Fleiri fréttir

Stjórnarandstaðan tekin við völdum

Stjórnarandstaðan í Kirgistan hefur tilnefnt nýjan forseta og virðist hafa tekið við stjórnartaumunum um allt land. Stjórnarbylting var gerð í Kirgistan í gær þegar andstæðingar forsetans risu upp í miklum mótmælum og hrifsuðu völdin.

Óháð rannsókn verði heimiluð

Forsvarsmenn Sameinuðu þjóðanna hvetja stjórnvöld í Líbanon til að heimila alþjóðlega og óháða rannsókn á því hver myrti Rafik Hariri, forsætisráðherra landsins, í síðasta mánuði. Líbanonsstjórn hefur sjálf rannsakað málið en sú rannsókn þykir gölluð og óáreiðanleg.

Hægt að bjarga tugþúsundum barna

Hægt væri að bjarga lífi tugþúsunda barna í Afríku með því að bólusetja þau fyrir lungnabólgu. Þetta er niðurstaðan í nýrri tilraun sem gerð hefur verið. Það kom nokkuð á óvart hversu mikil áhrif slík bólusetning hefur en bólusetning gegn lungnabólgu og heilahimnubólgu á um 17 þúsund ungabörnum minnkar barnadauða um heil 16%.

Fuglaflensan herjar enn

Tala þeirra sem látist hafa úr fuglaflensu í Víetnam hækkar enn. Í dag var tilkynnt að 17 ára gömul stúlka hafi látist af völdum veirunnar í fyrradag og hafa þá 35 íbúar landsins látist af þeim sökum.

Vilja starfa með nýrri stjórn

Stjórnvöld í Rússlandi segjast reiðubúin að starfa með nýrri stjórn í Kirgistan og jafnframt að fyrrverandi forseti landsins gæti fengið hæli í Rússlandi. 

Fleiri ETA-meðlimir handteknir

Spænska lögreglan handtók þrjá meinta meðlimi ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska, í morgun. Mennirnir vorui handteknir í borginni San Sebastian og var töluvert magn vopna gert upptækt. Þetta er þriðja handtakan á aðilum sem taldir eru tengjast ETA á jafnmörgum dögum.

Blóðbaðið heldur áfram

Að minnsta kosti fjórtán eru látnir og tuttugu eru særðir eftir tvær sjálfmorðsárásir í Írak í dag. Ellefu hinna látnu voru sérsveitarmenn innan íröksku lögreglunnar sem létust þegar maður sprengdi sig í loft upp við eftirlitsstöð í borginni Ramadí. Þrír hinna særðu eru óbreyttir borgarar.

Útgöngubann og hervaldi beitt

Þingið í Kirgistan hefur beðið hin nýju stjórnvöld landsins um að lýsa yfir útgöngubanni í höfuðborginni, Bishkek, og jafnvel beita hervaldi vegna þess að fjöldi fólks fer um ruplandi og rænandi í kjölfar byltingarinnar sem gerð var í gær.

Hóta hryðjuverkum í Frakklandi

Bréf þar sem hótað er hryðjuverkum hafa borist Jacques Chirac, forseta Frakklands, og innanríkisráðuneyti landsins. Að sögn franskra yfirvalda vou bréfin send í gær og er þar farið fram á peningagreiðslu; að öðrum kosti muni eitthvað miður ánægjulegt eiga sér stað í maímánuði.

Krossfestir líkt og Kristur

Kristnir menn víða um heim minntust þjáningar Krists í dag og píslargöngu á Föstudaginn langa. Á Filippseyjum fengu spilltir og latir lögreglumenn tækifæri til aflausnar með því að endurleika píslargönguna og ellefu menn létu krossfesta sig.

Segist ennþá forseti Kirgistans

Forseti Kirgistans segist ekki hafa sagt af sér embætti og flúið land; hann sé aðeins fjarverandi tímabundið. Stjórnarandstaðan, sem rændi völdum í gær, hefur hins vegar tekið við stjórnartaumunum, tilnefnt nýjan forseta og boðað til kosninga. 

Liggur banaleguna

Rainier III fursti í Mónakó liggur nú á sóttarsæng á sjúkrahúsi í furstadæmi sínu og er vart hugað líf. Í gærkvöldi var hann í öndunarvél og voru læknar fámálir um batahorfur hans.

Mikill viðbúnaður

Bresk lögregluyfirvöld vinna nú myrkranna á milli við að skipuleggja öryggisgæslu við brúðkaup Karls Bretaprins og Camillu Parker-Bowles sem fram fer í næsta mánuði.

