hermenn gengu í nótt hús úr húsi og byssugelt heyrðist víða um borgina. Borgin hefur verið gróðrastía sýrlenskra uppreisnarmanna sem hafa smyglað sér yfir landamærin til Íraks. 10.9.2005 00:01
Enn óljóst um skaða Enn er óljóst um skaðann sem jarðskjálftinn, sem skók Papúa Nýju-Gíneu í gær, olli. Ekki er búist við hann sé ýkja mikill en erfitt hefur reynst að fá upplýsingar vegna skorts á símum í þorpum landsins. Skjálftinn mældist 7,3 á Richter. 10.9.2005 00:01
Tala látinna líklega ofmetin Færri kunna að hafa látist af völdum fellibylsins Katrínar en fyrst var óttast. Starf björgunarsveitarmanna beinist nú fyrst og fremst að því að hafa uppi á líkum í New Orleans. 10.9.2005 00:01
140 uppreisnarmenn fallnir Meira en hundrað og fjörutíu uppreisnarmenn hafa fallið í árásum írakskra og bandarískra hersveita á borgina Tal Anfar í Írak. Hersveitirnar ætla á næstunni að gera skipulagt áhlaup á vígi uppreisnarmanna í fjórum borgum í viðbót. Aðgerðirnar eru einhverjar þær víðtækustu síðan ráðist var inn í Írak árið 2003. 10.9.2005 00:01
Danskir piltar sækja í húsverk Fjöldi pilta sem hóf nám við húsmæðra- og handverksskóla í Danmörku nú í haust hefur aldrei verið meiri. Samkvæmt <em>Politiken</em> í dag er þriðji hver nemandi karlkyns en var aðeins fimmtungur nemendafjöldans á síðasta ári. 10.9.2005 00:01
3 ferðamenn létust í Ástralíu Að minnsta kosti þrír eru látnir og sjö alvarlega slasaðir eftir árekstur smárútu og fólksbíls í Ástralíu í dag. Ekki hefur fengist staðfest þjóðerni fólksins en samkvæmt ástralskri sjónvarpsstöð voru ferðamenn frá Frakklandi, Þýskalandi og Suður-Kóreu á meðal rútufarþega. 10.9.2005 00:01
Tymosjenkó fer gegn Júsjenkó Júlía Tymosjenkó, sem rekin var úr stóli forsætisráðherra Úkraínu í fyrradag, segist ætla að bjóða sig fram ásamt hópi annarra frambjóðenda í næstu kosningum, sem fram eiga að fara á næsta ári, og freista þess að steypa Viktori Júsjenkó af forsetastóli. 10.9.2005 00:01
Byssumaður á kosningasamkomu Þýska lögreglan handtók mann sem skaut að minnsta kosti tíu skotum úr loftriffli á kosningasamkomu kristilegra demókrata í bænum Sinsheim í dag. Einn samkomugesta fékk skot í höndina og var fluttur á sjúkrahús. 10.9.2005 00:01
Landamærunum að Sýrlandi lokað Nú undir kvöld sagði innanríkisráðherra Íraks að ákveðið hefði verið að loka landamærunum að Sýrlandi, við borgina Mósúl, frá og með morgundeginum. Meira en 140 uppreisnarmenn hafa fallið í árásum írakskra og bandarískra hersveita á borgina Tal Anfar í Írak undanfarið en hún er sögð hafa verið gróðrastía sýrlenskra uppreisnarmanna sem hafi smyglað sér yfir landamærin. 10.9.2005 00:01
Bush aldrei óvinsælli Einungis 39 prósent Bandaríkjamanna eru sátt við frammistöðu George W. Bush sem forseta samkvæmt nýrri skoðanakönnun Ipsos fyrir AP-fréttastofuna. Er þetta í fyrsta skipti sem innan við fjörutíu prósent landsmanna eru sátt við frammistöðu hans í könnunum fyrirtækisins. 10.9.2005 00:01
Fer fram gegn Júsjenkó Júlía Timosjenkó, fyrrum forsætisráðherra Úkraínu, ætlar að stofna nýja stjórnmálahreyfingu og bjóða sig fram gegn Viktor Júsjenkó forseta í næstu forsetakosningum. Júsjenkó vék henni úr embætti forsætisráðherra á fimmtudag. 10.9.2005 00:01
Pappírsbeinagrindur vekja furðu Pappírsbeinagrindur sem blöstu við íbúum Caracas, höfuðborgar Venesúela, þegar þeir vöknuðu fyrr í vikunni valda borgarbúum furðu. Landsmenn hafa búið við blóðug mótmæli og ásakanir um samsæri gegn stjórnvöldum en beinagrindurnar, með árituð slagorð gegn stjórnvöldum, eru ólíkar öllu því sem landsmenn hafa áður kynnst. 10.9.2005 00:01
Mikilvægt skref fyrir lýðræðið Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, sigraði með yfirburðum í fyrstu forsetakosningum landsins þar sem kjósendur máttu velja á milli tveggja eða fleiri frambjóðenda. Mubarak fékk 88,6 prósent atkvæða en næstflest atkvæði fékk Ayman Nour, 7,3 prósent. 10.9.2005 00:01
Pólitískir vinir Bush Slæleg viðbrögð við fellibylnum Katrínu leiða til sífellt harðari gagnrýni á Bush Bandaríkjaforseta og nánustu samstarfsmenn hans. Colin Powell hefur nú bæst í hóp gagnrýnendanna og í dag var greint frá því að yfirmenn almannavarna væru ekki fagmenn heldur pólitískir vinir Bush. 9.9.2005 00:01
Ferðamaður í geimnum Tveir geimfarar, annar Rússi og hinn Bandaríkjamaður, búa sig nú undir geimskot og ferð til alþjóðlegu geimstöðvarinnar á sporbraut um jörðu. Þetta þættu tæpast tíðindi væri ekki Gregory nokkur Olsen um borð. Gregory er nefnilega ferðamaður sem greiddi rússnesku geimferðastofnuninni tuttugu milljónir dollara til að fá að fljóta með. 9.9.2005 00:01
Veltur á viðbrögðum Tymosjenkó Pólitísk framtíð Viktors Júsjenkós, forseta Úkraínu, veltur á því hvort Júlía Tymosjenkó sem hann rak í gær, snúist gegn honum eður ei. Júsjenkó rak Tymosjenkó, sem var forsætisráðherra, að sögn til að koma á friði innan ríkisstjórnarinnar og slá á ásakanir um græðgi og svindl innan stjórnarinnar. 9.9.2005 00:01