Vargöldin heldur áfram

Ellefu íraskir lögreglumenn biðu bana í Írak í fyrradag í sjálfsmorðssprengjárás. Þá voru fimm konur sem störfuðu sem túlkar skotnar til bana í Bagdad.

Stjórnarbylting í Kirgisistan

Stjórnvöldum í Kirgisistan var steypt af stóli á fimmtudaginn og hafa nýir valdhafar tekið við stjórnartaumunum. Byltingin fór að mestu friðsamlega fram þótt nokkrar róstur hafi verið í höfuðborginni.

Óeirðir í höfuðborg Kirgisistans

Menn hafa barist á götum úti í höfuðborg Kirgisistans, Bishkek, í morgun og stjórnarbylting virðist í uppsiglingu. Stöðugar róstur hafa veirð frá því kosningar fóru fram í landinu í síðasta mánuði, en upp úr sauð í dag. Stjórnarsinnar og stjórnarandstæðingar börðust á götum úti í kjölfar þess að þúsundir mótmæltu stjórn landsins og kröfðust afsagnar forsetans.

Ákærður fyrir aðild að tilræði

Ísraelskur arabi hefur verið ákærður fyrir morð, en hann hefur viðurkennt að hafa aðstoðað Palestínumann við sjálfsmorðsárás á næturklúbbi í Tel Aviv í lok febrúar þar sem fimm Ísraelar létust. Manninum er gefið að sök að hafa aðstoðað uppreisnarmenn innan samtakanna Heilagt stríð við að velja stað til þess að gera árás á og fyrir að hafa keypt skordýraeitur sem árásarmennirnir notuðu í sprengiefni.

Lögðu undir sig stjórnarráðið

Mótmælendur hafa lagt undir sig stjórnarráðsbygginguna, forsetaskrifstofuna og ríkissjónvarpið í höfuðborg Kirgisistans, Bishkek, eftir átök við herlögreglu og stjórnarsinna á götum úti í morgun.

Mannskæð sprenging í olíustöð

Að minnsta kosti fjórtán létust og 70 særðust í gríðarlega öflugri sprengingu sem varð í olíuhreinsunarstöð í Texas í Bandaríkjunum í gær. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Átján hundruð manns starfa við stöðina, sem er í eigu olíurisans BP, og er sumra þeirra enn saknað.

Segir að kosið verði aftur

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar og fyrrverandi forsætisráðherra Kirgisistans, Kurmanbek Bakiev, lýsti því yfir að kosið yrði aftur til þings í landinu eftir að stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar höfðu lagt undir sig stjórnarráðið og höfuðstöðvar ríkissjónvarpsins í höfuðborginni Bishkek fyrr í dag.

Ríkislögmaður efaðist um innrásina

Breska ríkisstjórnin er nú aftur lent í vandræðum vegna Íraksstríðsins en því er nú haldið fram að aðallögfræðingur ríkisstjórnarinnar hafi skipt um skoðun varðandi lögmæti innrásarinnar skömmu fyrir innrásina.

Féllu fyrir hendi samherja

Þrír írakskir hermenn og tveir lögreglumenn létust þegar þeir skutu hvorir á aðra, en báðir aðilar héldu að þeir ættu í höggi við uppreisnarmenn. Atburðurinn átti sér stað í bænum Rabia í Írak nærri landamærum Sýrlands og segja yfirvöld að átta til viðbótar hafi særst í bardaganum.

Flugvél hrapaði í Viktoríuvatn

Átta manna áhöfn lést þegar flutningavél steyptist ofan í Viktoríuvatn skömmu eftir flugtak frá Mwanza-flugvelli í Tansaníu seint í gærkvöld. Flugvélin var af gerðinni Ilyushin-76 og var skráð í Moldóvu en hún var á leiðinni til Khartúm, höfuðborgar Súdans, með fisk. Ekki er ljóst hvað olli því að hún hrapaði en skömmu eftir flugtak missti flugturninn samband við vélina og hún hvarf af ratsjá.

Friðargæsla SÞ fær yfirhalningu

Lagt er til að friðargæsla á vegum Sameinuðu þjóðanna verði tekin til rækilegrar endurskoðunar í nýrri skýrslu sem birt var í dag. Í henni er farið fram á að þeim friðargæsluliðum sem framið hafi kynferðisbrot gagnvart þurfandi fólki á hættusvæðum víða í heiminum verði refsað, laun þeirra verði lækkuð og komið á fót sjóði til að aðstoða þær konur og stúlkur sem þeir hafi barnað.

Ekkert vitað um Akajev

Ekki er vitað hvar Askar Akajev, forseti Kirgisistans, er niður kominn eftir að uppreisn var gerð í landinu. Stuðningsmenn stjórnarandstöðunnar lögðu undir sig stjórnarráðið og forsetaskrifstofuna í höfuðborginni Bishkek fyrr í dag, en til átaka kom á milli þeirra og stjórnarsinna og þegar þúsundir andstæðinga stjórnarinnar þustu út á götur og kröfðust afsagnar Akajevs vegna ásakana um að svindlað hafi verið í þingkosningum í síðasta mánuði.

Hæstiréttur hafnar kröfu foreldra

Hæstiréttur Bandaríkjanna hafnaði í dag kröfu foreldra Terriar Schiavo um að næringarslanga verði aftur tengd við hana, en hún var tekin úr Schiavo fyrir tæpri viku að skipan dómara í Flórída. Foreldrar Schiavo leituðu til Hæstaréttar eftir að alríkisdómari í Flórída og áfrýjunardómstóll í Atlanta höfðu hafnað kröfu þeirra.

Sagði að hengja ætti ráðamenn

Fyrstu skilaboð skákmeistarans til heimsbyggðarinnar, eftir að hann var látinn laus úr prísundinni í Japan, var að hengja ætti Bandaríkjaforseta og forsætisráðherra Japans.

Vilja Fischer enn framseldan

Adam Ereli, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, segir að þarlend stjórnvöld hafi óskað eftir því í gær að Japanar framseldu Fischer til Bandaríkjanna þrátt fyrir aðgerðir Íslendinga. Ereli sagði Bandaríkjamenn vonsvikna vegna þess að Íslendingar hefði veitt Fischer ríkisborgararétt enda væri hann glæpamaður á flótta.

Verslunarmiðstöð sprengd í Beirút

Tveir týndu lífi þegar sprengja sprakk í verslunarmiðstöð norður af Beirút í Líbanon í morgun. Fimm slösuðust. Veggir verslunarmiðstöðvarinnar þeyttust nánast út og þakið hrundi þegar sprengjan sprakk. Miðstöðin var lokuð þegar atvikið varð og því er talið að ekki hafi fleiri farist. Björgunarsveitir leita þó í rústunum.

Góð staða Verkamannaflokksins

Tony Blair vegnar vel í skoðanakönnun sem birt var í gær. Verkamannaflokkurinn er nú kominn með átta prósentustiga forskot á Íhaldsflokkinn og er það forskot einkum rakið til skattaívilnana sem kynntar voru í síðustu viku. Þær gagnast einkum efnalitlum, eldra fólki, ungum fjölskyldum og þeim sem standa í húsnæðiskaupum.

Gengur illa í lyfjameðferð

Jóhannesi Páli páfa öðrum gengur illa í lyfjameðferð sem hann undirgengst nú í kjölfar veikinda undanfarna mánuði. Ítalska fréttastofan <em>Apcom</em> greinir frá því að hann kasti upp í kjölfar lyfjagjafar, sé haldinn þrálátum höfuðverk og að lyfin hafi ekki tilætluð áhrif. Páfi er einnig sagður mjög veikburða í kjölfar aðgerða.

Seladráp að hefjast í Kanada

Seladráp hefst í Kanada í lok þessa mánaðar og stendur til að drepa 32 þúsund selskópa. Seladráp er árlegur viðburður í Kanada og það sagt nauðsynlegt til að viðhalda eðlilegri stærð á selastofninum. Umhverfisverndarsinnar og dýravinir mótmæla því harðlega og segja drápin ómannúðleg.

Segja að Fischer verði sleppt

Bobby Fischer verður sleppt úr haldi og fær ferðafrelsi til þess að fara til Íslands, að því er kemur fram í Kyodo News, en blaðið hefur þetta eftir japanska dómsmálaráðuneytinu. Þetta hefur ekki fengist staðfest en Reuters-fréttastofan greindi frá þessu fyrir stundu.

Innanríkisráðherrann látinn fjúka

Forseti Kirgisistans, Askar Akajev, rak í nótt innanríkisráðherra sinn. Akajev varð þannig við kröfum stjórnarandstæðinga sem mótmælt hafa með látum undanfarna daga. Hann neitaði þó að verða við kröfum um að láta sjálfur af embætti. Átök þjóðernishópa í landinu hafa magnast á liðnum dögum og segja stjórnmálaskýrendur hættu á að átökin breiðist út.

Vilja funda með Wolfowitz

Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkjanna hafa áhyggjur af tilnefningu Pauls Wolfowitz sem bankastjóri Alþjóðabankans. Þeir vilja funda með honum til að fá skýringar á því hvernig hann hyggist sinna starfanum. Þetta var ein niðurstaða ráðherrafundar sem nú stendur yfir í Brussel.

Spenna eykst vegna tilræðis

Reiði ríkir og spenna magnast í Líbanon í kjölfar sprengjutilræðis í verslunarmiðstöð skammt frá Beirút í morgun. Tveir týndu lífi og fimm særðust.

Líklega kosið 5. maí í Bretlandi

Öruggt er talið að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, blási til kosninga þar í landi 5. maí næstkomandi og að hann tilkynni þetta eftir helgi.

Næringarslanga ekki tengd aftur

Terri Schiavo deyr að líkindum innan hálfs mánaðar eftir að dómstólar tóku fyrir að næringarslanga yrði tengd við hana á ný.

Drápu 84 uppreisnarmenn

Írakskir og bandarískir hermenn drápu 84 uppreisnarmenn í árás á þjálfunarbúðir norður af Bagdad í gær. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti Íraks í dag. Margir þeirra sé féllu voru af erlendum uppruna, þar á meðal Sýrlendingar, Sádar auk Súdana, Alsíringa og Marokkóa. Bandarískar herþyrlur voru notaðar í bardaganum sem stóð í nokkrar klukkustundir.

Segir vanda Bandaríkjanna leystan

Takk Ísland, þið megið eiga Fischer, segir í fyrirsögn á vefútgáfu bandaríska blaðsins <em>Rocky Mountain News</em>. Þar segir að Íslendingum hafi nú fjölgað um einn og það sé vandræðaskákmaðurinn og gyðingahatarinn Bobby Fischer. Segir í grein blaðsins að þar með sé búið að leysa vanda Japans og það kunni að leysa vanda Bandaríkjanna að hann fari til Íslands.

Gripin með marmara á Akrópólishæð

Sextán ára kanadísk stúlka hefur verið ákærð fyrir þjófnað í Grikklandi, en hún reyndi að stela marmarabút á Akrópólishæð í Aþenu þar sem er að finna einhverjar merkustu fornleifar í heimi. Stúlkan var í skólaferðalagi með 34 öðrum kanadískum táningum þegar hún var tekin föst, en öryggisvörður við Akrópólishæð sá til stúlkunnar þegar hún reyndi að stela marmaranum og gerði lögreglu viðvart.

Sagður hafa mútað lögmanni

Saksóknari í Mílanó á Ítalíu rannsakar nú ásakanir á hendur Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, um að hann hafi mútað breskum lögmanni fyrir að þegja um viðskipti sín við fjölmiðlaveldi Berlusconis.

Sendi ekki veik börn úr landi

Rauði kross Svíþjóðar og samtökin Save the Children hafa hvatt sænsk yfirvöld til þess að hætta við að vísa úr landi 150 börnum sem sótt hafa um hæli og þjást af dularfullum sjúkdómi sem lýsir sér í því að þau hafa engan lífsvilja. Börnin sem komu með foreldrum sínum frá Miðausturlöndum, Balkanskaganum og lýðveldum Sovétríkjanna sálugu neita algerlega að hreyfa sig, tala og nærast og hafa þau fengið næringu í æð.

Slitu viðræðum við Írana

Þrjár valdamestu þjóðirnar innan Evrópusambandsins slitu í dag viðræðum við Írana, en þeim tókst ekki að fá þá til að hverfa frá kjarnorkuáætlun sinni. Bretland, Þýskaland og Frakkland hafa frá því í desember rætt það við Írana að þeir hættti algjörlega við að auðga úran til framleiðslu kjarnorkueldsneytis gegn efnahagsaðstoð, en óttast er að þeir hyggist koma sér upp kjarnorkuvopnum.

Fangar óttast pyntingar

Herréttarhöld eru hafin yfir nokkrum fanganna í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu. Það vekur vonir um að fleiri verði látnir lausir þaðan en að sama skapi er óttast menn um að fangarnir verði seldir í hendur ríkisstjórna sem gætu beitt þá pyntingum.

Sjá næstu 50 fréttir